Ísafold - 11.07.1883, Qupperneq 4
56
skepnurnar sjálfur eða aðrir, skal sæta
frá 2—20 kr., sektum í sveitarsjóð.
Frá J>orláki Guðmundssyni lfrv. um
stofnun kennaraembættis við gagnfræða-
skólann og alþýðuskólann í Flensborg,
sem sje skólastjóri og hafi að launum
2000 kr. úr landssjóði.
Prestakosningarlög, frv., borin upp
í efri deild, af Ben. Kristjánssyni, Ás-
geiri Einarssyni og Stefáni Eiríkssyni,
að miklu leyti samhljóða þeim, er þing-
ið samþykkti síðast, en stjórnin hafn-
aði. Munurinn sá helztur, að biskupi
er ekki gert að skyldu, að gefa hinum
kosna presti köllunarbrjef, heldur er
svo fyrir mælt, að ef hann synji um
staðfestingu, eigi sóknarmenn rjett á
að kjósa af nýju, unz biskup staðfestir
kosninguna og gefur hinum kosna köll-
unarbrjef.
Frumvarp til þurfamannalaga, upp
borið í neðri deild af Ben. Sveinssyni
og Tr. Gunnarssyni, í 17 greinum.
Upphaf: „þ>urfamaður er hver sá
maður, er eigi getur af eigin efnum
eða kröptum sjeð lífi sínu borgið, svo
hann hafi bæði nægilegt fæði og föt,
sem og venjulega fræðslu“. Ur 3. gr.:
„Að öðrum ástæðum jöfnum skal faðir
leggja hálfu meira en móðir barni
þeirra til framfæris“. Ur 13. gr.: „O-
hlýðnist þurfamaður ráðstöfun hrepps-
nefndar, er það skylda hreppstjóra, að
skerast í málið, og geti hann eigi
fengið þurfamanninn með góðu að
ganga til hlýðni, kærir hann málið
fyrir sýslumanni, er heldur honum til
hlýðni að við lögðum sektum eptir
málavöxtum".
Flugrit um latínuskólann. Eins
og kunnugt er, hafa nokkrir stúdentar
í Kaupmannahöfn látið prenta og breitt
út ílugrit um latínuskólann. Rit þessi
eru að miklu leyti byggð á óáreiðan-
legum brjefum einstakra manna frá
Reykjavík og eru einnig sjálf óáreið-
anleg. þ>ar er t. d. skólapiltum borið
það á brýn, að þeir færi kennurunum
sögur hver um annan. Tetta er alveg
gagnstætt sannleikanum. það er þvert
á móti regla skólapilta, eins og einnig
mun vera títt í öðrum löndum, að segja
eigi frá ávirðingum skólabræðra sinna.
fað sem einkum er fundið að í fiug-
ritum þessum er skólastjórnin, ogsjer í
lagi umsjónin í skólanum, og er þar
beinzt að einstökum nafngreindum mönn-
um, aðjúnktunum Birni Magnússym
Ólsen og Sigurði Sigurðarsym, þó eink-
um að hinum fyrra, sem aðalumsjónin
hvílir á; og er farið um þessa menn
þeim orðum, sem hlyti að rýra álit
þeirra og meiða mannorð þeirra, ef
þeim væri trúað. Birni Olsen er bor-
ið það á brýn, að hann beiti við skóla-
pilta, „hranaskap, hrottaskap, kúgunar-
valdi“ o. s. frv. Um Sigurð Sigurðar-
son er það gefið í skyn, að hans gæti
eigi sjálfs verulega sem umsjónar-
manns, heldur hleypi hann Birni Olsen
á foraðið, til þess að honum sjálfum
hlekkist síður á. Með því að sumir
kunna að ætla, að eitthvað sje satt í
þessum áburði, ef honum er eigi mót-
mælt, þá tel jeg það skyldu mína að
lýsa yfir því,' að slíkur áburður er ó-
sannur, og að eins og báðir umsjónar-
mennirnir eru heiðvirðir menn, eins
hafa þeir báðir gegnt umsjóninni sam-
vizkusamlega og sýnt skólapiltum alla
þá velvild og mannúð sem þem ber.
5/7 1883. 'Jón þorkelsson.
Auglýsingar.
ísafold d að koma útekki sjaldn-
ar en á hverjum miðvikudegi um ping-
tímann í sumar upp frá pessu.
það sem eptir er af pess-
um árgangi ísafoldar, til nýárs,
19 ilöð eða ef til vill freklega pað, að
pessu blaði meðtöldu, fæst keypt sjer
á parti fyrir tiltölulegt verð eða tæp-
lega pað, nefnil. 1 kr. 75 aura, en sem
borga verður fyrir fram, um leið og
blaðið er pantað. það sem sjer í lagi
mun fyrir að gangast, er greinilegar
frjettir frá alpingi og tíðari en gerzt
hefir að undanf örnu, nema sumarið sem
Alpingisfrjettablaðið kom út (1879J.
Gott vœri, að peir sem pessu boði vilja
sæta, gerðu við vart um pað sem allra-
fyrst.
Brúkuð íslenzk íríiuerki óskast
keypt fyrir peninga. Hvort mikið eða
lítið er sent, þá verður við því tekið og
borgunin send aptur með næsta pósti.
Utanáskript: Dawson & Co, 36 Haworth
Str. Cheetham, Manchester England.
Alls konar frímerki keypt og seld,
Agentum er óskað eptir. (C. 397).
Efnagóður dugnaðarmaður getur ef til
vill náð kaupum á einni af hinum mestu
hlynnindajörðum á Yesturlandi. Nánari
vísbending fæst hjá ritstjóra Isafoldar.
— Alþingistíðindin 1888, sem eiga
að koma út um þingtímann að miklu leyti,
í þrem bindum:
A. Umræður í efri deild og í samein-
uðu þingi,
B. Umræður í neðri deild,
C. þingskjölin,
fást til kaups hjá undirskrifuðum aðalút-
sölumanni og síðarmeir hjá umboðsmönn-
um mínum víðsvegar um land.
Kosta hept 3 kr., og eru send kaup-
endum kostnaðarlaust í 10 arka heptum,
mest með strandferðaskipunum og svo
með póstunum.
Innanbæjarmenn geta fengið tíðindin
jafnóðum, hverja örk samdægurs sem hún
kemur út, ef þeir vilja vitja þeirra til mín,
en þá verða þeir að kostasjálfir heptinguna.
Út eru komnar þegar 15 arkir framan
af þingskjalapartinum, stjórnarfrumvörpin,
prent. í Khöfn, og nokkuð af því sem
prentað er hjer.
Beykjavík 11. júlí 1883.
Kr. O. þorgrímsson.
Jörðin Núpur í Dýrafirði, með hjáleigunni
Kotnúp, samtals 24. 79 hdr.j að dýrleika
eptir nýja matinu, er til kaups og ábúðar á
næstkomandi vori. Framfleytir 8 kúm í
meðalári, og 300 fjár. Ágæt sauðbeit. í-
tök. þeir sem kaupa vilja, snúi sjer til óð-
alsbónda Guðmundar Bjarnarsonar á Núpi.
Prjónavjel ógölluð, nokkuð brúkuð,"Benr
kostað hefir 180 krónur, fæst til kaups fyr-
ir 130 kr. Ritstjórinn vísar á seljanda.
Vasaúr með hárfesti týndist 2. þ. m. á
Mosfellsheiði; hver sem finnur það er beð-
inn að skila því á afgreiðslustofu Isafoldar
gegn ríflegum fundarlaunum.
AHEITI til Sfrawáar-kirkju borguð [á
skrifstofu undirskrifaðs biskups frá 1. janú-
ar til 30. júní 1883. — f frá ónefndum
manni í Borgarfirði 2 kr.; ij- frá gömlum
Grindvíking 6; s. d. frá ónefndri stúlku í
Grindavíkurhr. 1; f frá ón. konu á Seltjarn-
arnesi 2; ^frá Andrjesi Jónssyni á Hryggj-
um 2 ; s. d. frá C. í Vogum 5; s. d. úr
Dalasýslu 1; ij- frá ón. af Vesturlandi 4;
f frá ón. stúlku í Selvogi 2 ; f frá ón. [Borg-
firðingi 5; f frá ón. bónda á Álptanesi 1;
s. d. frá ónefndri í Keflavík 5; f frá ó-
nefndum í Strandarhreppi 3 ; -2^. frá G. K.
á Skógarströnd 2: 50; fi8- frá ón. manni í
suðurhluta Gullbr.sýslu 10; s. d. frá manni
að vestan 10; s. d. frá ónefndum íReykja-
vík 1; f- frá ón. ekkju í Grímsneshreppi 3;
frá ón. stúlku 0 : 30 ; f frá R. (gjöf) 1;
f frá N. N. N. (sent með pósti) 30 ; f frá
ón. stúlku í Biskupstungum 1; frá ó-
nefndum í Árnessýslu 1; s. d. frá fátækri
stúlku 1; frá barni 1; frá ón. hjón-
um í Árnessýslu 10; -f frá ónefndum á
Seltjarnarnesi 1; frá ón. í Leiðvalla-
hr. 1; -2g9- frá ón. stúlku í Reykjavík 2; §
frá ón. stúlkuí Stokkseyrarhr. 2; f frá ón.
stúlku 1; frá ónefndum í Reykjavík 1;
s. d. frá ónefndum í þingeyjarsýslu 10;
Samtals 128 kr. 80 a.
Reykjavík 30. júní 1883.
P. Pjetursson.
Hugvekjur þær, er jeg hafði skýrt al-
menningi frá, að jeg hefði í áformi að gefa
út, eru nú alprentaðar og fást innbundnar
á skrifstofu minni fyrir 2 kr. 25a. Jeg vona
að menn geti sjeð að hugvekjur þessar eru
miklu ódýrari en slíkar bækur almennt gjör-
ast. Eins má geta nærri, að þær sjeu góð-
ar^ þar þær eru eptir svo marga ágæta
ræðumenn.
Reykjavík 6. júlí 1883.
P. Pjetursson.
Kvennaskólinn á Ytriey byrjar 7. okt.
næstk. og varir til 8. maí 1884. Inntaka í
skólann verður veitt tvisvar á skólatíman-
um, ef þess er æskt, nl. 7. okt. og 2. jan.
Námsmeyjarnar gefa með sjer 70 aura á
dag. Eorstöðukona skólans verður ungfrú
Elin Briem frá Reynistað.
Bónarbrjef um inntöku í skólann eiga að
sendast undirrituðum sem allra fyrst. Ná-
kvæmari upplýsingar verða auglýstar á
Sauðárkróki og BlöDduósi, enda getur hver
sem vill snúið sjer til forstöðunefndar skól-
ans, í því tilliti.
p. t. Reykjavík 3. júlí 1883.
I umboði forstöðunefndarinnar:
Björn Sigfússon
frá Hofi í Vatnsdal.
Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.