Ísafold - 22.09.1883, Blaðsíða 3
95
og ófullkomnar, ætla jeg að það myndi
til bóta, væri þeim fylgt. í þeim bai na-
skólum, sem jeg hefi átt kost á að
skoða, er ekkert tillit haft til þessa,
sem hjer er sagt. Borðin eru víðast
hvar lárjett, og svo breið, að ætlazt er
til, að börnin sitji allt í kringum þau,
en það er talið óhentugt, að börn snúi
hvort á móti öðru, því að það glepur
eptirtektina í kennslustundunum; auk
þess sem það er skaðlegt fyrir heilsu
þeirra, að skrifa við svo löguð borð,
eins og áður er á vikið. Bekkirnir eru
víða baklausir, og leiðir af því, að börn-
in sitja allt af hálfbogin, og getur það
orðið þeim að heilsutjóni með tímanum,
þó að lítið kunni að bera á í fyrstu.—
Við því má sjálfsagt búast, að menn
taki tillit til heilsu barnanna svo sem
verða má, þegar ný skólahús eru byggð
og eins að breytingar verði gjörðar á
þeim gömlu þar sem þær eru nauðsyn-
legar og þeim verður við komið að
kostnaðarlitlu. J. p.
Rúmfjöl síra Hallgríms Pjeturssonar.
I forngripasafninu er fjöldi rúmfjala. Eng-
ar engar eru þó eins merkar eins og
tvær.
Onnur þeirra er rúmfjöl Daða í Snóks-
dal. Hún er með upphækkuðum manna-
myndum, mjög vel gjörðum, og er hún elzt
allra rúmfjala, sem eg hygg muni til vera
á Islandi og þó víðar væri leitað. Hlýtur
hún að vera nær hálft fjórða hundrað ára
gömul, sjá Arbók Fornleifafjelagsins 1882,
bls. 93.
Hin er rúmfjöl síra Hallgríms Pjeturs-
sonar, og er allmerkilegt um hana. Hún
hefir geymzt alla tíð í Saurbæ eða í Per-
stiklu, þar sem síra Hallgrímur andaðist.
Jeg hefi í nokkur undanfarin ár sett til
menn að ná í hana, og hefir nú loks
tekizt það. Jón bóndi Sigurðsson sem orð-
inn er gamall maður og hefir búið langa
æfi á Ferstiklu, en er nú fluttur að Drag-
hálsi, hann átti fjölina og var á henni
mjög fastheldinn, sem von var. Loksins
gerði hann svo vel að láta mig fá hana
fyrir ekki mikið verð.
það er fullkomlega áreiðanlegt, að þetta
er rúmfjöl Hallgríms Pjeturssonar, því á
báða enda fjalarinnar eru skornir hringir
sem taka yfir alla breidd hennar, og stend-
ur innan í öðrum HPS (Hallgrímur
Pjeturs Son) og í hinum, til hægri handar,
GOD (Guðrún Odds Dóttir). þetta er
skorið með stórum stöfum, sem líkjast
helzt latínuletri. Eptir endilangri fjöl-
inni, allt í millum hringanna, er þetta
vers, skorið með höfðaletri, í fjórum lín-
um :
MILLE MYN OG ILLRA ANDA
EG SET HERRANS JESÚ PYN
MIER SVO pEIR EY MEIGI GRANDA
MILDUR GUD AF GIÆDSKU þY(N)
LANGT BURT FRA MIER LATTU ST.
Meira hefir ekki komizt fyrir á fjölinni af
versinu.
Fjölin er úr góðum grenivið, heil og ó-
skemmd. Hún hefir verið máluð rauð;
sjest vottur þess niðri í skurðinum; er
liturinn að öðru leyti slitinn af.
Reykjavík 20. sept. 1883
Siguróm Vigfússon.
Times-brjef Giuðhr. Yigfússonar og
Fróði. Herra Einari Asmundssyni í N esi
hefir verið kommanderað til þess, að lýsa
yfir því í Isafold, X 19, að sjer sje kunnugt
um, »að þýðing brjefs frá Guðbrandi Vigfús-
syni í Oxford, er stendur í Fróða 19. des.
1882, er eigi gerð af Jóni Hjaltalín skóla-
stjóra á Möðruvöllum«.
Eg leiddist til að eigna skólastjóra þýð-
inguna af því : 1., að málið á þýðingunni
er Jóns, o: þvf eins líkt og Jóns eigið væri.
—2., að misþýðingarnar eru svo einkanlega
settár niður honum sjálfum og vini hans
Guðbrandi 1 vil. — 3., að hann kom hand-
ritinu í prentsmiðjuna á Akureyri sjálfur.—
4., að herra Einar skrifaði mjer sjálfur 2.
marz þ. á. þannig : •— »Brjefi Guðbrandar
Vigfússonar var hjer snúið á íslenzku, áður
en hjer nyrðra var kunnugt, að önnur þýð-
ing þess hefði komið út í Skuld«.
Eg skal trúa því, að þýðingin sje ekki
eptir Jón, þegar rjettur þýðari gefur sig
fram. þangað til bið eg herra Einar mis-
virða ekki, að eg trúi ekki skýrslu hans.
þegar rjettur þýðari gefur sig fram, og segi
hann satt, skal Jóni koma sú afsökun frá
mjer, fyrir að hafa haft hann fyrir rangri
sök, er hann á skilið. Cambridge, 28. ágúst
1883. Eiríkr Magnússon.
Auglýsingar.
Til leigll frá næstu mánaðamótum
til vors: tvö góð herbergi á góðum
stað f bænum, nálægt latínuskólanum.
Nánari vísbending fæst á skrifstofu
ísafoldar.
Til leigu.
Frá i. október næstkom. fást til
leigu hjá mjer z herbergi með eða án
húsgagna.
Aíargrethe Siemsen
búandi á Hlíðarhúsastíg.
Við undirskrifaðar höfum áformað að
veita tilsögn í vetur í teikning og útsaumi
(Kunstbroderi) ef nógu margir nemendur
gefa sig fram. Borgun fyrir hvort um sig
verður 2 kr. mánaðarlega fyrir hvern nem-
anda. Kennslan fer fram einu sinni í hverri
viku 2 tíma í senn,
þær sem vildu sæta boði þessu snúi
sjer til annarar hvorrar okkar helzt fyrir
lok þessa mán.
Reykjavík 17. sept. 1883.
póra Pjetursdóttir. Sigríður Jónassen.
Af alþingistiðmdunum 1883 út komið nú,
22. sept.:
Skjalaparturinn allur (deildin C).
Umræður í efri deild og sameinuðu þingi
allar (deildin A). þó von á síðar framan
við það bindi efnisyfirliti yfir öll tíðindin,
en sem ekki verður búið til fyr en þau
eru öll fullprentuð.
Af umrœðum neðri deildar (deildinni B)
25 arkir.
Frímerki.
Brúkuð íslenzk frímerki kaupi jeg fyrir
hæsta verð.
Gef 2 kr. fyrir hundraðið af aura-frf-
merkjum, og 3 kr. fyrir hundraðið af skild-
inga-f rím erk j um.
(N. 6366) H. Hartmann
Valby, Kjöbenhavn.
Fyrir hjer ura bil 8 dögum hefir tapazt
úr gæzlu á Laugarnesi Ijósgrár hestur með
hvíta hófa, járnaður með 6 boruðum skeif-
um, góðgengur og frá 8—12 vetra gamall;
afrakaður seinni part vetrar og í stærra
meðallagi á vöxt.
Mark á hestinum man maður ekki, en
einkenni er: lítið ör með dökkunx díl
framan undir vinstra eyra.
Hesturinn er keyptur í sumar af Finn-
boga Kristóferssyni í Galtarholti.
þeir sem kynnu að verða varir við hest
þenna, eru beðnir að láta mig vita hvar hann
er niður kominn, gegn borgun.
Reykjavík, 22. sept. 1883.
Schierbeck.
Að þar til gefnu tilefni auglýsist hér
með, að utanbæarmönnum er ekki leyfi-
legt að taka beitu í landareign bæjarins;
þeir sem brjóta á móti þessu banni, verða
sektaðir að lögum.
Skrifstofa bæjarfógeta í Revkjvík,
17. sept. 1883.
E. Th. Jónassen.
Hjer með auglýsist, að ný eyðublöð
undir
skýrslu um andvanafædd börn,
— — holdsveika,
— til læknis, er hans er vitjað til
sængurkonu
eru nú til útbýtingar hjá amtmönnum,
og vil jeg mælast til, að allir hlutað-
eigendur noti þau eptirleiðis.
Landlæknirinn yfir íslandi:
Reykjavík, 22. sept. 1883,
Schierbeck.
Iðnaðarsýniiigin í lteykjavík.
Dómsnefnd hinnar íslenzku iðnaðarsýn-
ingar í Reykjavfk 1883, sú er nefnd er f ísa-
fold X 20, hefir ákveðið, að fyrir muni þá,
er á sýninguna voru sendir, eigi eptirfylgj-
andi persónur að fá heiðursviðurkenningu:
A. Heið'urspening úr silýri:
Anna Jónsdóttir á Hóli í Höfðahverfi,
fyrir vefnað.
Anna Knudsen á Skeggjastöðum á Langanes-
ströndum, fyrir útsaumaða kvennmynd.
Arni Gíslason í Reykjavík, fyrir 60 signets-
lökk og 2 signet.
Aslaug Stephensen í Viðey, fyrir kross-
ofna gólfábreiðu.
Astríður Melsteð í Rvík, fyrir málverk.
Benidikt Ásgrímsson í Rvík, fyrir gyllt
silfurkoffur.
Benidikt Gröndal í Rvík, fyrir málverk.
Einar Jónsson í Rvík, fyrir violin.
Eyjólfur þorkelsson í Rvík, fyrir 2 úr.
Friðrika Briem í Rvík, fyrir skatteraða
legubekkssessu.
Guðrún Gísladóttir Briem í Rvík, fyrir
flosaða tösku.
Guðrún Guðjohnsen í Rvík, fyrir gólfdúk
og vaðmál.