Ísafold - 17.10.1883, Síða 4
J
108
‘I*
fOliVALDUR JÓNSSON
(Árnasonar landsbókavarðar),
fæddur 19/7 1868, dáinn 26/9 1883.
Fífin og fjóla
fara nú að sofa,
haustið er komið, hvíldin nær.
Djúpt undir frosta
fannhvítri blæju
að vori lifna fræið fær.
Ungur frá æskn
ertu burtu genginn,
blómið úr fagri blómafjöld;
snemma var sofnað,
snemma var kallað,
snemma var þinnar sólar kvöld.
Títt falla tárin,
titrar sorg á vanga—
faðir og móðir þreyja þig;
fingurnir stirðir,
fögur þögnuð röddin,
og fuglinn litli felur sig.
Guðlegur geisli
góðrar æsku vonar
brotnaði djúpt í dauða sæ;
tómt er í húsi,
tekið burtu ljósið,
sem lýsa átti byggð og bæ.
Annar er geish
eptir samt í húsi
og lifir hjörtum alltaf í—
helið og dauðinn
hann fær aldrei brotið.
hann brýzt í gegnum böl og ský.
B. G.
Hitt og þetta.
— þjóðráð við atkvæðagreiðslu. pýzkur
þingmaður einn, Dr. Fahler, prestur i Baiern, hef-
ir fundið upp þjóðráð til að hafa með sjer meiri
hluta við hverja atkvæðagreiðslu. Hann átti fund
við kjósendur sína einu sinni i sumar og bar að
lokum undir atkvæði tillögu til fundarálykt-
unar, er honum var mjög annt um að næði fram
að ganga. Hann ljet greiða atkvæði með þessum
fyrirmælum: ,.peir sem aðhyllast uppástunguna,
standi hreifingarlausir, en hinir, sem vilja hafna
henni, gjöri svo vel að fleygja sjer niður á grúfu
kylliflatir1'. Uppástungan var samþyklct með öllum
atkvæðum, enda var þettaþiti á víðavangi og mjög
blautt um og óþokkalegt.
— Franskur hagfræðingur hefir birt á prenti
skýrslu um, hvað mikið eyðist af helztu matvælum
í París um árið eða rjettara sagt eyddist þar árið
l88r. Skýrslan er þannig :
Nautgripir fullorðnir . .
Kálfar . -...............
Sauðkindur ..............
Svín.....................
Smjör......................
Ostur....................
Fiskur...................
Fuglar...................
Skelfiskar (ostrur o. fl.)
355.446
195,692
. 2,116,186
. . 297,896
pd. 33,463,800
— 11,365,888
— 45,662,046
16,220,262
— 29,069,606
Töluvert af þessum matvælum er frá öðrum lönd-
um, þar á meðal t. d. 700,000 sauðkindur frá
þýzkalandi, 200,000 trá Austurrfki og Ungverja-
landi, 150,000 frá Rússlandi.
Fáein einföld. ráð til að gera sig veikan
eða heilsulausan :
Að borða of mikið og of ótt.
Að gleypa í sig matinn hálftugginn.
Að neyta áfengra drykkja.
Að fara seint að hátta og seint á fætur.
A.ð hafa svo þröng föt, að þau hepti blóðrásina.
Að vera illa skæddur.
Að hafa sífeldar innisetur frá morgni til lcvölds
Og dag eptir dag, helzt í slæmu lopti, sem hægast
er að vera sjer út um með því að hafa engan
glugga á hjörum, og þó gluggarnir sjeu á hjörum,
þá að ljúka þeim sem sjaldnast upp.
Að láta sjer vera kalt á höndum og einkum á
fótum.
Að hafa sem sjaldnast nærfataskipti og þvo sjer
því sjaldnar eða aldrei um kroppinn, því að þá
eru svitaholurnar stöðugt lokaðar af saur.
Að gera sjer skapraun eða áhyggju út úr hverju
smáræði.
Að taka inn meðul við hverju einu, sem maður
ímyndar sjer að að sjer gangi, og þá helzt skottu-
læknameðul eða einhver kynjalyf (arcana).
Að hafa enga reglu á máltiðum nje annari dag-
legri háttsemi.
Og loks að vera sem mest iðjulaus eða iðjulítill.
Fleira miklu mætti til tfna; en þetta, sem hjer
hefir verið nefnt, er allt svo handhægt og vanda-
laust, enda allmjög tíðkað.
Auglýsingar.
ÍWF* Nævsveitamenn eru beðnir að
gera svo vel að vitja ísafoldar á af-
greiðslustofu liennar, sem er í ísafold-
arprentsmiðju,viðBakarastiginn,l.sal.
Til sölu á afgreiðslustofu ísafoldar:
Gröndals Dýrafræði..................... 2:25
Gröndals Steinafræði .................. 1:80
Islandssaga þorkels Bjarnasonar....... 1:00
Ljóðmæli Gríms Thomsen ................ 1:00
Um sauðfjenað, eptir Guðm. Einarsson 0:90
U ndirstöðuatriði búfj árræktarinnar,
eptir sama...............'......... 0:ö0
Erlevs landafræði, önnur útgáfa....... 1:25
Um notkun manneldis í harðærum, ept-
ir Dr. J. JHjaltalín (1878)......... 0:30
Dönsk lesbók handa byr j öndum (S vb .H.) 1:00
pjÓÐ VINAFJELA GSBÆKUB 1883
til sölu á afgreiðslustofu Isafoldar:
Almanak þv.fjelagsins um árið 1884 (með
myndum) ....................... 0:50
Andvari IX. ár (með mynd)..... . 1:50
íslenzk- garðyrkjubók (með myndum) 1:25
Ejelagsmenn fá bækurnar allar fyrir árs-
tillagið, 2 kr.
Til sölu á afgreiðslustofu ísafoldar:
fs lenzk garðyrkjubók
eptir
Dr. C. F. Schiibeler,
háskólakennara í Kristjaníu.
íslenzkað og aukið hefir
Móritz Halldórsson-Fnffnksson,
læknir Kaupmannahöfn.
Með fjöldamörgum myndum.
Kostar hept 1 kr. 25 a.
fást á afgreiðslustofu ísafoldar. Kosta 20
aura.
Guðlaugur Guðmundsson
cand. juris
tekur að sjer málfærslu, innheimtan sk’l1ia,
ritun kaupbrjefa, skuldabrjefa, sammnga,
m. fl. og veitir lagalega teiðbeining þeim,
er þess æskja.
Heima kl. 5 — 7 em. (í húsi Jóns bónda
Ólafssonar við Hlíðarhúsastíg). Bvík
1883.
Orðasafn íslenzkt-enskt og enskt - ís-
lenzkt með lestraræfingum og málfræði,
eptir Jón A. Hjaltalín, innhept 4, 50 a.
Islenzka - enska orðasafnið eitt sjer, inn-
hept 1, 50 a. Fæst hjá flestum bókasölu-
mönnum á landinu.
Makúlatúr
18 til 20 au. pundið, fæst hjá
Jóni Ólafssyiii, ritstj.
Til sölu í vor að kemur Ibær hjer í
kaupstaðnum (Reykjavík) í bezta standi,
meðal annars með góðri eldamaskínu,
og stórum kálgarði. Nánari vísbending
fæst á afgreiðslustofu ísafoldar.
Snemma í sumar tapaði jeg jörpu
mertrippi 4 vetra ójárnuðu og afrök-
uðu, mark : blaðstýft aftan vinstra. Hver
sá sem hitta kynni er vinsamlega beðinn ,
um að hirða fyrir mig og gjöra mjer
aðvart um mót sanngjamrí borgun.
Lónshúsum í Garði þg 1883.
Jón Pálsson.
Fjármark Magnúsar Magnússonar á Efri-
Botum við Eyjafjöll: Stýft, gat og hang-
andi fjöður aptan hægra; stýft og hang-
andi fjöður aptan vinstra.
Nýkomið lijá
kaupmanni
Porl.Ó.Johnson:
Egta gott hveiti, pdið...
TIL JÓLANNA:
0,15
Jarðarber í krukkum................. 2,50
Stikkelsber do...................... 2,00
Hindber do..........................'... ,50
Marmelade do.........................2,00
Egta enskt eða kínverskt the, pdið..3,00
Cocoa, pdið......................... 1,30
Cornflour, pakkinn...................0,60
Nýtt Edinborgaröl
Agæt epli
Brjóstsykurinn ljúfi kominn aptur.
Einkunnabækub handa barnaskólum
nýjar og með nýju fyrirkomulagi, fást á af
greiðslustofu Isafoldar. Kosta innbundnar
20 aura.
Einkunnabækub handa alþýðuskólum
ÍS” Næsta blað kemur út miðvikudag
24. október.
Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í ísafoldarprentsmiðju.