Ísafold - 16.01.1884, Blaðsíða 3

Ísafold - 16.01.1884, Blaðsíða 3
11 væri heimska að breyta því, sem Lúter setti, og ætla, að vjer sjeum vitrari en hann. Framtíðarmennirnir segja : Vjer viljum skilnað ríkis og kirkju. Vjer viljum og heimtum frelsi, ekki að eins fyrir líkami vora og líkamleg efni vor, heldur og fyrir sálir vorar og sálarefni ; vjer þolum það ekki, að á hugsanir vorar sjeu lagðir fjötrar; vjer viljum láta hvern fylgja sinni sann- færingu, án þess að þurfa að hræsna með því að verða að játa eitt, en hugsa annað ; en hjá því verður eigi komizt meðan svo er, sem nú ; kirkjan, trúin, kristnin hefir skaða en ekki gagn af þess konar nauðung, af slíkri hræsni ; við það niðurlægist og veik- ist ef ekki hvorttveggja, þá að minnsta kosti kirkjan. Einn af oss segir : jeg trúi ekki á Jehóva gamla testamentisins, og þó trúi jeg á guð. Annar segir : jeg get ekki trúað á guðdóms- eðli Krists, og þó trúi jeg á guð. þriðji segir : jeg trúi ekki á heilagan anda, og þó trúi jeg á guð, osfrv. Allir þessir menn eru nú neyddir til þess að vera í ríkiskirkj- unni, og opinberlega játa öllu því, sem hún heimtar. En er það ekki að misbjóða frels- inu að fjötra hinn æðra part mannsins, sál- ina og hugsunina ? Jú. því viljum vjer, að hverjum manni sje heimilt að dýrka sinn guð eptir sínum vilja, án þess að ríkið og valdsmenn þess hafi þar nokkur afskipti af. Trúin er svo hvort sem er aldrei nema hjartans mesta einkamál, og kernur aldrei öðrum við. En hvað Lúter snertir, þá lýsir það hinum hraparlegasta misskilningi á honum og tilætlun hans, sem fortíðarmenn- irnirsegja. þá er Lúter sagði skilið viðpáf- ann og hóf flokk sinn á móti honum, þá fann hann það snjallræði, að setja kirkjuna fráföllnu undir konungvaldið, þvi að hann sá, að það var hið einasta vald, sem gat tekið hina nýstofnuðu máttlitlu kirkju á sínar náðir, og verið henni stoð og stytta; enda var það og einmitt þessu að þakka, hve fljótt hún breiddist út; konungarnir tóku þessu feginshendi; þá rak minni til Kanossa, til Innocents og Jóhanns land- lausa. En þótt Lúter væri svona skarpur og skýr, þá gat hann þó ekki sjeð, hvað verða mundi eptir 300—400 ára, og getur hann því ekki verið leiðtogi vor í öllu, sem ekki er von; en það er einmitt Lúter, sem vjer eigum að læra það af, að segja skilið við tímans fyrirkomulag, þegar þess gjörist þörf; fyrir því vinnum vjer einmitt eptir og í anda hans, er vjer viljum og heimtum, að losað sje um samvizku vora, sál og hugs- un í kirkjumálum og trúar. þetta segja framtíðarmennirnir, og það er eins með það sem hitt, að framtíðar- mennirnir eru framfaramenn fortfðarmenn- irnir eru apturhaldsmenn. Um veginn yfir Svínahraun. þó að ritað hafi verið nokkuð og rætt all- mikið um Svínahraunsveginn, mun þó ekki með öllu óþarft að bæta þar nokkru við. f>að sem fyrst og helzt á að hafa fyrir augum, þegar lagður er nýr vegur, er, að stefnan sje tekin sem beinust að unnt er til þess staðar, sem vegurinn á að liggja, enda var það þegar skipað með konungs- brjefi um vegina á Islandi 29. apríl 1776: «|>ar sem verður gjörist þeir og svo beinir, sem fært er, þar óþarfakrókar lýta þá bæði og lengja og gjöra mæðusamari». þetta voru nú orð einvaldskonungsins í Danmörku 100 árum áður en byrjað var að leggja veginn yfir Svínahraun, sem er aðal- þjóðleið og póstvegur yfir suður- og aust- urland til og frá Reykjavík og einhver hinn fjölfarnasti vegur á landinu. f>að getur komið fyrir, að halla verði til vegi með stefnuna, þegar landslagi er svo háttað, að það er of bratt eða einhverjar torfærur eru á leiðiuni, sem sneiða verður hjá ; en til að varast alla óþarfa króka, sem ekki ættu að eiga sjer stað, þarf að athuga alla leiðina fyrirfram vandlega af kunnugum og glöggskyggnum mönnum, bæði hvað snertir stefnu vegarins, efni til að gjöra hann 1 fyrstu og svo til að við halda hon- um. En hvernig hefir hessa verið gætt með Svínahraunsveginn ? f>að verður ekki sjeð, að annað hafi vakað fyrir þeim, sem rjeðu stefnunni, en að ná í gamla veginn fyrir neðan hraunið, þrátt fyrir það, þótt hann liggi allt annað en beina leið til Reykjavíkur, og svo er á þeirri leið víða ómögulegt að gjöra nokkra varanlega vega- bót, t. d. frá Lækjarbotni allt niður fyrir Hólm. f>að mun ekki of harður dómur, þó sagt sje um þessa vegagjörð í heild sinni, að hún sje eitt fjarskastórt axarskapt, marg- hlykkjótt og maðksmogið, og þó sumt af þessu óhappaverki megi dálítið afsaka með vanþekking, þá verður stærsti hlykkurinn á axarskaptinu, þ. e. stefnan, varla afsak- aður, með því það var komið inn í meðvit- und þjóðarinnar fyrir löngu síðan, að gjöra vegina beinni en hestarnir okkar höfðu lagt þá í öndverðu. Vegurinn er hjer um bil 650 föðmum lengri en hann þarf að vera yfir hraunið, og það er næsta sorglegt, þeg- ar slík verk sem þetta mistakast algjör- lega. Vegur þessi er á lengd 3045 faðmar og upphafiega kostaði hver faðmur í honum 4 kr. 52 a. eða alls 13763 kr. 40 a. Síðan hefir verið eytt næstliðin sumur til viðgerð- ar á honum svo þúsundum króna skiptir; en hvað mörg þúsund krónur muni þurfa til slíks viðhalds um hálfa eða heila öld, eins og vegurinn nú er, mun ekki auðvelt að segja. Hvernig viðgerðin á næstliðnu sumri hef- ir verið af hendi leyst gagnvart samningi við yfirvöldin, getum við ekki sagt neitt um, með því að við höfum ekki sjeð samn- inginn ; en það höfum við sjeð, að klyfja- hestum, sem reka átti eptir veginum, var eigi unnt að halda á honum nokkrum dög- um eptir að hætt var að gjöra við hann. En hvernig hann verður með aldrinum mun reynslan bezt sýna. Við höfum gjört okkur nokkurt ómak fyrir með aðstoð þriðja manns, að leiða sem bezt í ljós aðal-vansmíðið á veginum, áður en meiru fje er í hann eytt í nokkurs konar blindni, ef ske mætti, að farið yrði að þreyfa fyrir sjer. Eins og sjá má, einkum fyrir kunnuga, stefnir vegurinn fyrst vestur í hraunið, og er stefnan þá neðan til við Lyklafell, hjer um bil á Reykjavík. En svo tekur hann bráðum norðurslag, og stefnir þá hjer um bil á Kollafjörð. Síðan slakar hann til með hægð — og er þá rúmlega hálfnaður vegurinn yfir hraunið — þar til hann hefir aptur náð stefnunni nálægt því á Rvík, og henni heldur hann yfir miðhraunið, þar til eptir eru 1144 faðmar; þá fer hann að stefna meir til suðvesturs og færist þá jafn- þjettan úr leið, þar til hann stefnir nær- fellt 1 hásuður fyrir austan Vífilfell, og held- ur henni 47 faðma, svo að hvorki færist nær eða fjær Rvík, og ef þá er dregin bein lína eptir stefnum á Uppdrætti íslands, og veginum haldið áfram, kemur hann til sjáv- ar milli Selvogs og Herdísarvíkur. 1 raun rjettri nemur afvegaleiðslan 250 föðmum, að meðtöldum þessum 47. Minna hefði nú mátt gera að umtalsefni. En nú munu menn segja, að ekki sje nóg að setja út á þessa vegargjörð, heldur beri þeim, er mest að finna, að sýna, hvem veg hefði betur mátt fara, og einkum hvað nú sje til ráða í því óefni, sem í er komið með vegagjörðina yfir þetta annað Ódáða- hraun á Islandi. (það verður að líkindum ekki síður sögulegt á ókomnum öldum fyrir gagnslausa peningaeyðslu en Ódáðahraun fyrir útilegumenn). Upphaflega hefði það ekki átt að vera áhorfsmál, að leggja veginn að mestu fyrir norðan hraunið eða yfir Norðurvelli. þar var víða sjálfgerður vegur og óþrjótandi efni í upphleyptan veg, þar sem þess hefði þurft; að vísu hefði hann ekki getað orðið beinn til Reykjavíkur, en ekki hefðu krók- arnir þurft að vera margir, og aldrei hefði farið svo, að vegfarendur þokuðust hvorki fjær eða nær áfangastaðnum, þó þeir hjeldu

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.