Ísafold - 23.01.1884, Side 4

Ísafold - 23.01.1884, Side 4
16 is. Konan er búin sömu hæfilegleikum til sálar og líkama sem maðurinn, og getur því unnið allt hið sama sem maðurinn, og það vantar heldur ekki dæmi, beinlínis dæmi úr lífinu, þessu til sönnunar. Nú hefir konan hingað til að mestu ýmist ver- ið hugsunarlaus heimasæta, kjarklaus kona, einurðarlaus ekkja, eða þá guðsþakka-gam- almey alla æfi. f>að er þetta, sem vjer heimtum að verði breytt. Mæðurnar eiga ekki að láta sjer um það mest hugað að kló- festa einhvern tengdasoninn til þess að bera dæturnar á örmum sjer, heldur að ala þær svo upp, að, komi enginn tengdasonur- inn af sjálfum sjer, þá geti þær orðir sjálf- stæðir borgarar með sömu skyldum og sömu rjettindum sem bræður þeirra, og það er skylda vor að breyta svo lögum vor- um og landsvenjum, að frá þeirra hálfu sje ekkert í móti þessu. Konurnar eiga að geta orðið embættismenn, sýslumenn, prest- ar, læknar osfrv., alþingismenn og því um líkt, ef þær hafa þar til gáfur og menntun, alveg eins og vjer karlmennirnir. Vjer segjum alls ekki, að kvennmenn eigi að verða allt þetta; því fer fjarri; en vjer heimt- um, að þeim, sem vit hafa og vilja, á við oss, verði sem fyrst gefinn kostur á að verða það. þetta er frelsi, þetta er fram- farir, þetta er mannúð. Fortíðarmennirnir eru apturhaldsmenn. Framtíðarmennimir eru framfaramenn. HITT OG JhETTA.. — Veggurinn í Paradís. Aröbum er við- brugðið fyrir hjátrú. Hjer er eitt dæmi lítilsháttar, og ekki leugra á að minnast en i sumar er leið, þegar köleran gekk á Egiptalandi. Hún lagðist langt um þyngra á Múhamedstrúarmenn (Araba) en annan landslýð, af þeirri eðlilegu orsök, að þeir eru frámunalega óþrifnir og hirðulausir um hvað eina, er að hollustu lýtur. Aröbum sjálfum þótti það nú kynlegt, að þeir skyldu missa margfallt fleiri að tiltölu úr kólerunni, þótt þeir hefðu rjetta trú, heldur en hinir vantrúuðu, þ. e. kristnir menn; gerðu því menn á fund æðsta prestsins í Kairó og spurðu hann, hvernig á því stæði, að Drottinn þyrmdi hinum heiðnu hunduæ, en ljeti hinn rjett- trúaða lýð hrynja niður unnvörpum. Æðsti prest- urinn ljezt þurfa að hugsa málið og bað sendimenn koma aptur að degi liðnum. ]>eir gerðu svo. Hann var þá fróðari en áður: kvað erki-engil hafa vitrazt sjer og birt sjer þau tíðindi úr Paradís, að þar væri nýlega hruninn veggur «inn mikill og merkilegur, og þyrfti Drottinn á miklum mannafla að halda til að koma honum upp aptur ; fyrir því kallaði hann nú til sin hið mesta mannval, er hann ætti hjer á jarðriki. Aröbum fannst mikið um þessi tiðindi, og hörmuðu það mest hver um sig, að hafa eigi orðið þeirrar náðar aðnjótandi að lenda í þessu mikla og veglega útboði. AUGLÝSINQAR samfeldu máli m. smáleiri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hverl orá 15 slaía frekasí; m. öcra leln eía setning 1 kr. Ijrá þumlung dálks-lengdar. Borgun úlí hönd. Húspostilla P. Pétrssonar. Hér með gjöri ég almenningi kunnugt, að í byrj- un næsta mánaðar byrja ég að prenta Helgi- daga-pr édikanir Pétrs biskups Pótrs- sonar, með nýju og skíru letri á góðan pappír, og vanda allan frágang sem mér er bezt unt. Prentun- inni ætlast ég til að verði lokið svo snemma á þessu ári, að bókin verði send til bóksölumanna út um landið með strandsiglingaskipunum næsta sumar.— Óbundin (hept) verðr postillan seld á 4 kr., en bundin í gott band 6 kr., eins og áðr. — Bæna- kver biskupsins verðr og prentað ið fyrsta. Reykjayík io. janúar 1884. Sigm. Guðmundsson. Brúkuð íslenzk póstfrímerki og þjónustufrímerki kaupir J. Kyster í Kolding. Hérmeð skal brýnt fyrir bæjarbúum, að eigi er leyfilegt án samþykkis bæj- arstjórnarinnar að kljúfa steina nálægt ströndinni eða í fjörunni í umdæmi bœjarins eða sprengja þá nje flytja þá þaðan burtu. Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík 4. janúar 1884. E. Th. Jónassen. Með því hinn núverandi SÓTABI hjer i hœnum hefur sagt af sjer þessum starfa, frá 15. marz nœstkomandi, geta þeir, sem vilja taka þessa sýslan að sjer eptirleiðis, sótt um hana til bœjarstjómarinnar innan 1. marz næstkomandi. Skrifstofu hœjarfógeta í Beykjavík, Y 1884. E. Th. Jónassen. Nyjar hugvekjur til kvöldlestra frá veturnottum til langa- föstu eptir mesta núlifandi ræðusnill- ing íslands verða prentaðar á mitt forlag á komanda sumri og sendar út um allt land með strandferða-skipum. Verðið verður mjög lágt, og skal aug- lýsa síðar, er boðsbrjef verður útsent. Rvík 10/j 1884. Kr. Ó. þorgrímsson. Föstuhugvekjur k0ma sömu- leiðis út á mitt forlag með það fyrsta. iSsrá pað skal fram tekið, að guðsorða- bækur þær, er jeg gef út, eru hvorki útlagðar né tTEKNAB TIL LÁNS« hjá útlendum höfundum nje innlendum. Helga-postilla kostar í kápu 6 kr. | í alskinni 8 kr. „|>að sem einkenndi ræður Helga biskups var kraptur og næm tilfiuning, svo að margir báru hann saman vió hinn fræga biskup Jón Vidalín". [,,Berlinga-tíðindi“ 14. febr. 1868. Sjá „Baldur“ 15. mai s. á.] Kr. O. porgrímsson. Hundrað krónur skal sá fá og mega vitja til undirskrifaðs, sem án tilhlutunar lögreglustjórnarinnar gefr mér þær upp- lýsingar, sem leiða til að koma því upp, hverjir það voru, sem réðust á Gísla Hallgrímsson á Kols- holti nóttina milli þess 14. 0g 15. septbr. síðastl. Hver sem þetta kynni geta, skyldi gæta þess, að um leið og hann vinnr sér ærna peninga, sem ella eru ekki gripnir upp fyrir lítilræði, gjörir hann að auki kærleiksverk, þar sem aðför þessi að Gísla er borin upp á saklausan mann, sem óséð er um, hverjar afleiðingar hefi fyrir hann Og hans nákomn- ustu. J>etta boð gildir til I. apríl næstkomandi, en leng- ur ekki. Stóru-Mástungu (Biskupst.) 1-1-84. Kolbeinn Eiríksson. I næstkomandi fardögum verður heimajörðin Brautarholt laus til ábúðar, í hið minnsta hálf. Hjer er í óskilum brún hryssa, veturgömul, mark gagnfjaðrað vinstra. Rjettur eigandi getur vitjað hennar hingað til 8. febrúar, ef hann borgar áfall- inn kostnað; eptir þann tíma verður hún seld við uppboð. Keldum 14. jan. 1884. Guðni Guðnason. Handa ekkjum og munaðarleysingjum eptir skiptapana 7. og 8. þ. m. hafa ritstjóra ísa- foldar þegar verið afhentar þessar gjafir: Pjetur Pjetursson biskup..................100 kr. Halberg hóteleigandi...................... 25 — \ Jón |>orkelsson rektor.................... 20 — j þorlákur Ó. Johnson kaupmaður ... 20 — Björn Jensson adjunkt 5 kr., Jón Jensson landritari 5, Indriði Einarsson revisor 5, Kr. Ó. í>orgrímsson bóksali 5, Jóhannes Ólafssonyfirrjettarprókúrator 2, Sigm. Guð- mundss. prentsm.eigandi 4, ritstj.Isaf. sjálfur 10 36 — Samtals 201 kr. Almanak þjóðvinafjelagsins um árið 1884 er enn til sölu á afgreiðslustofu ísafoldar. Kostar 50 a. „þJÓÐÓLFR“ XXXVI. árg. .f» I. kom út 12. þ. m. Efni ; Um auglýsingaverð. —Bókmentir („Helgapostilla11 eftir þ.)_Innl. fréttir. — Breyt- ing á embættisprófi (í málfrœði). — Ránskaparárás i Arnessýslu. Hitt og þetta. — Auglýsingar. Jl/tf 2 kom út 19. þ. m. Efni: Minningarljóð eftir Kristján amtmann (Stgr. Th.). — Um þilskipa- útveg og þilskipaformensku (eftir Markús Bjarna- son, skipstj.). — Hvað er þá að ? (um stjórnar- mál íslands, eptir Ritstj.). — Meira um skiptjón- in. — Mannal. — Augl. — Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. phil. Prentsmiðja ísafoldar.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.