Ísafold - 19.03.1884, Síða 1
[emur út á miðvikudagsmorjna. Verí
árgangsins (5Ö arka) 4 kr.; erlendis
5b. Borjist tjrir miojan júl’mánuð.
ISAFOLD.
Uppsögn (sknfl.) bundm við áramóLó
jild Eema komin sje lil úlg. tjrir 1. okt.
Atjreiíslusloia i Isaíoldarprenlsm. i. sal-
XI 12.
Reykjavik, mióvikudaginn 19. marzmán.
18 84.
45. Innlcndar frjettir.
40. ísland og harðindin (kvæði eptir Matthías
Jochumsson).
47. Útlendar frjettir.
48. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I 2.
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2.
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3.
Póstar fara frá Rvík 25. (n.) og 26. (a. Og v.) þ. m.
Póstskip fer frá Rvík 23. þ. m.
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4 —5«
Veðurathuganir í Keykjavík, eptir Dr. I. Jónassen
Marz Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
á nóttu um hád. fm. em. fm. em.
M. 12. -f- I + 4 29.3 29.2 Nab Na b h
F. 13. -t- 1 + 4 29.1 28,9 Na hvd Nah d
F. 14. -i— 2 + 6 28,8 28,8 0 b 0 h
L. 15. + 2 + ■» 29,1 29.3 0 b 0 b
S. 16. + 2 + 8 29.3 29,0 S.i d h Sa d h
M. 17. + 2 + 5 29,0 28,9 S d hv 0 d
p. 18. 0 + 3 29,0 29.1 0 b N h d
Athgr. Alla vikuna hefir veður verið óvenjulega
hlýtt, vindur optast frá austri eða landsuðri með
nokkurri úrkomu, stundum nokkuð hvass, en hæg-
ur eðarjett að segja logn ogblíðaþess á milli. Veðráttu-
far það sem af er þessum mánuði, er rjett alveg eins
og árið 1880 í marz, þá var allur klaki úr jörðu
20. mánaðarins. f>á var aldrei frost á nóttu úr því
nema 2. og 5. apríl (-^- 1 og -r 2, 5).
Reykjavik 19. marz.
Póstskip kom (Laura) 13. þ. m. um
kvöldið; fór 2. frá Khöfn. Með þvf komu
cand. juris Skúli Thoroddsen, kaupmennirn-
ir Snæbjörn þorvaldsson af Akranesi og Jón
Arnason í þorlákshöfn.
Póstskipið brá sjer upp á Akranes í gœr.
Fer þangað aftur í ágústferðinni f sumar,
og ef til vill optar, ef flutningur býðst þang-
að frá Khöfn.
Ný lög. Staðfest af konungi 2Q. febr.
þessi ein lög frá síðasta alþingi, af níu, er
eptir voru síðast:
24. Lög er breyta tilskipun 5. sept. 1794
(skottulækningalögin).
Af hinum er þegar búið að synja stað-
festingar á lögunum um fiskiveiðar hlutafje-
laga og einstakra manna í landhelgi við
Island.
þetta hefir Færeyingurinn staðið sig !
Brauöayeitingar. Reykholt í gær
háskóla-kand. f guðfræði þórhalli Bjarnar-
syni. Holtaþing 15. þ. m. síra Ólafi Ólafs-
syni að Vogsósum.
Hæstarjettardóiuur í Elliðaár-kistu-
brotsmálinu, upp kveðinn 18. janúar
1884.—xJafnvel þótt upp kveðið hafi verið
með hæstarjettardómi 8. maí 1883, að þver-
girðingar þær, er Thomsen kaupmaður í
Reykjavík hafði sett í Elliðaárnar, færi í
bága við lög 11. maí 1876, 2. gr., verður
þó athæfi það, er hinum ákærðu er borið á
brýn og sem um er rætt í hinum áfrýjaða
dómi: að rífa með sjálfræði úr ánum hinar
áminnztu þvergirðingar, eigi álitið ósaknæmt,
eins og þau hafa haldið, heldur á það und-
ir 298. gr. hinna íslenzku hegningariaga,
eins og farið er fram í dómnum, og sömu-
leiðis undir opinbera málsókn samkvæmt
2. kafla þeirrar greinar.
En með því að sönnun vantar fyrir þvi,
að þeir meðal hinna ákærðu, sem nefndir
eru við 9. og 30. tölulið í dómnum, Valdi-
mar Asmundarson og Arni Arnason,
hafi átt nokkurn þátt í áminnztu athæfi,
verður að dæma þá sýkna af ákæru sókn-
araas.
Að því er til hinna kemur, er þess að
geta, að, eins og til greint er í dómnum,
þá voru liðin tvö ár, frá því að ofríkisverk
þau, sem gerðust 5. júní 1879, nóttina
milli 24. og 25. s. m., og 25. júlí s. á., voru
framin, áður en þau voru lögléga átalin
fyrir rjetti, og að hegning sú, er hlutað-
eigendur meðal hinna ákærðu höfðu til
unnið hver um sig fyrir hlutdeild í þessum
ofríkisverkum, mundi eigi hafa orðið þyngri,
en einfalt fangelsi; þar af leiðir, samkvæmt
67. gr. hegningarlaganna, að hegning sú,
er þeir meðal hinna ákærðu, sem að eins
hafa átt þátt í nýnefndum þrennum ofríkis-
verkum,hafa til unnið, fellur niður, og á þetta
heima á þeim 27, sem nefndir eru í dómn-
um við töluliðina 1—3, 7,8, 10—29, 32 og 33.
f>ar á móti ber að dæma þau meðal
hinna ákærðu, sem nefnd eru við 4., 5., 6.
og 31. tölul. í dómnum : Bergstein Jónsson,
Martein Jónsson, þorbjörgu Sveinsdóttur
og Arna Jónsson, sem sek í ofríkisverki því,
er framið var nóttina milli 5. og 6. júlí
1880, eptir 298. gr. hegningarlaganna, sam-
anborinni við 52. gr. að því er þörbjörgu
snertir, og við 49. gr. að því er Arna við
kemur, og virðist mega ákveða hegninguna
til handa hverju þeirra um sig 8 daga ein-
falt fangelsi. þessi fjögur ákærðu eiga auk
þess að greiða hvert með öðru fjórða hluta
af öllum málskostnaði, en hina £ hlutina
ber eptir atvikum að lúka af almannafje.
Skaðabœtur virðast eigi geta orðið dæmdar
Thomsen kaupmanni í þessu máh, eptir
þeim skýrslum, sem fyrir hendi eru .
því dcemist rjett að vera:
Valdimar Ásmundsson og Árni Ámason
eiga af kæru sóknarans í þessu máli sýknir
að vera. Bergstein Jónsson, Martein Jóns-
son, porbj'irgu Sveinsdóttur og Árna Jóns-
son skal setja í einfalt fangelsi i 8 daga
hvert. Hegning sú, er hinir 27 hafa til
unnið, fellur niður. Málskostnað, þar á
meðal málfœrslulaun þau, sem til eru tekin
i kommissións-dómnum, i málsfœrslulaun
handa hcBstarjettar-málfœrslumónnunum Hal-
kier og Hindenburg fyrir hæstarjetti, 100
kr. hvorum, og 20 kr. til Hindenburgs fyrir
fram lagðan kostnað, greiði þau að fjórða
hluta, Bergsteinn Jónsson, Marteinn Jons-
son, porbjörg Sveinsdottir og Árni Junsson
eitt fyrir öll og öll fyrir eitt, en f hlutir
lúkist af almannafje*.
—Mál þetta var, eins og kunnugt er,
prófað og dæmt í hjeraði af sjerstaklega
skipuðum dómara, Jóni heitnum landritara
Jónssyni, eptir konunglegri umboðsskrá 1.
júlí 1881. Hans dómi, uppkveðnum 22.
maí 1882, og skotið beint til hæstarjettar,
munaði lítið frá þessum hæstarjettardómi:
þessi fjögur hin sömu sakfelld og dæmd,
ekki í fangélsi, heldur sektir, 5—40 kr., og
enn frómur í skaðabætur, en hinir 29
sýknir.
—Sú klausa í 7. gr. laga 11. maí 1876,
sem vitnað er til í dómnum og þar er átt
við, hljóðar þannig: *Oll ólögnuet veiði-
áhöld skulu upptcek og ólöglegir veiðigarðar
óhelgir«.
Hin tilvitnaða 298. gr. í hegningarlögun-
hljóðar þannig: »Ef að nokkur maður
annars af ásettu ráði ónýtir eða skemmir
eigur annars manns, skal hann sæta sektum
eða fangelsi, ef að breytni hans á ekki und-
ir aðra þyngri hegningarákvörðun. Opin-
bera málssókn skal þvi að eins höfða, að al-
mennum friði hafi verið raskað eða brotið
á móti ákvörðunum um lögreglu«.
Einbættispróf við háskólann. Skúli
(Jónsson) Thoroddsen í lögum 19. jan.
með 1. einkunn.
liókmenntafjelagsfund ur í Khöfn
27. febr. Sett 5 manna nefnd f málið um
að leggja niður Hafnardeildina, og úrslitum
þar með frestað.
Vöruverð í Khöf'n 1. marz. það
sem eptir var óselt þar af ull, vorull, frá
því í haust, hafði selzt á 62 a. sunnl., og
65£ a. norðl. Haustull 54 a. A Englandi
sunnl. ull í 60 aurum (8 d.), norðl. 64
« d.).
Saltfiskur óseljandi á Spáni og Englandi
Ekkert selzt heldur í vetur í Khöfn fyr en
rjett nýlega nokkuð af stórum fiski á 48 kr.
40 kr., og loks ekki nema 30 kr. skippund-