Ísafold - 18.06.1884, Side 1
Ksmur 5! á miðvikudajsinorjna. Verí
árgangsins (50 arka) 4 ir.; er.sndis
5 kr. Borgist tjrir miðjan júl:mánuB.
ÍSAFOLD.
Dppsöjn (sknfl.) irandin vi? sramót, ó-
jild nema komin sje til úlg. Ijrir 1. okt.
AtjreiSslustoia i lsafoldarprenlsm. 1. sal.
XI 25
Reykjavik, miðvikudaginn 18. júnimán.
18 84.
97. Innlendar frjettir. Útlendar frjettir. Eptir-
lifendur drukknaðra.
98. Búnaðarskólinn í Ólafsdal (niðurlag). Viðvör-
un um Brama-lífs-elixír.
99. Dálítið um Bókmenntafjelagið (niðurlag).
100. Auglýsingar.
Brauð ný-losnað : Borg á Mýrum. 1052.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I — 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3
Póstar fara frá Rvík : austanpóstur ?o. júní, hinir 28.
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4~5
Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Júnf. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu|um hád. fm. em. fm. em.
M. II. + 6 + 10 29,2 29.3 A d h Sv h d
F. 12. + 5 + 8 29,4 29.5 Sv hv d Sv hv d
F. 13. + 3 + 9 2Q.6 3° V b h 0 b
L. 14. 1 5 + 8 30 3° Sa d h Sa dh
S. 15. + 5 + 12 29.9 29,9 Sa d h d h
M. 16. + 5 + 10 29,9 29.9 Sa d h Sa b h
Þ- i-j. + 5 + IO 29,9 29,9 Sa d h Sa d h
Athgr. Fyrri part vikunnar bljes vindur frá út-
suðri með skúrum; síðan hefir verið eindreginn
landsynningur með talsverðri úrkomu, sem vökvað
hefir jörðina og er grasvöxtur því nú í bezta lagi*
í dag 17. hægur á landsunnan með rigningu. Lopt-
þyngdamælir hefir varla hreyft sig í marga daga.
Reykjavík, 18. júní 1884.
Fjárkláðirm. Að norðan engarnýjar
frjettir um hann, nema hvað hans á að
hafa orðið vart í Skagafirði líka í vor að tölu-
verðum mun.
Nú á einnig að vera kominn upp kláði í
Borgarfirði. Er eiukum til nefndur einn
bær, Eyri í Flókadal. |>ó munu ekki fengin
enn rök fyrir því, að það sje reglulegur
maurakláði. Amtmaður hefir gjört fyrir-
skipanir um aðskilnað og böðun hins sjúka
fjár, en ekki þótt ástæða til að fara frekara
í sakirnar að svo stöddu.
Vegi'ræðiiigurinii norski, Nils Hov-
denak ingenieur, fór hjeðan austur til Seyðis-
fjarðar með póstskipinu 11. þ. m., eptir
fyrirlagi landshöfðingja, til þess að segja
fyrir um vegagjörð þar eystra í sumar, eínk-
um á Vestdalsheiði, eptir beiðni sýslunefnd-
arinnar í Norðurmúlasýslu í vetur, og sem
landshöfðÍDgi hefir veitt til 1500 kr. í sumar.
Vegfræðinguriun á ekki að vera hjer lengur
en fram í september, og er ekki ætlazt til að
hann vinni neitt hjer í suðuramtinu.
Fiskifræðiiigurinn , herra Arthur
Feddersen, á að fyrirlagi landshöfðingja að
byrja leiðbeiningar sínar í Suður-þingeyjars.,
eptir tilmælum sýslunefndarinnar þar, koma
síðan suður hingað á áliðnu sumri í Árnes-
sýslu, sem líka hefir beðið um hann, og loks,
ef hægt er, að vera eitthvað í Borgarfirði.
Aflabrögð. Norðanpóstur segir
komna mikla síldargöngu á Eyjafjörð. A
ísafirði mjög fiskilítið enn. Hvalveiða-
manninum, norska þar (Foyn) gengið illa
til þess. A Akranesi góður afii fyrstu vik-
una af þessum mánuði, mest af ýsu. Hjer
um nesin reytingur, góður hjá sumum, en
almennt rýr.
Veðurátt vætusöm um tíma og hálf-
kalsaleg, þó nægileg gróðrarhlýindi, enda
útlit fyrir ágætan grasvöxt. Hvítasunnu-
hret hefir gert um land allt, eptir því sem
til hefir spurzt, laugardagskvöldið fyrir
hvítasunnu, með töluverðri snjókomu, eink-
um fyrir norðan, en sem tók upp undir eins.
Fjárskaði nokkur varð í Gnúpverjahrepp í
þessu kasti: fje króknaði út af, nýrúið og
nýhleypt á fja.ll.
Kveðjusending frá Norvegi. Með
síðasta póstskipi kom svolátandi málþráðar-
skeyti, dags. 19. maí og stílað til rangnefnds
alþingismanns (Isleifsson) í Eeykjavík :
tMinni íslenzkra fostbrœðra var drukkið
af frjálslunduðum þrændum í Lifangri á
frelsisdegi Norvegs« [17. mat].
Utlendar frjettir,
Frá Vín. Nýr leikhúsbruni. f>að
var Stadttheater, eitt hið bezta og fjölsótt-
asta leikhús borgarinnar, sem fyrir skömmu
brann að köldum kolum. En sá var mun-
urinn frá síðasta brunanum, að hjer missti
enginn lífið.
Frakkland. Málalok í Tonkin svo sem
Frakkar vildu hafa, og friðarforspjöll við
Sínlendinga undirskrifuð 11. maí. Anam
og Tonkin á valdi Frakka og undir þeirra
forsjá. Sínlendingar kveðja sveitir sínar á
braut, og leyfa aðgöngu til verzlunar í 3
löndum sínum syðstu (Yunnan, Kuang-Si og
Kuang-Tang), og með því móti sleppa þeir
hjá herkostnaðargjaldi.
Anieríka. í New-York mikið banka-
hrun og stórkaupmannafellir. Sá landskjálfti
farinn að rjena, er seinast heyrðist, enda
höfðu komið til borgarinnar eitthvað um 50
miljónir dollara frá öðrum borgum Banda-
ríkjanna og frá Evrópu, þeim til stuðnings,
er valt stóðu og að falli reiddi. Menn segja
að Grant hershöfðingi (sigurhetjan) sje einn
af þeim, sem liafa orðið öreiga í þeim um-
brotum.
Skip tvö rákust á í Atlanzhafi snemma f
maí, gufuskip enskt með fjölda ferðafólks,
á austurleið, og seglskip frá Nýju-Brúnsvík.
þau sukku bæði. Af gufuskipinu, sem hjet
State of Florida, varð 44 mönnum bjargað,
af 167; á hinu drukknuðu 12.
Eptiriifendur drukknaðra.
Um leið ogjeg skírskota til reiknings þess,
er stendur aptar í blaðinu yfir eigur «styrkt-
arsjóðs handa ekkjum og börnum drukkn-
aðra manna í Kjalarnesþingin, skal jeg leyfa
mjer að skýra það enn einu sinni fyrir al-
menningi, að sjóður þessi, sem stofuaður er
með samskotum, samkv. konungsúrskurði
24. júní 1840, stendur undir umsjón og stjórn
þessara manna: sýslumannsins í Kjósar-
og Gullbringusýslu, prófastsins í Kjalarnes-
þingi, bæjarfógetans í Reykjavík, 1 manns
úrbæjarstjórn Reykjavíkur, dómkirkjuprests-
ins samastaðar og eins manns úr Seltjarnar-
neshreppi, er amtmaður á að skipa til þess.
Ætlunarverk sjóðsins er að hjálpa ekkjum
og börnum þeirra manna, er drukkna í fiski-
róðrum frá Reykjavík eða úr Kjalarnesþingi,
hvaðan af landinu sem þeir svo eru. Síðan
þessi sjóður fór að efnast nokkuð, sem hefir
verið nú um nokkurn tíma, því honum hafa
opt hlotnazt talsverðar gjafir fyrir áskorun
stjórnar sjóðsins, hefir um langan tíma ár-
lega verið veittur styrkur úr honum bág-
8töddum ekkjum og börnum drukknaðra
manna, er komið hefir þeim til mikilla nota;
hefir styrkur þessi verið um 200 kr. á ári
og varið til þess vöxtum sjóðsins, því höfuð-
stólinn má ekki skerða nema mjög mikið
liggi við; sjóður þessi hefir því gjört mjög
mikið gagn; en þetta gagn er að eins mjög
lítið í samanburði við það gagn, ér hann ætti
að geta unnið, ef landsmenn þeir allir, er
stunda sjó við Faxafióa, og sjerstaklega þeir
fiskimenn, er þar búa og notið geta styrkt-
ar úr sjóðnum handa konum og börnum
sínum, vildu leggja að eins lítið gjald árlega
í þennan sjóð, því með því móti mundi
sjóður þessi fljótt fá vöxt og viðgang; en
því er ver og miður, að fiskimenn við Faxa-
fla hafa hingað til, að undantéknum Sel-
tjerningum, Iítið styrkt þennan sjóð.
-—|>ó skal þess hér að verðugleikum getið,
að Jón Árnason sál. tómthúsmaður og bæj-
arfulltrúi í Stöðlakoti í Reykjavík gaf sjóðn-
um allar eigur sínar í föstu og lausu, hér um
bil 3000 kr. virði, en sjóðurinn er eigi enn þá
farinn að njóta arðsins af þessum eigum,
þar eð Jón sál. hafði áskilið,að fátæktskyld-
menni hans skyldi njóta arðsins af þeim
æfilangt.—
Jeg leyfi mjer því hjer með, að undirlagi