Ísafold - 02.07.1884, Síða 1

Ísafold - 02.07.1884, Síða 1
íeiuur lít i imðvikudigsíaorjiia. íerí árjangsins (50 arka) 4 kt.; srleudis 5i:r. Borjist 'jnr miðjan júiinánaí. ISAFOLD. Uppsöjn (skr.íl) tedin r? inaié!,* jiid seiaa koiain 3j! lil útg. ijr:r!. ál iIjHiisiusloia taíoidarpienlsm. 1, saí. XI 27. Reykjavik, miðvikudaginn 2. júlímán. 18 8 4. 105. Innlendar frjettir. Vestan um haf. 106. Reikningsskil og stjörnarröggsemi. Enn um ekkjur og börn drukknaðra. 107. Hitt og þetta. Auglýsingar. 108. Augiýsingar._________________________________ Brauð ný-losnað: Mosfell í Grímsnesi 30/6 ... 863 Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I 2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 útián md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4~5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J .Jónassen Hiti (Cels.) | Lþmælir Veðurátt. Júní. ánóttu|umhád.| fm. | em. fm. | em. M. 25. + 5 4- 10 29,8 29.7 V h b V h b F. 26. + 5 + 11 29,8 29,8 Sa h d Sa h d F. 27. + 6 + 10 29,8 29,7 Sahv d Sa hv d L. 28. 4 6 + 12 29,9 29,8 V h b 0 d S. 29. + 5 + 29,2 29> A h d S hv d M. 30. + 5 + 11 29.5 29,6 S h b A h d í*. 1. + 6 + 11 29,6 29,6 Sa hv d Sa hv d Athgr. Dmliðna viku hefir veður verið óstöðugt og vætusamt, og hefir vindur optast blásið frá S. eða Sa. Má varla heita að komið hafi nokkur dagur, sem eigi hefir rignt meira eða minna. í dag I. landsunnanhvass og dimmviðri með mikilli úrkomu. Reykjavik 2. júlí 1884. Brauð reitt. Árnes 28. júní síra Ey- ólfi Jónssyni á Mosfelli í Grímsnesi. Póstskipið Rorniiy lagði af stað hjeð- an til Khafnar í gærmorgun. Með því fóru meðal annara kaupmennirnir Bryde, W. Fischer og konsúl Smith. Landlæknir Seliierheck ferðaðist með póstskipinu til Kaupmannahafnar, með- al annars til þess að vera á allsherjar- læknafundi, sem þar á að halda dagana 10. til 16. ágúst. Strandferðaskipið Laura lagði af stað í fyrri nótt vestur um land og norður, með hjer um bil 160 farþega og talsverðan flutning. Cainoens, lirossakaupaskip Slinions, kom hjer 25. júní, með nokkra enska ferðamenn, og fór aptur 28. með um 400 hesta og um 40 vesturfara. Próf í forspjallsvísinduin við presta- skólann 28. júní: Oddur Jónsson ágætl.; Friðrik Jónsson, Ólafur Ólafsson og Stefán Gíslason dável; Ólafur Guðmundsson dá- vel-i- ; Jón Jónsson vel +. Latínuskólanuin var sagt upp 30. júní. Nýsveinapróf var haldið 28. júní, að- alprófið, og fengu 17 inntöku : 1 í 3. bekk, 1 í 2., hinir í 1. bekk. Frá íslendingum í Ameríku. Til samanburðar við hina glæsilegu lýsing á lífinu í Ameríku, sem Leifur hefir að færa, þetta blað sem er út býtt hjer um land gef- ins fyrir peninga frá Canadastjórn, er ekki, ófróðlegt að lesa eptirfarandi brjefkafla frá íslendingi í Winnipeg, valinkunnum manni og vel greindum, dags. 4. maí þ. á. «Menn tala hjer um framfarir; en eg get ekki sjeð þær eða samþykkt, og þó þeir skrifi heim ýmsar gróðavonir sínar, og að þeir hafi það svo og svo gott; því af öllum þeim hóp, sem lifir hjer í Winnipeg af lönd- um, sem mun vera um 6 til 700 manns, sje jeg nú ekki einn einasta, einhleypan eða húsföður, sem græði hið minnsta ; þeir beztu halda vel við að fæða sig og klæða; hinir í meiri og minni skuldum ; því þó þeir hafi mikið skrifað um gróðafjelagið hjer, og önn- ur fjelög meðal landa í þessum bæ, þá hefir það á þessu ári að mestu rokið um koll og lítið annað en skaði og skuldir; því virðing- ar á eignunum er lítið að marka, því á þeim hvílir meiri og minni pantur fyrir gömlum peningalánum ; en eptir þessu hlaupa menn heima og ýmsu fleira, og meina sig að grípa himin höndum hingað að koma og að auð- velt sje að hafa sig hjer upp í peningalegu tilliti*.— -—«Tíðin hefir í vetur og vor ver- ið allt af köld til þessa tíma, að undantekn- um 14 dögum um mánaðamótin marz og apríl, en síðan hafa verið miklir umhleyp- ingar með regnstormum og krapa, og stund- um mikið frost, og nú er kúldastormur á norðaustan ; sáning gengur mjög seint, því jörðín er eins og heili; atvinna mjög lítil; kaupgjald lágt, 1 doll. 25 c. á dag (hjer um bil 4 kr. 70 a.), en fæðið yfir mánuðinn frá frá 16 til 18 doll. (hjer um bil 60 til 67 kr.), og dregst því seint saman fyrir daglauna- manninn ; en kvennfólk í vistum fær 5—10 doll. (18—37 kr), karlmenn 10—15 doll. (37—55 kr.); en úr þessu verður lítið, þar sem vinnumaðurinn og vinnukonan verða að klæða sig og skæða; að eg ekki tali um þá, sem leggjast í víndrykkju; þeir hafa aldrei neitt, og eru sjálfum sjer og öðrum til niðurdreps og andstyggðar*. Flugurit. í prentsmiðju Einars f»órð- arsonar í Evík hefir verið prentað fyrir skemmstu dálftið flugurit, sem er megnasti óhróður um einn sýslumann hjer sunnan- lands og undirskrifað af manni, sem kvað hafa tekið sjer far til Vesturheims með Ca- moens samdægurs sem ritið kom út, gjör- andi með því einu orð sín og athæfi mjög tortryggilegt. f>að er eigi að síður sjálf- sagður hlutur, að hlutaðeigandi sýslumanni muni verða skipað að hreinsa sig undan hinum stórkostlegu sakargiptum í ritlingi þessum, og það því fremur sem höfundur- inn segir þær vera alkunnar. Vestan um haf. Kveðja til Norðmarm. Austan um haf ofrarðu hdtt þ'mum geislandi staf fagra frelsisdis feigð er þjer ei vis— hdtt yfr Dofra nii Herfuður hlœr og hýrar eru Freyja þd og Saga og bdrurnar glymja og brosir við scer því bjarta heyrum vjer um frelsis daga. Vestur um ver þar vesí ld og þrœlhanin eintóm er fagra fr.dsisdis feigð er þar þjer vís— þar eru svipur og þar eru bund og þar er vaJcin ósamlyndis dlda og holskeflur falla d holgrafna strund og hjartað frís í þrœldóminum katda. llvað erum vjer ? hjartveikir aumingjar rjett eins og ber ! finnum fjarran óm frelsis hvellan róm bergmdla homrunum fornu frd þar feður vorir nutu œsku-daga þar vígroða sló yfir valfallinn nd og Valhöll glumdi hdtt af strengjum Braga. Fjallkonan fríð, fórst' aldrei áður i keppni og strið? dáinn ertu, Jon ! ddðlaus þjóð um frón ! •divide et impera*—danskurinn hlcer og drcgur allt með hagðar-leik i sundur— Ijómar á Eiðsvelli morguninn mœr— en murlandi þegir eins og hundur ! Vcstan um ver vindarnir beri samt heilsan þjer norðurhjarans hlif hjarta kraptur líf þú eldgamla frœgðar og forneskjustrund frelsisröðuls gullnum leiptruð stöfum — fornaldar rumskandi hjarta og hönd hristir sig í forfeðranna gröfum. eftc h. §zönda(.1 I) „en ikke ubekendt islandsk Fcríatter og Digteru segir Gústav Storm (í „Minder fra en Is- landsfærd 1874“, pag. 45).

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.