Ísafold - 02.07.1884, Side 2

Ísafold - 02.07.1884, Side 2
ÍOG Reikningsskil og stjómarröggsemi. Lögmálið hljóðar þannig, þ. e. reglu - gjörðin frá 1873 um opinber reikningsskil og heimtingu opinberra gjalda á Islandi, 8. grein : »Ef reikningshaldari gjörir ekki reikning í tækan tíma—þ. e- innan loka febrúarmán- aðar næsta eptir lok reikningsársins, eptir 2. gr. sömu reglugjörðar—eða hann stendur í skuld eptir reikningi þeim, sem fram er kominn, má hann ekki halda áfram að heimta saman opinber gjöld fyr en hann hefir gjört tilhlýðilegan reikning eða borgað skuld sína. þegar þannig er ástatt, skal landshöfðingi annaðhvort víkja hlutaðeiganda frá emb ætti hans eða sýslu um stundar sakir, eða, ef það kann að þykja hagfeldara í éinstöku tilfelli, setja annan mann til þess fyrst um sinn á kostnað reikningshaldarans að he imta saman gjöld þau, sem greiða ber á næsta eindaga, t a. m. skatt og gjöld á næsta manntalsþingi, landskuld í næstu fardög- um o. fl.« þetta er strangt lögmál, og betur að sú yrði ekki raunin á hjer sem optar, að því strangari sem lög eru, því minna er hirt um að hlýða þeim. það er vitaskuld, að þeim, sem til þess eru settir að fram fylgja lögunum og sjá um að þeim sje hlýtt, er engan vegin ábyrgðar- laust að vanrækja þá skyldu sína, sízt þegar mikið er í húfi. En sú ábyrgö er því miður opt nokkuð óákveðin og því hættu- lítil í augum hlutaðeiganda. Hefði t. d. það staðið líka í þessari reglugjörð, livað við lægi.ef landshöfðingja *í einstöku tilfelli þætti hagfeldara« að beita henni alls ekki, að honum t. a. m. varðaði það embættismissi, þá er ótrúlegt að vjer hefðum af að segja öðru eins og dæmi og því sem uú skal greina: Eyrir hjer um bil tveimur árum var einn af sýslumönnum landsins orðinn svo brot- legur gegn þessari reglugjörð, að landshöfð- inginn, sem þá var, var búinn að hóta hon- um afsetningu. það varð sýslumanninum þá til líknar, að sá landshöfðingi fór frá embættinu áður en að því kom að fram- kvæma hótunina. því ekki bætti hann ráð sitt, heldur munu vanskilin hafa farið vax- andi eptir það og allt til þessa dags. 1 stað þess að borga gjöldin í jarðabókar- sjóð eða aðalfjehirzluna jafnóðum og þau eru heimt saman og láta fylgja skilagrein um hvers kyns þau eru, sendir þessi sýslu- maður einhverntíma og einhverntima eitt- hvað og eitthvað, skilagreinarlaust, án þess að hægt sje að hafa nokkra hugmynd um, hvaö skilunum líður. I stað þess að gjöra ársreikinginn innan loka febrúarmánaðar, kemur hann ekki fyr en missiri seinna eða þar um bil, eða ef til vill enn þá seinna. Aðrar áríðandi skýrslur vantar frá hon- um svo árum skiptir. Athugasemdum endurskoðanda ekki svar- að svo árum skiptir. Og annað eptir þessu. Allt um það situr maðurinn í sínu em- bætti í góðu yfirlæti, nema hvað hann fær kannske sektarúrskurð með öðrum hvorum pósti,—sektin takist af gjöldunum, sem hann ekki stendur skil á!—, og svo hitt, að launum hans hefir verið haldið inni í 8—9 mánuði. En í embættinu situr hann fastur allt um það, og öll gjöld heimtar hann allt um það sjálfur, eptirlitalaust, eins og allt væri í bezta lagi. Landstjórnin hlýtur að vita, að allt þetta er komið í hámæli fyrir löngu síðan. f>að lítur út fyrir að hún hafi ekki mjög hitann í haldinu, fyrir alþingi t. a. m. Hver veit nema henni verði líka að þeirri trú sinni, að þar sje ekki mikinn háska að óttast, allt hvað landssjóður bíður ekki því meira fjártjón af. Meira að segja : hver veit nema niðurstaðan verði sii, að lands- höfðingi fái skjall fyrir mannúð sina við hinn brotlega reikningshaldara, og að nán- asti eptirlitsmaður reikningshaldarans, amt- maðurinn, milliliðurinní landsstjóminni, sem vjer vitum að farsæld lands og lýða liggur við að ekki sje burtu kippt, verði svo kos- inn aptur eins og síðast til yfirskoðunar- manns landsreikninganna af þingsins hálfu, kosinn til að yfirskoða reikninga sjálfs sín og reikningshaldarans, sem hann hefir svo röggsamlegt eptirlit með. Enn um ekkjur og börn drukknaðra. Ekknasjnður drukknaðra manna í Borgarfjarðarsýslu 11. júní 1884 kr. a. á í veðbrjefum einstakra manna með vöxtum 4 af hundraði................ 720 00 - í veðbrjefum, þar sem allir véxtir eru eptirgefnir................... 250 00 - í sparisjóði í Reykjavík með vöxt- um 3J af hundraði ................ 434 00 síðustu ársvextir ................. 28 80 Til samans 1432 80 þessi litli sjóður, sem til er orðin handa ekkjum drukknaðra manna í Borgarfjarðar- sýslu af samskotum einstarka manna, var 11. júní 1876 1104 krónur í veðskuldabrjef- um ýmsra manna með vöxtum 4 af hundraði. Eptir það var farið að lána ýmsum ekkjum, sem styrktar þurftu, nokkurt fje leigulaust, svo viðgangur sjóðsins tafðist við það. í fyrra vetur gjörðu menn hjer eina atlögu til að auka hann og mæltust bæði til peninga- samskota og að hver formaður skipti sjóðn- um hlut af því fari, er hann reri á sumar- daginn fyrsta (1883). Sumir tóku vel undir þetta, lofuðu því og entu það ; aðrir lofuðu líka og entu það ekki, og nokkrir gjörðu hvorugt. I stuttu máli varð árangurinn sá: að 2 skpd 90 pd af saltfiski söfnuðust frá 31 formanni og 45 kr. 50 a. í peningum frá 15 gefendnm innan og utan sveitar; þessir pen- ingar voru strax lagðir við upphæð sjóðsins; sömuleiðis 41 kr., sem heiðursmaðurinn þórður á Leirá útvegaði þessum sjóði í vetur eð var með samlögum nokkurra mama; svo að nú var upphæð hans eins og að ofan er sagt 1432 kr. 80 a. í áreiðanlegum skulda- brjefum; þó eru 250 kr. á þeim stöðum, sem ekki verður vaxta krafizt. En verðið fyrir saltfiskinn er enn ekki komið í sjóðinn, því til nokkurs af því var gripið við þenna síðasta mannskaða, og svo er tilætlað, að það verði brúkað til að bæta úr kjörum munaðarley sin gj anna. Akranesi, 20. júní 1884. Hallgr. Jónsson. * * * í£ins og þessi skýrsla mín sýnir, er nokk- ur vísir til styrktarsjóðs handa ekkjum og börnum drukknaðra manna hjer í sýslu, og var byrjað að safna til hans fyrir 20 árum; en því miður hefir áframhaldið verið lint, engar stórgjafir hafa gefizt, og því síður að fastar tekjur hafi náðzt. Sömuleiðis sjest af skýrsln bæjarfógetans í Reykjavík f Isa- fold XI 25, að í Kjalarnesþingi er ekki svo lítill sjóður til, sem stofnaður er 1840 fyrir það hjerað ; þó lýsir það litlum áhuga á að auka hann, að hann skuli enn ekki vera orðinn nema 5577 kr., þar sem svo fjölbyggt sjávarhjerað á hlut að máli, sem öllGullbringu-og Kjósarsýsla erogReykjavík; enda er ekki aðbúast við því, að slíkir sjóðir aukist mikið við eintóm gjafa-samskot — f fyrstunni verða menn almennt hrifnir af nauðsyninni, og gefa þá margir nokkuð til nýrra stofnana, en svo dregur vanalega úr því, því leiðir verða langþurfamenn, og það er líka leiðinlegt að vera að biðja umsama hlutinn aptur og aptur og fá jafnan nei. það er heppilegt og lofsvert, þegar aðrir eins menn og Jón í Stöðlakoti gefa slíkumstofn- unum allar eigur sínar, og er þeim á þann hátt betur ráðstafað, en að útörfum verði þær máske að missætti, og er hans dæmi fagurt til eptirbreytni. f>að sýnist lfka ekki eiga síður við að gefa «áheiti» sitt fátækum munaðarleysingjum, heldur en fullríkri kirkju (slíkt er hégómlegur hugsunarháttur og lík- ist kaþólskum kreddum). |>að er vonandi, að áskoranir blaðamanna ásamt nýorðnir

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.