Ísafold - 23.07.1884, Blaðsíða 2
118
Púðursykur —»«— 0:30
Brennivín potturinn ................ 0:85
Neftóbak, pundið ................... 1:40
Munntóbak—»«— 2:00
Salt, tunnan ....................... 4:75
Steinkol, skippundið ............... 4:00
Steinolía, potturiun ............... 0’22
Saltfiskur, málsfiskur, skippundið... 50:00
Annar saltfiskur —»«—..... 35:00
Harðfiskur —««—..... 80:00
Ysa —»«—..... 25:00
Lýsi, soðið, tunnan ............... 30:00
Lýsi, hrátt, —»«— ................. 45:00
Hrogn —»«—................. 35:00
Sundmagar, pundið................... 0:90
Hvít ull, —»«—...................... 0:60
Mislit uíl, —»«— ................... 0:45
Æðardúnn, —»«— .................... 16:00
Lax, nýr, —««— ..................... 0:35
Lax, saltaður, stór, pundið......... 0:75
Lax, saltaður, minni en 5 pd., pundið 0:33
Hjá sumum mun hinn rýrari saltfiskur
(»annar saltfiskur«) hafa komizt upp í 40 kr.
og ýsa í 30 kr.
Laxinn (saltaður) er nú farinn að falla í
verði, um 10 aura eða svo, vegna þess að
svo mikið kemur af honum í kaupstað, með
því að laxveiði hefir verið afhragðsgóð í ár.
Annars hefir verið mjög lítill munur á
verðlagi í ár og í fyrra, nema á fiskinum
fjarska mikill, og er hálfu tilfinnanlegri en
ella vegna aflaleysisins. I fyrra var meðal-
hlutnrhjér við Faxaflóa sunnanverðan áætl-
aður 2 skpd, sem eptir fiskiverðinu þá nam
120—140 kr., en nú að sögn svo sem \ skpd
eða vart það, sem samsvarar 20—25 kr.
f>að er skiljanlegt eptir þessu, að hjer muni
horfa til almennra bjargræðisvandræða,
nema því betri afli komi í haust.
Nýustu frjettir frá útlöndum segja ís-
lenzkar vörur, einkum fisk, í sama hraki
eins og áður. Frakkar búnir að leggja undir
sig markaðinn á Spáni nær gjörsamlega.
— Dáin hjer f Reykjavik 14. júlí
merkiskonan Ingibjörg porsteinsdóttir, systir
landlæknis Jóns Thorstensens, en tengda-
móðir kaupmanns Geirs Zoega, rúmra
88 ára.
Utlendar frjettir,
Khöfn 1. júlí 1884.
Danmörk. Kosningarnar fóru fram 25.
júní, og gengu svo vinstrimönnum í vil, að
þeir höfðu ekki við betra sigri búizt. Mest
er í það varið, að Höfn er unnin, sem vinstri-
menn kalla. Hjer sigruðu 4 af þeirra liði.
Af þeim 2 sósíalistar, Holm og Hördum.
Fyrir hinum fyrnefnda varð Goos prófessor
að þoka, í 5. kjördæmi borgarinnar. Hinir
eru þeir C. Hage og Hermann Trier. Hage
er stórkaupmaður og dróst smámsaman í
flokk viustrimanna á þinginu. Trier er
kennslufræðingur og hefir ritað margt um
uppeldi og skólamál. Fyrir honum varð
Rimestad að lúta í lægra haldi, helzta for-
usta hægrimanna í fólksþinginu. Pingel
doktor, yfirkennarinn, sem stjórnin rak frá
embætti fyrir rúmu ári, var kosinn í Arósi,
og Nyholm, hæstarjettarassessor, áFriðriks-
bergi. Vinstrimenn eru 82 að tölu, en binir
19. J>að er undir Færeyjakosningunni kom-
ið, hvort þeir fá annan tuginn fullan.
Hvað Estrúp tekur af, eða þá heldur kon-
ungur fyrir hönd beggja og ríkisins, er bágt
að vita. Hjer verður atburða að bíða, en
spár hirðum vjer ekki að senda.
Noregur. Hjeðan eru fegins tfðindi að
flytja—og þó eigi önnur, en við mátti búast.
Óskar konungur hefir nú látið undan til
fulls, tekið sjer nýtt ráðaneyti af meiri-
hlutamönnum og selt forstöðu þess Jóhanni
Sverdrúp í hendur. Hins þarf ekki að geta
að hjer hefir verið látið til skarar skríða í
þeim atriðum, sem ríkisákæran reis af í
gegn þeim Selmer. Jakob Sverdrúp, bróð-
urson hins, er í ráðherratölunni. Fregnin
kom til Kaupmannahafnar kosningadaginn,
þegar lokið var, og þótti vel bera saman við
sigur frelsismanna í Danmörk.
Frá öðrun löndum. Stórveldin hafa nú
gengið til fundar í Lundúnum til ráðagerð-
ar um egipzka málið, eða um fjárhagsskipan
á Egiptalandi, tilsjón af stórveldanna hálfu,
hergæzlu Englendinga, og svo frv. Frá
Gordon (í Khartum) hafa engar frjéttir bor-
izt, en menn ætla, að hann gæti haldið vörn
upp, þar til liðsendingum verður við komið.
Ymsir geta þó annars til.
Kólera er komin til Frakklandsj og hefir
þegar orðið nokkrum mönnum að bana
1 Toulon og Marseille. |>að þykir óefað, að
hún hafi fluzt til Toulon á herskipi, sem
kom frá Saigun, í Kokinkína. f>ó til var-
úðarráða og viðbúnaðar sje tekið í öllum
borgun, bæði á Frakklandi og annarstaðar,
þykjast menn vera góðrar vonar, að drep-
sóttin rjeni, áður á löngu líður.
I Belgíu hafa orðið ráðherraskipti, en það
eru skörungar klerkaflokksins, sem í hinna
sætihafakomizt. f>eirhöfðu lengibyrsins beð-
ið, enda er sagt,að þeirhafilþegar tekið ræki-
lega í taumana í kirkju- og skóla-málum,
og engu frjálslegar en við mátti búast.
Seinustu frjettir frá Bandaríkjunum í
Norður-Ameríku hafa borið, að samveldis-
menn hafi horfið aptur frá kosningu Blaines
til forseta, því hann sje við sum ljót mál
riðinn frá fyrri tímum. Nú er talað um
landstjórann í New-York, sem Cleveland
heitir, en honum fylgja að máli menn af
báðum flokkum.
Edinburgh 12. júlí 1884.
England. Hin mikla kosningarrjettar-
bót Gladstones, sem eykur tölu kjósenda til
parlamentisins úr 3 miljónum upp í 5 milj-
ónir eða þar um bil, gekk liðugt gegnum
neðri málstofu; en í efri málstofunni hafa nú
lávarðarnir færzt það ofræði í fang að hrinda
frumvarpinu 8. þ. m., og það með miklum
atkvæðamun, 205 atkv. gegn 146. Glad-
stone ráðgerir að Ijúka nú þingi sem skjót-
ast og stefna því aptur saman í haust og
bera þar nýmælin fram á nýjan leik. Hann
er ugglaus að hafa þau fram þá. Lávarð-
arnir gugna jafnan, ef þeim er sýnt í tvo
heimana.
Kóleran í Toulon og Marseilles — víð-
ar er hún ekki komin enn — verður æ skæð-
ari dag frá degi. í Toulon dóu 12 á dag úr
henni fyrstu vikuna, nú 25 á dag af 68. Dr.
Koch, hinn mikli kólerulæknir frá Berlín,
er kominn til Toulon. Hann hefir sagt við
frjettaritara Times, að hann efaðist ekki
um að hún mundi komast til þýzkalands ;
úr því hún væri komin í annan eins bæ og
Toulon mundi hún dreifast í allar átttir.
Kínverjar hafa gengið á gjörva sætt og
grið vió Frakka, eptir friðarsamninginn út
af Annam. |>eir hafa ráðizt á franska setu-
liðssveit þar eystra og fellt margt manna.
Frakkar heimta bætur fyrir, nær 200 milj.
króna. Hóta hernaði að öðrum kosti.
í slandsráógj afmn.
Nú er hjer um bil óhugsandi annað en að
konungur skipti um rádaneyti einhvern-
tíma fyrir haustið, áður en ríkisþingið kem-
ur saman, eptir þá herfilegu útreið, sem
stjómin og hennar flokksmenn fengu í kosn-
ingunum um daginn, ofan á allt sem á und-
an er gengið þessi 9 ár, sem þetta ráða-
neyti hefir lafað við völd.
Hvað verður þá um Islandsráðgjafann ?
Hvað.Jánnað^n^.ð hann verði f jelögum sínum
samferða. Eptir kreddum danskra stjórn-
vitringa, hægrimanna að minnsta kosti,
mega íslendingar ekki ætlasttil að þessisjér-
stakastjórnþeirrasje tijþðruvísi enápappírn-
um. f>að stoðaði ekki annað en láta það
heita svo í stjórnarskránni, að Island hefði
ráðgjafa út af fyrir sig. En þar við hefir
líka verið látið lenda til þessa. Einn af
dönsku ráðgjöfunum hefir verið látinn hafa
hin íslenzku mál í hjáverkum alla tíð síðan
1874, eins og áður, alveg eins. þessi mað-
ur, sem stendur fyrir íslenzkum málum hjá
konungi, fer og kemur eptir atvikum, sem
oss eru alveg óviðkomandi, hvort sem oss
líkar betur eða ver.