Ísafold - 30.07.1884, Blaðsíða 2

Ísafold - 30.07.1884, Blaðsíða 2
122 þégar slysið varð, og mun það þó hafa verið góðri stund fyrir háttatíma. Ararnar af bátnum rak í Laugarnesi daginn eptir og lausafjöl úr skutnum, en annað ekki, hvorki líkin nje bátinn. Larsen heitin kvað hafa verið syndur, en hvorugur hinna. f Sigurður Signrðarson adjunkt var fæddur 11. nóv. 1849, bóndason af Mýrum. Að tilsfoiðlun sira Stefáns prófasts |>orvalds- sonar í Stafholti og fleiri góðra manna var hann settur til mennta, lærði undir skóla hjá síra Sveini prófasti Níelssyni á Staðar- stað, kom í Reykjavíkurskóla 1866, og út- skrifaðist þaðan 1872 með fyrstu einkunn. Var síðan heimiliskennari á Isafirði í tvö ár, sigldi síðan til Khafnar háskóla og stundaði þar málfræði, en var við verzlun á sumrum, fátæktar vegna. Sumarið 1879 tók hann embættispróf í málfræði, með fyrstu ein- kunn, og var samsumars settur kennari við latínuskólann í Reykjavík; en veitt það em- bætti árið eptir. f>að ár, 1880, um sumar- ið, ferðaðist hann til Frakklands, með styrk úr landssjóði, til að auka þekkingu sína í franskri tungu og bókmenntum, er var hans aðalkennslugrein við skólann. Auk nokkurra smáritgerða í útlendum tímaritum er hið helzta sem eptir Sigurð heitinn liggur af ritstörfum þýðing á Upphafi allsherjarríkis á Islandi eptir dr. Konrad Maurer. í handriti er til eptir.hann frönsk mállýsing langt komin, er átti að verða skólakennslubók. Sigurður heitinn var maður ágætlega gáf- aður, einhver hinn fjölhæfasti meðal hinna yngri menntamanna hjer á landi, þótt hon- um væri sjér í lagi sýnt um tungumál. Gáf- um þessum var samfara mikil starfsemi og reglusemi, sem mundi eflaust hafa borið mikinn ávöxt, ef honum hefði enzt aldur til. Hann var einkarvel látinn af lærisveinum sínum og öðrum, er kynni höfðu af honum. f L. Larsen rerzlunarstjóri var á líkum aldri, 34 ára, ættaður frá Khöfn; hafði verið nokkur ár við verzlun á Eyrar- bakka, og tók við verzlunaríorstöðu fyrir Thomsen kaupmann hjer í Reykjavík eptir fráfall Einars Jafetssonar. Hann hafði kynnt sig að reglusemi, ráðdeild og dugnaði, lipurð og samvizkusemi í sinni stöðu. Kirkjusidir og utanþjóðkirkjumenn. í ísafold XI 9—-10 hefir einhver þjóð- kirkjuprestur framsett skoðun sína um »kirkjusiði og utanþjóðkirkjumenn* og viljað hrekja það er jeg hafði sagt í grein minni í Fróða (119. og 120.). Mjer þykir vænt um, að »þjóðkirkjupresturinn« lætur svo lítið að eiga viðtal við rnig til að sannfæra mig utn villu mína; en hann má þó heldur eigi taka mjer . illa upp, þó jeg verji. sanufæringu mína, og bendi á, hvar honum hefir mis- tekizt að þræða götu sannleikans. I grein minni í Fróða hafði jeg kornizt svo að orði: sannleikurinn í þessu efni er auðsær, bæði af eðli hlutarins og einnig af stjórnarskránni, sá sannleikur, að sjerhverj- um manni á Islandi er frjálst, hvort hann vill vera í þjóðkirkjunni eða ekki. þessi setning þykir þjóðkirkjuprestinum »mjög í villu leiðandi fyrir alþýðu eða hvern þann, sem ekki er fær um sjálfur að gera sjer grein fyrir, hvað eðli hlutarins er og hvað stjórnarskráin segir í þessu efni«. Yið hvaða röksemdir styður hann þennan dóm sinn? Jeg skal láta hann sjálfan tala: »Hin évangeliska hiterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Islandi og hið opinbera skal að því leyti styðja hana og vernda«. »þetta segir stjórnarskráin (45. gr.) og það er í eðli hlutarins af því, að hvort mannsbarn á Islandi er skírt og uppfrætt í þessari trú, og allir þeir, sem náð hafa aldri til þess, hafa heitbundizt henni með ferm- ingunni«. Hjer þykir mjer þjóðkirkjupresturinn gera lítið úr skírninni, ef hann álítur að hiin bindi mann við nokkra sjerstaka grein hinna kristnu trúarbragða. Skírnin er almennt kristileg, en alls eigi sjerstaklega evangel- isk-lútersk, eins og hver maður ætti að vita, hvað þá presturinn (Ertu fræðari í ísrael o. s. frv. ?). Sama er að segja um fermingarheitið; það er staðfesting skírn- arheitisins, almennt kristilegt heit, stíl- að eptir hinni almennu kristilegu trúar- játningu. f>að er því algerlega rangt og • ábyrgðarhluti fyrir þá sem betur eiga að hafa vit á því, að leiða fáfróða í villu með að telja þeim trú um«, að skírnar- og ferm- ingarheit þeirra bindi þá við þann sjerstaka skilning hinna kristnu trúarbragða, sem þeim hefir kenndur verið; og bótin er að eins, að fæstir munu svo fáfróðir, að þeir sjái ekki þessa villu, sem þjóðkirkjuprestur- inn gerir sig sekan í, og sem er enn verri fyrir það, að hann gerir engan mun á ev.- lúterskri trú og ev.lúterskri þjoðkirkju, svo að kristnir menn ættu að hans meiningu að vera með skírn og fermingu heitbundnir þeirri stjórn og þeim siðum, sem eiga sjer stað í sjerstakri deild hinnar sýnilegu kirkju, í stað þess að þeir eru heitbundnir hinni ósýnilegu kirkju, sem er »samneyti heilagra« og finnst innan allra flokka kristninnar. f>að er vitaskuld, að enginn ætti að or- sakalausu að ganga úr því kirkjufjelagi, sem hann er »uppfræddur« í; en ef einn söfn- uður hefir þá sannfæringu, að hann muni' efla andlegt líf sitt með því að gerast frjáls söfnuður, þá er það fullkomin orsök, og þá hefir hann ekkí einungis samkvæint stjórn- arskránni leyfi til þess, heldur einnig sam- kvæmt sinni æðri ákvörðun beina skyldu til þess, svo framarlega hann sjer sjer það fært. jpessi innri orsök — hvort sem hún er sprott- in af mismun í hinum eiginlegu trúaratrið- um eða einhverju öðru (t. a. m. mismunandi skoðun á kirkjustjórn og siðum) — er and- leg lífshreyfing, sem lýtur engu ytra dóms- valdi; það er sannfæring þeirra manna, sem í andlegum efnum eiga að vera frjálsir og finna sig frjálsa og hafa að lögum (eptir stjórnarskr.) leyfi til að vera frjálsir; og fyrir því álít jeg eins rjett það sem jeg hefi sagt, að hverjum manni á Islandi sje frjálst hvort hann vill vera í þjóðkirkjunni eða ekki, eins og hitt er barnalegt, sem þjóðkirkju- presturinn segir, að »það verði þess vegna að vera skylda þeirra, sem úr henni vilja ganga, að fá til þess samþykki kirkjustjórn- arinnar«. f>að væri dálaglegt trúarbragða- frelsi, ef kirkjustjórnin ætti að skera úr, hvort þeir er vilja úr þjóðkirkjunni ganga, hafi »rjettarkröfu« (þ. e. innri orsök) til þess. Fær þjóðkirkjupresturinn eigi sjeð, til hvers þetta hlyti að leiða? Hann virðist viðurkenna, að trúarbragða- mismunur gefi heimild til að ganga úr þjóð- kirkjunni. Nú geta sumir kallað trúar- bragðamismun það sem aðrir kalla ekki svo. Setjum nú svo, að kirkjustjórnin ætti að skera úr, hvað væri trúarbragðamismunur (o: hvað gæfi »rjettarkröfu« til að ganga úr þjóðkirkjunni), og skæri svo úr, að það væri ólík skoðun á þrenningarlærdómnum, end- urlausnar-, friðþægingar-, helgunarlærdómn- um, á gildi bókanna í ritningunni, sakra- mentunum, o. s. frv., væri þá ekki innan handar fyrir þá, sem úr þjóðkirkjunni vildu ganga, að hafa eða látast hafa ólíka skoðun því semí þjóðkirkjunnier kennt umeinhverja af þessuin greinum? En það er ekki til neins að berja það fram, að það þurfi að vera mismunur í hin- um eiginlegu trúaratriðum, til þess að heim- ild sje til að ganga úr þjóðkirkjunni, því að stjórnarskráin bindur þessa heimild að eins við »að þjóna guði með þeim hætti sem bezt á við sannfæringu hvers eins«, og það getur komið til greina í fleiru en mismun- andi skilningi á lærdómsgreinum eða trúar- atriðum kristindómsins. Úr því jeg nú hlýt að vona, að hinn heiðr. höf. verði mjer samdóma um, að hvernig sem maður veltir fyrir sjer »stjórnarskránni og eðli hlutarins«, þá er (eins og ráðgjafinn hefir úrskurðað) ekki hægt að banna mönn- um að mynda . kirkjufjelög utan þjóðkirkj- unnar ; þá voua jeg einnig að hann verði mjer samþykkur um, að það sje fullkomlega samkvæmt eðli hlutarins, að menn »leysist fyrir slíkan fjelagsskap« undan skyldum við

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.