Ísafold - 24.09.1884, Síða 3

Ísafold - 24.09.1884, Síða 3
151 hefi safnað til þess, og til þess þarf nokkurn tíma. Jeg leyfi mjer því að eins að ávarpa almenning með þessum línum, af því að jeg veit, að margir óska að fá að vita dálít- ið um, hvernig mjer hefir litizt hjer á. Jeg skal fúslega verða við þessari ósk, með því að lýsa því yfir, að laxár og vötn þau sem nú eru hjer á landi, má vissulega gera landinu töluvert arðsamari,—þótt áraskipti hljóti að verða að því eptir veðráttufari,— ef lögð er sú rækt við þau og umönnun, er þau þarfnast og eðli fiskjarins krefur, og þar að auki eru allar líkur til, að fá megi með tímanum aptur lax í ár og vötn, sem áður hefir verið laxgengd í, en nú er engin veiði í, með laxaklaki, ef því er vel fyrir komið og eptirlitið nægilegt. En það skyldi enginn gjöra sjer í hugarlund, að laxveið- ar geti tekið verulegum framförum hjer á landi, ef þeim verður eigi hagað öðru vísi eða eptir öðrum meginreglum, en fylgt er í núgildandi lögum. f>að hefir farið hjer á landi um laxveiðar eins og svo víða annar- staðar, og ástandið getur orðið enn lakara en þetta, nema ráð sje í tíma tekið. Hjer hafa menn nú þau miklu hlunnindi, að geta byggt upp aptur með þéirri þekkingu, er nú er fengin í öðrum löndum í þessari grein. það var reyndar ásetningur minn, aðkoma nú þegar með ýmsar skýringar um laxveiða- málið í íslenzkum blöðum, og stöku leiðbein- ingu um meðferð afians, sem og um aðra veiði í ám og vötnum, sem að minni hyggju getur einnig tekið talsverðum framförum. En jeg vil heldur bíða og láta það koma í ferðaskýrslu minni, svo að það verði allt á einum stað og vonandi í því sniði, að það megi birta það á prenti. Jeg læt mjer því nægja hjer, jafnframt og jeg fyrst og fremst votta mínar hjartan- legar þakkir fyrir þá greiðvikni og alúð, er jeg hefi fttt að mæta hjá öllum,—að biðja menn að afsaka, að jeg hefi ekki getað kom- ið því við að finna alla þá, sem jeg veit til að þess hefðu óskað. Jeg bið þá að senda mjer sem fyrst fyrirspurnir sínar og þær skýringar, er þeir kynnu að geta í tje látið viðvíkjandi laxveiði og öðru þar að lútandi, til Kaupmannahafnar; öðruvísi þarf ekki að skrifa utan á. Jeg skal ekki láta þá þurfa að bíða lengi eptir svari. Til fróðleiks þeim, sem hafa óskað vitn- eskju um tilraun þá til laxaklaks, er gerð verðurnú á þessuári, skal þess getið, að til- raun þessi verður gerð við Laxá í Kjós, hjá alþm. síra þork. Bjarnasyni á Beynivöllum, er leggur mikla alúð við það mál, og verður aðstoðarmaður minn hjá honum. Vona jeg, að þar, á Keynivöllum, geti menn fengið að I sjá hið fyrsta laxaklak af manna völdum á íslandi, frá nóvember til marz-loka. Staddur í Beykjavík 20. sept. 1884. Arthur Feddersen. Utlendar frjettir. K.höfn j8. ágúst 1884. Danmökk. Eins og til stóð, hefir Kaup- mannahöfn verið samfundastaður lækna frá þremur heimsálfum, enda varð mannkvæmd- in mikil og mannfögnuðurinn ekki minni. það var á læknafundinum í Lundúnum 1881, að læknarnir mæltu mót með sjer í Kaup- mannahöfn, og það var sjer í lagi Panum prófessor, sem með skörungskap og óþreyt- andi kappsmunum hefir gengizt fyrir að búa allt svo undir, að viðtökurnar yrði — sem nú reyndist — Danmörk til sæmda. það voru margir, sem báru kvíðboga fyrir, að Kaupmannahöfn yrði ofvaxið að taka við fundarmönnum eptir Lundúnir, svo stór- fengilegt sem það allt var, sem þessi drottn- ing heimsborganna átti til að bjóða, og þó má trúa, að það hafi allt verið af heilum hug mælt, sem hinir útlendu skörungar töl- uðu í gildunum Dönum og höfuðborg þeirra til lofs fyrir gestrisni, þjóðmenntun, fram- farir og þrifnað í vísindum og því öðru, sem gerir þjóðirnar þyngstar á metum á vorum tímum. því sama, sem svo var lofað, var síðar á lopt haldið í útlendum blöðum. Tala hinna útlendu gesta var hátt á ellefta hundr- að, eða nokkuð yfir tölu þeirra, sem sóttu Lundúnafundinn. þar að auki voru 350 danskir læknar á fundinum. Hann var sett- ur 10. ágúst í sýningarhöll iðnaðarfjelags- ins í viðurvist konungs vorg og drottningar, Georgs Grikkjakonungs og hans drottning- ar, auk fjölda annars stórmennis. Panum hjelt höfuðræðuna og var kjörinn til forseta fundarins. Heiðursforsetar urðu allir höfuð- skörungarnir frá útlöndum. það yrði til of lítils fróðleiks að telja hjer nöfn fram, en minna má ekkivera en að nefna fáeina, sem bæði eru víðfrægir menn, og mest þótti á béra og að kveða : Esmarch frá Kiel, Virchow frá Berlín, Pasteur og Verneuil frá París, James Paget og William Gull frá Lundúnum og Crudeli frá Ítalíu. Crudeli er á ríkisþingi Itala, álfka og Virchow í Bcr- lín, og hefir verið í herförum Garíbaldis á Italíu. Tyrkjar og Japansmenn höfðu sent hvorir um sig tvo lækna til fundarins. Við fundarsetninguna kom Panum við það, að vísindin hefðu stefnt mönnum hjer til móts, og því mætti þar einskis þjóðlegs ágreinings kenna eða þjóðgreiningar, og Virchow fór um sama efni fögrum orðum í svararæðu sinni. Pasteur vildi því ekki á móti mæla, að vísindin væru alþjóðleg í eðli sínu, en bað menn ekki gleyma, hver uppörfun það væri fyrir vísindamanninn, að sá árangur, sem hann ynni fyrir mannkynið, yrpi um leið geislum frægðarinnar á fósturland hans. Allt fór vel með öllum á fundinum; en síðan mátti finna á ummælum 1 þýzkum blöðum, sem þjóðverjum þyki, að Danir hafi haft meira við Pasteur og fleiri frakkneska menn en við þeirra skörunga. Mest var talað á frakknesku, bæði á aðalfundum og á déilda- fundum. Af stórgildunum sem gestunum voru hald- in skal nefna: veizlu forsetans í Hotel d’Angleterre, veizlu borgarinnar í nýjum skrautskála á tollbúðarflötinni, og heimboð konungs í Kristjánshöll. Enn fremur fund- argildi úti á Krónborg og dansveizlu f skemmtihöllinni »National«, hvort tvéggja á kostnað fundarmanna. Auk þeirra mörg deildargildi og heimboð hjá helztu læknum og auðmönnum Hafnar. Pundurinn stóð f viku. Næsta fund (hinn 9.) ætla læknar að halda í Washington, og mun það hafa ráðið nokkru um kjörið, að Ameríkumenn eða fulltrúar þeirra buðu ó- keypis flutning yfir hafið bæði fram og aptur. í lok júlímánaðar ferðaðist Jóhann Sver- drúp, stjórnarfoseti Norðmanna, til Dan- merkur og gisti nokkra daga í Kaupmanna- höfn. Hinn mikli þjöðskörungur var öll- um frelsismönnum í Daninörk mesti fagn- aðargestur, og því tóku þeir sig saman að halda honum heiðursgildi á afmælisdag hans, 6. ágúst. Veizluna sóttu, úti á Skoðs- borg, flestir þingmenn í vinstri manna liði, og fjöldi annara bæði frá hjeruðunum og höfuðborginni, eða alls nær 600 manna. Is- lenzkir stúdentar sendu Sverdrúp hrað- skeytiskveðju út á veizlustaðinn, og var hún lesin upp í veizlunni ásamt fleirum slíkum. Sverdrúp tók henni feginsamlega, og svar- aði henni í eiginhandarbrjefi daginn á eptir með ljúflegum hugðarorðum og heillaóskum íslendingum og íslandi til handa. Að boði konungs var gengið á þing 14. ágúst, en þar fór ekki annað fram enn kjör- próf hinna nýju þingmanna og kosningar forseta og annara embættismanna þingsins. Berg endurkjörinn forseti fólksþingsins. þrjár kosuingar í liði hægri manna bíða nánari rannsókna.—þeir Estrúp standa enn svo *steigurlega í stígreipunum», sem liðs- munurinn væri þeirra megin, og ekki hinna. England.—Erindrekafundur stórveldanna lyktaði við endileysu,eða með þvf.að hin stór- veldin vildu ekki fallast á uppástungu Eng- lendinga, að leigugjaldinu af skuldum Egipta skyldi hleypt niður. Englendingar verða nú fyrst um sinn einir um hituna á Egipta- landi, en hinir horfa á seyðinn, eins og Loki.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.