Ísafold - 24.09.1884, Page 4

Ísafold - 24.09.1884, Page 4
152 Sagt er að stjórnin sje að taka rögg á sig, og hún hafi ýms mikilræði fyrir stafni, og það með að senda allmikið lið til Egipta- lands, sem eigi að sækja suður eptir til Sú- dans Gordon til fulltingis. Ef það er áreið- anlegt, sem seinast hefir frjetzt, þá heldur hann enn vörn uppi í Khartum. því fer ekki með öllu fjarri, að dregið hafi til missættis með Englendingum og þjóðverjum út af því, að þjóðverjar hafa helgað sjer nýlendustað á vesturströnd Afríku, þar sem Angra Pequena heitir. Englendingar gerðu sem bráðastan bug að því að taka undir sig strandlendin á báðar hliðar, fyrir norðan og sunnan, og vildu með því marka hinum svæði. Margir ætla, að þeir hljóti hjer að hliðra til, ef vel á að fara. Fkakkland. það er að segja af ófriðn- um við Kínverja, að eptir aðfarirnar á For- mosa ljetu Frakkar flotann halda til þeirr- ar hafnarborgar á meginlandinu, sem Fút- sjú heitir. Hún iiggur við skipgenga á, er Min nefnist, en höfnin fyrir utan er flota- stöð Kínverja og við hana kastalar með miklum vopnabúrum og öðrum hergögnum. þegar ekki vildi saman ganga með erind- rekum hvorratveggja, í Sanghai, hófu Frakk- ar skothríð að virkjunum og þeim herskip- um Kínverja sem á höfninni lágu, og eptir 4 stundir var hvortveggja lagt í eyði. þessi tíðindi gerðust 23. ágúst, en síðustu frjettir segja, að Frakkar hafi að eins látið 6 meDn í sókninni, en haldið flota sínum ósköddum. Slíkt mun Frökkum auðvelt að vinna á öðr- stöðum með ströndum fram, en hitt er ó- efað, að þeir þurfa miklu til að kosta með liðsendingar á austurslóðir, éf Kínverjar þreyta vömina á landi og senda mikið lið suður á Tonkin, sem flestir ætla. Frakkar hafa nú endurskoðað ríkislögin, sem til stóð; en breytingin varð þó minni, en til var stofnað í fyrstu, og öldungadeild- in heldur heimildum sínum óskerðum gagn- vart hinni deildinni, hvað fjárveitingar og skatta snertir. þeirri grein var hleypt inn í lögin, að engum skal leyft að hreifa við breytingum stjómarskipunar Frakklands (afnárni þjóðveldisins), og þeim skal öllum stíað frá forsetadæmi þjóðveldisins, sem eru af ættum hinna fyrri drottna á Frakklandi. Kólera er nú í rjenun á Suður-Frakk- landi, þó hún hafi færzt út til fleiri borga og hjeraða. Pestvarnir Itala hafa að engu haldi komið, þó strengilega hafi verið á hald- ið, og á Norður-ítalfu verður um þessar mundir allmikið tjón af drepsóttinni á hverj- um degi. Amebíka. það hefir komizt upp, þótt leynt ætti að fara, að þeir Greely norðurfari og fjelagar hans sex, er lifi hjeldu, hafa upp á síðkastið lagt sjer til fæðu fjelaga sína þá, er dóu, og treint í sjer lífið með því móti vikum saman. Einn þeirra, er með lífi fundust í tjaldi Greely’s, var með óráði og tautaði án afláts : »Jeg vil ekki láta skjóta mig og jeta mig, eins og gert var við hann Hinrik«. Hinum þótti þetta samt grun- samt og var farið til og grafið upp dysið, er líkin lágu undir, bak við tjaldið, þótt Greely hefði orð um að hann kynni ekki við að láta raska ró hinna framliðnu. þar fundust 12 lík eða rjettara sagt beinagrindur, því allt hold var nagað að beinum, nema andlit og hendur ósnert á sumum. Nú voru binir yfirheyrðir, og komst þá hið sanna upp. Höfðu þéir fjelagar eigi haft annað til að nærast á vikum saman en selskinnssnepla, örsmáar marflær og þang. Suma hafði kalið á höndum og fótum, svo taka varð af limina; þessa limi lögðu hinir sjer þegar til matar og þótti hnossgæti. Hinrik þessi, er maðurinn nefndi, hafði verið skotinn, að boði foringjans, 6. júní, fyrir þá sök að hann varð uppvís að því að hafa stolið af matar- forða þeirra fjelaga, þegar hungrið þrengdi að honum. Hann var síðan jetinn upp til agna. Af þeim 17, er dánir voru, er hjálp- in kom, höfðu 3—4 látizt af skyrbjúg, og voru það hinir einu, sem ekki höfðu verið jetnir. HITT OG þETTA. Til lwers peningarnir fara. Skozkt blað hefir komið nýlega með yfirlit yfir, til hvers pen- ingar fara á Englandi, Skotlandi og írlandi. Hjer er ágrip af þeirri fróðlegu skýrslu: 1. það er eytt nærri því helmingi meira fyrir áfenga drykki en fyrir brauð. 2. það er eytt nærri þvi fjórfalt meira í á- fenga drykki en fyrir smjör og ost. 3. það er eitt 4*/2 sinni eins miklu í áfénga drykki og í mjólk. 4. það er eytt 5 sinnum meira í áfenga drykki en i sykur, og nærri þvi 7 sinnum meira en í kaffi, te og súkkulaði. 5. það er eitt meiru í áfenga drvkki heldur en fer í leigu eptir öll hús og allar jarðir í konungsríkinu. 6. það er eytt hjer um bil hclmingi meiru í áfenga drykki heldur en í allskonar vefnað, hvort heldur er úr ull, hör eða bómull. 7. Fyrir utan þennan geysilega kostnað til áfengra drykkja beinlinis hefir nautn þeirra í för meö sjer stúrkostlegan kostnað til fátækra- framfæris og lögreglu- eða vegna vitfirringar, glæpa, flakks og iðjuleysis, slysa, veikinda, vinnu- missis, skammlífis o. s. frv., og nemur það alls að minnsta kosti 2 miljörðum króna á ári, svo að áfengir drykkir kosta þjóðina að öllu sam- töldu 41/* miljarð króna á ári, eða hjer um bil heilum miljarð (1,000 milj.) fram yfir hin ann- áluðu útlát Frakka til þjúðverja eptir ófriðinn síðasta, sem að eins var eitt skipti fyrir öll. „Svona fara peningarnir á Bretlandi hinu mikla og írlandi, og þess vegna er það, að það er svo lítið fjör í verzluninui“, segir þar enn fermur, og loks eru tilgreind í tölum útgjöld- in til hinna helztu nauðsynja (og ónauðsynja) þjnðarinnar á ári: Áfengir drykkir . . 2,470,000,000 kr. Brauð ,.............. 1,271,000,000 — Smjör og ostur . . 636,000,000 — Mjölk................ 545,000,000 — Sykur................ 454,000,000 — Kaffi, te og súkkulaði 363,000,000 — t Alvarleg áskorun til Islendinga, þar sem sú tíð fer i hönd, að sauð- kindum er slátrað, þá vil jeg alvarlega skora á alla að gæta þess vandlega, að hnndar nái eigi í sulli eða sollin innýiii. Hver, sem af hirðuleysi kast- ar sullum fyrir hunda, gjörir sig ef til vill sekan i dauða annars. Enginn ætti að liða að hundar séu við, þegar slátr- að er. 2%’84 J. Jónassen Dr. Inir heiðruðu ritstjórar hinna blaðanna éru beðnir að taka þessa áskorun í blöð sín. ' AUGLÝSINGAR isamfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hveri orá 15 stata frekast m. ó5ra lelti eía setninj 1 kr. Ijrir þumlungf dálks-lengdar. Borjnn út í hönd. þeir, sem þegar hafa eignazt Lækningabók míha, eru beðnir að leiðrjetta þessar villur: bls. 459 og 467: króntonolía les krótonolía; bls. 472 (í „húsapótékinu") Hydratocarb. magnes. les: Bicarb. natric; bls. 473 Bals. terebinth. comm. les: œtherol. therebinthin; bls. 456: 3 lóð af muldum saltpjetri les J/2 lóð o. s. frv. y; Rvík ÍJ/9 84. J. Jónassen. Iðnnn, 2.—4. hepti (5.—14. örk), er nú út komin. Efni: Sigrún á Sunnuhvoli (nið- urlag). Unnið virkið, eptir Prosper Mérimée. L’Arrabiata, eptir Paul Heyse. Monitor Jóns Eiríkssonar. Eyjarskeggjar á Pittcaim. Karfan. Kvceði. líarnaskóla-vitnisburðarbækur, nýjar, á 20 a. bundnar, fást á afgreiðslustofu ísafoldar. Til leigu fást tvö herbergi á Hlíðarhúsastíg, með húsgögnum. Ritstjóri ávísar. Heysala. Maður einn í Reykjavík, sem ritstj. vísar á, vill fá keypta og borga vel í peningum nokkra hesta (io—15) af góðri töðu eða töðugæfu útheyi vel verkuðu. Kartöflur og lauk bjóðum vér að senda hvert sem óskað er, livort heldr meira eðr minna afþessu, fyrir lægsta verð, sem hægt er að fá það fyrir í hvert sinn, móti borgun við móttöku (Efterkrav), og ábyrgjumst beztu vörur. O. Hansen, L. Kongensgade 39, Kjoben- havn. [o—6483] Ritstjóri Björn Jónsson, caiul. phil. Prentsmidja ísafoldar.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.