Ísafold - 15.10.1884, Qupperneq 2
162
betra mundi vera fyrir sig að stjórna bar-
daganum af landi. f>egar kvöld var komið,
var eigi annað eptir af skipaflota Kínverja
en logandi trjáflekar, sem var að reka á
fljótinu. A sunnudaginn voru herforðabúr
Kínverja þar við fljótið, margra miljóna
virði, lögð í eyði, og næstu dagana voru
kastalaborgirnar skotnar niður. Síðan hefir
ekkert gerzt til tíðinda þar eystra, en sagt
er að Kínverjar láti eigi jafn ófriðlega og
áður, og að sendiherra þeirra í Berlín hafi
beðið Bismarck að miðla málum.
England. Englendingar hafa eigi átt
miklu láni að fagna á Egiptalandi; eru sum-
ir komnir á þá trú, að þeir muni eigi miklu
betra að hafa Egiptaland, en forðum var að
eiga hringinn Andvaranaut, sem þau um-
mæli voru um, að hann skyldi verða hverj-
um höfuðsbani er ætti. Nú er þó heldur
farið að rætast úr. I byrjun mánaðarins
sendi Gladstone Wolseley hershöfðingja,
hinn sigursæla, til Egiptalands; ætlar hann
að halda frá Kairo í dag (27. sept.) á skip-
um upp eptir Níl, til þess að frelsa Gordon,
þar sém hanu situr í Khartum, um kringd-
ur af óvinum. íhaldsmenn á Englandi
gátu fátt verra fundið Gladstone til saka, en
síðan Wolseley fór, hefir verið eins og
stungið upp í þá steini. f>ar að auki eru nú
nýlega komnar frjettir frá Gordon um, að
hann hafi uunið mikinn sigur á Sudans-
mönnum 30. ágúst, og hafi þeir þá orðið að
hætta umsátinni um Kartum.
Baráttan um kosningarlögin heldur stöð-
ugt áfram. I byrjun þessa mánaðar lagði
Gladstone sjálfur af stað og hjelt til Skot-
lands ; hann er nú 75 ára gamall, en samt
ern og frískur enn þá. Hvað sem á dynur
verður honum aldrei missvefna, kalla menn
svefn hans gullsvefn, þvi að hann getur tek-
ið sjer svefndúr hvenær og hvar sem hann
vill. Á öllum járnbrautarstöðvum á leið-
inni var múgur og margmenni saman komið
til þess að sjá garnla Villa sinn ; allir vildu
taka í hendina á honum, eða þá að minnsta
kosti sjá hann svo nálægt sem auðið væri;
á einum stað urðu þrengshn við vagnin svo
mikil, að gluggarnir í vagninum stóðust eigi
og brotnuðu. J>á er hann kom til Edinborg-
ar varð viðtakan eigi síður ; hann ók upp
eptir hinu breiða og fagra Princes stræti;
manngrúinn var fjarskalegur á strætinu og
fólk í öllum gluggum og á húsaþökunum og
alstaðar hvar sem tyllt varð fæti. Á eptir
hjelt hann ræðu fyrir 5000 manna í kaup-
mannasamkundunni. «Vertu eigi allt af að
jagast, hefir Gladstone sagt, en ef þú tekur
til máls, þá láttu vita af þjer». Mótstöðu-
menn hans fengu hjer orð í eyra, og sjald-
an kvað silfurrödd Gladstones hafa hljómað
betur en í þetta sinn. Segja menn að hann
muni viss um að hafa kosningarlög sín fram,
og stendur hann nú fastari á fótum en
uokkru sinni áður.
Belgía. |>ar eru miklar óeirðir um þess-
ar mundir. Við kosningarnar í sumar varð
klerkaflokkrinn ofan á, og hafði meiri hluta
í báðum deildum. Konungur skipti þegar
um ráðaneyti. það var hið fyrsta verk hins
nýja ráðaneytis að reyna að fá prestum og
munkum aptur í hendur kennslu barna og
ungmenna. Sunnudaginn 7. sept. höfðu
klerkar boðið sínum mönnum til fundar í
höfuðborginni Bryssel. Framfaraflokkur-
inn var ákaflga æstur og rjeð borgarlýður
á klerkaflokkinn og tvístruðu honum.
Hundrað manns urðu sárir og surnir hættu-
lega ; lögregluliðið handsamaði 185. þegar
klerkaflokkrinn fór heim til sín urðu enn
óeirðir á járnbrautarstöðunum út um landið.
Hinn 17. þ. m. sendu 820 bæja- og sveita-
stjórnir til konungs og báðu hann um að
samþykkja eigi hin nýju kennslulög; en
konungur kvaðst mundi styðja þingræði og
vera bundinn til þess með eiði. Oeirð-
irnar hafa haldið áfram en ýmsir forvígis-
menn framfaranna hafa skorað á fólk að
hlýða lögunum.
Hinn 15. og 16. þ. m. áttu þeir keisar-
arnir þrír, Rússa, Prússa og Austurríkis-
manna, mót með sjer í litlum bæ í Póllandi,
Skiernievice, til þess að taka ráð sín saman
gegn sósíalistum og nihilistum. Á heimleið-
inni kom Bússakeisari við í Warschau, tók
lýðrinn á móti keisaranum með fagnaðar-
ópi; var þar mesti fjöldi af hermönnum til
þess að gæta þess, að gleðin snerist eigi í
hryggð.
Danmökk. I upphafi þessa mánaðar var
hjer í bænum prestastefna mikil víðsveg-
ar af mörgum löndum; máttu þann fund
sækja kennimenn allra kristinna safnaða,
að kaþólskum einum fráskildum. Ekki
var þessari samkomu tekið nærri því eins
vel og læknafundinum ; 85 prestar, helzt af
Grundtvigsflokki, rituðu prestasamkomunni
brjef og kváðust eigi vilja vera með, af
því þeim fyndist þar vanta næga einingu
í bandi friöarins.
Enn situr við sama keip stjórnmála-
stappið hjer. Estrúp hefir aukið enn nýj-
um manni í ráðaneyti sitt. Sá heitir Bahn-
son og fer með hermál, er Ravn hefir haft
að undanförnu jafnframt flotamálunum.
Ekki þarf þess að geta að Bahnson þessi er
rammur hægrimaður, og Estrúp samhentur.
Dáuir eru hjer nýlega þessir merkis-
menn:
19. þ. m. Melchior stórkaupmaður, einn
meðal helztu kaupmanna hjer í bænum.
Tveim dögum síðar Fenger geheimeráð;
hann var meðal hinna frægustu danskra
lækna, og hafði haft mörg embætti á hendi,
verið háskólakennari í læknisfræði, spítala-
læknir, síðan fjármálaráðgjafi ; borgineistari
o. fl. Hinn 25. þ. m. Bruun etazráð, er
hafði verið þingmaður lengi og írmaður
landsþingsins fyrir 1870.
Kóleran — er um garð gengin á Frakk-
landi að miklu leyti, en geysar nú á Ítalíu.
I Neapel sýktust þetta fram undir 1000
manns á sólarhringnum um eitt skipti fram-
an af þessum, og dóu 3—400. Nú er hún
þó í rjenun þar. I Bóm hefir hún og gert
vart við sig. Páfinn hefir gefið 2 milj,-
franka til að koma upp kóleruspítala nærri
höll sinni.
Reykjavík 15. okt.
Hraðfrjett frá Kaupmannahöfn til Eng-
lands, er náði í Craigforth þar, 2 dögum á
eptir Lauru, segir Christiansborgar-höll í
Khöfn hafa brunnið gjörsamlega föstudag 3.
okt., nema hvað nokkru af hinu mikla
myndasafni, er þar var geymt, á að hafa
orðið bjargað.
Höll þessi var kennd við Kristján konung
VI., er ljet smíða hana árin 1733—40, upp
úr »Kaupmannahafnar-höll«,er þar stóð áð-
ur og lengi hafði verið konungsbústaður, frá
því á dögum Kristófers af Bajern. Höll
þessi brann 26. febr. 1794; hafði verið
einhver hin fegursta og veglegasta konungs-
höll í Norðurálfu. Hin nýja höll, sem nú
brann, var fullger 1828, með almennum
samskotum að nokkru leyti. Hún var ó-
fegurri en hin eldri, en ákafléga mikið hús
og rammgjört, f fjórum álmutn. Framhlið-
in var 180 álnir á lengd og 46 á hæð.
Höllin var nú ekki konungssetur, heldur að
eins notuð af konungi til að halda þar stór-
veizlur. En ríkisþingið hafði þar aðsetur,
báðar deildir, svo og hæstirjettur.
Stjórnin og þingið.
Eptir J.
* - » tí <-*♦
H.1
En nú kunna menn að segja : Viti menn!
Stjórnin, sem er svo menntuð, og getur haft
öll nauðsynleg föng í hendi sjer, hefir samið
lagafrumvörp, sem hvorki hafa þótt hyggi-
legri nje haganlegri fyrir þjóð vora heldur en
frumvörp þau og uppástungur, sem komið
hafa frá einstökum mönnum ; vjer verðum
því að ætla að stjórnina hafi vantað ann-
aðhvortvit eða góðan vilja eða máske hvort-
tveggja. — Jeg get nú ekki neitað því, að
nokkuð muni satt í þessu. En jeg segi:
hafi stjórnina vantað vit, þá hefir það mest
komið af því, að hún sat í öðru landi og
var því ekki nógu kunnug sjerstökum stað-
háttum og þjóðháttum Islands, og þó hún
hafi fengið til undirbúnings skýrslur og á-
lit hjerlendra manna, þá hefir hún stund-
um virzt fara meira eptir almennum dönsk-
um grundvallarreglum heldur en eptir á-
liti og tillögum lslendinga; svo er ekki ör-
1) 8já 37. tulubl.