Ísafold - 23.06.1886, Qupperneq 2

Ísafold - 23.06.1886, Qupperneq 2
2 fá þetta endurgoldið úr landsjóði. Oddvita falið, að sækja um það fje. 15. Lagðir fram 2 reikningar um auka- viðgerð á Melabrúnni, að upphæð c. 90 kr.; samþykkt, að greiða þær iir sýsluvega- sjóði. 16. Skýrt var frá, að »Melabrúin« hefði í sumar verið endurbætt á þann hátt, að nægilega stórir skurðir hefðu verið gjörðir beggja megin og brúin víða hlaðin að ut- an, svo að nú vantaði helzt íburð. Akveðið, að gera ráðstafanir fyrir að fá 2000 kr. lán af þeiml50,000 kr., sem f enda fjárlaganna fyrir 1886—87 eru ætlaðar til að veita mönnum atvinnu, panta nvi þegar verkstjóra og láta taka upp og flytja grjót að brúnni til íburðar. Spurt var um, hvort ákvörðun nefndar- innar á síðasta fundi áhrærandi skemmdir á Melabrúnni hefði verið fullnægt (sjá 34. tölul. síðustu prentuðu fundargerða). Nefnd- armaður Sandvíkurhrepps skýrði frá, að all- ir hlutaðeigendur hefðu neitað að inna verkið (25 dagsverk) af hendi. Samþykkt, að oddviti og nefndarmaður Sandvíkur- hrepps taki á sig full ábyrgð á, að 50 dags- verk sjeu unnin að Melabrúnni fyrir næstu fardaga, og lýsi yfir í blaðinu »ísafold«, að þau sjeu unnin sem bætur af hálfu þeirra, sem gerðu spjöll á Melabrúnni næstl. ár, með því að teppa aðalvatnsrúm hennar. 17. Lesið upp brjef suðuramtsins (24. júlí), sem tilkynnir úrskurð amtsráðsins um sýslusjóð Arnessýslu fyrir árið 1884. 18. Lesið upp brjef frá Kolbeini bónda Eiríkssyni á Mástungum (26. sept.) viðvíkj- andi landamerkjum milli heimalanda Gnúp- verjahrepps og afrjettar Flóa- og Skeiða- manua. Til að annast um þetta af hálfu hlutaðeigandi hreppa voru kosnir nefndar- menn Sandvíkur- og Skeiðahrepps og Páll bóndi Jónsson á Seli,á kostnað sömu hreppa. 19. Leitað var upplýsingar um, hvort odd- viti hefði fullnægt ákvörðun nefndarinnar á síðasta fundi (sjá 35. tölul. í hinum prent- uðu fundargjörðum) út af verkfærakaupum til sýslunnar árið 1883. Oddviti lagði fram brjef frá Sveini búfræðing, sem ber með sjer, að hann hefir ekki verið við riðinn kaupin, nema méð ráðleggingu, sem ekki hefir verið fylgt,—en skýrði frá, að reikningur frá seljanda væri enn ekki kominn. Málinu þess vegna frestað til næsta fundar. Fundi shtið eptir 1J dags samvinnu. b. Á aðalfundi 13.—17. april 1886. A þessum fundi, sem haldinn var á sama stað og áður, voru, auk oddvita, mættir allir nefndarmenn, uema frá Grafnings- hreppi, þar sem nefndarmaðurinn var dá- inn. Til skrifara var kosinn nefndarmaður Olveshrepps. 1. Nefndarmaður Sandvíkurhrepps beidd- ist leyfis til, að vera burtu af fundi, þegar ræði væri, og var það veitt með því skil- yrði, að hann væri á fundi í hvert skipti, sem nefndin krefðist þess. 2. Kosnir voru í yfir-skattanefnd Sæmund- ur prófastur Jónsson í Hraungerði og ís- leifur prestur Gíslason á Amarbæli. 3. Leitað var upplýsinga um, hverjir hreppar ættu að kjósa á næstu manntals- þingum sýslunefndarmenn til næstu 6 ára, og er það í þessum hreppum : Grímsnes- Biskupstungna- Gnúpverja- Villingaholts- Gaulverjabæjar- Sandvíkur- og Stokkseyr- ar-hreppum, og til 3 ára (af því nefndar- maðurinn var dáinn) í Grafningshrepp.— Voru kosnir menn úr öllum þessum hrepp- um í kjörstjórn með sýslumanni. 4. Lagðir voru fram sýslureikningar og hreppareikningar, svo að nefndarmenn gætu kynnt sér þá og athugasemdir endurskoð- enda við þá. 5. Til að yfirskoða og breyta frumvörp- um þeim til fiskiveiðasamþykkta í 3 veiði- stöðum sýslunnar, er ekki höfðu náð sam- þykki amtmanns fyrra ár, voru kosnir nefndarmennirnir fyrir Olves- Stokkseyrar- og Sandvíkurhreppa. Lagði nefnd þessi síðar á fundinum frumvörpin fram, og voru þau nú orðin 2, annað fyrir veiðistöðurnar í Stokkseyrarhreppi, en hitt fyrir jporláks- höfn; hafði nefndin gert ýmsar breytingar á þeim; voru frumvörpin siðan, þannig breytt, samþykkt í einu hljóði. A meðan á sýslufundinum stóð, var frumvarpið fyrir veiðistöðurnar í Stokkseyrarhreppi lagt fyr- ir almennan hjeraðsfund, sem gerði á því eina breytingu. Var svo frumvarpið aptur lagt fyrir sýslunefndina, samþykkt í einu hljóði með áorðinni breytingu og afgreitt til amtmanns. 6. Lagt var fram álitsskjal hreppsnefndar Biskupstungnahrepps um tilhögun á »göng- um« Biskupstungnamanna og upprekstrar- fjelags Auðkúluheiðar. Sýslunefndin rjeð til, að hreppsnefndin sendi skjal þetta með fylgiskjölum hlutaðeigandi hreppsnefnd í Húnavatnssýslu, sem fyrsta stig til sam- komulags. 7. Nefndarmenn Biskupstungna- og Hrunamannahreppa skýrðu frá, að þeir eptir fyrirmælum nefndarinnar á síðasta haustfundi (sjá 5. tölul. í þeim fundar- gerðum hjer á undan) hefðu skrifazt á við flesta hreppa sýslunnar, og væru menn alls ófúsir til að breyta fjármörkum sínum, nema í Biskupstungnahreppi. Nefndin sjer sjer því ekki fært, að sinna þessu máli sjer- staklega, en þykist gera byrjun til að greiöa fyrir því með þeirri uppástungu, sem getur um í næsta tölul. hjer á eptir. 8. Nefndarmaður þingvallahrepps bar upp uppástungu 8Ína um nýtt marka-»#ystem« ýfir land allt. Aðhylltist nefndin hana, og ályktaði, að senda hana amtsráðinu, með þeim tilmælum, að það greiði fyrir málefni þessu á sem fljótastan og hagfeldastan hátt. 9. Nefndin veitti fyrir þetta ár 50 kr. styrk af sýslusjóði til sæluhúshalds á Kol- viðarhóli eptir beiðni hreppsnefndar Ölves- hrepps. Nefndin fól oddvita, að fara þess á leit við amtsráðið, að það sjái sæluhúsinu á Kolviðarhóli, sem eign suðuramtsins, fyrir tryggingu gegn eldsvoða. 10. Yfirsetukonu Stokkseyrarhrepps var neitað um launaviðbót. 11. Eptir brjeflegri áskorun frá nefnd- armönnum þiugvalla- Grlmsness- og Bisk- upstungna-hreppa fól nefndin oddvita, að leita með beztu meðmælum hennar styrks hjá landshöfðingja, til að endurbæta veginn yfir Mosfellsheiði nú í sumar. 12. þá var tekið fyrir fjallskilamálið, og frumvörp þau, er amtsráðið hafði neitað um samþykki sitt á f. á., með fylgiskjölum fengið í hendur 3 manna nefnd, nefndar- mönnum Hraungerðis-, Guúpverja- og Sandvíkur-hreppa.—Síðar á fundinum skil- aði nefnd þessi erindi sínu, og lagði til, að ýmsar breytingar yrði gerðar á frumvörp- unum, bæði fyrir eystri og vestri hluta sýsl- unnar. Voru síðan frumvörpin rædd grein fyrir grein og’ að lyktum bæði samþykkt með þeim breytingum, sem nefndin stakk upp á, og verða nú aptur send amtsráðinu til staðfe8tingar. Nefudin álítur, að brennimarka- og hrossamarkaskrár þær, er síðast voru prent- aðar aptan við fjallskilafrumvörpin, eigi ekki að prentast þar, heldur á markaskrána á sínum tíma. 13. Suðuramtið hafði með brjefi, dags. 14. desbr. f. á., óskað álits nefndarinnar um tilboð búnaðarfjelagsins í Danmörku um, að koma unglingum hjer á landi fyrir hjá bændum í Noregi, til að læra búnaðar- háttu, og spurt um, hvort hún mundi fús til, að leggja fram nokkurt fje til styrktar fátækum bændasonum af því fje, sem sýsl- unni er veitt til eflingar búnaði.—Nefndin álítur þetta boð mjög viðurkenningarvert, og að slík verkleg kennsla sje mjög affara- sæl; en sjer sjer eigi fært, að verja að þessu sinni neinu af hinum áðurnefnda styrk úr landssjóði í þessu augnamiði, en gefur hin beztu meðmæli síu með, að hin- um eina námspilti (syni Stefáns sýslu- manns Bjarnarsonar), sem hiugað til hefir

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.