Ísafold - 23.06.1886, Page 3
3
gefið sig fram, verði útveguð næsta ár hin
utnrædda kennsla.
14. Nefndin lagði til, að þeim 930 kr.,
sem eptir tilkynningu amtsins eru í ár ætl-
aðar þessari sýslu til eflingar búnaði, verði
varið þannig: hr-
a, til launa handa búfræðing Gísla Gísla-
syni.....................* . , . 400.00
b, til þingvalla- og Grafningshreppa, til
að láta rannsaka þingvallavatn á næsta
sumri............................ 130.00
e, til Hraungerðishrepps, til að láta gera
skurð úr Hjálmholtskeldu yfir þveran
hrepp, allt út í ölvesá ...... 200.00
d, til Sandvíkur- og Stokkseyrarhreppa,
til að láta gera skurð úr Breiðumýri
út í Ölvesá....................... 200.00
930.00
15. Frá búnaðarfjelögum tveimur, í
Hrunamanna- og Grímsneshreppum, höfðu
nefndinni borizt bónarbrjef um meðmæli
hennar, til að fá styrk af því fjé, sem lands-
höfðingi hefir til umráða til eflingar búnaði,
enn fremur frá Jens presti Pálssyni á
þangvelli bæn um meðmæli með, að fá
styrk af sama fje, til að koma upp húsi
yfir laxaklak, og loks frá ýmsum búendum
á Eyrarbakka bæn um meðmæh með, að
fá styrk af sama fje, til að gera varnargarð
fyrir sjávargangi.—-Nefndin gaf öllum þess-
um bænarsskrám eindregin meðmæli sín.
16. Nefndin ákvað, að búfræðingur sýsl-
unnar skuli stjórna þeirri jarðabótavinnu,
sem styrkur er veittur til undir tölul. 14,
c og d, og auk þess ferðast allt að 7 vikna
tíma um ýmsa hreppa sýslunnar, sem óskað
hafa eptir honum. Nefndin skorar fastlega
á þá hreppa, sem hinn umgetni styrkur er
veittur, að útvega 4 unglinga, til að fylgja
búfræðingnum að störfum hans í sumar og
njóta tilsagnar hans.bóklegrar og verklegrar,
eptir föngum.
17. Nefndarmaður Gnúpverjahrepps bar
upp þá uppástungu, að nefndin styðji að
því, að efnilegir ungir menn, allt að 7 að
tölu, verði sendir til norðurlands, til að
vera þar í vist um 2 ára tfma á góðum bæj-
um með vanalegum vinnuhjúakjörum, til
að læra þar meðferð á sauðfjenaði, og hverfa
svo aptur til suðurlands, til að efla þar
kunnáttu í því efni.—Nefndin leggur það
til, að nefndarmenn, hver 1 sinni sveit, aug-
lýsi, að kostur sje á þessu, og að þeir, sem
sinna vilja því, skulu hafa gefið sig fram
við Asmund bónda Benidiktsson í Haga
fyrir næstu septembermán.lok.
18. Ábúendur Hóla í Stokkseyrarhreppi
báðu nefndina enn á ný, að útvega annan
áfangastað í staðinn fyrir svonefndan »Hóla-
völl«, eða skaðabætur fyrir usla af ferða-
fólki. Nefndin vísaði þessu máli frá sjer,
sem fyrra ár, og vonar, að það verði ekki
borið undir hana frainar.
19. Ábúendur Óseyrarness höfðu beðið
nefndina að sjá um, að skemmdir á hög-
um þeirra, leiðandi af, að grjót hafi verið
tekið þar upp til íburðar 1 »Melabrúna«,
verði annaðhvort lagfærðar, eða bættar með
fé úr sýslusjóði,—Nefndin fann sjer ekki
skylt, samkvæmt vegalögunum, að verða
við þessari beiðni, sem henni auk þess virt-
ist stórlega hneikslanleg, þar sem jörðinni
Óseyrarnesi or með Melabrúnni unnin mjög
veruleg jarðabót, bæði hvað veg og vörn
snertir.
20. Hreppareikningarnir fyrir 1884—85,
sem fram höfðu verið lagðir fyrsta fundar-
dag, voru samþykktir með þeim athuga-
semdum, sem við þá höfðu verið gjörðar.—
En þar sem enn vantaði nokkrar upplýs-
ingar með reikningnum fyrir Selvogshrepp,
var oddvita með nefndarmanni Olves-
hrepps falið, að úrskurða þann reikning,
þegar þær væru komnar.
Til endurskoðanda var endurkosinn
nefndarmaður Olveshrepps.
21. f>á kom til umræðu reikningur yfir
tekjur og gjöld vegasjóðs Árnessýslu árið
1885, sem fram hafði verið lagður í byrjun
fundar, með athugasemdum endurskoðanda
og svörum reikningshaldara. Var hann
eptir nokkrar umræður samþykktur með
flestum þeim athugasemdum, sem við hann
höfðu verið gjörðar.
22. Reikningur yfir tekjur og gjöld sýslu-
sjóðs Árness. árið 1885 hafði einnig legið fyr-
ir nefndinni frá fundarbyrjun með athuga-
semdum endurskoðanda og svörum reikn-
ingshaldara, og var hann nú ræddurog sam-
þykktur með tíestum þeim athugasemdum,
sem við hann höfðu verið gjörðar.
Til endurskoðanda var endurkosinn
nefndannaður þingvallahrepps.
23. Lagðar voru fram 3 bænarskrár frá
»bræðrafjelögunum« á Eyrarbakka, Stokks-
eyri og Gaulverjabæ um stofnun alþýðuskóla
á Eyrarbakka. Samþykkt, að fresta þess-
ari stofnun, bæði sökum hins harða árferð-
is, og af því enn væri ekki útkljáð um, hvaða
aðalstefnu alþingi muni taka um mennta-
mál landsins.
24. Oddvita var falið, að sækja um til
landshöfðingja, að hann hlutist til um, að
fiskifræðinguriun dvelji sem lengst í þess-
ari sýslu á komandi sumri, til að rannsaka
og ráðleggja um veiðar í veiðiám og vötn-
um sýslunnar.
25. Tveir menn, Guðmundur Ingimunds-
son á Bergstöðum í Biskupstungnahreppi
og Eiríkur Jónsson á Sólheimum í Hruna-
mannahreppi, höfðu beðizt meðmæla nefnd-
arinnar með beiðni um verðlaun af »styrkt-
arsjóði Kristjáns IX«.—Nefndin mælti með
bænarskrá hins fyrrnefnda, en treystist
ekki til að gefa hinum síðarnefnda með-
mæh.
26. Oddviti hafði í fundarboðuninni tal-
ið málið um brúargerð á þjórsá og Ölves-
á meðal þeirra, er koma mundu til umræðu;
tók því nefndin það fyrir, og lýsti því yfir,
að þetta mál væri sjer sama áhugamál og
fyr; en af því alþingi í sumar hefði sjer-
stakan starfa, en fengist ekki við sjerstök
fjárhagsmál, væri þýðingarlaust að leggja
þetta mál fyrir það að þessu sinni.
27. |>á var rætt um sýsluvegi sýslunnar.
Nefndinni höfðu ekki borizt neinar uppá-
stungur um nýja sýsluvegi, eða breytingar
á hinum ákveðnu sýsluvegum.
þá er rannsakaðar voru skýrslur um
verkfæra menn, fundust nokkrir misbrestir
á, aðákvörðun nefndarinnar hefði verið fylgt
í Grafnings-Biskupstungna- og Hrunamanna
hreppum. — Nefndin heldur því fram, að
þeirri ákvörðun hennar sje rækilega fylgt, að
hreppstjórar láti skýrslur prestanna fylgja
listum sínum sem fylgiskjöl, og sendi sýslu-
manni hvorttveggja að minnsta kosti á
vorfund sýslunefndarinnar.
Umsjónarnefnd yfir »Melabrúnni« hafði
eptir ákvörðun nefndarinnar á haustfundi
falað 2000 kr. lán, af þeim 150,000 kr.,
sem í enda fjárlaganna fyrir 1886—87 var
ætlað til lána að veita mönnum atvinnu,
og fengið munnlegt loforð landshöfðingja
fyrir þessu, ef atvinnuláuið yrði staðfest,
og í því trausti ráðið verkstjóra og látið
byrja að taka upp og draga að grjót til
íburðar í brúna. En meðan sem hæst
stóð á verkinu, kom út ráðgjafabrjef það,
sem neitar um samþykki á atvinnuláninu.
Umsjónarnefndin ljet samt halda verkinu
áfram, og var unnið fyrir nál. 1750 kr. —
Sýslunefndin viðurkennir, að umsjónar-
nefndin hafi í fyllsta máta rekið það er-
indi, sem henni var falið, og að þar sem
búið sje að vinna fyrir meiri hluta hins um-
beðna láns, ályktar hún, að sjálfsagt sje,
að taka lánið á annan hátt með sem væg-
ustum kjörum. Nefndin komst á fundin-
um í samning um þetta lán, með 4f vöxt-
um, og 15 ára afborgun. En þar sem verk-
ið er enn eigi hálfgert, grjótið ómulið og
ólagt í brúna, telur nefndin óumflýjanlegt,
að taka að auki 1500 kr. lán fyrir vega-
sjóðinn, og var oddvita með nefndarmönn-
urn Stokkseyrar- og Ólveshrepps, þeim sem
nú eru, falið að útvega þetta lán með sem
vægustum kjörum, og gefið umboð til þess
af nefndinni. Oddvita var falið, að útvega
leyfi amtsráðsins til þessarar láutöku hvorr-
artveggja.
kr.
Sýsluvegabótagjald sýslunnar pcttaárer 1839.75
og í vörzlum oddvita frá fyrri tíð 14.00
Í8Ö3.76
Auk l>ess sótti ueiudin um úr landssjóði
til póstvega....................... 1000.00
{•essum samtals 2853.75
samþykkti ncfndin aö verja þannig, ef
liinu umbeðni styrkur fæst: