Ísafold - 24.11.1886, Page 2

Ísafold - 24.11.1886, Page 2
190 til Timófu. Sögnum Kaulbars og annara Kússa munar mjög frá því, sem aðrir bera frá Bolgaralandi. Hann segir, að hjer gangi allt á trjefótum, og kallar því bezt að fresta höfðingjakosningunni þangað til haun sje búinn að koma öllu í lag og spekja fólkið. Bolgarar — sjálfsforræðis- fiokkurinn — og fleiri segja, að það sje einmitt erindsreki Rússa sjálfur, sem hræri í fólkinu til flokkadráttar og ófriðar, að Kússum gefist svo átylla til atfara. Vera má, að hjer sje nokkuð ýkt á háðar hend- ur, en nú eru tvö herskip Rússa á höfn fyrir utan Vama, og kallað að þau eigi að tryggja rússneskum þegnum grið þar syðra. Atfarir og hernám — og hvað tekur þá við? Hjer þykir öllum vant að svara, og flest stórveldin tala hjer heldur á huldu, vilja sem flest á mútur mæla. það er sem hver vilji metast við annan, ef Rvissar fara með her inn á Bolgaraland. Ríkin á meginlandinu hafa lengi sagt við Eng- land: »ætlarðu að þola Rússum þáóhæfu?» —»En hvað gerir þú?», segir Éngland, og víkur svarinu að Austurríki. Fyrirnokkru svarf stórmennið á þingi Ungverja að Tirzu, og bað hann segja, hvað stjórnin hefði í hyggju viðvíkjandi Balkansmálinu. Hann stillti varlega orðunum — og vísaði til Kal- nokys kansellera—en gaf í skyn, að þar gæti komið, að Austurríki Ijeti til sín taka, og talaði um leið heldur borginmannlega um sambandið við jþýzkaland. En hjer er sá hængur við, að Bismarck hefir sagt, að Bolgaramálið væri svo fjarstætt högum þýzkalands, að fyrir það skyldi aldrei ein- um hermanni þaðan hætta. Bismarck vill allt til friðarins vinna, og blöð hans láta ekki af að tjá mönnum, að uppihald griða og friðar í Evrópu sje aðalhlutverk þýzka- lands, og því sjálfu allra hluta hallkvæm- ast. 011 ummæli enskra ráðherra og flestra enskra blaða út af sama texta. Churchill lávarður hefir nýlega sagt svo í ræðu, að vinirnir á meginlandinu skyldu eiga þar vísar fylgistillögur Englendinga, sem þeir styddu að sjálfsforræði landsmanna á Bal- kansskaga, en bætti við, að hjer væri að eins um friðsemisfylgi að tala. því er nú líka opt slegið við í enskum blöðum, að öðrum sje þörfin brýnni en Englendingum, að stía Rússum frá Miklagarði, og að þeim sje aðrar stöðvar hentari til að verja ráð sín í Miðjarðarhafi og tryggja sjer leiðina til Indlands. Frakkar leggja minnst allra til þessa máls, og lengi hefir sá grunur leikið á, að þeir hygðu til samvinnu með Rússum, ef til stórræðanna kæmi. Af því hafa sum blöðin sagt, að Bismarck hafi hliðrað til við Rússa, því honum hafi þótt tvísýnt að etja við hvoratveggja, þó banda- lags nyti við (af hálfu Austurríkis og Italíu). Nú er hinn nýi sendiboði Frakka — Jules Herbette — kominn til Berlínar, og var mesti vinsemdarblær á kveðju hans til keisarans, og á svarinu engu síður. þetta þykir sumum boða nýjan samdrátt með hvorum tveggju, og það er ekki ólíklegt. En reynist svo, þá getur verið, að Bis- marek ráði Austurríki til að banda fastlegar móti Rússum, og enn er ekki fyrir endann sjeð, til hvers draga vill þar eystra. Fbá Spáni. Drottning hefir látið hers- höfðingjann Villacampa og þá fyrirliða, sem honum fylgdu til uppreisnar, og til dauða voru dæmdir, halda lífinu, og sent þá í útlegðarvist (varðhald). Ráðherrarnir vildu segja af sjer, en hún fjekk Sagasta til að halda forstöðunni, og skipti að eins um nokkra, meðal þeirra ráðherra hermála og sjóvarna. Fbá Nobðue-Amebíku. þann 28. októ- ber stóð hátíðarhald í New-York, sem að mikilfengi til og fleiru þó vart hefir átt og vart fær sjer líka utan í »hinum nýja heimi«. Hjer var afhjúpaður líkneskjuvarði—kven- líkan: »frelsið berandi birtu út yfir heim- inn«—sem stendur á Bedloe-eyju fyrir framan skipaleiðina inn að höfninni. Líkneskjan er sú stærsta, sem til hefir ver- ið í heimi, og, að því sagt er, tvöfalt stærri en jötuninn, sem á að hafa staðið yfir Rhódushöfn í fornöld. Hún er hjer vita- varði og nær 350 fet upp frá sjávarmáli, en stallinn ákaflega mikill. Hún rjettir upp hægri hönd, haldandi á rafurljósakyndli, sem ber birtu frá sjer 5 mílur. Hún ber djásn á höfði, og þar rafurlog í steina stað. Höfundur myndarinnar er franskur maður, Bartholdi að nafni, en repúblíkin franska hefir kostað smíðið og gefið líkneskjuna systur sinni fyrir handan hafið. Til hátíð- haldsins komu stórmenni frá Frakklandi —þar á meðal Lesseps gamli, og mynda- smiðurinn.—Forseti Bandaríkjanna, Cleve- land, og annað stórmenni þeirra nam fyrst staðar á stórtorgi borgarinnar, sem Madis- ons-torg heitir. Fremstir í prósessíunni voru 30 þús. hermanna frá uppreisnar- stríðinu, og sendinefndagrúi frá öllum ríkj- unum. Svo er sagt, að í henni hafi fánum fylgt miljón manna. A palli forsetans var Bartholdi, og þegar hann kenndist, gullu við fagnaðaróp frá 100 þúsundum manna. Síðan hjelt forsetinn, höfðingjar og gestir á gufuskipi út til eyjarinnar, og fylgdu því 137 skip skrautbúin í tveim röðum. Ept- ir stutt bænahald tók Lesseps fyrstur til orða, flutti hann kveðju frá Frakklandi og skilaði í þess nafni gjöfinni Bandaríkjun- um í hendur. Eptir þakkarræðuna var hjúpnum svipt burt, og nú druudu skotin, 10,000 skot, úr 500 fallbyssum, allar klukk- ur borgarinnar ómuðu, en undir þetta tek* ið af þyt gufulúðra og fagnaðarópi fólksins. þegar hljóð fjekksb, flutti Cleveland ræðu og kvaðst þiggja varðann fyrir hönd Banda- ríkjanna. Eptir hann taladi erindreki Frakka. Síðan var þjóðsöngurinn sunginn og fylgdu til lykta nýjar skotdrunur. Að kveldi mikið um veizluhöld og uppljóman borgarinnar. Látnie menn. Tvo skal nefna: Rot- hehild fríherra í Frakkafurðu, forustumann auðkýfinganna með því nafni, og Beust greifa, fyrrum örðugasta mótstöðumann Prússa og Bismarcks. Sem kunnugt er, bar hann hjer lægra hlut, en meðan hann var kanzlari Jósefs keisara, kom hann al- ríkinu—Austurríki og Ungverjalandi—í þá skipun, sem enn nýtur við. Viðbætib. Daginn, sem póstskipið lagði af stað hingað frá Skotlandi, barst sú hraðfregn þangað frá Bolgaralandi, að þingið þar hefði kosið Valdimar prinz frd DanmörJcu fyrir höfðingja yfir sig. Hvort stórveldin samþykkjast því eða faðir hans lætur það eptir, það frjettist ekki fyr en næst. Nokkrar athugasemdir um gjaldamál. Eptir alþingismann Jakob Guðmundsson. I. það hafa nokkrir mótstöðumenn stjórn- arskrárbreytinganna brugðið meira hluta þingmanna um, að þeir beindu öllum eða mestum áhuga sínum að stjórnarskrármál- inu og vanræktu þess vegna önnur nauð- synjamál þjóðarinnar; og af ummælum sumra þeirra má ráða, að þeir álíti, að þetta óskabarn þjóðarinnar—stjórnarskrá- in—sem virðist vera sannkölluð leiðinda- grýla stjórnarinnar og hennar sinna, dragi allan áhuga og kjark úr landsmönnum til að leita sjer bjargar og þjóðlegra framfara innanlands, sem þeim sje þó alhægt með þeirri stjórnarskrá, sem nú gildir. Við umræðurnar í hinu margrædda stjórnarskrármáli er það sýnt og sannað með ljósum og nægum rökum, að Islend- ingar nái aldrei verulegri sjálfsmenningu og þjóðþrifum, meðan Island hefir útlenda ókunnuga yfirstjórn, fædda og uppalda og búsetta í öðru landi í 300 mílna fjarlægð. En þó að flestir þingmenn og mestur hluti

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.