Ísafold - 05.02.1887, Page 3
23
yfir þeim kala og hefndarhug, sem svo opt
kemur í ljós íblöðum þeirraogá fundamótum.
Unz Frakkar þagni um landmissi sinn (1871)
verði þjóðverjar að standa fullvopuaðir á
verði og fullfœrir að veita þeim viðtöku.
Til frekari áhrifa leiddi Bismarck í aðal-
ræðu sinni löndum sínum þær óheyrilegu
hörmungar og fjerán fyrir sjónir, sem að
mundi koma, ef Frakkar næðu að vaða I
yfir þýzkaland og koma í vigmoði til Ber-
línar. Hann lagði þingslit til nýrra kosn-
inga við, ef frumvarpið næði ekki fram-
göngu. En það hreif eigi. þingið ónýtti
málið, í dag, og sleit þá Bismarck þingi í
fundarlok og boðaði nýjar kosningar 21.
febrúar.
Luitpold, ríkisforstjóri Baiverja, hefir J
fyrir ekki löngu heimsótt Vilhjálm keisara. j
Við honum með mestu virktum tekið, en j
hann bauð fulltrúa Baiverja 1 sambands-
ráðinu að styðja sem bezt heraukamálið.
Fbakkland. Hjer hefir orðið ráðherra-
skipti. Freycinet skilaði af sjer forstöðu
ráðaneytisins, er hægrimenn og einveldislið-
ar og hinir yztu í fylkingu vinstrimanna
gengu í bandalag á þinginu á móti honum
og báru hina ofurliða í fjárveitingamálum.
Hann beiddist lausnar af stjórnarvanda,
þegar neitað var um fje til þeirra hjeraða-
fógeta, sem Frakkar kalla sous-préfets (und-
irstjóra hjeraða eða sýsiumenn). Við for-
stöðunni tók loks Goblet, kirkju- og kennslu-
málaráðherrann. Hann er talinn skörung-
menni að hyggindum og ráðfestu. Honum
fylgja ýmsir af hinum fyrri ráðherrum, og
meðal þeirra hermálaráðherrann,Boulanger,
eins konar átrúnaðargoð Frakka. Hann hefir
manna kappsamast unnið að endurskipun J
franska hersins, og lætur stundum í ljósi,
að Frakkar þurfi ekki fyrir neinum smeik-
ir aðstanda. Bismarck sagði í ræðu sinni,
að margt gæti orðið til að hleypa Frökkum
í vígmóð, en þá mundi þó skemmst til
hríða, ef Boulanger kæmist til valda.
Nýlega komu þær óspektafrjettir frá
Tonkin, að uppreisnarflokkar hefðu á ein-
um stað veitt aðsókn að setuliði Frakka
og gert þeim nokkurn mannskaða.
Italía. Látinn er Minghetti, einn af
þeim sem hafa lært í skörungaskóla Ca-
vours og verið í samvinnu með honum að
vöxtum og viðgangi hins ítalska ríkis.
Feá Spáni. Hjeðannýlegaborin þauharma-
tíðindi, að höllin Alcazar (í Tóledó) frá
Mára-tímum sje gjöreydd af eldi, ásamt
dýrmætasta bóka, handrita og litmynda-1
safni, sem hjer var í hirzlum.
Ameeíka. í boðunarskýrslu sinni til I
þingsins (4. des.) greindi Cleveland forseti
frá, að ríkistekjurnar hefðu við útgöngu
fjárlagaársins, í lok júní, farið fram yfir J
útgjöldin um nær því 94 miljónir dollara(l). J
það eru aðrar fjárhagssögur, sem flest rík-
in eiga að segja.
Látinn er Chester A. Arthur (seint í
nóvember), sem tók við forsetadæmi við
lát Garfields. Hann hafði stundað lög á
yngri árum og haft málafærslu með hönd-
um, sem fleiri af forsetum Bandaríkj-
anna.
Viðbætib. Englandi 18. janúar: »Aust-
urríkismenn hervæðast í gríð, segja hrað-
frjettir í dag«.
Bendingar
um
hagnýtingu búnaðarstyrksins úr landssjóði.
Eins og kunnugt er, hefir alþingi að
undanförnu veitt talsvert fje til eflingar
búnaði; en það hefir ekki sett neinar
reglur um nagnýtingu þess fjár, og ekki
| einu sinni heimtað, að skýrslur um notin
af þvf skyldi birtar á prenti; enda veit al-
menningur lítið um þau. Sumir hafa líka
sagt, að þessu fje væri eins og »fleygt í
sjóinn«, og þeir hafa óneitanlega það til
síns máls, að tryggingu vantar fyrir notum
þess. Ekki er samt ástæða til að efast
um, að þau sjeu talsverð; en að segja, að
þau sje svo mikil sem fremst má verða,
er að líkindum jafnfjarri sanni eins og að
segja, að því sje eins og fleygt í sjóinn.
Enginn efi er á því, að nokkuð mætti
tryggja betur not þessa fjár með því, að
setja fastar reglar um útbýtingu þess.
Ekki samt til þess, að binda hendur lands-
höfðingja og sýslunefnda, heldur til að
gera þeim hægra fyrir að nota sín frjálsu
umráð á sem heppilegastan hátt.
Útbýtingin fer nefnilega ávallt eptir því,
hvernig vissum höfuðspurningum er svarað;
og er þá mikilsvert, bæði fyrir útbýtendur
og þiggjendur fjárins, og jafnframt fyrir
tilgánginn, sem það er veitt í, að þessum
spurningum sje svarað fyrirfram með föst-
um reglum.
þessar höfuðspurningar eru einkum tvær.
1. Hvort á heldur að veita fjeð sem
verðlaun fyrir það, sem búið er að gera;
eða sem styrk til þess, sem í dformi er
að gera til eflingar búnaði?
Hvorutveggja þessu má mæla með og
móti.
Sje fjeð veitt sem verðlaun, er því ekki
fleygt út í óvissu; tilganginum er þá náð
fyrirfram; en þá ná ekki aðrir til að njóta
fjárins en þeir, sem af sjálfs sín rammleik
hafa getað komið hinum verðlaunuðu fyr-
irtækjum fram; en það eru optast nær efna-
mennirnir, sem þá geta eflt búnað sjer til
hagnaðar án þessa fjár.
Sje fjeð veitt sem styrkur, fæst það í
tæka tíð, svo að sá, sem hefir vit og vilja,
en vantar »afl þeirra hluta sem gjöra skal»
til þess, að koma fram þarflegu fyrirtæki,
getur komið því fram, fyrir það að hann
fær styrkinn; en þá er styrkurinn samt
veittur út í óvissu, þar eð tryggingu vant-
ar fyrir því, að fyrirtækið verði í raun og
veru framkvæmt svo sem til er ætlazt. I
því efni mun reynslan vera nokkuð mis-
munandi.
An efa væri nauðsynlegt, að sameina verð-
launaveitinguna við styrkveitinguna.
Og það má gera á þann hátt, að veita
fjeð í fyrstu sem Idn; en að lánið álítist
borgað þá, er augnamiði veitingarinnar er
náð; en endurborgist ella.
Aðhald og tryggingu má fá með þvf, að
veita lánið að eins sveitafjelögum eða þeim
einstökuin mönnum, sem sveitarfjelagið,
þar sem fyrirtækið á að framkvæmast,
vill ganga í ábyrgð fyrir um framkvæmd
eða endurborgun. Mun varla nokkrum
neitað um slíka ábyrgð, ef hann er líklegur
til að gera sig styrksins maklegan.
Aðferðin getur verið mjög einföld.
þeir, er styrks vilja beiðast, útvega sjer
fyrst álitsgjörð búfræðings um fyrirtækið,
og síðan ábyrgðarskjal hreppsnefndar; þau
skjöl fylgi bænarskránni um styrkinn. Fá-
ist fjeð, skrifi beiðandi, eða umboðsmaður
hans, undir skuldabrjef, og sjeu þar tekin
fram þau skilyrði, sem, samkvæmt álits-
gjörðinni, eru nauðsynleg. þegar þeim
8kilyrðum er, að áliti tilkvaddra skoðunar-
inanna, fullnægt, sje skuldabrjefinu skilað
aptur.
A þenna hátt vinnst það þrennt í einu:
að fjeð fæst í tæka tíð til framkvæmdar-
innar; að trygging er fyrir framkvæmdinni
(því sveitarfjelagið lætur það ekki viðgang-
ast, að til endurborgunar komi); og að
apturskilun skuldabrjefsins, þá er augna-
miðinu er náð, verður hlutaðeiganda að
maklegum verðlaunum.
Væri þetta gjört að fastri reglu, færi
naumast hjá því, að hun kæmi að góðum
notum.
2. Hvort á að meta meira: að láta
sem flesta ná í að verða styrks þessa
aðnjótandi; eða láta hann eingöngu ná
til hinna stærri fyrirtœkja, sem til al-
mennari nota geta orðið?
Hjer má og færa ástæður með og móti
hvorutveggja.
Sje fjenu sem minnst dreift, og því að
eins varið til hins verulegasta, þá sjer þess
meiri staði þar, sem niður kemur; en það