Ísafold - 18.05.1887, Page 4

Ísafold - 18.05.1887, Page 4
92 seölarnir Jéllu, og það yrði bankanum hér kostnaðarsamara að leysa seðlana inn þannig með útlendum milligöngumanni, en að gera það sjálfr hér á staðnum. Ég gæti hæglega sýnt fram á ýmislegt annað skaðræði við þetta íyrirkomulag; en það er óþarft; þetta tvent, sem ég hefi tilgreint, er nóg. En að það væri æskilegt, að bankinn hér svo fljótt sem auðið er tæki það að sér sem skyldu að innleysa sjálfr seðla sína, fram á það hefi ég reynt að sýna á 83.-88. bls. í riti mínu ,. Um banka“, sem kom út i síðastliðnum mán- uði sem sérprentun úr þessa árs „Andvara“. Vísa ég því þeim sem ekki hafa kverið í hönd- um, í „Andvara11; blaðsíðutalið er þar ið sama. Ég vona þá að öllum skiljist, að það er alls ekki sama, hvort bankinn hér leysir sjálfr inn seðla sina með fullu verði, hver sem þess beið- ist, eða hann leysir þá að eins inn með fulJu verði þegar útlendr banki heimtar það, sem sjálfr hefir tekið þá með aflöllum, af því að bankinn hér vildi ekki leysa þá inn fyrri en þeir hefðu fyrst verið seldir útlenda bankanum með afföllum. Hr. Tr. G. hefir virzt þetta „hérumbil“ ið sama. f>að er rúmgott orð, þetta „hér um bil“. Ég held nú að „Ólafr Pá og Ólafr upp-á“ sé ekki það sama — ekki einu sinni „hér um bil“ það sama ! Jón Ólafsson. Hitt og petta. Ríkisskuldir og hernaðarkostnaður. Hjer er yfirlit yfir rikisskuldir og rentur af þeim, svo og herkostnað Norðurálfuríkja og Bandarikjanna i Norður-Ameriku i fyrra og 20 árum þar á undan. ríkisskuldir, kr. rentur, kr. Norðurálfan 1866 47,520,000,000 1,750,000,000 ----1886 84,321,000,000 3,847,500,000 Bandarikin 1866 10,800,000,000 526,500,000 ----1886 5,202,000,000 184,500,000 þetta voru nú ríkisskuldirnar. |>ær hafa aukizt i Norðurálfunni þessi 20 ár um nærri þvi helming, en minnkað í Bandaríkjunum um meira en helming. jþá er herskatturinn, eða árleg útgjöld til land- hers og flota. Sá kostnaður er nú i Norðurálfunni .... 3,256,000,000 kr. - Bandarikjunum .... 144,000,000 kr. En sjeu rentur af ríkisskuldum, sem stafa mest frá hernaðarkostnaði, lagðar saman við ársútgjöldin til landhers og flota, verður sú upphæð i Norðurálfunni .... 7, K)5,600,000 kr. - Bandarikjunum .... 3:4,000,000 kr. Á Rússlandi er árlegur herkostnaður 711,600,000 kr. og rentur af rikisskuldum 761.600,000 kr. Samtals 1,462,600,000 kr. Enda kvað það riki vera orðið rjett að kalla gjaldþrota. Pappirs-stígvjel. J>að er sennilegt, að úr því að hægt er að búa til hús og haffær skip úr pappir, þá megi líka fá allra beztu stígvjel úr þvi efni, enda hefir pappírsgjörðarmaður einn í Ameríku reynt það og gefizt prýðilega. Pappírsstígvjel hans kváðu vera miklu ódýrri og haldbetri en leðurstigvjel, og líka ágætlega þjett og gljá. Einn aðalkostur þeirra er sá, að það eru engir saumar á þeim. AUGLYSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd. Proclama. Með því að bú Sigurðar Hafliðasonar, húsmanns á Kleifum í Skötufirði er tekið til skipta sem þrotabú, er lijer með, sam- kvœmt opnu brjefi 4. jan. 1861 og lögum 12. apríl 1878, skorað á alla þá, er til skulda telja í nefndu búi, að sanna kröfur sinar fyrir undirrituðum skiptaráðanda innan 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Skrifstofu ísaijarðarsýslu, 4. apríl 1887. Skúli Thoroddscn. Proclama. Með þvi að bú porsteins járnsmiðs por- steinssonar á lsafirði hefir verið tekið til skipta sem þrotabú, er hjer með samkvœmt opnu brjefi.4. jan.1861 og lögum 12.aprÚ 1878 skorað á alla þá, er til skulda telja i nefndu búi, að gefa sig fram og sanna kröfur sinar fyrir undirrituðum skiptaráðanda innan 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar aug- lýsingar. Bæjarfógetinn á ísafirði, 4. apríl 1887. Skúli Tlioroddsen. Proclama. Með því að bú pórólfs Sigurgeirssonar, húsmanns á ísafirði er tekið til skipta sem þrotabú, er hjer með samkvœmt opnu brjefi 4. jan. 1861 og lögum 12. apríl 1878 skorað á alla þá, sem telja til skulda í tjeðu búi, að gefa sig fram og sanna kröfur s'tnar fyrir undirrituðum skiptaráðanda innan 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar aug- lýsingar. Bæjarfðgetinn á ísafirði, 3t. marz 1887. Skúli Thoroddsen. Proclama. Samkvœmt lögum 12. apr. 1878 og opnu brjefi 4. janúar 1861 er hjer með skorað á pá, sem til skulda telja í dán- arbúi Magnúsar sál. Magnússonar frá Garðsvika í Garði, sem druknaði við Vara-ós 20. marz þ. á., að lýsa kröf- um sínum og sanna pcer fyrir und- irskrifuðum skiptaráðanda innan 6 mán- aða frá síðustu birtingu auglýsingar pessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu 4. mai 1887. Haiuics Hafstein, settur. Proclama. Samkvœmt lögum 12. apr. 1878 og opnu brjefi, 4. jan. 1861 er hjer með skorað á pá, sem iil skulda telja í prota- búi Olafs Jónssonar frá Glaumbce í Rosmhvalaneshreppi, sem paðan fór til Ameríku á nœstliðnu sumri, að lýsa kröfum sínum og sanna pær fyrir und- irskrifuðum skiptaráðanda innan 6 mán- aða frá síðustu birtingu auglýsingar pessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu 4. mai 1887. Hanncs Hafstein, settur. Jeg undirritaður gjöri hjermeð kunnugt, öllum minum heiðruðu skiptavinum á Is- landi. að jeg kem til Reykjavíkur í júní- mánaðarlok, eða fyrstijúli, tii að kaupa 600 hesta, sem jeg borga í peningum eða vörum eptir því sem menn helzt oska. Markaðardagar verða nánara á- kveðnir. Hans Lauritzen & Co. Newcastle on Tyne. Jeg hefi ásett rnjer í næstkomandi júni og júlí, að veita stúlkum tilsögn i nteikn- ing«, ef nógu margar óska þess, og kostar hún fyrir 16 klukkustundir um múnuðinn 3 kr. fyrir hverja stúlku; börn 10 vetra yngst geta tekið þátt i þessari kennslu. Reykjavík 16. maí 1887. l>óra Pjetursdóttir. Fiskiskúta til sölu! Skipaútgjörðarfjelag eitt á Færeyjum, sem meðal annara skipa á „kútter“, sem er 22smá- lestir að stærð, eirseymdur og eirvarinn, ágæt- lega útbúinn að seglum og köðlum, og íær nú í vor á sig afbragðsgóðan kaðalreiða, er til með að selja skip þetta fyrir mjög lágt verð, vegna þess að það getur ekki borið meira en lóO skpd. fiskjar, og er því of lítið til að láta það ganga til fiskiveiða við ísland frá Pæreyj- um. Skip þetta, sem er úgætt til siglinga, kostar eigendurna 7500 kr„ en verður, ef til vill, látið fyrir minna en hálfvirði gegn peningum út í hönd. þeir, sem kaupa vilja, eru beðnir að snúa sjer til H. G. Thomsens, Trangisvaag, Fœreyjum. Hjer með auglýsist, að fyrir það sem jeg get úti látið af beina við ferðamenn, hlýt jeg að taka sanngjarna borgun upp frá þessu. Gljúfurárholti í ölfusi 16. maí 1887. Einar Magnússon. Fundizt hefir á síðastliðnum lestum á vegin- um milli Hólms og Lækjarbotna kvenn-reið- hattur, er eigandi má vitja að Steinum uudir Eyjaljöllum til Einars Einarssonar, gegn sann- gjörnum fundarlaunum og auglýsingargjaldi. Fjármark Sigurðar Jónssonar á Múlakoti í Fljótshlíð: hvatrifað h., heilhamrað v. Ritstjóri Björn Jónsson, eand. phil. Prentsmiðja ísafoldar

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.