Ísafold - 01.06.1887, Síða 2

Ísafold - 01.06.1887, Síða 2
98 ari lasti samkomulags-stefnuna, já, bann- syngi henni, þykir flestum sem að snjall- ræði hafi hjer verið horfið — þó þeir eigi bágt með að sýna, hvað fyrir komi. Tvo má nefna meðal þeirra, sem látizt hafa. þeir eru J. C. Jacobsen, ölgerðar- maðurinn auðugi, sem dó í Rómaborg, og Haffner hershöfðingi, sem var (1869—72) fyrir stjórn innanríkismálanna í ráðaneyti Frijs greifa, og síðar tvö ár í ráðaneyti Estrúps fyrir hermálastjórn. Jakobsen gaf nvísindafjelaginu danska« fyrir nokkrum árum 2 miljónir króna, en leigunum svar- ar ölgerðarstofnunin mikla, sem »Gamle Carlsberg« heitir, og nú kemst undir stjórn og tilsjón fjelagsins. Fká öðkum löndum. Allt stórtíðinda- laust; og nú þykir friðinum loksins full- borgið. Reyndar vildi svo til fyrir skömmu, að Frökkum þótti sem jpjóðverjar ætluðu að egna sig til ófriðar. Einn löggæzlu- maður Frakka austur við landamerki hafði lagt sig mjög í framkróka um njósnir og fleira í Elsass, en þýzkur embættismaður ginnti hann yfir landamærin, og þar var hann höndlaður. — Uppþot í blöðum ekki lítið, en franska stjórnin hjelt stillingu sinni, og Bismarck tók svo vel í málið af sinni hálfu, að hann ljet sleppa manninum, fyrir þá sök, að svo var við hann leikið, þó hann annars hefði átt harða hegning skilið. Ginningin var sú, að löggæzlustjór- inn þýzki bauð honum til sín að tala um embættismál, og það þótti Bismarck hefði átt að helga hann á leiðinni. — Bolgaramálið liggur í dái, og Tyrkinn er nú sá eini, sem er að bisast við það og reyna áð flýta fyrir úrslitum. Lítill trúnaður lagður á að það takist. — Rússar hafa þegar dæmt þá, sem náðust og sekir urðu um morðræðið síð- asta við keisarann — 7 til lífláts, hinum vísað til Slberíu. |>ing Englendinga situr yfir úrræða- lögunum á Irlandi, en hjer hefur sleg- ið í meiðingaryrði með sumum Ira og mönnum af liði Torýmanna. Stór- blaðið nThe Times« átti hjer í fyrstu höf- uðþátt að máli, er það flutti brjef, sem Parnell var eignað og var með hans und- irskript (eiginhandar nafni), en skrifað til eins af þeim, sem eiga að hafa verið í vitorði og ráðum, þegar morðin í Fönix- garðinum voru undirbúin. Brjefið átti að sanna hið sama um Parnell sjálfan. Allir Vigga-megin og fleiri trúa því, sem Parnell segir, að brjefið sje falsbrjef. íslenzk bókfræði í útlöndum. það er óhætt að fuilyrða, að fáir eða engir útlendir menn hafa á hinum síðari tímum sýnt Islandi jafnmikla tryggð og góð- vild og prófessor W. Fiske frá Iþöku í Bandafylkjunum í Norður-Ameríku. Síðan hann ferðaðist hjer um árið 1879, hefir hann gefið söfnum vorum og menntastofn- unum stórgjafir, einkum lærða skólanum og bókasafni hans og lestrarfjelagi skóla- pilta, og hann hefir ekki þreyzt á þessu, heldur hefir hann í öll þau 8 ár, sem síð- an eru liðin, haldið áfram að sýna sama örlæti. Hann hefir með þessu sýnt, að honum var það alvara, sem hann sagði í veizlu þeirri, sem íslendingar nokkrir hjeldu houum að skilnaði, áður hann fór hjeðan : »Úr minni mínu líður aldrei ís- land nje íslenzka þjóðin«. Prófessor Fiske býr nu í Fórenz á I- talíu. En þó að hann sje oss fjarri, fylgir hann með athygli öllu því, sem fram fer hjer á landi. Hann hefir um langan tíma safnað að sjer íslenzkum bók- um, gömlum og nýjum, og á nú víst stærra safn af þeim, en nokkur annar einstakur maður, sem nú er á lífi. Hann er manna fróðastur um íslenzka bókfræði, og hefir nýlega gefið vit tvær ritgjörðir mjög fróð- legar um það efni. Er önnur þeirra um »Islenzkar bækur á 16. öld« («Icelandic Books of the 16th Centurys), en hin nefn- ist »BókfræðiIegar athugasemdir, I., Bæk- ur prentaðar á íslandi frá 1578—1844« («Bibliographical Notices, I., Books prin- ted in Iceland 1578—1844»). í hinni síð- arnefndu ritgjörð eru taldar bækur þær í safni prófessors Fiskes, sem ekki eru til í hinu mikla safni íslenzkra bóka í British Museum, alls 139 bækur. Árið 1885 kom út í London skrá yfir íslenzku bækurnar í British Museum, og er ritgjörð prófess- ors Fiskes viðbætir við þá skrá. Titlar bókanna eru tilfærðir stafrjett með mestu nákvæmni, og fylgja þeim athugasemdir höfundarins, sem bera vott um einstakan fróðleik hans f þessari grein. I safni prófessors Fiskes er meðal ann- ars ágætt exemplar af hinni elztu útgáfu Jónsbókar (Hólum 1578). Bókin er í eins góðu standi eins og hún væri ný. Hún var fyrst eign Friðriks konungs annars. Eptir dauða konungs (1588) komst hún árið 1594 í hendur Jóhanns Bockholts, sem var hjer höfuðsmaður á síðari hlut 16. aldar (t 1602). Arið 1630 er hún orðin eign Christophers Besolds, þjóðversks lög- fræðings og sagnaritara, og nokkru síðar eignaðist klaustur eitt í Weingarten á þýzkalandi bókina. þaðan komst hún f bókasafn konunganna í Wiirtemberg og úr því safni var hún nú seld prófessor Fiske fyrir 200 kr., og mun það sjaldgæft verð á íslenzkri bók ekki stærri, en þessi er, Bókin er í skrautbandi og er framan á bandinu merki Friðriks konungs annars, en aptan á því merki drottningar hans. P- Jm ■ficz-ta á 40. afmælisdegi hans á Eyrarbakka, 18. maí 1887. Tökum glaðir glas í mund, gott er enn að finnast; notum tímans naumu stund, nú er góðs að minnast. Fjörutíu frægðar-ár firðar allir rómi; blessi Guð þín gráu hár, gamli hjeraðs sómi! Blessi Guð þitt göfga sprund, gleði þína og sóma; fyrir hennar heimanmund hús þitt skein í ljóma. Blessi Guð þín blómstrin fríð, beztu hnossin gjafa; ótal barna börnin þýð blómum krýni afa. Beggja hjóna dáð og dyggð, dæmi, snilld og gæði, þakkar skóli, þakkar byggð, þakkar allt vort svæði. Ægisdætur brims við band beztu minnast hjóna, meðan hjer við svalan sand silfurhvítar tóna. Lengi gullin gleðistund gafst oss hjer í ranni, þar sem flest er ljettir lund ljek við komumanni. Kraptaskáld og klerkalið, komum nú og reynum, krýnum aldinn vildis-við vori og nýjum greinum! Höfðingsmanna hjer um slóð haukur jafnan varstu, aðals svip hjá allri þjóð ættarlands þíns barstu. Lengi Guð þitt líf og fjör, listamanna blómi, lifi glaður, ern og ör Eyrarbakka sómi! /*■ !■

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.