Ísafold


Ísafold - 23.07.1887, Qupperneq 2

Ísafold - 23.07.1887, Qupperneq 2
130 útlendum mörkuðum, eins og á fyrri öld- um; því þá var Island eitt af þeim fáu löndum, sem gat miðlað smjöri og öðru feitmeti til annara þjóða. það gátu hvorki Danir eða Norðmenn um það leyti.— það er þess vegna óumflýjanlega nauð- synlegt, að alþingi taki þetta mál fyrir í sumar og setji lög um söluna á óekta smjöri, og leggi jafnframt háan toll á það, er ætti að nema allt að 50 au. á hverju pundi. Svcinn búfrœðingnr. Landshagsskýrslur og launabót. í riti, sem nýlega er komið út, og lieitir nLaunalög og launaviöbœtur-', steiulur: 1) að jeg hafi „600 kr. þóknun fyrir að semja landshags- skýrsiur, með prófarkalestri 40 kr. fyrir örk- ina“; Sí) og að skýrslur þessar sjeu „mjög fróð- 'egur útdráttur úr skjölum þeim, sem liann (o: jeg) samkvæmt stöðu sinni verður að ganga í gegnum“. Ef síðara atriðið er tekið fyrst, þá skal jeg fyrst og fremt láta ánægju mína í ljósi yfir þvi, að höfundinum þykir landshagsskýrslurnar vera „mjög fróðlegar". Landsliagsskýrslur eru ávallt fróðlegar, og að mínu áliti nauðsvnlegar fyrir hvern, sem eitthvað hugsar um opinbermál.— það er aptur á móti mjög ónákvæmt, og mið- ur rjett orðað, þar sem höf. segir, að skýrsl- urnar sjeu ekki annað en útdráttur úr skjölum þeim, sem jeg samkvæmt stöðu minni verði að ganga í gegnum. Reikningar landssjóðsins, sem skylda mín er að ganga ýtarlega i gegnum, eiga ekkert skylt við: fólkstölu á íslandi, skýrsl- ur um fólksflutninga til Vesturheims, skýrslur um búnaðarástnnd, verzlunarskýrslur, skýrslur um efnahag sveitarsjóðanna, tölu kjósenda til al- þingis, og ýmislegt fleira, er nefna mætti sem aðal- inntak íslenzkra landshagsskýrslna, annað en það, að í verzlunarskýrslurnar má og er rjettast að setja það af vínföngum og tóbakj, sem stendur í tollreikningunum, og eins útfluttan fisk ; og i verzlunarskýrslurnar, sem eru hjer um bil 136 dálkar, mætti þannig gera fróðlegan útdrátt úr þeiin skjölum, sem jeg samkvæmt stöðu minni verð að ganga í gegnum, sem fylltí 16 dálka af 136. Aptur á móti eru skýrslurnar um virð- ingarverð húsa og skýrslurnar um tekjuskatt dregnar út úr íslenzkum skattareikningum. en hinar síðarnefndu skýrslur er víst eptir margra áliti nóg að gefa út 5. hvert eða 10. hvert ár, enda hafa þær ekki verið prentaðar siðan 1883; og hinum fvrnefndu mætti koma á ‘4 blaðsíi'ur, væru þær prentaðar árlega. í skjalasafni mínu eru auðvitað þær beztu skýrslur, sem til eru um fjárhag íslands; en þær eru ekki prcntaðar í landshagsskýrslunum. af þeirri ástæðu, að þær eru árlega prentaðar í landsreikningnum. Að jeg samkvæmt skyldu minni verði að ganga í gegnum öll skjöl, sem að landshagsskýrslum lúta, er þamrg hreint og beint misskilningur eða þekkingarleysi höf. Að jeg hafi 600 kr. þóknun fyrir oð semja landshagsskýrslur. er sömuleiðis misskilningur^ eða þekkingarleysi. Alþingi veitti 1885 40 kr. fyrir hverja örh af landsliagsskýrslum (fyrir ár- in 1886 og 1887). Árið 1886 komu aldrei út af þeim nema 11 arkir; það sem til þeirra fór var þannig um 440 kr., en ckki 600 kr. — En svo er nú annað, og það cr. að það er iandshöfð- ingja-skrifstofan — en ekki jeg — scm á að sjá um, að landshagsskýrslur sjeu gefnar út, og jeg sem þær ekki allar; því fer fiarri. Með því, sem jeg hefi að gera, væri slíkt allsendis ómögulegt. Jeg hefi ekkert af landshagsskýrslunutn samiö eöa látiö semja, nema þaö sem nafniö mitt stend- ur viö, og jeg hef ávallt sett nafnið við allt sem jeg hefi af þeim samið, í þeirri von, að mjer yrði ekki eignað það af skýrslunum, sem nafnlaust er; því jeg vil ekki láta eigna mjer það. Aptur á móti er engin von til að höf. viti, að jeg sem hinar eiginlegu skýrslur sjaldnast 8jálfur, því jeg kemst ekki yfir það. heldur læt jeg gera það undir minni umsjón. J>ar á móti sem jeg hin svokölluðu ,,yfirlit yfir skýrslurnar“ jafnan sjálfur. l’rófarkalestur annast skrifstofa landshöfðingja, en ekki jog, og hún tekur þá líka, sem eðlilegt er, borgun fyrir hann. Af skýrslunum 1886 hefi jeg ekki samið ann- að en „Yfirlit yfir búnaðarskýrslurnar árin 1882 —1884“. J>að er ein örk. Fyrir það hefi jeg fengið 36 kr. J>að er nú öll 600 kr. þóknunin mín fyrir landshagsskýrslur það ár. Arið 1885 samdi jeg sjálfur „athugasenidirnar“ við skýrsl- ur yfir efnahag sveitasjóðanna. |>að eru 2 ark- ir. Enn fremur „yfirlit yfir verzlunarskýrslurn- ar“, og part úr einu árinu af þeim, samtals 2 arkir. J>að ár hefi jeg fengið sjálfur borgun fyrir 4 arkir. Árið 1884 samdi jeg 2 arkir af þess árs skýrslum. 1883 samdi jeg 4 arkir. 1882 samdi jeg alls eina örk. Sumum af skýrsl- unum hefi jeg safnað alveg, og að miklu leyti prívat, nefnilega skýrslunum um alþiugiskosn- ingar, og um fólksflutninga til Vesturheims. jpessi ár hefir þessi 600 kr. þóknun o. s. frv., sem jeg á að hafa fyrir að semja landshags- skýrslur, því verið frá 36 kr. og allt að i’00 kr. um árið, og jeg þykist komast vel af þau árin, sem jeg get borgað pappir og ritföng til reikninga- skrifstofunnar með þvi, sem jeg vinn mjer inn fyrir landshagsskýrslur. Reykjavík 19. júlí 1887. Indriði Eitiarsson. Alþingi. IV. Vínveitingae. f>að frv., frá Jóni Olafs- syni, síðan í nefnd (J. Ó. form., J. A. Hjaltalín skrif. og framsögum., Ben. Kristj., Sighv. Arnas. og Fr. Stefánsson), er nú búið í efri deild. — Helztu fyrirmæli þess eru: Enginn kaupmaður má selja áfenga drykki í smærri skömmtum en 3 pela í einu, af öli jafnvel ekki minna en J tunnu, eða 5 þriggja-pela flöskur, eða 10 hálfflöskur. •Staupagjafir og önnur ókeypis vínveit- ing mega eigi fram fara í sölubúðum kaup- manna eða vöru-geymsluhúsum«. »Nú selur kaupmaður vínföng, og er þeirra neytt f hans húsum án hans leyfis, þá verður hann sekur um ólöglega vínveit- ing, ef það er á hans vitorði, eða atvik liggja svo til, að hann hafði ástæðu til að gruna, að þeirra yrði þannig neytt, nema hann sanni, að hann hafi gert það, sem í hans valdi stóð, til að koma í veg fyrir það«. Vínveitingaleyfi f smærri skömmtun eða til neyzlu á staðnum fæst eigi nema með samþykki meiri hluta atkvæðisbærra hrepps- eða bæjarbúa, hreppsnefndar og sýslunefndar eða bæjarstjórnar, og staðfesting amtmanns. Leyfið kostar 50 kr. »Nú selur eða veitir vínveitingamaður á- fengan drykk unglingi yngri en 16 ára, og varðar það í fyrsta sinni 25—100 kr. sekt, í öðru sinni 50—200 kr. sekt, en missi veitingaleyfis, ef sami maður brýtur optar«. Skuldir námsmanna á skólum undir um- sjón landsstjórnarinnar fyrir áfenga drykki skulu engan rjett eiga á sjer eptir þetta. Selji aðrir áfenga drekki en kaupmenn, veitingamenn og lyfsalar varðar það 10 til 100 kr. sekt í 1. sinn, og tvöfaldast lægra takmarkið við ítrekun hverja. »Hafi sá sveitaverzlunarleyfi, er brýtur, má svipta hann verzlunarrjettindum í fyrsta sinn, en í annað sinn skal þeim, hversu sem á stend- ur, fyrirgert«. Onnur brot gegn lögum þessum varða 25 til 250 kr. sekt 1 fyrsta sinn, en síðan 50 til 500 kr. »Rjettindi til að verzla með áfenga drykki missir sá jafnan, er brýtur í 2. sinn, og má svipta hann þeim í fyrsta sinn, ef ástæða þykir til, hvort sem hann er kaupmaður, sveitaverzlunarmaður eða lyfsali«. Leyfið fæst eigi aptur fyr en eptir 5 ár. Spánarsamningur. Neðri deild sam- þykkti í einu hljóði svo látandi þingsálykt- unartillögu, frá P. Briem, Sig. Stefánss. og jþorst. Jónssyni: •Alþingi ályktar enn á ný, að skora fast- lega á ráðgjafa Islands, að bæta hið bráðasta úr hinni brýnu nauðsyn lands- ins með því að gera þær ráðstafanir, sem með þarf, til þess að tollmunur sá, landinu og verzlun þess í óhag, sem spillir markað- inum á Spáni fyrir fisk fluttan frá Islandi og þar verkaðan, og sem um undanfarin ár hefir valdið landsbúum stórkostlegu fjár- tjóni, verði sem allra fyrst af numinrn. En efri deild hafnaði þessari tillögu, og samþykkti í þess stað með 6 atkv. (hin- um konungkjörnu og Jakobi Guðmunds- syni) gegn 5 svo látandi rökstudda dagskrá frá Arnljóti Ólafssyni: »1 því trausti, að stjórn H. H. konungs- ins muni samkvæmt ummælum ráðherra Islands í brjefi dags. 13. júní þ. á. takast að leiða mál þetta til lykta á sem heppi-

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.