Ísafold - 27.07.1887, Blaðsíða 1

Ísafold - 27.07.1887, Blaðsíða 1
K. emur út á miðvikudags- m orgna. Verð árgangsins (60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Bo rgist fyrir miðjan júlímán. ISAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg.fyrir l.okt. Afgreiðslu- stofa í ísafoldarprentsmiðju. XIV 35. Reykjavik, Miðvikudaginn 27. júli. 1887. 137. Innl. frjettir. „þrengra inngöngu en út- göngu“. 138 Er kafið nauðsynleg vara? (niðurl.). 139. Alþinsri. VI. Askorun til manna á íslandi um furn skjöl. 140. Auglýsingar. 1 orngripasafnið opið hvern mvd. op Id. kl. I—2 L.uidshankinn opinn hvern virkan dag kl. II —12 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnun.irsjóður Rvikur opinn I. mánud. f hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Júlí Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttujumhád. fm. em. fm. | em. M. 20. + ú +13 3°, i 29,8.0 b A h d F. 21. + 7 +13 29,4 29,2 5 hd S h d F. 22. + 7 + 9 29,4 29,5 N h b N h b L. 23. + 4 + 9 29,5 29,5 N h b N h b S. 24. + 3 + 7 29,7 29,5 N h b N h b M. 2 5. -t 4 + « 29,5 29,5 N h b N h b þ. 26. + 3 + 8 29.4 29,4 N h b N h b Fyrstu daga vikunnar var hjer talsverð rigning af suðri og austri, en fyiir hádegi h. 22. gekk hann til norðurs, hvass til d|úpa, hægur hjer, bjart og fagurt sólskin á degi hverjum og enn i dag 26. er sama veðrið, hægur norðankaldi og bjart- asta veður. Reykjavík 27. júlí 1887. Landsbankinn. Eptir reikningsá- gripi hans fyrir tímabilið fré 1. apríl til 30. júní þ. á, hafa tekjurnar numið hjer um bil 608,000 kr. þar af eru 380,000 kr. eignir sparisjóðs Eeykjavíkur, er steypt var sarnan við bankann í apríl þ. á., og peningaforði sparisjóðs þá um 63,000 kr. Sparisjóðs-innlög í bankann á þessu tíma- bili hafa numið 51f þús. kr., og er mikið af því eflaust andvirði ríkisskuldabrjefa, er eigendurnir hafa ekki viljað leigubreyt- inguua. Aptur eru útborguð sparisjóðs- innlög 58£ þús. kr. Af lánuin hafa endurgoldizt 24,000 kr., þar af 14£ þús. fasteignarveðslán. Aptur hefir bankinn lánað út á tíma- bibnu rúml. 75,000 kr., mestallt (nær 65,000 kr.) gegn fasteignarveiði, enda átti bankinn alls úti í lánum 30. júní 630,000 kr.,, þar af frá sparisjóði 220,000. I konungl. ríkisskuldabrjefum átti bank- inn 30. júní rúm 141,000 kr. S. d. átti bankinn í peningum í sjóði tæp 34,000 kr. Af seðlaupphæðinni, J milj., var þá bú- ið að eyða, þ. e. veita viðtöku úr lands- sjóði, 370,000 kr. Amtsráðsfundur vesturamtsins var haldinn 20.—22. júní að Bæ í Hrútafirði af amtmanni E. Th. Jónassen, sýslumanni S. E. Sverrisen og sýslunefndarmanni Hjálmi Pjeturssyni. Amtsráðið ákvað meðal annars, að verja skyldi 4080 kr. til að styrkja búnaðarskól- ann í Ólafsdal. Auk þess var mælt með, að landshöfðingi veitti 1000 kr. úr lands- sjóði til að bæta við alveg nauðsynlegum byggingum í þarfir Olafsdalsskólans. þá var og mælt með, að Barðastrandar- sýslu yrði skipt í 2 sýslufjelög. Kvennaskólanum í Eeykjavík var neit- að um 100 kr. úr jaí naðarsjóði, vegna »framúrskarandi báginda íbúa vesturamts- ins«. Sýslunefnd ísfirðinga var leyft að taka 6000 kr. lán til að efia samgöngur í sýsl- unni, með því að koma upp gufubát. Sömu sýslunefnd var veitt samþykki til, að lögferjur verði stofnaðar yfir þessa firði: Dýrafjörð, Onundarfjörð, Súganda- fjörð, Arnarfjörð, Skutulsfjörð og Jökul- tírði. Hallærissögur. I blaðinu Christian Life, er út kemur í Lundúnum, stendur 16. þ. m. svo látandi klausa: »það er hungursneyð á Islandi. Allir, sem geta, eru nú að yfirgefa þessa ísauðn og fara til Vesturheims; konur selja af sjer lofunarhringana til þess að afla sjer farareyris. Erjettaritari vor þar getur um í brjeti nýlega, að talsvert af fólki hafi dá- ið þar úr hungri í vor. þetta eru sorg- leg tíðindi«. þetta og því um líkt er sjálfsagt hermt 1 fleirum útlendum blöðum, og má segja, að það sje sorglegt hugsunarleysi, ef ekki annað lakara, að fara svona háskalega aukuutn og ógætilegum orðum um ástand- ið bjer í brjefum til ókunnugra útlendinga, hvað ofan í annað. ■j" Hinn 21. þ. m. andaðist i Melshúsum á Sel- tjarnarnesi ekkjan Ol'ój Jónsdóttir, 70 ára að aldri. Hún hafði verið tvijjíft. Fyrri maður henn- ar var sira Öj'mundur Sivertsen, prestur á Tjörn á Vatnsnesi, en hinn síðari Eyjólfur bóndi Magn- ússon. Ólöf sál. var greind kona og vel látin af öllum sem hana þekktu.* „|>rengra útgöngu en inngöngu“. —O--- Sigurður bóndi Gíslason, sem nefndur var í síðasta blaði, sonur Gísla Sigurðs- sonar »rfka«, sem kallaður var, í Bæ á Sel- strönd, bjó þar eptir föður sinn góðu búi og vel metinn fram undir 30 ár, talinn þá með beztu efnamönnum 1 sýslunni. Vorið 1882 felldi hann helming af fjenaði sínum, sem fleiri, og fór þá að óþreyjast: þótti ekki við vært á þessum ohelkalda hala veraldar« og hjelt vestur um baf með fjöl- skyldu sína vorið eptir. það er hann, sem er nú aptur kominn, með fólk sitt, saddur reynslu eptir þessa 4 ára dvöl. Hann hefir búið í Dakota, í Bandaríkj- unum nyrzt, í allfjölmennri Islendingabyggð þar, Tungubyggð. —»Hvað kemur til, að ekki koma fleiri þar vestan að aptur, úr því að ekki fer betur um þá en þetta?« Hann hafði minnzt á ýmsa landa þar vestra, er væru komnir upp á hornið, þ. e. lifðu on the county (á sveitinni), og ættu miklu betri daga með því móti en »við hinir«. »Jeg hygg«, svaraði hann, »að það muni vera líkt fyrir þeim og Pjetri postula: nþrengra útgöngu en inrugóngu. Jeg veit þjer munið versið það arna í Passíusálmunum: Ógæfugildran þröngva Greip skjótt þann kunni’ að ná, Utkomu von fjekk öngva; Að því í tíma gá. Af 200 bændum íslenzkum þar vestra, sem jeg þekki til, er mjer óhætt að segja að ekki eru 2 svo staddir í efnalegu tilliti, að þeir geti komizt heim hingað aptur. Svo illt sem vesturfarar hjer, eiga með að koma skepnum sínum í peninga, þá eiga þeir, sem vestan vilja fara, hálfu verra með það. þar er enginn, sem keypt getur, nema helzt stöku maður, sem er ný- kominn heiman að, með peninga hjeðan«. 50 dollara kostaði farið hingað vest-an frá Winnipeg, þ. e. 186 kr.; vest-wr kostar það ekki nema 130 kr. sömu leið og með sömu línu. nprengra útgöngu en inngöngu«. Hann fór með 6000 kr. í peningum vest- ur, auk þess sem hann hafði hjálpað ná-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.