Ísafold


Ísafold - 10.08.1887, Qupperneq 2

Ísafold - 10.08.1887, Qupperneq 2
146 fjenaðar á ný, og fella svo innan skamms allt saman aptur. |>annig gengur koll af kolli, ár eptir ár, öld eptir öld; það er þessi Sisyphus-steinn, sem er eins og vjer sjeum dæmdir til að velta upp á móti brekkunni til eilífðar, og missa hann svo ofan aptur þegar hann er rjett kominn upp á brúnina. þ>etta er eiginlega hyrningarsteinninn und- ir framfaraleysisástandi voru og fátækt, van- blessun og óhamingju. fess konar búskaparbernska hefir nú átt sjer stað hjá öðrum þjóðum allt fram á síðustu aldamót, svo að vjer erum nú ekki hinir einu, sem höfum sýnt vanhyggju í þessu tilliti; en þær hafa tekið sjer fram í þessu sem öðru; vjer þar á móti stöndum nálega f sömu sporum. Bn nú má ekki lengur svo bviið standa. Bezt væri, að menn settu sjer sjálfir tak- mörk; því það er auðvitað fengin reynsla fyrir því í hverri sveit, hvað mikið þarf handa hverri skepnu í hverju meðalári og í hverju hörkuári. Bara að menn fylgdu þeirri reglu, að setja ekki meira á en hægt er að framfleyta, eptir því, sem revnslan hefir kennt mönnum að óhætt sje í harðasta ári. En þegar nú ekki þetta dugar, þá er ekki annað til en að alþingi skipi fyrir beinlínis með lögum vissar reglur fvrir hey- ásetningu, og þær ættu að vera í strang- ara lagi. Víst væri ekki gott að ákveða mikla sekt fyrir horfelli; en þar á móti vægðar- lausan niðurskurð að haustinu til, er þurfa þætti, því hollur er »haustskurður«. Væri óþarflega mikið skorið niður stöku sinnum, þá mætti setja því fleira á næsta vetur, sakir fyrninganna frá vetrinum áður; en þeir gripir, sem lifðu, gerðu þá því meira gagn. það er ekki verra að bjóða valdskurð nvv, en á kláða-árunum; mv yrði kannske slátr- að J parti af gripum manna, en þá var öllu sauðfje slátrað niður í heilum sýslum, og gerðu menn sig þó ánægða með það. f>að hafa líka margir bændur sagt mjer frá því, að meðan fjeð var fátt og þeir voru að koma því upp aptur, hafi 20 ær gjört jafnmikið gagn og 60—70 áður, og tvævetrir sauðir lagt sig eins vel og fullorðnir. f>etta gerði hinn góði viðurgjörningur, sem skepn- umar fengu á veturna, og það, að ekki var ofsett í hagana á sumrin. Vjer megum líka vera fullvi3sir um það, að þegar valdskurði verður beitt fyrir alvöru, þá líður ekki á löngu áður en menn fara að skera sjálfir, ó- tilkvaddir, svo nóg sje, til þess að losast við óþægindi þau, er hinn valdboðni skurð- ur hlýtur æfinlega að hafa í för með sjer. Einmitt nú í sumar ætti alþingi að koma þessum lögum á, til þess að hægt væri að beita þeim í haust. En það er auðvitað að það verður að sjá svo um, að engir, nema hinir beztu menn úr hreppunum (helzt eiðsvarnir menn) sjeu látnir ráða fyrir um valdskurðinn, svo að engin mis- brúkun geti átt sjer stað hjá framkvæmdar- valdinu. Onnur ráð en hreinn og beinn niðurskurður á haustin, hygg jeg ekki að dugi, eða komi að notum. Einmitt nú 1 sumar, segi jeg, ætti þetta að komast í kring, ekki einungis vegna þess, að það er ekki vert að draga það til morguns, sem hægt er að gera í dag, held- ur einkum vegna þess, að það er alveg ó- víst, að vjer stöndum svo fljótlega eins vel að vígi eins og nú. J>að er nefnilega bezti grasvöxtur f ár um land allt, eptir því sem frjetzt hefir, og ef að nýtingin verður nokk- urn veginn góð, munu menn nú afla mik- illa heyja í sumar. Sökum þess að víða er nú líka fremur skepnufátt eptir fellirinn í vor, mun hinn valdboðni skurður ekki verða svo tilfinnanlegur sem ella, og þó geta orð- ið heyfyrningar næsta vor. jþar á móti væri þetta mjög örðugt, ef byrja skyldi í slæmu grasári. f>ví ætti að nota nú tæki- færið, þegar það er nokkurn veginn gott, að byrja þetta. Sveinn búfrœðingur. Rjúpnatollur. Opt hefi jeg heyrt getið um heimskuleg tollfrumvörp, en aldrei þó um annað eins og rjúpnatollsfrumvarpið þingmannsins ykkar Beykvíkinga. Jeg vil heldur kalla það heimskulegt held- ur en annað lakara. Heimskan er í því fólgin, að ímynda sjer, að slík lög mundu gjöra nokkurt gagn í þá átt að friða rjúpuna eða varna Kóflausri eyðing hennar í landinu. Hún verður skotin alveg jafnt eptir sem áður, þótt að útflutningur hennar minnki eða takist af. Hún getur aldrei komizt í svo lágt verð, aðþeim, sem ekki hafa ann- að að gera, þyki ekki til vinnandi að fara á rjúpnaveiðar. Hún er og, hvort sem er, ekki veidd til útflutnings svo neinu nemi annarstaðar en í nærsveitunum við Beykja- vík, og hvað mikið sem af henni er skotið þar, þá safnast að aptur þangað í skarðið nógur stofn annarstaðar að. Auk þess er og öll friðun á rjúpu gagnslaus eða tilgangs- laus vegna þess, að hvað mikið sem hún er friðuð fyrir mönnum, þá eyðist hún gjör- samlega í hörðum vetrum af kulda og bjarg- arleysi, og verður þá jafnframt hröfnum og öðrum vörgum að bráð. Friðunin yrði mest fyrir þá gerð eptir því. Loks er þess að gæta, hve sárlítið land- sjóð dregur þessi rjúpnatollur. það yrði með öðrum orðtim enginn sýni- legur ávöxtur af þessum rjúpnatolli, en að Beykvíkingar gætu fengið sjer rjúpnasteik með minni kostnaði eptir en áður; en svo þröngsýnan föðurlandsvin hefi jeg aldrei haldið hinn heiðraða þingmann Beykvík- inga. Agricola. Alþingi. VIII. Ný lagafeumvöep. Við hafa bætzt enn : 39. Um búnaðarkennslustofnanir á íslandi (Ben. Sveinsson o. fl.). 40. Um viðauka við veiðitilsltipunina frá 1849, — um 10 til 200 kr. aukasekt fyrir að drepa æðarfugl af ásettu ráði (atvinnuveganefndin). 41. Um að nemaúrlögum heimild til fyrir- framgreiðslu launa, S. gr. í opnu br. 31. maí 1885 (reikningslaganefndin). 42. Um fræðslu ungmenna (Sig. Stefánsson o. fl. í nefnd). 43. Um fæðispeninga og ferðakostnað al- þingismanna (Jón Ólafsson o. fl. í nefnd). 44. Um uppeldi óskilgetinna barna (þór. Böðvarsson og Jón þórarinsson). 45. Um viðauka við útflutningalögin 14. jan. 1876 (Jón Ólafsson o. fl.). 46. Um viðauka við lög um horfelli á skepn- um 12. jan. 1884 (E. Th. Jónassen o. fl. í nefnd). 47. Um friðun á laxi (Arni Jónsson). 48. Um tölu þingmanna í efri og neðri deild alþingis, breyting á 15. gr. stjórnar- skrárinnar — 15 í efri, og 21 í neðri (Ben. Kristj. og Jón Ól.). 49. Um þegnfræðslu (Jón Ólafsson). 50. Um linun í skatti af ábúð og afnotum jarða og af lausafje (Arnlj. Ólafsson o. fl.). 51. Um seðla-útgáfu og seðla-innlausn landsbankans (Jón Ólafsson). Fallin feumvöep. 13) Um forðabúr og heyásetning í sveitum, fellt í efri deild með 7 : 4. — 14) Um aðflutningstoll á kaffi, sykri og óáfengum drykkjum, svo og um afnám ábúðar- og lausafjárskatts og útflutningsgjalds af fiski og lýsi, að frátekinni síld, fellt í neðri deild með 11 : 10. 15) Um menntun alþýðu, fellt f neðri d. með 11 : 10. 16) Um löggilding; verzlunarstaðar á Búðarströnd. Stjóbnaeskbábmálið. Fyrsta umræða í efri deild átti að standa 4. þ. m., en

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.