Ísafold - 21.09.1887, Síða 3

Ísafold - 21.09.1887, Síða 3
179 Sat eg í sorgum, sefi var á hvörfum, unz mjer huggun bjó og hjarta styrkti annar ættstuðill alinn sama þreyðum og þráðum þjóðhöfðingja. Sá hefir síðan setið og unað mjer við hlið og munað aukið, huggað mig í harmi, hálsað í gleði, festi eg yndi á óðaltorfu. Samt eg sakna, sit eg og minnist, öðlingur, þinna aldurdaga! Skal því skjálfandi skilnaðarorð hljóma til vinar af vörum mínum. Og þakklæti fyrir þína æfi fulla ágætis og frægðarverka. Sjertu gladdur und sólu fegri, og þjer umbuni alda faðir! Steinunn Vilhjálmsdóttir. Stjörnuturninn á Hamiltonfjalli. Fyrir fáum árum andaðist í Kaliforníu þýzkur maður, að nafni James Lick, á átt- ræðisaldri. Hann hafði farið til Améríku á yngri árum sínum, og hafði safnað þar auð fjár. Honum var orðið hlýtt til hinn- ar nýju fósturjarðar sinnar og vildi sýna henni einhvern sóma fyrir það, hve happasæl hún hefði reynzt sjer. Hann ásetti sjer því, að láta koma þar upp hinum mesta stjörnukíki, sem til væri á jarðríki. Fyrst var þá að velja þann stað, þar sem kíkirinn gæti orðið að sem beztum notum; og eptir ýmsar tilraunir rjeðst hann í að velja til þess fjallið Hamilton í hjeraðinu Santa Clara í Kalíforníu. Fjall þetta er 4500 feta hátt yfir sjávarmál. Stjörnufræðingar, sem rannsökuðu þennan stað, luku upp einum munni um það, að á sumrin væri loptið þar svo hreint og gagnsætt, að þar mætti fá meiri sjónauka- stækkun en nokkurstaðar annarstaðar, þar sem stjörnuturn er, en þar eru nætur allt að því eins dimmar sumar og vetur. Nú gjörir Lick hjeraðsstjórninni í Santa Clara það tilboð, að hann skuli láta reisa stjörnuturn á tindinum á Hamiltonfjalli, og auk þess gefa fje til að standast kostn- aðinn af houum, ef hjeraðið vildi taka að sjer að leggja góðan veg upp fjallið. Hjeraðsstjórnin tók boðinu feginshendi og lagði óðara veginn. Hann er 5 mílur á lengd, og talinn bezti og vandaðasti fjall- vegur í Bandaríkjunum. Lick Ijet það koma í móti, að hann afhenti 21. sept. 1875 rúma hálfa þriðju miljón kr. nefnd manna, sem skyldi sjá um, að fyrir fjeð yrði keyptur stjörnukíkir, sem væri beztur allra kíkira á jörðunni, og auk þess skyldi reisa stóran stjörnuturn, með því sem þar til heyrði. því sem afgangs yrði, skyldi verja í þarfir stjörnuturnsins. Haustið 1881 var búið að koma upp stjörnuturninum að mestu leyti. En kík- irinn mikla vantaði. Yar þá tekið til að steypa glerin í hann. Stækkunarglerið í honum átti að vera 3 fet að þvermáli; en því stærra, sem glerið er, því erfiðara er að steypa það, svo að ekki verði í því æðar og holur, eða að það verði ekki of stökkt í því. það átti að vera búið 1883; en meir en 30 tilraunir voru gjörðar áður en tókst að fá viðunanlegt gler. það var í septembermán. í fyrra, að gler- ið var fullbúið. Glerið er 750 pd. að þyngd, enda kost- ar það líka 190,000 kr. Allur kíkirinn er 60 fet á lengd ogkost- ar alls 580,000 kr. Hann stækkar 3500-falt. A næsta ári á að verða búið að setja kíkirinn upp á sinn stað. það sem mörgum er einkanlega forvitni á, er, hvernig tunglið muni líta út í kík- irnum. f>að má reikna út, að tunglið sýn- ist eins stórt í honum eins og það væri ekki nema f 14 mílna fjarska, og maður horfði á það með berum augum, þ. e. ekki lengra í burtu en SnæfellsjiiktUl frd Beylc- javík ! En því meir sem kíkirinn stækkar, því vandlátari er hann með birtu, lopt, o. fl., og því er ekki hægt að vita vissu sína um það, hvað skýrt tunglið muni sjást, fyr en tilraun er gerð. f>ó þykir ekki ólíklegt, að vel muni mega greina bletti í tunglinu, sem eru 16 faðmar á hvern veg og enda smærri. Yerði sú raunin á, má búast við, að sjá megi innan skamms, hvort hús eða önnur meiri háttar mannvirki sjeu í tunglinu, í líkingu við það sem gerist á vorum hnetti. Lax frá Labrador. Frá Labrador fiyzt á haustin lax til Englands. Haust- ið 1885 sendi Hudsonsflóafjelagið (Hudson Bay Company) 6000 laxa til Lundúna í ís, til þess að reyna, hvort það mundi svara kostnaði. f>eir fengu 73 a. fyrir pundið, og laxinn seldist vel fyrir það, enda þykir lax frá Labrador fyrirtak. Lax- inn var ekki látinn frjósa, heldur var hann kældur með því, að köldu lopti var hleypt inn milli laxanna úr ísvjel. Frá Labrador til Lundúna er helraingi lengra en frá íslandl til Lundúna. Bakarabrauðln. — Herra ritstjóri! Jeg vona að þjer lofið mjer að gjöra það að dálitlu blaða- máli, hvernig bakararnir hjerna í Reykjavík fara með okkur, þó að sumum karlmönnunum kunni nú að þykja búrkeimur að því. það er svo gott að vita, að karlmennirnir bera sig ekki betur en við kvennfólkið, ef þá brestur hollan og góðan mat, og „uden Mad og Drikke er Helten lngenting“, segir Danskurinn. þeim, sem hafa vanizt hrauðum i almenni- legum bæjum erlendis, bregður illa við brauðin hjerna, eins og þau gerast tíðast frá þessum bökurum, sem við höfum hjer í Reykjavík. þau eru með köflum all-viðunandi, en tímunum saman eru þau svo slæm, bæði illa hnoðuð og illa bökuð, stundum sjálfsagt líka úr slæmu mjöli, að þau mundi annarstaðar vera talin nálgast því að vera svínafæða en elcki manna. Jeg á hjer við rúgbrauðin, sem eru daglogt brauð almennings, jafnt æðri sem lægri, ríkra og fátækra. Aðrar brauðtegundir og kökur ýmis konar fæst jeg minna um ; það er ekki fyrir almenning. þó eru „franskbrauð" höfð talsvert almennt til matar, og eru engu betri að sínu leyti, af því að það er meðal annars haft í þeim vatn, liklega til helminga eða fram undir það, í staðinn fyrir tóma mjðlk. það bjóst margur við, að þetta mundi lagast og batna, þegar bökurum fjölgaði hjer, vegna samkeppninnar. En það lítur út fyrir, að hinir nýju bakarar hafi fljótt komizt upp á, að feta í spor hinna eldri og fara hinn sama óhulta gróðaveg sem þeir. Nú er svo, að það mega heita skóbótaskipti. þó maður sje að skipta um bakara, þá kann það að hrifa rjett fyrst í stað ; en undir eins og frá líður, sækir 1 sama horfið. Sumir kunna að vilja svara þessu svo, að það sje viðskiptamönnum bakaranna sjálfum að kenna. það sje af því, að þeir sjeu of meinlausir, að láta bjóða sjer svona slæma vöru. það kann nú að vera nokkuð hæft í þessu, og heyrt hef jeg þess getið, að sumir, sem sjeu nógu harðir í kröfum og þráir eða bökurunum standi beigur af, hafi út úr þeim góð brauð nð öllum jafnaði, en þó ekki ætíð. En það er sannarlega ekki nóg. Meinleysingjaruir og smælingjarnir eiga eins heimtingu á góðri vöru og hinir, og einkanlega er fátæklingnum mjög svo áríðandi að hafa góð brauð, þar sem brauð er þeirra aðalviðurværi, auk fiskmetis. En það er nú ekki nóg með þetta. Við vitum, að það er regla bakaranna hjer, að láta viðskiptamenn sína fá 43'/2 brauð úr mjöUekknum, 200 pundum, og leggi þeir sjálfir til mjölið, þá selja þeir brauðin með því verði, sem miðað er við að ekki fáist meira en það úr 200 pundum. En mjer hefir verið svo frá. skýrt af áreiðanlegum mönnum, sem vit hafa

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.