Ísafold - 13.10.1887, Page 1

Ísafold - 13.10.1887, Page 1
Kemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ÍSAFOLD. tTppsögn (skrifl.) bundin við Sramót, ógild nema komin sje tíl útg. fyrir i.okt. Afgreiðslu- stofa í ísafoldarprentsmiöju. XIV 48. Reykjavik, fímmtudaginn 13. okt. 1887. 189. Innl. frjettir. finglok. 190. „Trúarbrögð framtíðarinnar". 191. Læknir kærður. Hitt og þetta. 192. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. I"!—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. i hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykj avík, eptir Dr.J. Jónassen Okt. | Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. inóttujum hád. fm. j em. fm. em. M. 5 O + 5 3°, 30,1 0 b jo b F. 6 -f- 2 + 3 30,2 30.3 0 b N h b F. 7 d- 2 + 1 30,5 30,6 0 b A h b L. 8 -1- 5 + 3 30,6 3°i4 0 b 0 d S. 9 4- I + 3 30,3 3<J,3 A h d 0 b M. to +- 5 + 1 30,3 30,3 0 b 0 b f*. n 0 + 5 3°.i 30,1 V h b V h b Fyrsta dag þessarar viku var hjer alhvít jörð af snjó, sem fallið hafði kveldinu áður; gjörði síðan alveg logn hjer, þótt norðanveður væri til djúpa og hefur sama stilling haldizt síðan með vægu frosti. í dag 11. var suðvestan svækja snemma í morgun, en birti fljótt upp og var hæg vestangola, rjett að segja logn um og eptir hádegi. Reykjavík 3. okt. 1887. Tíðarfar. Síðan ljetti rigningaókjör- unum, er stóðu frá þvi í miðjum f. mán. og til 4. þ. m., — að fráteknu norðan- kastinu 25.—28. f. m., — hefir verið hjer góð veðrátta, hæg og stillt, og ekki tiltakanlega kalt, þótt snjór sje á fjöll- um. Ekki hafði orðið minna af rigningunum fyrir norðan, eptir því sem nýfrjett er þaðan. Hjeraðið í Skagafirði eins og fjörð- ur yfir að sjá, og urðu stórmiklir hey- skaðar af því. þaðan, úr Skagafirði, er sagt svo af sumrinu í brjefi seint í f. m.: „Sumar þetta hefir mátt hoita allgott; þó hefir nýting á heyjum verið vart i meðallagi : þokubrælur með nokkru úrfelli. Hinn 9. þ. m. gerði norðanhríð, alsnjóaði, kom nokkur íönn. Síðan gerði góðan þurk vikutíma, svo flest allir liafa níð heyjum sínum, sem þá voru úti, með góðri verkun. Heymagn í tæpu meðal- lagi, þó kannske nóg handa þeim fáu skepnum, sem almenningur á eða hefir til að setja á vetur. Um málnytu hefir varla verið að tala i sumar, þar almenningur missti yfir helming af ám sínum næstliðið vor, og sumir nær því allar. (irasvöxtur var heldur í betra lagi“. Úr Vestur-Skaptafellssýslu er sagt svo af tíðarfari í sumar, í brjefi 1. þ. m. „Eptir að brá til bata í vor, var um tíma þurrviðrasamt og stillt veður. Menn náðu þá eldivið sæmilega þurrum. Eptir það voru hjer rigningar um hálfsmánaðar tíma, svo aldrei kom þur slund, en optara logn. En hjer um bil 10 vikur af sumri brá aptur til þurrviðra, sem hjeldust til hundadagaenda, að fráteknum nokkrum dögum um túnasiáttinn, nálægt viku- tíma, sem rigningasamt var. En um hunda- dagaenda brá aptur til rigninga og storma, sem hjeldust þar til 20 vikur af sumri eða þar um bil. þá kom þerrir með hvassviðri á norðan, sem feykti viða heyi til skaða, einkum til fjalla; varð hey eigi höndlað meðan hvassviðrið stóð. Ut úr því brá aptur til rigninga, þar til nú, með þessari viku, að aptur kom norðanstorm- ur, með þerrir og gaddi. ATfir höfuð er hjer um sveitir vel heyjað, þóað úrkoma seinni part sláttar og eins norðanstormarnir hafi nokkuð dregið úr heyskap11. Gufuskipið Minsk fór hjeðan 10. þ. m. til Englands, með 60 hesta og 1500 fjár. Útgerðarmaðurinn, Lauritzen kaup- maður. fór og með. Hann hafði ætlað að fá 2000 fjár. Verðið var svo lágt, að bændum þótti sjer óhagur að láta það öðru vísi en fyrir vörur, sem voru með lágu verði hjá honum eins og áður, en síð- ur fyrir peninga. Allt mun fjeð hafa ver- ið borgað út í hönd, og nokkuð þó enn eptir af vörum hjá honum bæði hjer og á Akranesi. Mannalát. Sigurður Ingjaldsson, nafn- kunnur merkisbóndi, á Hrólfsskála á Sel- tjarnarnesi, andaðist 6. þ. m., freklega áttræður. Hann var búhyggjumaður mik- ill, enda fjáður vel, hjálpsamur við bág- stadda, sveitarstoð mikil, ráðsvinnur og ráðhollur. Menntun unni hann og mjög, þótt lítt hefði hann hennar notið sjálfur í æsku, og var mikill hvatamaður og styrkt- armaður barnaskólastofnunar þeirra Sel- tirninga. Synir hans eru þeir Ingjaldur hreppstjóri á Lambastöðum og Pjetur bóndi á Hrólfskála. — í sumar andaðist Hjijrtur bóndi Bjarnarson á Herjólfsstöðum í Álptaveri, hreppstjóri og sýslunefndarmaður. Póstskipið Laura, sem blaðið var látið biða eptir 1. dag, er ókomið enn. f>inglok. 11. (Niðurlag.) Söfnunarsjóðslögin eru skyld atvinnu- lögunum að því leyti til, að þau eiga að hjálpa þjóðinni til að' gæta fengins fjár, er sagt er og segja má með sanni, að ekki sje minna í varið en að afla þess. Aðal- atriðið í þeim er, að þar með er stofnun þessi, söfnunarsjóðurinn, ef lögin öðlast staðfestingu, lögð undir eptirlit landstjórn- arintiar og ábyrgð landssjóðs, svo að al- menningur geti notað stofnun þessa ör- uggur og áhyggjulaus. það er eitt af okkar þjóðmeinum, að þá sjaldan einhver safnar dálitlura auð, sem hjer er kallaður, þámá ganga að því vísu optast nær, að hann stendur ekki við stundu lengur; í næsta lið er hann orð- inn að reyk. Menntunarstig þjóðarinnar er ekki hærra en það, að undir eins og menn eru svo staddir í efnalegu tilliti, það er að segja frá barnæsku, að þeir þurfa ekki að þræla fyrir lífinu, þá er ekki hugsað um annað en að eiga góða daga og sóa á endann auðsafni hinnar fyrri kynslóðar. Helzt þannig sama örbyrgðin við lýði kynslóð eptir kynslóð. Annarstaðar hefir þessu mikla meini verið afstýrt að nokkru leyti með þar til gerð- um erfða- og fasteignarlögum, er úrelt þykja að vísu nú á tímum, en hafa þó ó- neitanlega gert mjög mikið gagn. Til- gangur söfnunarsjóðsins er að gera hið sama eða svipað gagn með öðru móti, og væri harla mikilsvert, að slíkt kæmist til góðra framkvæmda hjer á landi. I sömu átt, þá átt, að efla og styðja velmegun landsmanna, fara líka vínveit- ingalögin, um takmörkun á vínveitingum. þau eiga að styðja hina mjög svo lofs- verðu viðleitni einstakra manna, er tals- vert hefir borið á hjer á landi nú hin síðustu missiri, til þess með al- mennum samtökum að útrýma hinni heimskulegu sóun á fjárinunum manna í nautn áfengra drykkja, með öllu því feikna- tjóni og ósóma, sem þar af leiðir. það er eitt af því, sem margir tala um, að ekki stoði annað við og ekki eigi annað við en frjáls samtök. En ekki er það reynsla annara þjóða. því skyldi eigi meiga beita

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.