Ísafold - 01.12.1887, Síða 3

Ísafold - 01.12.1887, Síða 3
223 tilliti er því »miðveldasambandið« allt annað en friðarsamband til nokkurrar frambúðar. Kalnoky jarl sagði, í fyrra dag, að friði Norðurálfunnar væri eiginleg hætta búin úr annari átt en frá Búlgaríu, og það væri gegn þessari hættu.sem miðveldasambandið væri öruggasti vörðurinn. þetta vita allir og segja allir opinskátt, að sje stýlað gegn því launsambandi, sem allir eru fullir af, þó fæstir viti með vissu—nema líklega Bismarck og launþjónar hans í Pjetursborg —að komið sje á milli hinna beizkustu og skæðustu óvina, sem þýzkaland á: Bússa og Frakka. Blöð beggja þessara þjóða eru mjög samdóma um endurnýjung miðríkja- sambandsins. Bússar hamast á Bismarc.k, að hann sje að draga saman fjandskap móti sjer; Frakkar á ítölum, að þeir sjeu að greiða sjer ill fósturgjöld fyrir það, að Frakkland hafi lagt í sölur líf og fje til frelsis Italíu undan ánauð Austurríkis, ekki alls fyrir löngu. Svo kemur blað Bismarcks (Norddeutsche Zeitung) með þá stuttu og snubbóttu athugasemd, að á hinu »hjáleita fóstbræðralagi Franka og Moskóvíta geti sjáandi menn eigi villzt«. Bússakeisari situr enn í Höfn, teptur sökum mislinga, er börn hans hafa legið í á Fredensborg. það hafa orðið mestu skrafræður um það hjá Bússum, hvaða veg hann skyldi velja til heimfarar nú, er ísa- lög á rússneskum höfnum fyrir kveða, að hann geti horfið heim sjóveg. Og þar hefir komið helzt niður ræðum Bússa, að það væri hlutur, sem ekki væri komandi nærri, að hann færi að leggja leið yfir þýzkaland. Skárra væri þó að fara yfir Svlaríki og Finnland; enda væri um enga aðra vegi að ræða, er farandi væri með börn nýstigin upp úr sótt. þetta alvarlega spursmál hefir hirð keisarans verið að velkja sjerí huga í meira en 3 vikur. Nú er því þó loksins hrundið það fram á leið, að keisarinn hefir tilkynnt þýzkalandskeisara, að hann muni koma við í Berlín á leiðinni heim. En jafnframt er það auglýst í rússneskum blöðum, að viðstaðan í Berlín geti enga »pólitiska« þýðingu haft, því enginn ráð- herra keisarans verði með honum; og þyk- ir þjóðverjum það viðhafnarlítil viðkoma. 11. nóv. Stórtíðindum þykir það sæta um alla Norðurálfuna, að í fyrra dag, 9. þm., ljet ríkisbanki þýzkalands það boð út ganga, í nafni rfkiskanzlarans, sem er fyrsti forstjóri bankans, að hjeðan af lánaði bankinn enga peninga út á nein rússncsk veðbrjef nje tæki þau í lúkningu skulda. Hrun rússneskra veðbrjefa varð fjarskalegt í svipinn, og ekki fyrir það sjeð enn. í gær fylgdi einn með stærstu privatbönkum þýzkalands (Seehandlung) samadæmi. þessi tiltekt ríkiskanzlera, rjett áður en »alvaldur allra Bússa« kemur í kynnisferð til Berlínar, þykir Bússum »óskiljanleg«, »óaf- sakanleg«, en annarsstaðar um alla Norður- álfuna þykir hiin »voðaleg«. »þetta er fyrsta stigið«, segir ’Journal des Debats(, »sem þrívelda-sambandið hefir gert hinum þýzka kanzlera fært að stíga fram, til að áreita nágranna sína. það á mörg fyrir aptan sig, ef sambandið heldur«. Fyrirspurnir um landskjálpta. 1. Hvaða dag og á hverjum tíma dags kom kippurinn ? Bezt er að tímaákvörðunin sje sem allra nákvæmust. 2. Hvar var sá, sem eptir jarðskjálftanum tók, á hvaða bæ, í hvaða byggðarlagi, úti eða inni ? 3. Hver er jarðvegur undir athugunarstaðn- um ? (fastar klappir, hraun, sandur, mold o. s. frv.). Ef jarðvegurinn er laus, hvað er þá langt niður að föstu bergi ? 4. Hve lengi stóðu jarðskjálftarnir, hve margir voru kippirnir og hve langt var á milli þeirra ? 5. Hvernig var jarðskjálftinn, fannst eða sást nokkur hreyfing á jörðu (kippur eða högg að neðan, hægt rugg, bylgju- hreyfing, hristingur o. s. frv.)? Ef kipp- irnir voru margir, var þá hreyfing allra eins ? 6.1 hverja átt gengu hreyfingarnar og hvaðan komu þær ? 7. Hve lengi stóð á hverjum kipp og fannst nokkur smátitringur á eptir og hve lengi ? 8. Hver áhrif hafði jarðskjálftinu ? I hvaða átt fjellu lausir hlutir, og hve stórir hlutir hreyfðust ? I hvaða átt lágu þeir veggir, sem - hangandi hlutir hreyfðust á ? Til hverrar hliðar hallaðist vatn eða annar lögur í skjólum, tunnum eða lömpum ? Hvernig voru sprungur í húsum, á ís eða í jörðu " í hverja átt gengu jarðsprungur, hiti í þeim, hófst einn barmur meir en annar, hve langar voru þær og breiðar, hve lengi hjeldust þær opnar, hver breyting varð á gömlum sprungum? Sigu nokkrar landspildur, mynduðust nokkurstaðar gígir eða jarð- föll, og hvernig voru þau? Varð á und- an eða eptir vart við eldgos eða ösku- fall ? Varð nokkur kreyting á hverum, laugum, brennisteinsnámum eðavellandi leirpyttum ? 9. Var þessi jarðskjálfti nokkuð ólikur öðrum jarðskjálftum, sem þjer hafið orðið varir við áður ? 10. Heyrðist nokkur hvinur í lopti, eða brak eða dunur neðanjarðar, og hvernig var því varið ? Komu dunur á undan eða eptir jarðskjálftanum, hve lengi stóð á dununum í samanburði við jarðskjálft- ann ? 11. Hvernig var veðráttufar á meðan á jarð- skjálftanum stóð, sást nokkur hræðsla eða órói í skepnum, varð nokkurbreyt- ing á uppsprettum eða brunnum? 12. Sást nokkur sjerstök breyting á vötu- um eða sjó? Dróst sjórinn frá strönd- inni og kom snögglega aptur? Gott væri að fá að vita um slíkar óvanalegar hreyf- ingar á sjó, jafnvel þó menn ekki yrðu varir við jarðskjálfta um leið, og hve nær þær urðu. 13. Hafa menn orðið varir við hægan titr- ing á undan eða eptir jarðskjálftanum og á hverjum tíma ? 14. Nær var tekið eptir jarðskjálftanum á öðrum bæjum, og hver skaði varð af honum á landi, húsum, mönnum og skepnum? Hvar voru kippirnir harð- astir og blíðastir? Yfir hvaða svið varð vart við jarðskjálftann ? 15. Getið þjer nefnt mjer nokkra aðra menn, sem gætu og vildu gefa upplýsingar um jarðskjálftann ? Beykjavík, 21. nóvember 1887. Jporvaldur Thoroddsen. Spurningar þessar væri vænt, ef hinir heiör- uðu ritstjórar annara blaða hjer á landi vildu gera svo vel að birta í blöðum sínum. p. Th. y IL GAGNS OG GAMANS. Mdlvjel Edisons. Ein af hinum frægu uppgötvunum Edisons er málvjel (hljóm- riti, Fonograph), er hann gerði fyrir 10 árum, þannig löguð, að ef maður talar f vjelina, þá hefir hún upp aptur það, sem talað hefir verið, hve nær sem vill, og eptir hvað langan tíma sem er; þarf ekki ann- að en snúa henni með sveif. En óskýrfc talaði hún, og var að öðru raunar ekkí svo fullkomin, að hennar gæti orðið al- menn eða veruleg not. Eða svo segir Edison sjálfur nú. Frjettaritari frá ensku blaði hefir átt tal við hann í haust út af því, er heyrzt hafði, að E. hefði nú tekizt að gera vjel þessa svo fullkomna, að undr- um sætir. Edison sagði svo ;

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.