Ísafold - 07.12.1887, Page 1
Kemur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(6o arka) 4 kr.; erlendis5kr.
Borgist fyrirmiðjan júlímán.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útg. fyrir l.okt. Afgreiðslu-
stofa i tsafoldarprentsmiðju.
XIV 57.
Reykjavík, miðvikudaginn 7. desbr.
1887.
125. Innlendar frjettir.
126. Um heyásetning.
127. Hitt og þetta (nýtt sprengiefni). Augl.
Brauð ný-losnað . Sandfell 28/„ . . . 779.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag jkl. 1—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. [ 2—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóður Rvikur opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Nóv. Des. [ Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttujum hád. fm. em. fm. em.
M.30. -i- 5 + 2 28,8 29, Sv hv b Sv hv d
F. fl. -1- 4 - 2 28,4 29. V h b 0 b
F. 2. -r- 4 - 5 29,2 29,2 0 b O b
L- 3- -T-ÍO - 5 29,4 29,6 N h b N h b
S. 4. -7-10 - 5 29,4 29,1 A h d A h d
M. 5. -7—IO - 9 29, 29, N h d Sv h d
í>. 6. -V 9 - 6 29.1 29,1 N hv b N hv b
Talsverð ókyrrð hefir verið á veðri þessa vik-
una ; hann hefir snúizt úr einni átt i aðra á .sama
sólarhringnum ; við og við hefir hann verið við
norðanátt. 4. var hjer hvasst austanveður og dreif
J)á niður talsverðan snjó; 5. hægur á norðan
dimmur, og i dag 6. hvass á norðan og bjartur í
lopti.
Beykjavík 7. des. 1887.
Póstskipið Laura lagðiaf staðhjeð-
an til Hafnar aðfaranótt hins 3. þ. mán.
Með því fór konsúl G. W. Spence Pater-
son, kaupmennirnir J. O. V. Jónsson frá
Evík og Markús Snæbjarnarson frá Yatns-
eyri, hinir norsku vegavinnumenn þrír, er
hjer hafa verið í sumar, o. fl.
Gufuskipið Miaca kom hingað 1.
þ. mán. að kvöldi, frá Skotlandi, en hafði
komið við á Seyðisfirði. það fór aptur í
fyrri nótt til Skotlands, með nær 1000 fjár,
er Slimon átti hjer eptir í geymslu—hrak-
ið og hálfhorað orðið af hagléysum og
næturkuldum—. Coghill fór og með þessu
skipi.
Miaca ætlaði síðan jafnharðan aðra ferð
til Seyðisfjarðar, að vitja þar fjárfarms, er
eptir var.—Svo kvað og vera von á því um
miðjan vetur til Stykkishólms, með nauð-
synjavörur.
Vangoldin árgjöld af brauðum.
Landshöfðingi hefir með brjefi 14. sept. þ.
á. lagt fyrir stiptsyfirvöldin að gera alvar-
lega gangskör að því, að hlutaðeigandi
prestar greiði tafarlaust vangoldin árgjöld
og sjerstaklega skipað þeim að lögsækja
prestana á Stað á Reykjanesi, Völlum í
Svarfaðardal, Saurbæ í Eyjafirði og Lauf-
ási, er hafi sýnt stórkostleg vanskil, ef þeir
verði eigi innan stutts frests búnir að greiða
landsjóði að fullu skuld sína.
Hin óloknu árgjöld af brauðum, talin
til fardaga þ. á., námu þegar landshöfð-
ingi skrifaði brjef þetta, samtals rúmar
6000 kr., frá þessum 11 brauðum :
1. Hofi í Vopnafirði .... kr. 961
2. Valþjófsstað...................— 250
3. Saurbæ á Hvalfjarðarströnd — 75
4. Stað á Reykjanesi .... — 1200
5. Vatnsfirði.....................— 150
6. þingeyraklaustri .... — 300
7. Reynistað .....................— 300
8. Völlum í Svarfaðardal . . — 650
9. Grundarþingum .... — 25
10. Saurbæ í Eyjafirði ... — 500
11. Laufási....................— 1600
Laufásprestinum átti að veita uppgjöf á
skuldinni í sumar með lögum, vegna þess,
að viðlíka mikill tekjustofn og árgjaldinu
nemur hafði gengið undan brauðinu með
dómi eptir að það var veitt siðast, nefni-
lega varphólmi (Neshólmi), en frumvarpið
var fellt, og var það óneitanlega talsverð
harðýðgi af þinginu, eptir málavöxtum.
Sömuleiðis átti að fá lækkað árgjaldið
frá Stað á Reykjanasi um helming, úr
400 kr. niður f 200, af þeirri ástæðu, að
það var fyrir tóma vangá, er gengið var
frá prestakallalögunum frá 1880 á alþingi
1879, að svona mikið árgjald var látið
lenda á því brauði. það átti upphaflega
að steypa Garpsdal saman við Staðar-
prestakall, og taka síðan þessar 400 kr.
frá brauðunum sameinuðum. En svo voru
þau slitin sundur aptur á þinginu, en
sama árgjaldið látið fylgja Staðarbrauði
einu saman, jafnvel alveg óviljandi eða af
vangá þess, sem átti að leiðrjetta frum-
varpió til prentunar eptir atkvæðagreiðsl-
una, er Garpsdalur var frá skilinn. En
það sem gerði, að þinginu þótti eigi ástæða
til að leiðrjetta þetta í sumar, var, að
presturinn, sem nú er á Stað, hafði sótt
um brauðið og fengið það með þessu háa
árgjaldi, löngu eptir að prestakallalögin
voru komin í gildi. Var því hans málstað-
ur allur annar að því leyti til heldur en
Laufássprestsins.
Jarðnæði presta. Jarðnæðislaus
prestur einn, síra Hannes L. J>orsteinsson
í Fjallaþingum, hafði í vor skorað á hlut-
aðeigandi prófast og sýslumannn, að út-
vega sjer ábúðarjörð, samkvæmt konungs-
brjefi frá 18. apríl 1761. f>eir prófastur og
sýslumaður virðast að hafa verið í vafa um,
hvort þeir væru skyldir að lögum að verða
við kvöð þessari, og gerði sýslumaður fyrir-
spurn til landshöfðingja út af því.
Landshöfðingi hefir svarað svo 20. okt.,
að með því að hið tilvitnaða konungsbrjef
muni enn vera í fullu gildi, þá beri sýslu-
manni ásamt hjeraðsprófasti og tveimur
valinkunnum mönnum að gjöra það sem í
þeirra valdi stendur til að útvega prestin-
um ábúðarjörð í sóknum hans, á þann
hátt, sem nefndur er í áminnztu konungs-
brjefi: leiguliði skyldur að standa upp
fyrir presti, nema hann hafi setið jörðina
vel í 20^ár eða meir, o. s. frv.
Skólaröð. I eptirfarandi skólaröð í
Reykjavíkur lærða skóla í byrjun þ. m.
tákna svigatölurnar fyrir aptan nöfnin öl-
musustyrk þann, er piltum hefir verið veitt-
ur eptir fjárlögum þeim, sem nú eru í gildi,
til nýjárs 1888. þá taka hin nýju fjárlög
við, með minni ölmusustyrk en að undan-
förnu, þ. e. 7500 kr. það ár, í stað 8000
kr., og af því fje fá piltar síðara hlut öl-
musu sinnar þetta skólaár, sem verður þá
annaðhvort nokkuð minni á hvern eða ein-
hverjir ganga úr skaptinu. það er nýupp-
tekin regla stiptsyfirvaldanna, og hún ef-
laust góð, að veita ekki síðari part ölmusu-
fjárins fyr en að afloknu miðsvetrarprófi.
Lítið eitt er enn óveitt af þ. á. ölmusustyrk.
Nýsveinar oru auðkenndir með stjörnu(*).
Tala lærisveina er nú 99 ; í fyrra 111, og
árið þar á undan 127.
Heimasveinar eru nú 40.
VI. be.kk.ur.
1. Bjarni Jónsson frá Vogi á Skarðsstr. (100).
2. Steingr. Jónsson frá Gautl. (100).
3. Bjarni Símonarson úr Borgarf. (100).
4. Gísli ísleifsson frá Arnarbæli.
5. Björgvin Vigfússon frá Hallormsst (100).
6. Guðm. Jónsson frá Reynisvatni (100).
7. Bjarni Hjaltested (50).
8. Eiríkur Sverrisson frá Bæ í Hrútaf.
9. Valdemar Thorarensen frá Reykjarfirði.
10. Hans Jónsson frá Búðum (75).
11. Jón Jónsson frá Hjarðarholti (50).
12. Jón þorvaldsson frá ísaf.
13. Lúðvík Knudsen (75).