Ísafold - 14.12.1887, Blaðsíða 2

Ísafold - 14.12.1887, Blaðsíða 2
S30 fóstra, að ganga þurfamönnum í sínu hverfi eins og í foreldra stað: hafa stöðugt og nákvæmt eptirlit með öllum þeirra högum, í smáu og stóru nærri því. þeir eiga fyrst og fremst að sjá um eða stuðla að því, að þurfamenn fari sparlega og forsjállega með efni sín, leiti sjer atvinnu eptir megni og kosti kapps um að bjarga sjer af sjálfs sín rammleik til lengstra laga. Enn fremur líta þeir eptir, að heimilisstjórn fari í lagi, börn hljóti hæfilega uppfræðingu og þar fram eptir götunum. Jafuframt leggja þeir þurfamönnunum lið sitt á ýmsan hátt, sem eigi hefir fjárútlát í för með sjer, útvega þeim atvinnu öðrum fremur, leggja þeim heilræði til að láta sjer verða sem drjúg- ast úr því sem þeim áskotnast, hughreysta þá í bágindunum og aptra þeim frá að leggja árar í bát, sem mörgum hættir svo mjög við, er mikla örðugleika og mótlæti ber að höndum, og sem opt hrindir mönnum á sveitina miklu fyr en ella mundi. þetta kann nú að þykja lítil nýlunda, vegna þess, að þetta sje í raun og veru ætlunarverk allra fátækrastjórna. En sú mun þó reynslan vera, að þær taki fáar sem engar ætlunarverk sitt frá þeirri hlið. |>ess eru dæmi um einstaka menn, sem hafa mikinn mannkærleika til að bera og eru bústólpar og sveitarstólpar, að þeir rækja á þennan hátt skyldu sína við fá- tæka, ótilkvaddir af öllum stjórnarvöldum; en það eru sjaldgæfar undantekningar. Og þó að hreppsnefndir og bæjarstjórnir vildu rækja sína skyldu á þennan hátt, þá anna þær því ekki; þær geta ekki komið því við almennt eða svo að verulegu liði verði. Nýmælið er einmitt í því fólgið, að skipta svo smátt með sjer verkum í þessu efni, að það verði hægðarleikur, sem annars er ó- kleyft. Láta »margar hendur vinna ljett verk». J>að koma ekki nema 2—3 heimili á hvern fátækrafóstra, og það í nánasta nágrenni við hann. Og svo er hitt, að hann hefir vald til, að hafa þau afskipti af högum þurfamannsins, er lög leyfa fá- tækrastjórum almennt, svo að þurfamann- inum stoðar eigi að skjóta skolleyrum við því sem hann leggur til. Bráða þörf getur fátækrafóstrinn veitt og látið þurfamanninum í tje sjálfur, gegn endurgjaldi úr fátækrasjóði. Aðra hjálp veitir þar á móti 15 manna nefnd, skipuð 14 fátækrafóstrum og 1 fátækrastjóra, sem er formaður nefndarinnar og ólaunaður eins og þeir. Nefnd þessi heldur fundi á hálfs- mánaðarfresti, og má hún veita styrk til hálfsmánaðar, og eigi meiri en sameigin- leg fátækranefnd fyrir alla borgina hefir tiltekið. J>egar nefnd þessi er búin að á- vísa styrknum, er fjeð greitt í hendur fá- tækrafóstranum, og á hann að afhenda það sjálfur annaðhvort heima hjá sjer, eða á heimili þurfamannsins. |>ar með gefst hon- um gott færi á að líta eptir, hvernig styrkn- um er varið. Höfundurinn lætur mikið yfir því, hve góð áhrif þetta fyrirkomulag hafi haft á þurfamenn almennt, þar sem það hefir kom- izt á. Beiningamenn sjáist þar varla fram- ar ; gjörspilltir auðuleysingjar orðnir að al- mennilegum mönnum ; löngun og viðleitni til að hjálpa sjer sjálfur hafi vakuað og styrkzt hjá mörgum manni, sem áður varp- aði allri sinni áhyggju upp á sveitina. Hins vegar verði þeim, sem hafa allan vilja og viðleitni á að bjarga sjer, en fá samt sem áður eigi undir því risið, og eru því hjálparinnar maklegastir, en jafnframt opt og tíðum tregastir á að leita hennar —, þeim verði það Ijúfara, er þeir geta snúið sjer til manns, sem þeim er ná- kunnugur og þeir vita að ber þá fyrir brjósti. þetta fyrirkomulag horfir með öðrum orðum til hagsmuna fyrir hvoratveggja, þiggjendur og veitendur, sveitarsjóð og þurfamenn. — I Elberfeld segir höf., að þurfamönnum hafi fækkað um helming síð- an nýbreytni þessi var upp tekin. |>að er nú sjálfsagt mest þörf á og mestra hagsmuna von að þessu fyrirkomulagi í stór- borgum. En það er þar fyrir engan veg- inn ólíklegt, að það eða eitthvað því um líkt gæti einnig orðið að verulegu liði í kaupstöðum og sjóþorpum hjer álandi, og eins til sveita. Ollum nýtum mönnum hlýtur að vera jafn-umhugað um að reyna að ljetta sveit- arþyngslunum svo sem auðið er, og ættu því ekki að telja á sig lítið aukaómak, sem kemur svo fagurlega heim við kristilega bróðurskyldu og miðar að því einkanlega, að aðstoða bágstaddan náunga til að hjálpa sjer sjálfur, en það er hin hollasta hjálp og affarabezta. Vjer vitum, hve ákafiega mikinn þátt ráðleysi manna og óspilun á í því, að þeir gerast upp á sveitina, og loða þar optar það sem eptir er æfinnar, úr því að þeir eru einu sinni farnir að þiggja. |>ó að ekki yrði nú við slíku spornað fremur eptir en áður, eða ráðin tekin af ráðleysingjanum, meðan hann er eigi farinn að þiggja, þá er ekki ólíklegt, að margur kynni að verða ekki út af eins skeytingarlaus í þeim efn- um, er hann ætti von á að komast undir svo náið og opt og tíðum fremur óþægilegt eptirlit, undir eins og hann færi að þiggja. það er ekki ólíklegt, að hann hirti meira um að gefa í tíma gaum hyggilegum fortölum merkra nágranna sinna, er hann ætti von á að vera kominn sjerstaklega upp á þeirra náðir undir eins og út af ber. J>ví umönnun fátækrafóstrans getur bæði verið fýsileg og ekki fýsileg ; það »fylgir böggull skammrifi», þar sem eru hin nánu og stöðugu afskipti af öllum högum þurfamannsins. J>að er einn þjóðlöstur vor, eins og fleiri lítilsigldra þjóða, hvað almenningur lætur sjer lítt um það hugað eða er jafnvel frá- snúinn því, að liðsinna yfirvöldum, hver sem þau eru, til að halda uppi löghlýðni. f>að sjest glöggvast á samanburði t. d. við aðra eins þjóð og Englendinga. þetta kemur jafnvel fram við þau yfirvöld, sem alþýðu eru allra-nákomnust og beinlínis rir hennar hóp, svo sem sveitarstjórnir. f>að mun almennast, að meðlimir sveitar- fjelagsins þykjast hafa gert skyldu sína og meira en það, ef þeir hafa komið á kjör- fund og kosið menn í sveitarstjórnina. Upp frá því skal allri áhyggju og ábyrgð varpað á hana; þykjast menn góðir og gildir fjelagsmenn, þó þeir geri heldur að sundurdreifa en samansafna með henni upp frá því. — Einmitt til þess að venja menn af þeim bernskulega og skaðlega hugsunar- hætti, er það ein grundvallarregla lýðvalds- sinna, að láta sem flesta af betri mönnum þjóðfjelagsins taka beinlínis þátt íeinhverj- um stjórnarstörfum, þótt smá sjeu. I þá stefnu fer nú líka þetta fyrirkomu- lag á fátækrastjórn, sem hjer hefir verið á minnzt, og ætti það heldur að mæla með því en móti. Óekta smjör. Með nýári í vetur öðlast gildi á Englandi nýmæli þess efnis, að ekki megi selja ó- ekta smjör öðruvísi en auðkennt með nafn- inu »margarin» (þ. e. óekta smjör). f>etta orð á að vera prentað með stóru letri eða brennimarkað á 3 hliðum á hverju íláti eða umbúðutn, sem óekta smjör er selt í. Og í smákaupum má ekki selja það öðru- vísi en í umslagi, sem prentað er á orðið »margarin» með svo stóru letri, að stafirnir sjeu eigi minni en þ þuml. á hæð. f>essi fyrirmæli gilda jafnt, hvort sém smjörið er aðflutt eða búið til í landinu sjálfu, og hver maður, er einhverja sýslu hefir á hendi við tolleptirlit, lögreglu eða umsjón með matvælasölu, hefir rjett til að taka sýnishorn til efnafræðislegrar rann- sóknar úr hvaða íláti eða umbúðum með óekta eða grunsamlegu smjöri, er hanu fær til meðferðar. Hver sem vill verzla með óekta smjör,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.