Ísafold - 15.02.1888, Blaðsíða 1

Ísafold - 15.02.1888, Blaðsíða 1
Kemur út i miðvikudags- morgna. Verð árgangsins <6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlimán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg.fyrir I.okt. Afgreiðslu- stofa i ísafoldarprentsmiðju. XV 8. Reykjavík, miðvikudaginn 15. febr. 1888. 29. Svo eru hyggindi sem í hag koma. 30. Ljóskerin á Engey og Valhúsinu. 3í.Læknir kærður.Póstskrínisholan. Hitt og þetta. 32. Auglýsingar. Brauð laust: Nesþing 31/t.............kr 1356 Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 11—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr.J. Jónassen | Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. Febr. | á nóttu | um hád. | fm. | em. fm. | em. M. 8.1 -4- 5 4- 4 29,5 30, Sv hv d iNv hv d F. 9- -i-10 4- 8 3°. 30, N h b IN hv d F. 10. 0 0 30,1 30,2 N hv b |N h b L. ... - 8 4- 7 30,3 30,3 N hv b N h b S. 12. -2-is 4- 15 30.2 30,2 N hv b N h b M. 13. -4-14 -T- I I 30,2 30,3 0 b A h b 1*. I4.| 4-12 4- 4 30.1 30, A hv d |a hv d Fyrsta dag þessarar viku var hjer hvasst fyrst á útsunnan (Sv.) síðan á vestan útnorðan með jelj- um og brimi til sjáfarins; síðan gekk vedur til norðurs, hvasst og ákafiega hvasst aÖfaranótt h. 10. og þann dag, en lygndi að kveldi hjer inn- fjarðar ; næstu dagana viðhjelzt norðanveðrið þar- til að hann gekk alveg ofan síðari part dags h. 13. Frostharkan hefir verið talsverð. í dag 14. kominn á austan, hvass, dimmur og snjór í lopti. Svo eru hyggindi sem í hag koma. 1 flestum löndum eru menn í kappi hver við annan, að vanda vöru sína sem bezt, svo þær verði útgengilegar og seljist með sem hæstu verði; einkum er þetta nauð- synlegt, þegar kreppa er í verzlun og mik- ið fyrirliggjandi af vörum; þá selst góða varan fyrst, en sú ljelega mætir afgangi og afföllum. íslendingar eru einir af þeim, sem ekki taka mikinn þátt í þessu kapphlaupi þjóð- anna, að minnsta kosti á norður- og aust- urlandi. Arlega selst saltfiskur þaðan 5— 10 kr. minna skippundið en saltfiskur frá vestur- og suðurlandi. Fiskurinn er sá sami úr sjónum, en verkuninn gjörir verð- muninn; og höfuðatriðið er það, að fisk- urinn er ekki skorinn á háls lifandi, svo blóðið renni úr honum, og að hann er ekki þveginn vandlega í saltið. Sá fiskur, sem hvorugt þetta er gjört við, áður en hann er lagður í salt, verður ætíð blakkur og aldrei góð vara, hvernig sem með hann er farið upp frá því; það sýnast þó ekki vera mikil útlát fyrir menn, að gera þetta; ekki er hjer hægt að kenna um fáfækt og pen- ingaleysi. Nei, menn seiglast þetta með- an varan er tekin í kaupstaðinn og láta dumma við gamla lagið. f>eir kippast ekki við, þó þeir sjái árlega af innlendum og útlendum skýrslum, að verð á fiski af vesturlandi er ætíð hærra en á norðlenzk- um fiski. Ekki er betur ástatt með lýsið; það er eins og menn af ásettu ráði leiki sjer að spilla fyrir sjálfum sjer. Fyrir fám árum byrjuðu hákarlamenn við Eyjafjörð á því, að skera ekki lifrina sundur, heldur láta heil lifrarskíðin niður í skipið ; við það sit- ur allt blóðið í lifrinni, sem verður orsök þess, að lifrin úldnar rniklu fyr í sumar- hitanum, þegar ekki er hægt að bræða hana undir eins. f>ar af leiðir aptur, að lýsið verður dökkt og lyktarvont, í einu orði: getur aldrei orðið útgengileg nje góð vara, og mætir að minnsta kosti 2—4 kr. afföllum á tunnu hverri. A lýsinu, sem soðið er úr grútnum, kemur spillingin þó mest fram ; það verður því nær svart, sem annars getur orðiö ljósbrúnt og útgengileg vara. |>að er víst óhætt að fullyrða, að 4 tunnur blóðs eru í hverjum 100 tunnum lifrar, og er þá skiljanlegt, að þegar draf- úldnu blóðinu er þrýst í suðunni saman við lýsið, þá muni það skemma bæði lit og lykt af lýsinu, en þetta hvorttveggja er einmitt það, sem kaupandinn erlendis metur vöruna eptir til verðs. Jeg skil ekkert í því, hvers vegna menn- irnir eru teknir upp á þessu. Hefi jeg heyrt eldri hákarlamenn segja hvern eptir annan : #Meðan jeg fór í legu, datt engum manni, sízt formanni, annað í hug, en að skera broddinn af lifrarskíðinu, til þess að blóðið rynni úr lifrinni#. — f>að er von að mennirnir segi slfkt; því ekki er auðvelt að leiða getur að, hvort þessu veldur trassa- skapur, eða metnaður, til þess að meira af lifur mælist úr skipina; en víst er um það, að aldrei bræðist lýsi úr blóði eða sjó, sem f lifrinni er, og að skemmdirnar eru hverj- um heilskyggnum manni auðsjenar. Sama er að segja um þorskalifur; hún er látin standa óbrædd svo mánuðum og missirum skiptir, í köggum og gisnum tunnum, þar til að lifrin er orðin svo grýtt, að bæði fæst helmingi verra og helmingi minna lýsi úr henni, heldur en ef hún væri brædd ný. f>orskalýsið norska er vanalega í helmingi hærra verði en þorska- lýsi frá norður- og austurlandi; þó er lifr- in eða efnið í lýsið hið sama ; en með- ferðin er önnur. Fyrir nokkrum ár- um kom mikil fiskiganga í Eyjafjörð snemma vors, svo mikil lifur kom á land í einu ; tíðarfar var kalt, svo að lifrin grýttist lítið áður en hún var brædd ; í það skipti kom gott lýsi frá Eyjafirði, fjekkst því nær jafnskjótt verð fyrir það er- lendis eins og hákarlslýsi, en vanalega er það í JJ lægra verði. Ekki er það lítið fje, sem tapast land- inu við þetta. f>að væri hægt að kaupa ár hvert nokkrum 100 tunnum af kornvöru meira fyrir jafnmikið af fiski og lýsi, er flyzt frá Islandi, ef hirðing væri í bezta lagi, frá upphafi til enda. Sama er að segja um landvöruna. Ullin er hvorki hreinni eða betri en hún var fyrir 30—50 árum, og prjónles er nú svo komið, að enginn vill eiga það lengur. í Kaupmannahöfn liggja á fyrstu hendi ó- seld 55,000 pör af heilsokkum, sem safnazt hafa fyrir þrjú síðustu árin. Mestur hluti þessa hefir verið keypt á íslandi á 60—70 aura parið; nú er það boðið fyrir 36—38 aura, en ómögulegt að selja. Af sjóvetlingum liggur sömuleiðis nálægt 20,000 pör óseld. Fyrir nokkrum árum varð dálitil eptir- sókn eptir mórauðum sokkum og fingra- vetlingum, sem átti að vera betur tætt en almennt gerist; var þá gefið á íslandi 60 —80 au. fyrir parið af fingravetlingum, og fyrir sokkana 80—150 a.; var þetta mikill atvinnuhagur fyrir þá er tættu, því efnið var lítið; en óðara fóru menn að hroða af bæði viunu og efni, í stað þess að vanda vöruna sem bezt, svo hún gæti haldið góðu áliti á útlendum markaði, og orðið varanleg- ur ágóði fyrir landsmenn. A sumum vetlingunum voru eins margir litir eins og fingurnir voru margir, að jeg ekki fái mjer til lagið og efnið; væri band- ið að eins mórautt, þá var það látið gott heita; en endirinn varð sá, að enginn vildi eiga þessa vöru, svo ómögulegt varð að

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.