Ísafold - 11.04.1888, Qupperneq 3
67
»afdönkun« í daglegu tali, en alls ekki
»ávítur«.
»Pourvoyance« er vitlaust þýtt hjá kenn-
aranum með : »umhyggjusemi«; það heitir
á dönsku: »forsyning«. Sjá Borrings orðb.
d. fr. 115. 1. d-., og K. G. orðb. undir
að »forsyne« (forsyning); en »umhyggju-
semi« á frönsku er : soin(s), m(p.). Sund-
by &, Baruel 105 2. d. Ob. K. G. 337.
1. d. (umhyggja og umhyg^jusemi er al-
veg hið saraa).—S’illustrer en ce que, o. s.
frv., sem hr. G. segir að liann sjái ekki
betur enn að þetta sje tóm vitleysa.
Vill hann ekki fletta upp Sundby og Baruel
kls. 545. 1. d. og vita hvað liann finnur
þar, og er þar með þessi staður herra
G. hrakinn. Jeg Iæt hjer staðar numið
að sinni.
Páll porkelsson.
Af |)eim nálægt 100 stórvitleysum, er jeg tíndi
til í grein minni — en skildi þó eptir annað
eins og meira til —, hefir orðabókarhöfundur-
inn ráðizt í að verja eitthvað 15—16.
En — livílík vörn !
Við skulum líta á þessi dæmi.
Avoir le vin gai. þar kemur liann með
langa skýringargrein úr gamalli orðabók. Og
hvað stendur þar ? Ekki nema það sem rjett
er, að avoir le vin gai þýði að vera kátur við
vín eða þegar maður hefir eitthvað í kollin-
vtm. ' En P. þ. lætur það vera hið sama sem
að segja, aö hafa eitthvað i kollinum (að finna
á sjer, vera dálítið drukkinn, kenndur). það
er eins og ef maður segði á íslenzku. að afþví
að menn eru (flestir) hljóðir, þegarþeir skamm-
ast sin, þá þýði talshátturinn „að vera hljóður11
sama sem „að skammast sín!-‘ Hljóðir geta
menn veriö af ótal ástæðum öðrum, eins og
menn geta verið vmist kátir eða ókátir, góðir
eða vondir, liljóðir eða málugir, þegar þeir
finna á sjer.
Áburðarhestur. Á hinum tilvitnaða stað í orða-
bók S. & B. stendur, að „Arbejdshest“ í ó-
eiginlegri merkingu (f.g.) í daglegu tali, nefnil.
um iðinn mann, sje á frönsku un bocuf pour
lc travail (uaut til vinnu). það mætti jafnvel
segja á frönsku um P. þ., að hann væri un
bceuý pour le travail: en engum mundi detta í
hug að segja um hann á íslenzku,að liann væri
,.áburðarhestur“.— Jafntakmarkalaus fákunnátta
er meira en hlægileg: hún er brjóstumkennan-
leg.
Monter. 1 stað þess að reyna að færa ein-
hverjar söunur á, að monter geti þyt* að standa
upp, eins og höf. lætur það þýða i orðabók
sinni, þá fer hann að sýna lærdóm sinn í því,
að tilfæra ýms dæmi, þar sem monter stýrir
ekki forsetningu. En hanu gáir ekki að því,
að í dæminu í orðabókinni: moritez. que je
vous regarde (statt upp, o. s. frv.), er monter
haft í áhrifslausri merkingu. og jeg talaði þvi
um það að eins sem áhrifslausa sögn í merk-
ingunni að ganga upp, stíga upp, gagnstætt
descendre, að ganga. stíga niður (sbr. Sachs
stóru orðabók undir monter). Jeg sje nú, að
það var tilofmikils ætlazt, að maður, sem ekki
þekkir parta ræðunnar, skyldi geta gert mun
á sagnorði í áhrifslausri og áhrifsmerkingu.
Monter un escalier þýðir ekki að ganga upp
á tröppur, eins og höf. segir, heldur að ganga
upp stiga. Etre monté sur ses grands che-
veux (!!) er hrein málleysa, talshátturinn er á
frönsku: ctre monté sur ses grands chevaux,
smb. á d.: „at sætte sig paa den höje Hest";
cheveux þýðir „hár“, orðrjett ætti þvi talsháttur
P. þ. að þýða, að vera ríðandi á sínum miklu
hárum !
Aöalreikningnr. Að Skaptfellingar kalli aðal-
reikning lika hugareikning, — um annað eins
svarþarfekki orðum að eyða. það ernærri því að-
dáanlegt(!) áræði, að láta sjer slikt um munn fara,
Setjum svo, að umboðsmaður Skaptafellssýslu-
jarðanna gleymi einhvern tíma að ser.da aðal-
reikning umboðsins í tæka tíð. Amtmaðurinn
áminnir liann. flann svarar svo með næsta
pósti: „Ekki kannast jeg við það. Jeg. sem
sendiyður huga-reikninginn (á fr.calcul niental)
á nýjársdag“(!!). (Niðurlag næst).
Geir T. Zoéga.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.úti hönd.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu timburmanns O. J. Haldorsens
og að undangenginni fjárndmsgjörO 23. f. m.
verður hítseignin nhotel Eeykjavík» nr. 23
við Hlíðarhúsastig hjer i bænum samkvœmt
opnu brjefi 22. apríl 1817 og Vógum 16. des.
1885 seld við 3 opinber uppboð, sem haldin
verða föstudagana 20. apríl og 4. og 18. maí
næstkomandi, 2 hin fyrstnefndu d skrifstofu
bœjarfógeta, en hið siðasta í húsinu sjálfu,
til litkningar veðskuld að ugphæð 1500 kr.
með vöxtum og kostnaði.
Uppboðin byrja kl. 12 á hádegi nefnda
daga og verða söluskilmálar til sýnis hjer á
skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð.
Bœjarfúgetmn i Beykjavík, 28. marzm. 1888.
Halldór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing
um leigusölu á Lundey.
Eptir fyrirskipun landshöfðingjans yfir
íslandi verður opinbert uppboðsþing haldið
á skrifstofu undirskrifaðs í Hafnarfirði laug-
ardaginn hinn 21. apnl nœstkomandi kl. 12
á hádegi, og verður þá þjóðeignin Lundey
i Kjalarneshreppi boðin upp til leigu gegn
árlegu eptirgjaldi um 5 eða 10 ár að telja
frá nœstkomandi fardögum eptir því, sem
nákvæmar verður ákreðið í uppboðsskilmál-
unum, og að því áskildu, að landshöfðing-
inn samþykki hæsta boð.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbringus. 28. marz 1888.
Franz Sietiasen. ______
Proclama.
Eptir lögum 12. april 1878 og opnu br.
4. jan. 1861 er hjermeð skorað á þá, sem
til skidda telja i dánarbúi porsteins sál.
Jónssonar frá Litlabæ í Miðnes-hreppi, er
varð titi hinn 5. desember f. á., að gefa sig
fram og sanna kröfur sinar fyrir undirrit-
uðum skiptaráðanda innan 6 mánaða frá
siðustu birtingu auglýsingar þessarar.
Skrifstofu Kjósar • og (iullbringus. 28. marz 1888.
Franz Siemsen.
Proclama.
Samkvæmt lög. 12. april 1878 og opnu
br. 4. jan. 1861 er hjermeð skorað á alla
þá, er til skuldar telja i dánarbúi óðalsbónda
þorleifs porleifssonar i Bjarnarhöfn, er and-
aðist 10. dag þ. m., að gefa sig fram og
sanna kröfnr sinar fyrir undirskrifuðum
skiptaráðanda frá siðustu (3.) birtingn aug-
lýsingar þessarar.
Skrifstofu Snæfellsness-og Hnappadalssýslu
Stvkkishólmi þann 81. marz 1888.
Sigurður Jónsson.
Uppboðsauglýsing.
Við opinber uppboð, sem haldin verða þ.
15. maí, 1. jiíni og 3. júli þ. á., á hádegi,
verða boðnar upp til sölu og að áskildu
samþykki rjettra málsaðila seldar hæstbjóð-
endum jarðirnar: Krossholt (23.5 hndr.),
Flesjustaðir (10.* hndr.), og Hafurstaðir
(10.4 hndr.), með jarðarhusvm, allar % Kol-
beinsstaðahrepp i Hnappadalssýslu og til-
heyrandi dánarbúi Magnusar heit. Pjeturs-
sonar frá Holti í Asum i Húnavatnssýslu.
1. og 2. uppboð framfer á skrifstofu sýsl-
unnar í Stykkislujlmi, 3. og siðasta, sem
byrjar á Krossholti, á eignunum sjálfum.
Uppboðsskilmálar verða frá 1. uppboði
til sýnis hjá undirskrifuðum, sem einnig
veitir nánari uppbýsingar um eignir þessar.
Slftifstofu Snæfellsncss- og Hnappadalssýslu,
Stykkishólmi þann 31. marz 1888.
Sigurður Jónsson.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu landsbankans og að undan-
genginni fjárnámsgjörð hinn 27. þ. m. verð-
ur jörðin Torfastaðir i Fremri-Torfastaða-
hreppi í Húnavatnssýslu, 17 hndr. að dýr-
leika, ásamt tilheyrandi liúsum, með hliðsjön
af fyrirmœlum i opnu brjefi 22. apnl 1817
og samkvæmt lögum 16. desbr. 1885 seld
við 3 opinber uppbnð, sem haldin verða 2
hin fyrstu á skrifstofu sýslunnar að Komsá
i Vatnsdal mánudagana 30. apriL og 14.
mai næstkomandi, en hið 3. ájörðunni sjálfri
miðvikudaginn hinn 6. júm þ. á., til liilcn-
ingar veðskuld að upphað kr. 900, auk
vaxta og kostnaðar.
Kaupandi, sem greiðir áfallna og ögoldna
vexti af veðskuldinni, samt kostnað við
fjárnámið og söluna, getur fengið sama frest
með endurborgun veðskuldarinnar og aðra
skilmála, sem veðskuldunautur hafði.
Uppboðin byrja kl. 12 á hádegi fyrncfnda