Ísafold - 16.05.1888, Síða 3
91
uðum, og hún verður að sjá, að það er
hennar gagn, að varan sje í áliti erlendis,
en þar á móti hennar skaði og eyðilegg-
ing, ef enginn vill eiga vöruna, nema þá
með svo lágu verði, að sá sem aflar vör-
unnar, geti ekki haft sitt lífsviðurhald þar
af.
Jeg gat þess í fyrri grein minni og vil
taka það fram aptur nú, að framför
heimsins stígur árlega svo stórum fetunj
fram á við, að það er ekki nægilegt, að
íslenzku vörurnar sjeu eins góðar og þær
voru fyrir nokkrum árum; þær þurfa að
vera miklu betri til þess að verða ekki
aptur úr á heimsmarkaðinum. það er stór
munur, hve kaupendur eru orðnir vand-
látari nú, en þeir voru fyrir 16 árum,
þegar jeg byrjaði að afhenda vöru erlendis.
Nú sem stendur leitast menn við að
rífa niður hverja stofnun og hvert fyrir-
tæki, sem nær 6 eða 8 ára aldrinum, til
þess að hrófa aptur upp annari nýrri
rofatyllu, sem svo aptur fer sömu leiðina.
þó held jeg ekki, að það sje vegna tíðar-
andans, eða af því að Gránufjelagið er
orðið nokkuð gamalt, heldur vegna ókunn-
ugleika, að *þjóðólfur« sjer ekkert annað
en ámælisvert hjá Gránufjelagi, og segir
að það hafi trúlega fylgt kaupmönnum í
því að spilla vöruvöndun i landinu.
I mínu ungdæmi og allt fram að 1877
var ekki verkaður saltfiskur norðanlands;
fiskurinn vanr hertur þá tíma árs, sém það
var hægt; en í sumarhitanum, þegar mest
var af fiski inn á fjörðum, var ekki fiskað
nema til matar, því það sem fram yfir
var ónýttist af maðki. Hvernig hirðingin
var á þessum harða Ö3ki, munu margir
muna. Að senda nokkuð af honum út úr
landinu var ekki tekið í mál, og kaup-
menn álitu hann plágu fyrir sig, svo þeir
sömdu opt við sjávarbændur, að ef þeir
ættu að taka fiskinn af þeim, þá yrðu
þeir að verzla með allar sínar vörur hjá
sjer ; fiskinn seldu og lánuðu þeir svo apt-
ur innanlands. Svona gekk nú þetta, þar
til Gránufjelagið byrjaðiað kaupa saltfisk,
selja saltið ódýrara en áður var venja, og
byggja salthús hjer og þar, sem mest var
afla von, svo sjómenn þyrftu ekki að eyða
miklum tíma frá fiskiróðrum til að ná salti.
Afleiðingin varð sú, að þar sem árið 1876
var ekki flutt út nema 118 skpd. af sölt-
uðum fiski af öllu svæðinu frá Borðeyri
til Vopnafjarðar, þá var 4 árum síðar, eða
1880, útflutt af sama svæði 2720 skpd. og
árið 1883 5447 skpd. af saltfiski; þar af
var þó mestur blutinn frá Eyjafirði.
Nú er fiskurinn orðinn jafn eptirsókt
vara af kaupmönnum, eins og þeim var
illa við hann áður. þegar fjelagið byrjaði
á saltfisksverkuninni við Eyjafjörð og Seyð-
isfjörð, fjekk það vanan fiskiverkunarmann
frá Isafirði, og síðar fjekk það menn bæði
frá Onundarfirði og Bíldudal, þar sem fisk-
verkun var álitin bezt, svo það gjörði þó
tilraun til þess að verkun skyldi verða í
góðu lagi, þó árangurinn ýmsra orsaka
vegna yrði ekki fyllilega sá, sem bezt
hefði verið fyrir alla hlutaðeigendur.
Arið 1882 byrjaði Gránufjelag á að bræða
lifur með gufu, sem áður var soðin í
potti. Eins og skiljanlegt er, verður gufu-
brætt lýsi betra og útgengilegri vara en
pottbrætt, þegar lifrin er ekki skemmd
áður, enda hefir jafnan fengizt 1—3 kr.
meira fyrir tunnuna af þvf lýsi.
I hvorutveggja skiptið, þegar jeg byrj-
aði á saltfisksverkuninni og gufubræðslu,
álitu kaupmenn það vera »humbug«. »Nú
er hann að setja fjelagið á hausinn með
þessum mikla kostnaði«, sögðu menn; en
svo fór, að nágrannakaupmennirnir urðu
að taka þetta eptir, og er þetta nú komið
á svo fastan fót, að vonandi er, að það
verði almenningi til gagns til langframa og
leggist ekki niður, þó mönnum takist að
koma Gránufjelagi undir græna torfu, sem
þó er ekki ólíklegt að dragist nokkur ár
enn þá; enda væri það minnkun fyrir
landsmenn, ef ekki gæti tórt ein föst fje-
lagsverzlun í landinu, á meðal svo margra
framhrindingar- og framsóknar-framfara-
frelsismanna, sem vilja flytja alla stjórn
og alla verzlun inn í landið.
Vegna gass, steinolíu, rafmagnsljóss
o. fl., sem til ljósa er notað, og ekki þekkt-
ist fyrir nokkrum tíma, er miklu minni
þörf á lýsi til ljósmatar en á fyrri tímum.
Eptirspurn eptir lýsi er því miklu minni,
og mesta nauðsyn á, að vanda lýsið sem
allra bezt, svo verðið ekki falli niður úr
öllu valdi. f>að var því í þeim hreina og
eina tilgangi, að gjöra verzlaninni og lands-
mönnum gagn, að Gránufjelagið setti yfir
15,000 kr. fast í hús og bræðsluáhöld; en
skemmtilegt er það ekki, að þeir menn,
sem helzt áttu að hafa gagn af þessu,
skyldu spilla fyrir sjálfum sjer og fyrirtæk-
inu, með því að sleppa einföldu verki, sem
engan kostnað hefir í för með sjer : jeg á
við það, sem jeg drap á í greininni í vet-
ur, að skera lifrina í sundur og hleypa út
blóðinu. Jeg skil ekki í smásmyglis-tif-
gangi þeirra, sem vilja verja slíkt. (Niðurl.)
Tr- G.
Hitt og þetta.
þjófaskóli. í Odessa (á Rússlandi) er skóli
þar sem þjófum er kennd „listin sú að stela“.
Bkki eru teknir í hann nema greindir piltar
og námfúsir, og talað er þar eins konar villu-
mál, sem engir skilja utan skóla. það þykir
svívirðing, að segja eptir, og líka hættulegt,
vegna hefnda Skólinn gerir lærisveina sína
suma að einföldum vasaþjófum, og suma, sem
efnilegri eru, að stór-vasaþjófum, er temja sjer
þá list, að skera frá vasa með skærum og vasa-
hnífum, svo fimlega, að sá viti ekki af, er fyrir
verður. Ennfremur „menntast“ þar innbrots-
þjófar; þeim er kennt að brjóta upp skrár og
lása eptir rjettum reglum, og að skríða út og
inn um glugga eða laumast inn um dyr svo,
að ekki heyrist.
þjóðmoin verða eigi læknuð eða við þeim
varnað, fremur en líkamlegir kvillar, með öðru
móti en að þau sjeu rannsökuð og þeim sje
lýst glöggt og afdráttarlaust.
Sparnaður. Að hverju ertu allt af að leita,
Jón? þú ert nú húinn að kveikja á 20 eld-
spýtum. Jón: Jeg týndi eldspýtu.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli meðsmáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
Uppboðsauglýsing.
Samkvæmt ráðstöfun skiptarjettarins í
dánarbiii Ingiríðar Skúladóttur, er varð úti
3. febr. þ. a'., verður jörðin liöskuldsstaðir
í Akrahreppi, 15 hndr. að nýju mati, seld
við 3 opinber uppboð, ásamt húsum þeim,
er jörðunni fylgja, sem eru: baðstofa, búr,
eldhús, skemma og fjós.
Tvö fyrstu uppboðin verða haldin á skrif-
stofu sýslunnar að Gili laugardagana 9. og
23. júní, en hið þriðja og síðasta á jurðinni
sjálfri laugardaginn 7. júlim. þ. á.
Uppboðin byrja kl. 12 á hádegi nefnda
daga, og verða söluskilmálar til sýnis hjer
á skrifstofunni 3 dögum fyrir hið fyrsta
uppboð og siðan upplesnir á uppboðsstaðn-
um fyrir hvert uppboð.
Skrifstofu Skagafjarðarsýslu 13. apríl 1888.
Jóhannes Ölafsson.
Með því að lítilfjörlegur arfur tilfjell við
skipti eptir Ragnheiði sál. Sigurðardóttur
frá Holtsmúla í Staðarhreppi hjer í sýslu,
er hjermeð skorað á dóttur hinnar látnu,
Sigurlaugu Guðmundsdóttur, er sagt er að
dvelji á Suðurlandi, að gefa sig fram og
veita arfinum móttöku hið fyrsta.
Skrifstofu Skagafjarðarsýslu 13. apríl 1888.
Jóhannes Ölafsson.
Verzlunarhús til sölu.
Föstudaginn 22. jiínímánaðar næst-
komandi verður opinbert uppboð haldið
á verzlunarhúsi mínu hjer í bænum,
ásamt áföstu geymsluhúsi, og verður
pað selt hæstbjóðanda, ef viðunanlegt
boð fæst.