Ísafold - 23.05.1888, Síða 1

Ísafold - 23.05.1888, Síða 1
Kemur út á miðvikudags- wmorgna. Verð árgangsins (60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bnndin við áramót, ógild nema komin sje til útg.fyrir I.okt. Afgreiðslu- stofa i ísafoldarprentsmiðju. XV 24. Reykjavik, miðvikudaginn 23. mai. 1888. 93. Innl. frjettir. 94. Iltl. frjettir. Meira um vöruvöndun og verzlun. 95. Aflabrögð og ýsulóð. Auglýs. 96. Auglýs. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I — 2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I — 2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2 útlin md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J.Jónassen maí Hiti (Cels.) 1 Lþmælir 1 Veðurátt. á nóttu |um hád. | fm. | em. | fm. em. M.ió. + i + 4 3°, jo, N h d N hv d F. 17. +- 3 + * 29,9 29,9 N úv b N h b F. 18. -r- 4 + 2 29,9 29,9 N h b 0 d L. 19. +- 3 + « 29 8 29,81N h b O b S. 20. + 3 +, s 29,7 29,8 N h d O b M. 11. + 4 + 9 29,9 30,1 A hv d Sa hv d í>. 22. + 9 + 10 3V 30,11 Sa hv d Sa hv d Framan af þessari viku hjelzt við norðanátt- ín optast hvass og kaldur og snjó ýrði úr lopti við og við; um 20. gekk veður til austurs-land- suðurs með dimmviðri og regni og hefir 8Ú veðurátt haldizt síðan; bæði í gær og i dag (22.) talsverð hlýindi, svo grænkað hefir þessa tvo dagana. í dag 22. rok-hvass á landsunnan um og eptir hádegið. þessa vikuna í jyrra var hjer norðanbál með miklum kulda; 19. maí í fyrra var tjörnin hjer f'rosin og 2 stiga frost um hádegi. Reykjavík 23. maí 1388. Strandferðaskipið Thyra kom hing- að 18. þ. mán. að morgni sunnan um land. Komst hvergi að austurlandi fyrir hafis, sem lá 15 mílur út frá landinu. Is- inn var samt svo gisinn þar, að skipið gat þrætt sig svo nærri Seyðisfirði, að eigi skorti nema 8 mílur þangað, en þá varð ísinn svoþjettur, aðekki vartiltök aðkomats lengra. Onnur tilraun var gjörð að ná landi sunnanvið Berufjörð, en það fór á sömu leið. Thyra fór samdægurs vestur á Isafjörð, að reyna fyrir sjer þeim megin. Ymsir farþegar voru nú með skipinu, einkum kaupmenn og verzlunarmenn, þar á meðal Tr. Gunnarsson, Chr. Johnasson frá Akureyri, Jón Yídalín, Tuhnius yngri á Eskifirði, Ernst lyfsali á Seyðisfirði og Björn Pálsson. , Thyra kom vestan að aptur í morgun af Isafirði; hafði ekki komizt nærri því norður að Horni, fyrir hafþökum af ís. Grænlandsför. Með »Thyra* komu hingað og hjeldu áleiðis til ísafjarðar 18. þ. m. þeir Dr. Friðþjófur Nansen frá Björg- v a og hanp fjelagar fimm — 3 Norðmenn og 2 Finnar—, er ætla á skíðum vestur- yfir Grænlands óbyggðir, um 18 þing- mannaleiðir, eða nær þriðjungi lengra en ísland allt af enda og á, yfir eintóma jökla. Selveiðaskip enskt á að taka þá á Isafirði og fara með þá beint vestur það- an, svo nærri landi, sem komizt verður fyrir hafís, og leita þeir svo lands á ísbát, er þeir hafa meðferðis. Onnur torfæran er að komast upp á jökulinn, ef til vill snarbrattan. |>að hafa danskir ferðamenn er kannað hafa austurströnd Grænlands töluvert hin síðustu árin, talið mesta tví- sýnu á, að takast megi, og þykir þeim og öðrum þetta vera hin mesta glæfraför. Fjóra—fimm mánuði búast þeir fjelagar við að vera í Grænlandsför þessari. Út búnað hafa þeir allan hinn bezta, er reynsl- an hefir kennt heimskautsferðamönnum Skipströnd og sjóhrakningar. 20. apríl fór gufuskipið Miaca. frá Stafangri með vörur til norsku verzlunarinnar á Seyðisfirði og pöntunarfjelagsmanna í Múla- sýslum. þegar skipið kom undir Austur- Iand, mætti það hafís, en komst þó gegn- nm hann í mynnið á Seyðisfirði; þar varð það fast í ísnum og rak svo með honum suður undir Eskifjörð; hafði þá ísinn víða sett smágöt á skipið, svo að fram- og aptur-rúmið var fullt af sjó, og ekki annað sýnna en að skipið sykki ; var því skip- stjóra, O. Wathne, einn kostur nauðugur að hleypa skipinu á land í Vöðluvík, skammtfrá Eskifirði. Menn allir, 26aðtölu, björguðust, en skip og farmur var seldur við uppboð við lágu verði (600—700 kr.). 3. sept. f. á. fór skonnert Ingeborg frá Khöfn með vörur fyrir kaupm. Höepfner til verzlunar hans á Akureyri og Skaga- strönd, en þegar skipið kom undir austur- landið, voru stormar og dimmviðri, svo skipstjóri þorði ekki að leggja norður fyrir land, og sneri því aptur við svo búið og kom til Noregs 3. des. Nokkru síðar fór skipið aptur á leið til Islands, en kom aptur til Noregs (Christiansand) skömmu eptir nýár með rifin segl og laskað skip ofan þilja. Seint í febrúar lagði skipstjóri af stað til lslands í þriðja sinni; þegar hann kom undir austurland, hitti hann fyrir ís og flæktist í honum öðru hvoru, þar til skipið 9. apríl var orðið svo laskað og lekt, að skipstjóri varð að hleypa því á land í stórhríðargarði í Borgarfirði eystra. Skipverjar allir hjeldu lífi og megnið af farminum varð bjargað, og selt við upp- boð. Sagt er að skip og farmur hafi selzt nálægt 14,000 kr. Uppboðið var fjölmennt og hátt verð á mörgu. þessi ferð «Ingeborg» sýnir hrakninga þá, er sjómenn opt þola til þess að (vinna fyrir uppeldi sínu og sinna. — þegar Thyra lá í þórshöfn nú á hingaðleið, kom skipstjóri O. Wathne þangað frá Eskifirði á litlum gufubát, sem hann og Slimon eiga, með skipbrotsmenn- ina af Miaca og «Ingeborg», og fór næsta dag með þá til Leith. Hann sagði hafþök af ís fyrir öllu Austurlandi, en að hann hefði getað þrætt með landi fram í smá- rifum í ísnum og stunduin innan skerja, þó opt með mikilli hættu, allt að Ingólfs- höfða; þar komst hann fyrst fyrir endann á ísnum; var hann þó 3 mílna breiður þar fyrir utan. Prestaköll. Bíra Helgi Árnason í Nesþingum hefir fengið leyfi landshöfðingja til að halda því brauði, en afsala sjer Hvanneyri í Siglufirði, er honum hafði verið veitt í haust. Stöð í Stöðvarfirði veitti landshöfðingi 17. þ. m. síra Guttormi Yigfússyni á Svalbarði, og s. d. Sandfell í Oræfum cand. Ólafi Magnússyni, er veitingu hafði fengið fyrir Eyvindarhólum í haust, — hvort- tveggja samkvæmt kosningu safnaðarins f einu hljóði. Prestvígðir 21. þ. m., annan í hvíta- sunnu, af biskupi Dr. theol. P. Pjeturssyni, þessir prestaskólakandídatar: Gísli Einarsson að Hvammi í Norðurárdal; Jón B. Straumfjörð til Meðallandsþinga; Magnús Bjarnarson að Hjaltastað; og Ólafur Magnússon að Sandfelli. Drukknan. í gær kollsigldi sig skip hjer á uppsiglingu úr fiskiróðri, á Hólma- sundi, nærri Akurey. Formaðurinn Ófeigur Guðmundsson, bóndi á Bakka við Reykja- vík, sonur Guðmundar bónda í Ásum í Eystri-Hrepp, drukknaði, ásamt 2 háset- unnm, Jóni, hálfbróður formannsins, og Steini lausamanni; en öðrum 3 varð bjargað af kili. Ófeigur heitinn var valinkunnur maður og vel að sjer gjör.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.