Ísafold - 30.05.1888, Page 1
K.emur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlímán.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útg. fyrir I.okt. Afgreiðslu-
stofa i ísafoldarprentsmiðju.
XV 25.
Reykjavik, miðvikudaginn 30. maí.
1888.
97. Innl. frjettir (brú á Ölvesá o. fl.).
98. Brjef frá Ameríku. Aflabrögð og ýsulóð.
99. Fyrirspurnir. Auglýsingar.
100. Auglýsingar.
Brauð nýlosnuð Hvanneyri 18/B . . ■ . . I0ó2
Eyvindarhólar 18/s . . . 1018
Svalbarð í f>istilfirái 18/6 . 070
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—'
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I —2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóður Rvikur opinn I. mánud. i
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J.Jónassen
maí Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu um hád. fm. | em. | fm. em.
M.l3. + 6 +*« 30,4 j°,5 S hv d S h d
F. 24. + 6 + Q i°,5 3°, 5 O d O d
F.25. + 6 +‘i 3°,5 3°. 5 O b O b
L. 26. + 5 + 8 304 3°,! N h b N h b
S. 27. * + 5 }0,2 3°,2 N h b N h b
M.28. -7— 1 + 4 3°,s 3°,2 N h b O b
þ. 29. O + 5 3°,‘ 30,1 N h b N h b
Fyrsta dag vikunnar var hjer hvasst sunnan-
veður iram að kveldi, síðan logn næsta dag ; siðan
hefir verið rjett að kalla logn en einlægt við norð-
ur, kuldar og snjójel við og við úi lopti. í dag
29. hægur á norðan með snjóýring við og við,
bjartur að öðru leyti.
Reykjavík 30. maí 1388.
Eyrarbakkaþjófnaðurinn. Hæsti-
rjettur hefir 23. f. mán. dæmt það mikla
þjófnaðarmál (innbrotsþjófn. m. m.) og
staðfest því nær að öllu leyti landsyfir-
rjettardóminn, uppkveðinn 28. marz 1887,
—innbrotsþjófnaðurinn á Eyrarbakka var
framinn aðfaranótt hins 3. febr. 1886.
Með áminnztum landsyfirrjettardómi var
porfinnur Jónsson og Magnús porluksson
dæmdir i 3 ára betrunarhúsvinnu, en Jon
Magnússon og Eyólfur Símonarson í 4 ára
betrunarhússvinnu, og staðfesti hæstirjett-
ur það allt. En Hólmfrfði Loptsdóttur,
sem landsyfirrjettur hafði dæmt í 5 daga
fangelsi við vatn og brauð, sýknaði hæsti-
rjettur; hún hafði að eins matreitt kindur,
er hún vissi að húsbóndi hennar, Loptur
Hansson, hafði stolið. Og hvað Lopt
Hansson snertir, þá breytti hæstirjettur
hegniugunni fyrir hann í 40 daga einfalt fang-
el8Í, í stað 4x5 daga fangelsi við vatn og
brauð hjá landsyfirrjetti,— með því að
sakamaður þessi var orðinn sextugur, er
dómur var upp kveðinn í hæstarjetti.
þær Guðrún Jónsdóttir og Margrjet
Guðmundsdóttir voru sýknaðar, eins og í
yfirrjetti.
Iðgjöld hins stolna dæmdi hæstirjettur,
eins og yfirrjettur, að eins þeim Guðmundi
lækni 1 Laugardælum (130 kr.) og Eyrar-
bakkaverzlun (288 kr.), með því að aðrir
höfðu vanrækt að krefjast þeirra.
Málskostnað skulu hinir dæmdu saka-
menn greiða einn fyrir alla og allir fyrir
einn, þar á meðal málsfærslulaun til sækj-
anda og verjanda fyrir hæstarjetti, þeirra
Shaw og Nellemanns, 100 kr. til hvors.
Tíðarfar m. m. Með hvítasunnudeg-
inum brá til hlýinda nokkurra hjer syðra,
en stóð að eins fáa daga. Tókust þá apt-
ur næturfrost og fjúk til fjalla.
Hafis fyllir enn alla firði fyrir norðan,
að sögn sendimanns frá Sauðárkrók, er
þaðan fór 24. þ. m., og hingað kom í gær.
Matvöruskortur orðinn mikill í kaupstöð-
um norðanlands, vegna siglingaleysisins,
nema á Sauðarkrók vörubirgðir C. Knud-
sens frá Newcastle, er hann skildi þar ept-
ir óseldar í haust, og nokkuð hjá fasta
kaupmönnum þar. Lestaferðir miklar
þangað norðan úr Eyjafirði.
Heyskortur mikill orðinn í Skagafirði
víða; farið að beita kúm út.
Brú á Ölvesá. Alþingi samþykkti
loks í fyrra eptir langa mæðu lagafrumvarp
um brúargjörð á Olvesá, er kosta mætti
allt að 60,000 kr. Lög þessi eru óstaðfest
enn, ekki af því samt, að stjórnin sje ekki
því máli fyllilega sinnandi, heldur vegna
þess, að enginn hefir enn fengizt til að taka
það að sjer fyrir svo lítið, — minnsta boð
að sögn nál. 80,000 kr. Að ekki fæ3t
lægra boð en þetta, er með fram því að
kenna, að hlutaðeigendur þykjast eiga svo
mikið á hættu með óhagræði í aðflutning-
um að brúarstæðinu og því að koma brúnni
á sjálfa ána, en ýmislegt því viðvíkjandi
ekki rannsakað áður til hlítar.
Til þess að reyna að greiða götu málsins
að því leyti til, tók hr. Tryggvi Gunnarsson,
er staðið hefir fyrir brúargjörðinni á
Skjálfandafljóti og fleiri stórám fynr norðan,
sjer fyrir hendur að rannsaka brúarstæðið
á Olvesá og annað þar að lútandi betur
en áður, nú er hann var hjer á ferð með
«Thyra» og komst eigi áleiðis norður fyrir
hafísnum. Eeið hann austur f því skyni
um hvítasunnuleytið, ásamt þorláki al-
þingismanni Guðmundssyni, o. fl. Svo vel
hittist á, að Olvesá var óvenjulega lítil
vexti, og sást þá það, er mikils þykir um
vert, að botninn í ánni á brúarstæðinu —
hjá bænum Selfossi í Flóa — er miklu
hagkvæmari til að koma brúnni á en við
hafði verið búizt, sem sje örgrunnt út í
ána að vestanverðu nál. 50 álnir, af 112,
og hörð hraunhella undir; sömuleiðis sam-
kynja hraunskör við eystra landið, þó
miklu mjórri sje, nefnil. að eins um 12
álnir. þar á milli er svo meginállinn,
hyldjúpur, þ. e. áin rennur þar í streng í
hyldýpis-hraungjá, er nemur tæplega hálfri
árbreiddinni, eða nál. 50 álnum.
Grynningarnar til beggja landa, einkum
sú að vestanverðu, með öruggum botni,
gerir nú það að verkum, að miklu er hægra
en ella að koma við trönum, stólpum og
öðrum áhöldum til stuðnings meðan verið
er að koma á brúnni. Eru eptir því allar
líkur til, að koma megi fastabrú þar á
ána; að öðrum kosti var við því búið, að
una yrði við hengibrú, en hengibrýr þykja
reynast misjafnlega.
Að öðru leyti hagar svo til við brúarstæð-
ið, að hamar er að vestanverðu meira enfull-
hár undir brúarsporðinn, en að austan
hraunklöpp, er hlaða verður ofan á stöpul,
7—8 álna háan. Grjót er allgott í hamr-
inum að vestanverðu, og verður að flytja
það austur yfir, því þar er grjótlaust.
Ain sjálf verður ekki notuð til aðflutn-
inga á brúarefninu o. s. frv., hvorki sumar
nje vetur, vegna «hávaða»: straumflúða,
sem eru eins og vísir til fossa og leggur ekki
til hlítará vetrum. |>ar á móti eru líkur til
að nota megi akfæri að vetri til upp Fló-
ann (Breiðumýri) frá Eyrarbakka mest-
alla leið upp að brúarstæðinu, og væri
það mikils vert, því minni en 5—600
punda þungi kváðu stærstu brúarstykkin
ekki geta orðið, en allt járnið í brúna
vegur 230,000 pd. að á er ætlað. Hr. Tr.
G. fjekk nú álitleg tilboð um flutninginn
upp eptir, frá dugandi mönnum innanhjer-
aðs, og er líklegt, að það greiði einnig fyr-
ir fyrirtækinu.
Hr. Tr. G. skoðaði einnig brúarstæði
þau á þjórsá, er stungið hefir verið upp á(
af þeim Windfeldt-Hansen og Hovdenak.
Eptir bendingu Einars bónda á Urriðafossi,
sem er ánni manna kunnugastur, en hinir
útlendu vegfræðingar höfðu eigi átt tal við,