Ísafold - 25.07.1888, Page 1
Kemur út i miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlímán.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útg.fyrir I.okt. Afgreiðslu-
stofa í ísafoldarprentsmiðju.
XV 34.
Reykjavik, miðvikudaginn 25. júli.
1888.
133. Innl. frjettir.
134. Útl. frjettir.
136. Hitt og þetta. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 4—6
útlán md„ mvd. og Id. kl. 6—7
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. i
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathugaiiir í Reykjavík, eptir Dr. J.Jðnassen
júll Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttujumhád. fm. | em. fm. em.
M.lS. + 10 + 16 30, 3o> S h b O b
F. 19. + n + 16 30, 29>9 A h d O b
F. 20. + 9 + 15 29,9 29.9 O b O b
L. 21. + 9 + 13 3°, 3°, V h d O d
S. 22. + 8 + 11 30, 3°, O d O d
M.23. + 9 + iS 30 30, O b N h b
Þ. 24. + » + ‘3 3°, 30, O d O b
Sama blíðan hefir haldizt alla vikuna optast
verið logn og bjart veður. í dag 24. dimmur til
hádegis, að hann gekk til norðurs með hægð, rjett
logn og bjartasta sólskin. Loptþyngdarmælir mjög
stöðugur.
Beykjavík 25. júlí 13&8.
Póstskipið Laura kom hingað í
fyrra dag Irá Khöfn. Var fátt af far-
þegjum með henni þaðan (Björn Kristjáns-
son, fröken R. Sveinbjörnssen), og frá
Englandi 2—3 (Sigm. Guðmundsson út-
flutningastjóri o. fl.).
Guíuskipið „Copeland" kom apt-
ur frá Stykkishólmi 19. þ. m. og með því
nokkrir farþegjar, er ætla aptur með
»Thyra«. það fór aptur nóttina eptir til
Skotlands með nálægt 600 hross, flest
hjeðan af suðurlandi, nokkuð frá Coghill
og nokkuð frá pöntunarfjelögum þeim,
er J. Vídalín er milligöngu maður fyrir,
þar á meðal um 40 vestan að.
Brauð veitt. Borg á Mýrum veitti
18. þ. m. síra Einari Friðgeirssyni, að-
stoðarpresti á Reynivöllum.
Hvalveiðaskipið „Reykjavík",
eign þeirra Amlie og hans fjelaga, er hafa
hvalveiðistöðvar við Isafjarðardjúp, kom
hingað 22. þ. m. vestan frá ísafirði,
með nokkra farþegja þaðan, er vestur ætla
aptur með »Thyra«. það fór aptur daginn
eptir. — 58 hvali eru Norðmenn þessir
húnir að veiða í sumar, og er það miklu
meira en nokkur dæmi eru til áður, en
stórmikill gróði, þar sem hver hvalur er
talinn að meðaltali 2000 kr. virði.
Tíðarfar- Enn standa hin dæmafáu
blíðviðri hjer sunnanlands, — ekkert að,
nema grasbrestur mikill víða, vegna hinna
langvinnu þurrka, eptir kuldana í vor.
Að norðan og vestan er að frjetta viðlíka
veðráttu. Af Akureyri skrifað 18. þ. m.;
»þurkar allan júní og það sem af er júlí-
mánuði, aldrei dropi úr lopti; jörð því
víða hálf-sviðin, og útlit með grassprettu
í Eyjafirði og þingeyjarsýslu í versta
lagi«.
Hafís var allmikill við austfirði seint í
vikunni sem leið, eptir því sem frjettist
með franska herskipinu öðru. Af Akur-
eyri skrifað 18. þ. m.; »ís kominn út af
fjörðum, þó skammt frá landi, hákarla-
skipum mjög til tálmunar; líklega fastur
við Sljettu«. — Thyra komst þó til Eyja-
fjarðar daginn eptir (19.) vestan fyrir;
hafði einnig komizt á Húsavík.
Aflabrögð eru enn hin beztu hjer um
slóðir, það lítið sem þau eru stunduð, og
það af vænum þorski. Er slíkt hjer um
bil dæmalaust um þennan tíma árs. Af
vananum er þó allur fjöldinn af sjómönn-
um farinn í sveit i kaupavinnu frá þessari
miklu blessun eða þá í aðra landvinnu. —
Yið Isafjarðardjúp er og ágætur afli enn.
— I Vestmannaeyjum einnig farið að lifna
við með aflabrögð nú upp á síðkastið. —
Af Eyjafirði skrifað 18. þ. m.: «Aflalítið af
þorski og hákarli; þó fengu þrjú skip góð-
an afla, sem komust vestur fyrir ísinn,
vestur af Hornbjargi; þau fengu 200, 150
og 130 tunnur af lifur á litlum tíma; hin
skipin lítið*.
Verzlunarfrjettir. í síðustu verzl-
unarskýrslum frá Khöfn, 11. þ. m., segir
meðal annars, að norskur saltfiskur sje að
lækka í verði á Spáni, vegna þess að að-
flutningar af honum þangað eru miklir,
um 70,000 skpd., miklu meira en út geng-
ur í bráðina. Við íslenzkum saltfiski látið
dauflega; farið fram á 42 rm. (rúmar
37 kr.) í ágúst-farma, en fekkst ekki.
í Khöfn lækkaði verðið þegar Laura kom
þangað snemma í þ. m. með 600 skpd.—
þá lágu þar fyrir 300 skpd. óseld af því,
sem kom með Thyru—, nokkuð reyndar af
því, að meira barst að en á þurfti að halda
í bráðina, en mest af því, að fiskurinn var
ekki nærri góður til að geymast, bæði of
lítið saltaður og ekki nógu vel þurkaður.
Óhnakkakýldur seldist á 42—45kr. — frá
einum manni á 50 kr., af því að hann var
vel verkaður—, hnakkakýldur á 42—44kr.,
smár og meðalstærð á 38—40, og ýsa á
32—36 kr. Lýsi heldur að lækka. Sund-
magar á 50 a. Af æðardún óselt nokkuð
frá í fyrra ; engin eptirspurn eptir honum;
búizt við nokkuð lægra verði en í fyrra.
Erá Englandi segja síðustu frjettir ís-
lenzkan saltfisk kominn niður í 13 £ fyrir
smálestina (nál. 37 kr. skippundið).
Hjer í Reykjavík og öðrum kaupstöð-
um sunnanlands er fiskurinn í sama verði
enn : 40 kr. hjá stöku manni, þar á með-
al nú við Duus-verzlun í Kefiavík, en al-
mennt 38; í Vestmannaeyjum að eins 36.
Á ísafirði ekki heldur nema 40 kr., en
talsvert almenn samtök um að leggja hann
ekki inn fyrir það, enda býður nú spekú-
lant þar frá J. O. V. Jónssyni kaupmanni
í Rvík 44 kr.
Fyrir hvíta ull eru gefnir hjer almennt
60 a., en mislita 45. Fyrir sundmaga 60 a.
Að öðru leyti ekki komið fast verð á ís-
lenzkar vörur. Fyrir dún gefa 2—3 verzl-
anir hjer 14 kr.; aðrir láta líklega um 15
—16.
— A útlendri vöru hefir verið þetta
verð algengast nii á lestunum, í reikning
eða fyrir íslenzka vöru:
Rúgur, tunnan (200 pd.), 14 kr.; rúg-
mjöl 15—16 kr.; bankabygg 24—28 kr.;
hrísgrjón 12—14 a. pundið; kaffi 80—85 a.;
kandís 32—36 a.; hvítasykur 25—32 a.;
brennivín 80—85 a. potturinn; neftóbak
1 kr. 35 a. pundið, munntóbak 2 kr.; salt
4 kr. 75 a. tunnau, hjá einum 4 kr. 60 a.;
steinolía 22 a. potturinn.
Embættispróf við háskólann tók 5.
f. m. í lögum Klemens Jónsson (Borgfirð-
ings) með 1. einkunn.
Doktor í heimspeki varð 30. f. m.
við háskólann í Khöfn cand. mag. Jón
porkelsson (frá Staðarstað), fyrir bók um
íslenzkan kveðskap á 15. og 16. öld. And-
mælendur voru L. Wimmer háskólakenn-
ari og stud. mag. Bogi Th. J. Melsted.
Til f>ingvallafundar voru kosnir
fyrir Gullbringu- og Kjósars. í Hafnarfirði