Ísafold - 25.07.1888, Síða 3

Ísafold - 25.07.1888, Síða 3
135 Um eldsuppkomurnar ekki enn allar skýrsl- ur frammi, en í Sundsvall er sagt, að kviknað hafi í húsi af neistaflugi frá reik- háf gufuskips, en um þann tíma voru þar þurkar miklir, svo lítið þurfti til kynding- ar, þar sem húsin eru flest af viði reist. þá er og talað um fádæma mikla skógar- bruna á fleirum stöðum í Svíþjóð og Nor- egi; í Svíaríki skógar eyddir sumstaðar, sem að verði nemur miljón króna. Hjer geta brunarnir hafa orsakazt af leiptureldi. England. Fyrir skömmu gerðu Viggar áhlaup á ráðaneytið fyrir'atferlið á Irlandi, en því var hrökkt aptur. Samt sem áður eru þeir vonargóðir, því seinustu kosningar í auð þingsæti hafa gengið þeim heldur í vil en hinum. Nýlega dæmt í máli O’ Donnels—fyrrum þingmanns Ira—á mótiblaðinu The Times. Hann heimtaði 50 þús. pd. sterl. í bætur af blaðinu fyrir áburð þess um mök hans og fleiri forustumanna þjóðvinafjelagsins við samsærismenn og illvirkja á Irlandi, en gögnin voru brjef, sem þeim voru eignuð, og Times Ijet prenta með líkingarletri. Dómurinn kvað áburðinum ekki hrundið og dæmdi blaðinu sýknu. Nú verður Par- nell að láta til sinna kasta koma, því eitt brjefið er honum eignað, og fleiri böndþóttu að honum berast. Frjett frá Afríku, að Englendingar hafi orðið að senda hersveitir inn í land Zúlúa til að bæla uppreist niður. þeir höfðu sig- ur í hinum fyrstu viðskiptum, en ekki sagt, hvað hjer er enn eptir að vinna, því verða má, að fríveldi »Búa» (Hollendinga) hlut- ist til. f>ízKALAND. Vilhjálmur annar, keisarinn nýi, verður þrítugur 27. janúar næsta ár. Sagður vel að sjer, en til fræðingar og upp- eldis allt vandað sem mest af foreldrum hans. Einnig orð haft á kappkostun hans að kynna sjer allt sem bezt, sem að ríkis- og landstjórn lýtur, og þau orð eru höfð eptir Bismftrck, að hann kjósi helzt að vera sjálfs síns ráðgjafi. Sumir hafa lengi spáð, að hann mundi reynast herskár höfð- ingi, og hyggja hans mundi við þá frægð- ina helzt felld, en því mælti hann þvert á móti í vetur við eitt tækifæri (í ræðu), - og nýlega hafa þingsetningarræður hans að eins vottað allt þeim framburði hans til styrktar. Umhorfinn höfðingjum þýzkalands og öðru stórmenni helgaði hann nýja alríkis- þingsetu 25.júní. f>að nýnæmis-legast í ræðu hans var það, að sambandið við Austur- ríki og Ítalíu leyfði sjer að halda vingan • við Rússakeisara, og öllum þeim tryggðum óbrugðnum og samkomulagi, sem svo lengi hefði haldizt með þýzkalandi og Rússlandi. það var sem öll Evrópa ljetti brúnum við þessi ummæli, en fyrir hálfum mánuði höfðu bandamenn jpjóðverja í Austurríki ogá Ung- verjalandi, eða ráðherrar Jósefs keisara, beiðzt nýrra framlaga til hers og varna og talað dapurlega um vandræðaástand álfu vorrar. Keisarinn sagðist þó vona, að það tækist »með aðstoð guðs», að tálma voða- legum atburðum. Hins þarf ekki að geta, að hið voðalegasta fyrir hans augum, sem fleiri, mundi vera styrjöld með Germönum og Slöfum. I miðjum þessum mánuði kem- ur Vilhjálmur keisari (sjóleið frá Kíl) til Pjetursborgar að heimsækja frænda sinn. I blöðum er þess til getið og sjálfsagt kallað, að ferðin dragi til nýrra einkamála með keisurunum. þau spá, að þeir búi til forspjöll til málaloka á Bolgaralandi, sem Rússum þyki vel við sæmandi, en hittverði þó að koma á móti, að frændinn í Pjeturs- borg afneiti öllu fylgi við Frakka, hvað sem í gerist, og það segja blöð Rússa því auðfengnara, sem hjer hafi allra heita og einkamála'verið synjað frá öndverðu. Einnig er gert ráð fyrir, að Vilh. og Jósef keisari mæli mót með sjer seinna í sumar. Hjer friðarerindi farið, til að víkja bróðurnum í Vín úr tortryggðaráttinni og blíðka þel Ungverja til Rússa. f>ó sagt, að Bismarck muni það ekki eins auðleikið eins og þar sem þjóðverjar eiga í hlut. Sumir ætla líka, að fundum þeirra Vil- hjálms keisara og Ítalíukonungs muni bera saman í þeirri ferð. Aðrir taka hjer annan veg á málunum. Hjer eigi, segja þeir, að vekja upp aptur »sambandið helga», kúgunarbandalag stór- veidanna, þar sem Frakkland stóð sem í banni fyrir utan. Höfuðmiðið sje nú að koma því í einangurstöð, og friðurinn verði sá álits, að allir standi í alvæpni með reidd sverðin yfir höfði Frakklands. Eptir sje þó að vita, hvort allir reynist tryggir, ef Frakkar láta reytast til reiði, gerast hamhleypur og hirða hvorki um líf nje dauða. (Niðurl.). VlÐBÆTIR frá frjettaritara ísaf. á tínglandi. 13. júlí. Nú verður mönnum tíðrætt helzt um hagi Boulangers hershöfðingja. í gær 12. þ. m. sagði hann af sjer þing- mennsku, og bar fyrir, að forseti þings hefði beitt sig hlutdrægni og misboðið frelsi ræðu- stólsins. Aður en hann gekk á fund, hafði hann ráðið af, að segja sigúrþingi, og var ráðgert, að því áformi hans yrði framgengt á þennan hátt. Hann ætlaði, þegar er fundur byrjaði, að bera fram uppástungu, er skoraði á stjórnina, að ráða ríkisforseta til að rjúfa báðar málstofur og boða nýjar kosningar. Umræður um það, hvort taka skyldi áskorunina á dagskrá, hlytu að verða stuttar, var gert ráð fyrir ; við atkvæða- greiðslu yrði uppástungan sjálfsagt felld, og skyldi hershöfðingi nota tilvikið til að leggja niður umboð kjósenda sinna í rjettlátri gremju við hina kærulausu þingkynslóð. Allt þetta var gert ráð fyrir, að yrði vel um garð gengið kl. hálf-fimm eptir miðdag. Hershöfðingi hafði sett allar þessar áætluðu frjettir saman í grein fyrir blað sitt, La Presse, sem kemur út kl. 5. En margt fer öðruvísi en ætlað er. þegar á fund var komið, lá svomikið fyrir af undan-fundar- störfum, að hershöfðingi komst ekki að með ræðu sína, sem hann las, fyr en undir kl. 5. Ræðan var gífurlega orðuð og ofsalega fram borin, og varð ys á þingi mikill. þegar ræðunni var lokið stóð upp fyrsti ráðherra, Floquet, og svaraði röksamlega og varð sumt í ræðu hans til að vekja hlátur þings að Boulanger. þegar Floquet settist niður reis hershöfðingi á fætur og mælti af mikilli bræði: »Jeg skora á fyrsta ráðherra að taka aptur það, sem hann hefir vikið að mjer persónulega og hefir sært mig meinlega. Jeg hefi fjórum sinn- um svarað honum: ’þjer hafið logið’«. For- seti krafðist að Boulanger skýrði orð sín þegar, ef hann ekki vildi sæta þing- ávítun. þá kallaði hershöfðingi hárri röddu: »Fyrst að frelsi ræðustólsins er misboðið, legg jeg niður í hönd forseta þingmanns umboð mitt«. Gekk hann síð- an út, en í þingsal heyrðist ekki manns- ins inál fyrir ópi og óhljóðum þingmanna. þ>egar út á stræti var komið beið hers- höfðingja ein skumpan enn; þar var blað hans í allra höndum með allt aðra sögu um þingfundinn en reynd varð á, og er nú enginn borgari í Frakklandi sem menn hlæja betur að en Boulanger. Staðhæft í dag, að hann hafi skorað Floquet á hólm. 14. júlí. Einvígi þeirra Floquets og Boulangers varð í gær skömmu eftir kl. 10. það var Floquet, sem skoraði Boulanger á hólm; og þótti almenningi hafa gilda sök til. Floquet er sextugur, enn Boulanger yngsti hershöfðingi í her Frakka, vart fimmtugur. þeir börðust með sverðum og lauk svo, að Boulanger fjekk tvö sár, annað í brjóstið, alvarlegt, hitt í hálsinn að framanverðu, sem er svo háskalegt, að læknar vilja ekki Jláta íuppi, hvað þeir haldi að úr því verði. En hið sanna er að Boulanger liggur fyrir dauðanum. Floquet fekk að eins skinnsprettu á tveim 8töðum.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.