Ísafold - 29.09.1888, Blaðsíða 3

Ísafold - 29.09.1888, Blaðsíða 3
179 Ameríka. I fyrra komst samningur á með stjórn Bandaríkjanna og Englending- um um fiskirjett Bandaríkjabúa meðfram Kanadaströndum, þar sem þeim yar sann- gjarnlega í vilnað. þá hafði greint á um rjettan skilning á eldri sáttmála (frá 1871). Kanadabúar kölluðu landhelgilínuna dregna fyrir andnesjum, eða fyrir utan alla firði og flóa, hinir sögðu hana svo lykkjótta, sem til hagaði. Minna þótti þeim ekki mega koma móti öllum þeim hlunnindum, sem Kanadabúar nutu í tollfrelsi og flutn- ingum til og frá um Bandaríkin. Sex síð- ustu ár hafa þeir flutningar numið 270 miljónum dollara. þegar samningurinn kom til öldungadeildarinnar í Washington, risu samveldismenn í mót og gerðu hann rækan við þriggja atkvæða mun, því það eru yfirburðir þeirra, sem stendur, í deild- inni. Allir vissu, til hvers leikurinn var gerður, að sáttmálaspjöllin við Englend- inga skyldu egna Ira þar vestra undir merki samveldismanna við kosningarnar. Cleveland varð svo við þessu bragði, að hann béiddist heimildar af þinginu til að rjetta hlut Bandaríkjabúa, sem nú væri málum komið, og afneina það tollfrelsi, sem á undan er um talað. Hinum bránú heldur í brún við snarræði forsetans, því nú mundi valt á íra að treysta, er svo skyldi í berhögg við Englendinga gengið, eða framar en þeim sjálfum hafði komið til hugar. Að málið dragi til vandræða, trúa fæstir, hinu heldur, að allar mis- klíðir hjaðni, þegar forsetakosningin er um garð gengin. Ýsulóð og aílabrögð. Eptir Guöm. Guömundsson í Landakoti. III. það er rangt af prestinum að segja, að oss hafi tekizt »með einkennilegri lag- kænsku, að gera (þeim) Garðbúum miklu lægra undir höfði heldur en öllum öðrum Faxaflóabúum*. Við búum undir sömu lögum og þeir, að því sem viðvíkur þorska- netalögunum ; leggjum netin á sama tíma og þeim er leyft að leggja þau, og sækj- um með þau jafnlangt eða lengri veg út- eptir en þeir þurfa að fara inn á við; og í hverju er þá sá ójöfnuður fólginn, sem presturinn minnist á ? I engu öðru en þvf, að hvorki vjer nje heldur Garð- menn mega leggja netin þar, sem þau hafa reynzt að vera fiskiveiðum alls Faxaflóa til tjóns og eyðileggingar, og á þá staði, þar sem þau árlega töpuðust, okkur og þeim til stórtjóns í fjárhagslegu tilliti, enda hafa flestir viðurkennt, og þar á meðal Garð- búar sjálfir, að netasamþykktin hafi reynzt þessum hjéruðum einhver hin þarfasta reglugjörð, því auk þess sem menn þar út frá hafa sárlitlu fje varið í þann eyði- leggjandi kostnað, sem netatapið bakaði þeim, svo þeir margir hverjir hafa viður- kennt, að fjárhagur þeirra hafi stórum lagazt síðan, þá er þeim nú líka gjört mögulegt að stunda fiskiveiðar á annan kostnaðarminni hátt, með haldfærum, sem þeim áður var lítt mögulegt að nota innan um þann þorskanetafjölda, sem í Garðsjó var lagður, því haldfæri og þorskanet geta ekki vel sameinazt á sama tíma og sama bletti í fallsjó; það mundi reynslan geta sannfært prestinn um. f>að hafa að lík- indum engin hjeruð auðgazt eins mikið fyrir ákvarðanir netasamþykktarinnar og Garðurinn, sem betur fer; en því þakk- látari mættu innbúarnir vera þeim mönn- um, sem studdu að því, að sú reglugjörð fengist. Netamálinu er presturinn með öllu ókunnugur, og því furðar mig ekki, þó hann í þvl taki öfuga stefnu. Hann er líka að mestu leyti ókunnugur lóðaveiðinni af eigin reynslu, en hann ætti að mega trúa sveitungum sínum og sóknarbörnum til að segja sjer satt; og hver er þámein- ing þeirra ? A fundi í Keflavík 11. janúar 1887 »voru nær allir á einu máli um, að jafn- vel hóflítil haldfæranotkun á litlu veiði- sviði spillti miklu síður fiskiveiðunum en hin takmarkalausa ýsulóðanotkun og þorskneta«. Samanber fundarskýrslu í ísafold 26. jan. 1887, 4. tölubl., undir- skrifaða í Keflavík lð. sama mán. af síra Jens Pálssyni, fundarstjóra, og þórði J. Thoroddsen, skrifara. Á aukafundum sem haldnir voru annar í Keflavík degi síðar (12.) »samþykktu allir«, og hinn í Gerðum 14. s. m. »3amþykktu því nær allir útvegs- bændur og útgerðarmenn« þá skuldbind- ingu, að aftaka lóðina frá 22. s. m. til vertíðarloka (sjá fyrnefnda fundarskýrslu), og á þessum tveimur síðarnefndu fundum mætti þó enginn »stórbokki« af Ströndinni til að »lemja« þennan hleypidóm »inn í hina litilsigldari«. Á sýslunefndarfundi í fyrravor kom síra Jens með þá breytingar- uppástungu við sýslunefndarfrumvarpið, — að líkindum eptir tillögum eða ósk sveit- unga sinna, — að lóð yrði að eins aftekin frá nýári til vetrarvertíðarloka, ár hvert, en sýslunefndin vildi þá ekki aðhyllast þá hreytingu, heldur afnema lóðina alla haust- vertíðina líka. f>etta var meining síra Jens og sóknar- barna hans um ýsulóðina í fyrra vetur og fyrravor, og það er að öllu leyti sú sama stefna, sem jeg hefi haldið fram í ísafold- argrein þeirri, sem presturinn er að amast við. Hver meining hans og sóknarbarna hans nú er, má ráða af ísafoldargrein hans; en hver hún verður næsta ár, veit enginn, ekki einu sinni presturinn sjálfur. Hún byggist, að líkindum, á aflabrögðun- um næsta vetur. f>ar sem presturinn minnist á »enda- skipti á rökleiðslu minni«, þá gleymir hann því, að um leið og jeg tala um þann tíma, sem gengur til lóðarróðra, reikna jeg með þann tíma, sem við þá eyðist eptir að f land er komið. Tíminn á sjonum verður að vísu opt styttri en við færaróðrana, en þegar við bætist sá tími, sem þess utan eyðist við lóðina í landi, verður hann miklu lengri samtals. Enn fremur vill presturinn draga þá ályktun út úr orðum mínum, að jeg vilji afnema lóðina af því hún sje hœgara veiðarfæri en haldfærin, en þetta er annaðhvort misskilningur eða rangfærsla. Jeg vil afnema lóðina af því að það er margsannað, að löðamergð á litlu veiðisviði spilli fiskiveiðum og trufli fiski- giingur um vissan tíma af árinu, og af því, að útgerðarkostnaðurinn um þann tíma er opt meiri en aflinn, sem á þær fæst. Höld- um dæminu áfram um sláttuvjelina. Ef síra Jens fengi sláttuvjel, sem á einhvern hátt væri svo illa löguð, að hún rifi upp eða skæri rótina, svo ekkert gras sprytti þar árið eptir, sem hún væri brúkuð árið fyrir; ætli honum þætti það borga sig að brúka hana á tún sitt, þó hún rifi niður meira gras á skemmri tíma en menn gætu slegið með okkar gömlu samsuðuljáum ? Eins er því varið með þau veiðarfæri, sem spilla fiskiveiðum eða trufla fiskigöngur, þó þau í svipinn sjeu fiskisæl. í öðrum löndum hefir verið fundið upp á veiðarfæri, sem nú er gjörsamlega bannað að nota á ýms- um stöðum, einmitt af því það reyndist of eyðileggjandi fyrir fiskiveiðina, þó það reyndist fiskisælt á meðan það var notað. Hjer er það lóðamergðin á Iitlu svæði, en ekki sjálft veiðarfærið, sem hefir þær afleiðingar, að fiskur hröklast burtu af fiskimiðum, enda er það með öllu þarflaust að nota lóð til fiskiveiða í Garðsjó þann tíma, sem lóðabannið ætti að vara, því þá er þar alloptast þyrsklings- eða þorskafli, sem venjulega fæst betur á færi en lóðir, ef veðrátta er hagstæð ; en í umhleypinga- samri veðráttu neita jeg ekki að lóð verði fiskisælli en færin, og á meðan dagur er skemmstur. Jeg neita því heldur engan veg- inn, að lóðin hafi síðastliðinn vetur gefizt bet- ur en flest þau ár, sem jeg man eptir, að því leyti, að fiskur var fremur venju stöðugur í Garðsjó framan af vertíðinni, þó lóðværi notuð þar almennt; en það mun líka sjald-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.