Ísafold - 05.01.1889, Síða 3

Ísafold - 05.01.1889, Síða 3
7 handgripum« (fyrir handtokum), »katólskur í húð og hár«, »sjerskilinn«, »hjálparmeðal við kennsluna«, »innleidd fríkennla«, »frípláss«, »var hægt að sjá, hvernig ein námsmey eptir aðra kom til hennar«, »tileinkað sjer þetta holla starfslíf«, »að stoppa í föt«, xkonstruktionsteikning, sem, þegar fram líða stundir, mun taka upp (!) sæti fríhendis-teikn- ingarinnar«, »börnin, sem þær á síðan ætla að vígja(!) lífsstarf sitt og krapta«. Alþýðu- menntandi rit má ekki vera ómenntandi að orðfæri, spillandi tungu þjóðarinnar. Enda er og orðfæri á ninum greinunum í hepti þessu óaðfinnanlegt. 3?ar næst er stutt en kjarngóð grein eptir Dr. J. Jónassen, um næringu ung- harna: ágætar bendingar og viðvaranir um það efni, er vafalaust mundu draga rnikið úr barnadauða hjer á landi, ef þeim væri hlýtt. þá hefir Jóhannes Sigfússon íslenzkað fyrirlestur eptir sænskan skólastjóra, Eohde, um »áhrif kennara á uppeldi barna«. Er það ffiikið góð hugvekja, ekki einungis fyrir skólakennara, heldur einnig fyrir foreldra og húsbændur, er eiga að annast uppeldi og fræðslu barna á heimilum þeirra. Loks hefir Jón pórarinsson ritað í hepti þetta yfirlit yfir »löggjöf um barnauppfræðing á íslandú og »skýrslu um barnaskólal887—88«. — það er víst, að alþýða getur haft mikið gagn af riti þessu, og er henni vissu- lega ekki um megn að eignast það (1 kr. árgangurinn). ENSK HLJÓÐFEÆÐI, eptir Geir T. Zo'éga. Evík 1888. 32 bls. — það eru fram- burðarreglur í ensku, nákvæmari, skýrari og glöggvari en áður hafa til verið á íslenzku. Kverið er jafnframt upphaf kennslubókar í ensku, sem von er á að sumri, en er látið koma út á undan sjer í lagi, af því« að fram- burðurinn í ensku er nemendum erfiðastur viðfangs og því mest nauðsyn á leiðbeiningu í því efni». f>au hljóð 1 ensku, sem til eru í íslenzku máli, eru sýnd með mikið glöggum dæmum íslenzkurn, en tekið skýrt fram um hin, að þau sjeu ekki til í voru máli, og er þá í þess stað ljrst svo nákvæmlega sem kostur er á, hvert tungutak þarf til þess, að bera það hljóð rjett fram. Er það miklu betra held- ur en að vera að reyna að tákna þau með «líkum» ísleDzkum hljóðum; því þessi «líku» hljóð gera ekki nema villa nemandann, — þó að hann geti auðvitað með hvorugri að- ferðinni numið framburð þeirra til fullkoin- innar hlítar án munnlegrar tilsagnar. Aptan við hljóðfræðina eru nokkur framburðar-sýnishorn, þ. e. enskir lestrar- kaflar, prentaðir fyrst með enskri stafsetn- ingu, en síðan með íslenzkri, eins og á að bera þá fram eptir íslenzkum hljóðtáknun- um. það er nýmæli í íslenzkri kennslu- bók, og hlýtur það að vera til mikils ljettis og stuðnings fyrir nemendur. Bæklingur þessi er yfir höfuð svo ljóst og ljett saminn, að hann mun naumast verða neinum meðalgreindum byrjanda örðugur við- fangs. Landsbókasafnið. A skýrslu þeirri, er hjer fer á eptir, má sjá afnot landsbókasafns- ins á umliðnu ári (áður hafa verið birtar viðlíka ársskýrslur í blaði þessu nokkrum sinnum) : 1888 Út-lán. Lestrarsalur. Bindi. Lántak- Bindi Lesend- endur. notuð. ur. Janúar 348 176 335 99 Febrúar 345 166 345 118 Marz 380 169 606 168 Apríl 388 160 540 153 Maí 213 100 365 118 Júní 183 93 330 85 Júlí 170 72 272 78 Agúst 159 75 263 96 September 223 85 486 88 Október 204 89 241 79 Nóvember 274 117 332 82 Desember 140 66 341 80 3027 1368 4456 1244 Af prentuðum bókum hafa safninu bætzt 897 bindi. þar af hefir geheimeetazráð A. F. Krieger gefið 257 bindi, landshöfðingi Magnús Stephensen 9 bindi, Jón Borgfirðingur 27 bindi, bóksali Sigurður Kristjánsson 10 bindi. Enn fremur hafa gefið safninu Frk. Lehmann- Filhés, amtm. E. Th. Jónassen, próf. dr. K. Maurer, dr. Vetter, dr. Schweitzer, próf. Fiske, dr. Finnur Jónsson, dr. Jón þorkels- son yngri, Höst bóksali, E. C. Boer, Pjetur Eggerz, adj. þorvaldur Thoroddsen o. fl. Af haudritum hefir verið keypt til safns- ins um hundrað númer. Amtm. E. Th. Jón- assen hefir gefið 10; Pjetur Klemenzson 1; cand. jur. Hannes Hafstein 2; síra þorleifur Jónsson á Skinnastöðum 1; bóksali Kr. Ó. þorgrímsson 4; stud. med. & chir. Jón Jóns- son frá Hjarðarholti 1; sögukennari Páll Melsteð 3; docent E. Briem 1; rektor, dr. Jón þorkelsson 1; síra Jón Steingrímsson í Gaulverjabæ 1; cand. theol. Hannes þor- steinsson 1; Hallgr. Melsteð 10. Evík fj- 1888. Hallgb. Melsteð. Fiskilagabrot. I lanclsyfirrjetti var dæmt 26. nóvbr. f. á. lögreglurjettarmál úr Gull- bringusýslu út af fiskilagabroti af hendi þeirra Jóns þóroddssonar á Auðnum og Stefáns Pálssonar á Stóru-Vatnsleysu. Hafði s5rslu- maður dæmt þá 30 kr. sekt hvorn og máls- kostnað fyrir brot gegn 1. gr. fiskisamþykkt- arinnar frá 11. jan. 1888. Landsyfirrjettur áleit að vísu sannað, með framburði hins skipaða urasjónarmanns í Vatnsleysustrandar- hreppi, er net tók upp fyrir hinum stefndu 31. marz f. á., og háseta hans, að öll neta- trossa Jóns og að minnsta kosti 3 net af trossu Stefáns hafi legið fyrir utan línu þá, sem bannað er að leggja fyrir utan, en sýkn- aði þá samt, með því að ósannað væri, . að þeir hefði lagt netin fyrir utan línu þessa; höfðu þeir fastlega neitað að hafa gert það, og studdist. neitun þeirra við mörg samhljóða vottorð. / Meiðyrðamál milli Ben. Gröndals og Jóns Ólafssonar út af vesturfarapjesum þeirra frá í fyrra var dæmt í bæjarþingsrjetti í fyrra dag (3. þ. m.), og var Jón Ólafsson sektað- ur um 400 kr., dæmdur í 30 kr. máls-kostn- að, og í lOkr. útlát fyrir að hafa eigi mætt við sáttatilraun í málinu, þótt honurn væri lög- lega stefnt. Verði sættin eigi greidd í kveð- inn tíma, er lagt við einfalt fangelsi í 4 mánuði. Aflabrögð virðast nú vera þrotin að sinni hjer við Faxaflóa sunnanverðan. Að minnsta kosti varð ýmist lítið eða þá alls eigi vart i róðrum þeim, er farnir voru milli jóla og nýjárs, bæði hjer af Innnesjum og eins syðra. BÚNABARFJEIiAG JÖKULSÁRHREPPS. Eptir skýrslu Jónasar búfræðings Eiríkssonar, skólastjóra á Eiöum, hefir fjelag þetta, þau 5 ár, sem liðin voru í fyrra síðan það var stofnað, lilaðið 646 faðma af túngörðum, 100 faðma flóð- garða, kringum sáðreiti 88 faðma og fyrir aur- rennsli á tún 70 faðma Grafið skurði bæði í tún og útengi 1608 faðma. Sljettað tún 303 ferh.faðma Hlaðið vegbrýr yfir tún 103 faðma og grafið einn brunn, sem nam 44 dagsverkum. þessar jarða- bætur hefir fjelagið unnið á tæpum 6 vikum og varið til þeirra 593 dagsverkum. Vor hvert hefir fjelagið haldið að meðaltali 22 verkfæra menn. „Athugum nú“, segir höf., „að þrátt fyrir það, þótt árferði hafi verið þessi ár (1883—1887) hið versta, og þótt fjelagið hafi verið mannfátt, þá hefir það þó komið þessum jarðabótum af á tæp- um 6 vikum, nefnil. unnið að meðaltali 5 daga vor hvert, mest 2 daga í einu á þeim bæjum, sem vinnan hefir fram farið. — Nokkrum jarðabótum mætti nú koma áleiðis, ef í hverri sveit landsins væri fjelög, sem ynnu á líkan hátt, og þó þeim mun meira, er þær eru flestar mannfleiri11. „Imyndum oss þá dagana, þegar búnaðar eða vinnufjelög eru komin á stofn í hverjum hrepp landsins, og þegar æskilegt fyrirkomulag er komið á búnaöarskóla vora, þegar bændur eru flestir orðnir búfróðir menn samfara alþy-ðlegri menntun, og amtsbúfræðingar settir til að halda fyrirlestra, semja ritgjörðir um búnaðarmál . . ., þá hljóta verulegar framfarir að verða á búnaði vorum“. Leiðarvísir ísafoldar. pessi leiöarvísir á aö .innihalda breöi pess kyns e/ni, er áöur hcfir veriö látiö hafa fyrirsögnina „Fyrirspurnir og svör“ og hefir veriö mest lag- frœöislegs efnis, og enn fremur ýtnis konar ráð og fáoröar bendingar í öörum efnum, er almenningi getur oröiö aö liöi, spurt og óspurt. Fyrirspurnir þurfa aö vera fáoröar og pó skil- merkilegar, ef þeim á aö veröa svaraö hjer, auk þess sem sjálfsagt er aö Jyrirspurnaratriöiö varöi almenning. 1. Getur sá, sem er í hreppsnefnd, sagt sig úr nefndinni, þegar liann hefir náð sextugasta ald- ursári, án þess hanu hafi útent þau 6 ár, sem hann var kosiun fyrir ? — Svar : Nei. 2. Getur hjeraðslæknir embættis síns vegna verið undanþeginn að vera í hreppsnefnd ?—Svar: Nei. « 3. Jegar prestur er löglega kosinn í hrepps- nefnd og hefir verið gjört viðvart um það, enda hefir látið í ljósi, að hann muni koma á fundi sinn kjörtíma sem hver annar hreppsnefndarmaður, er hann þá ekki ákæruverður, ef það sannast, að hann komi aldrei að þeim málum, sem hreppinn sneita, og sæki aldrei fundi, hversu óannríkt sem hann á ? — Svar : Jú. 4. Er hreppsnefnd heimilt, að leggja sveitarút- svar á þann búanda, sem sjálfur þiggur fátækra- styrk af öðru sveitarfjelagi ? — Svar : Nei. 5. Er sýslunefnd eigi heimilt, að yfirh'ta reikn- inga þá, er hreppstjórar gjöra fyrir flutningi á þurfamönnum, og hafa eptirlit með, að þeir sjeu eigi of háir ? — Svar : Nei; sýslumaðurinn gjörir það, sjá lög 17. apríl 1868 (Lagasafn handaalþýðu II. 144). 6. Ef hreppsnefnd gefur þurfakonu upp sveitar- styrk, til þess að prestur svo gipti hana manni, er sveit á í öðrum hreppi, og framfærsla hennar og ómegöar hennar leggst þannig á framfærslu- hrepp mannsins, hvort er þá framfærsluhreppi mannsins auðið með nokkru móti að hrinda þeirri byrði aptur af sjer á hinn fyrri framfærsluhrepp konunnar? eða verður hann eingöngu að heyja það mál við prestinn, sem iramdi hina ólöglegu giptingu? — Sv.: Skaðabótaskyldan liggur á prest- inum, en ekki framfærsluhreppi konunnar, sjá meðal annars dómsm.stj.brjef 28. febr. 1862(Lagas. II. 107). 7. Er það lögum samkvæmt, að sá prestur eigi

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.