Ísafold - 09.01.1889, Blaðsíða 4
12
Hið voðalega járnbrautarslys, er Kússa-
keisara hreppti í haust og sagt hefir verið frá áð-
ur f útlendum frjettum, kenndi hann sjálfum sjer
að því leyti, að hann hafði skipað að fara miklu
harðara en yfirumsjónarmenn járnbrautarinnar
höfðu sag/.t treysta henni til að þola. Drottning
hans og börn voru með honum í ferðinni, og
komst hann svo við, er hann sá þau öll og drottn-
inguna úr helju heimt og heil á hófi eptir áfallið,
sem banaði meira en 20 manna, að hann fjekk
eigi tára bundizt.
Keisarafólkið sat að morgunverði, i matsal
vagnalestarinnar, er áfallið bar að. Fundu þeir,
sem i vagninum sátu, allt í einu 3 voðalega kippi,
með ákaflegum skruðningi, og í sama vetfangi var
vagninn mulinn í sundur, en hvelfing varyfirhon-
um, og það hlífði þeim sem inni voru flestum ; þó
biðu nokkrir skutilsveinar keisara, er þjónuðu
fyrir borðum, bráðan bana. Yfirumsjónarmaður
járnbrautarinnar, er setið hafði að borðum með
keisarahjónunum, Stjernwall barún, skaðmeiddist
á höfði. Hann húkti á þúfu utan við veginn eptir
slysið, hálfmeðvitundarlau8, og lagaði blóðið úr
höfði hans. Drottning sjer það og bregður við,
tekur dúkinn af höfði sjer og bindur um sárið, til
að stöðva blóðrásina.
Mesta mildi var það, að börn keisarans sak-
aði ekkert. J>au voru sjer í vagni, næst á eptir
foreldrum sínum. Hann hafði snúizt þvers um á
brautargarðinum og stóð út af beggjamegin, og
þurfti ekkert við að koma til þess hann hryndi
niður, margar mannhæðir. Ein af dætrunum, er
Olga heitir, 6 vetra gömul, hrópaði í sífellu :
„Ekki drepá mig ! Ekki drepa mig /“ Vesalings
barnið hjelt fortakslaust., að þetta væri af manna-
völdum og auðvitað banatilræði við föður sinn,
enda mun og mörgum hinna fullorðnu hafa flogið
það fyrst í hug. Eoks áttaði húti sig, og kallar þá
til föður síns, að hann skuli vera óhræddur; hún
kenni hvergi til. „En ekki fer jeg eitt fet Iengra
á járnbraut“, bætti hún við, og sat föst við sinn
keip. ____________________
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd.
Uppboðsaugiýsing.
Eptir krnfu landsbankans að undangengnu
fjárnámi h. 17. f. m. verður f eða 5 hndr. 42
áln. úr jörðinni Bjarnastöðum i Grimsneshreppi
i Árnessgslu með öllu tilheyrandi sekl sam-
kvœmt lög. 16. des. 1885 með hliðsjón af opnu
brjefi 22. apríl 1817 við 3 opinber uppboð, sem
haldin verða 2 hin fyrstu á skrifstofu Arnes-
sýslu laugardagana 19. janúar og 2. febr. nœst-
kom., og hið þriðja á sjálfri jörðinni laugardag-
inn 16. s. m., til lúkningar veðskuld til lands-
bankans, að upphœð 375 kr. auk vaxta og alts
kostnaðar.
Uppboðin byrja kl. 12. á hádegi ofannefnda
daga ; söluskilmálar verða til sýnis á skrifstofri
sýslunnar degi fyrir uppboðið og fyrirfram birtir
á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Arnessýslu, 1. des. 1888.
St. Bjarnarson.
Proclama.
Samkvæmt opnu brjefi 4. jan. 1861 og lögum
12. apríl 1878 er hjer með skorað á þá, sem
telja til sk ulda í búi 1. Halldórs Hatldórs-
sonar frá pórðarkoti í Selvogshreypi ; 2. Páls
Stefánssonar frá Syðri-Gegnishólum í Gaul-
verjabœjarhreppi ; 3. Eyjólfs Eyjólfssonar frá
Beykjavöllum í Hraungerðishreppi, og 4. Lopts
Hannessonar frá Moshól í Hraungerðishreppi,
sem samkvœmt kröfum skuldheimtumanna eru
tekin til meðferðar sem þrotabú, að tilkynna
og sanna kröfur sinar fyrir skiptaráðanda Ár-
nessýslu á 6 mánaða fresti frá siðustu (3.) birt-
ingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Árnessýslu, 1. des. 1888.
St. Bjarnarson.
Með því að jeg hef afhent herra Herman
Blaauw í Bergen allar útistandandi skuldír
mínar hjer á landi, samkvœmt verzlunarbók-
unum, þá verða þeir, sem skulda mjer, hvort
sem það er frá þeim tíma, er jeg sjálfur hef
rekið verzlun, eðafráþví að »hið norska sam-
lagt rak verzlun í Hafnarfirði og Reykjavík,
að borga umboðsmanni nefnds herra Hermans
Blaauw tjeðar skuldir eða að semja um borgun
á þeim við hann, með því að þœr nú eru mjer
með öllu óviðkomandi.
Reykjavík, 1. nóv. 1888.
M. Johannessen.
Samkvæmt ofanskrifaðri auglýsingu hef jeg
undirskrifaður falið lxerra kaupmanni Helga
Jónssyni í Reykjavík á liendur að innkalla of-
angreindar skuldir og hvitta fyrir þær.
Fyrir hönd herra H. Blaauw í Bergen
Guðbr. Finnbogason.
* * ' *
1 sambandi við liið ofangreinda skora jeg hjer
með á alla þá, sem ofangreindar skuldir eiga að
greiða, að þeir sem fyrst snúi sjer til mín með
borgun eða semji um borgun, þar eð lögsókn að
öðrum kosti verður beitt.
Helgi Jónsson.
Ií o k k u ð n ý 11
fjrir
nærsveitamenn
Og
Reykjavíkurbúa.
Með Lauru seinast fékk eg nýjar og ágætar
vörur frá einu
verzlunarhúsi á Englandi
sem ekki hafa enn verið á boðstólum.
jpær verða seldar við
opinbert uppboð
í GOOD-TEMPLARA-HÚSINU
föstudag og laugardag 18. og 19. jan.
og eru ný ágæt Sirz (um 30 munstur),
ný ágæt Fóðurtau ný ágæt Svuntutau
ný ágæt Millumskirtutau ný ágæt ljerept o.fl.
Reykjavík 9. jan. 1889.
pozl. ö. cJofmoon.
Hjá undirrituðum fæst eptirfylgjandi:
Estrafin Vanille Chocolade, fineste Cacao 1,50
Vanille Chocolade Nr. 1 . . , . , 1,40
2 1,30
3 1,20
Krydderi . . . 1,10
French Capers j Glas . 0,40
—- . 0,20
Hindbærsaft 1 Fl. 1,75
i — . 0,90
Kirsebærsaft — 1,40
i - . 0,75
Soye i F1 . . . 0,60 0,90
Mixed Pickles j Glas . 1,10
Olives a Glas .... 0,80
Sardiner . . . 1,00 0,50
Hummer J 0,95
Colmans Mustard dósin 0,50
Corn flour, pakkinn . . 0,10
Bitteröl, 10 hálfflöskur . 1,50
Klofnar baunir pd. á 0,10
og ýmsar aðrar vörur
Rvík s. 89. Helgi Jónsson-
MANUPACTURED EXPRESSLY
by
J. LICHTIMCER
Copenhagen.
JS
ALEAOÐUE HESTUE, glóiextur, 10 vetra,
hefur tapazt úr heimahögum frá Fitjakoti rjett
fyrir jólin; mark: stýft hægra biti fr. og tvistýft
aptan vinstra.
Sá sem hitta kynni hest þennan er vinsamlega
beðiun að gjöra mjer aðvart eða koma með hann
til mín undirskrifaðs ínót sanngjarnri borguu.
Rvík 8. jan. 1889. M. Johannessen.
TÝNZT hefir sunnudaginn milli jóla og nýjárs
vönduð gullnál, annaðhvort í Kirkjustræti eða
Thorvaldsensstræti. Skila má á skrifst. ísaf. gegn
góðurn fundarlaunum.
i M u ii i ð c p t i r!
fyrirlestri hr. Gests Pálssonar
um
skáld vor og skáldskap,
er auglýstur var 1 Isafold 27. f. m.
Hann verður haldinn í Good-Templarahúsinu
laugardaginn 12. janúar kl. 8 e. m.
Bílæti fást allan firnmtudag, föstudag og
laugardag í búð undirskrifaðs og kl. 71 við
innganginn, og kosta :
almenn sæti 50 aura
nokkur sjerstök sæti 75 aura.
Reykjavík 9. jan. 1889.
'pozt. ö. afoímoon.
Almanak Þjóðvinafjelagsins 1889
er til sölu á afgreiðslustofu Isafoldar.
Ný skósmíðaverkstofa
í nr. 2 í Kirkjugarðsstræti (gamla sjúkrahúsinu) uppi
á loptinu, selur nýja skó, gerir við gamlan skófatnað
fljótt og vel, borgun er tekin í peningum og innskript.
Árni Helgason.
FUNDIZT hefir í gær fyrir neðan Skólavörðuna
í Reykjavík gull-kapsel með kvennmauns-mynd í.
Eigandinn getur vitjað þess gegn hæfiiegri borgun
hjer á skrifstofunni.
Skrifst. Kjósar- og Gullbringus. 31. des. 1888.
Franz Siemsen.
Forngripasafnið optð hvern mvd. og Id. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóðutinn opinn I. mánud. i
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganirí Keykjavik, epur JJr. J. Jónassen
jan. Hiti (Cels.) Lþmælir (milimetr.) Veðurátt.
ánóttu umhád. fm. em. | fm. em.
M. 2. - 6 -j- 5 1749.3 749-3 O b A hv d
F- 3- “ 5 -p 4 751-8 754-4 Sv hv d Sv hv d
F. 4. - 4 + * 741.7 749-3 A h d N h b
L- 5- -10 A- 3 1746.8 744.2 A h b A h d
S. 6. - 4 -P 3 744.1 749-3 O d A h d
M. 7. - 9 -í- 9 749.3 744-2 O b N hv d
Þ. 8. -11 H- 8 I736.6 734.1 O b A h b
Mvd.9. - 8 Í746.8 N hv b
Síðari part dags h. 2. var hjer austanbylur og
aðfaranótt h. 3. kyngdi hjer niður miklum snjó af
útsuðri (Sv) og allan þann dag var útsynningsbylur
við og við með talsverðu brimi, gekk svo t.il aust-
urs með hægð og ýrði regn úr lopti um stund;
hljóp svo um hádegi (4.) allt í einu í vestur-
útnorður með blindbyl, en gekk fljótt til norðurs
og varð hægur siðari part dagsins og heiðsldr;
daginn eptir var hjer bjart austanveður með hægð;
6. var hjer logn að morgni, en allt í einu rjett
fyrir hádegi gekk hann til útnorðurs með byl
stutta stund. Síðan hægur austankaldi og bjart
veður með talsverðum kulda. Snjór hjer um
slóðir óvenjulega mikill. í dag 9. hvass á norðan
til djúpa, lygn hjer að morgni og bjartur.
Ritstjóri Björn Jónason, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.