Ísafold - 27.02.1889, Side 4
68
þeir sje, sem hafi kosið sýslumann á f>ing-
vallafundinn og bjóðist til að borga sektir
fyrir hann.
Bkki þykja bæjarstjórnarlögin frá 11. okt.
1883, svo sem þeim er framfylgt, betri en
hin gömlu fyrir kaupstaðinn. Alyktanir hins
vísa ráðs eru, ef til vill, enn meir en áður
bulinn leyndardómur fyrir almúgann; þær
framfara í nefndum, í pukri innan luktra
dyra, eigi síður en áður, og það þykir stór
viðburður, ef auglýsing sjest í sölubúð frá
fógeta um, að bæjarstjórnarfundur verði hald-
inn einu sinni á missiri eða tvisvar. Fjár-
hagur kaupstaðarins er hinn bágasti, að ætlun
margra meðfram fyrir afskiptaleysi viðkomenda
af bæjarmálum og fjárhag. Bæjarsjóður befir
tekið bankalán án áætlunar, sama árið sem
bann á útistandandi nálægt helmi meir en
láninu nemur. »f>jóðv.» hreyfir ekki þeim
málum, og getur það varla af öðru verið, en
að háyfirvöld landsins og kaupmenn eigi eng-
an þátt í þessu».
Stbandasýslu í jan.: »Stangl-jakar af
hafís sáust í nóvember með Norður-Strönd-
unum, og 3 stórir borgarjakar komu hjer inn
á flóa í haust. — Ekki mun bjargar-ástand
vera stórum betra nú í norðurhluta sýslúnnar
en þegar hallærislánið var tekið, þótt nú eigi
að fara að innheimta það. f>að er mesti
skaði, hvað bjargræðið snertir, að okkar góði
og hjálpfúsi kaupmaður Jakob Thórarensen á
Beykjarfirði er nú orðinn vörulaus.— Hæstur
hlutur í haust á Gjögri voru 200, og ollu því
mest ógæftir, en á Eyjum norður 250 mest,
og mun það hafa verið hæstur hlutur hjer í
sýslu. Jakob kaupmaður Thorarensen hefir
nú 2 þilskip í í smíðum. Hann er sá eini,
sem hefir mátt og vilja og framkvæmd til að
koma á fót þilskipaútveg hjer í sýslu, og hefir
honum þó, af ýmsum orsökum, lánazt það
illa að undanförnu. Mest mun því um að
kenna, að skipin voru látin standa hjer uppi
í vetur, í staðinn fyrir á Isafirði.
Dálítið ber hjer á drykkjuskap enn, enda
er hjer ekkert bindindisfjelag. |>ó hefir
drykkjuskapur minnkað fjarskamikið í seinni
tíð. |>að kemur bæði til af því, að menn
hafa ekki efni til að gera sig drukkna, en þó
einkum af hinu, að flestum—að minnsta kosti
ungum mönnum — þykir það hin mesta van-
virða, að láta sjá sig drukkna. Vonandi, að
þessi ófyrirgefanlegi ósiður gangi gjörsamlega
íyrir ætternistapa».
Eyjafibði í jan: nllafís spá allir að eigi
muni koma að norðurlandi í vetur, og draga
það mest af því, að loptvog hefir staðið ó-
vanalega lágt í allan vetur, og í öðru lagi
draga menn það af því, að landnorðanstorm-
ar hafa komið stöku sinnum í vetur, en heita
má, að slíkt hafi eigi komið fyrir í mörg ár
undanfarin. — Ileybyrgðir eru heldur góðar
hjá mönnum; þó eru það sumir, sem aldrei
kunna að setja á, hversu vel sem heyast.
— Skepnuhöld mega heita góð; þó hefir lungna-
bólga komið fram í lömbúm sumstaðar. —
Bjargrœðisástand er miklu betra hjer um
slóðir, en í fyrra vor, og er því vonandi að
eigi verði sagðar aðrar eins hallærissögur
hjeðan af norðurlandi að vori komanda, eins
■og var í fyrra vor. — Hafsíldar-aýK hefir ver-
ið talsverður hjer í vetur, og þótt hafsíldin
hafi eigi gengið fyrir hátt verð í verzlunum,
þá hefir hún þó gjört mjög mikið gagn inn-
sveitis, bæði sem manneldi og skepnufóður.
þorskafii hefir verið lítill. þó hefir hlutar-
hæð verið nokkur; hæstur hlutur, sem eg
hefi heyrt getið um, er 1600; en þess er gæt-
andi, að það er ekki nema talan, því að
smæðin er ákaflega mikil. A milli jóla og
nýárs var góður afli við Hrísey; 50—70 til
hlutar af stútungi. — Verzlun er dauf hjer
við Eyjafjörð; matarbyrgðir eru miklar á Ak-
ureyri. Peningaekla er mikil, því að borg-
ararnir gleypa hvern eyri, sem mönnum á-
skotnast; samt er það nokkur bót í máli, að
þeir selja ódýrra vörur sínar, en «faktorar«;
því að, eptir að skip voru farin í haust,
færðu «faktorar» allan mat upp um 2 kr.
hverja tunnu. Verð á blautum fiski upp og
ofan er 3 aurar fyrir hvert pund. — Með
framfarafyrirtœkjum má nefna það, að hjer
við Eyjafjörð — austan og vestan — er á orði,
að stofnaður verði sjóður til styrktar ekkjum
og börnum þeirra Eyfirðinga er í sjó drukkna,
svipað og er í Reykjavík og á ísafirði. Gang-
ast fyrir því bændurnir þeir Friðrik Jónsson
á Hjalteyri og Einar Asmundsson í Nesi. -—
A gamlárskvöld var haldinn brenna á Akur-
eyn og hlauzt slys af, þannig, að tjörukaggi,
sem brenna átti, og festur hafði verið upp á
trje, datt ofan og lenti á höfði manns, er
Skúli hjet. Skinnið sprakk í sundur, og hef-
ir heyrzt eptir lækni, er sóttur var, að þótt
skurðurinn grjeri, þá mundi maðurinn aldrei
ná viti framar. þetta er sorglegur atburður
einkum vegna þess, að það hefir að líkind-
um atvikazt af fyrirhyggjuleysi þeirra, sem
kaggan festu upp«.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þ .kkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd
S a m s k o t
til fiskimannasjóðsins í Kjalarnesþingi 1888.
3. Úr Garöi og Leiru, safnað af síra Jens Páls-
syni, með aðstoð Sveins þorsteinssonar og Einars
Sigurðsson ar.
Sveinn þorsteinsson 64 pd. Andrjes Árnason 32
pd. þórarinn Árnason 21 pd. þorst. Finnsson 8
pd. Guðm. Guðmundsson 8 pd. Einar Guðmunds-
son 8 pd. Guðni Jónsson (Skúlhúsum) 8 pd Jnn
þorsteinsson 8 pd. Magnús Jónsson 8 pd. Sveinn
Magnússon 18 fiskar. Jón Eiríksson 6 f. Einar
Gottskálksson 2 f. Gttðni Jónsson (Görðunum) 3
f. Sigurður Sæmundsson 8 f. Geir Guðmunds-
son 2 f. Sveinn Högnason 3 f. Ingibergur Magn-
ússon 3 f. Sveinn Sigurðsson 4 f,, allt í verkuð-
um saltfiski. — Bjarni Sveinsson 1 ltr þorst.
Ólafsson 2 kr. og þorst. þorsteinsson 1 kr. —
Einar Sigurðsson, Vörum 10 kr. — Verkaða fiska
gáfu þessir: Guðm. Jónsson 3. Björn Finnsson 12.
Magnús ísleifsson 3. Guðm. Árnason, ívarshús-
um 7. Sig. þorsteinsson 12. Jón Björgólfsson 6.
Hafliði Jóns on 9. þórður Teitsson 3, Jón Ólafs-
son 10. þorvaldur Ólafsson 6. þorgeir Eyjólfsson
5. Jón Finnsson 12. ívar þorsteinsson 4. Arni
Einarsson 4. Ólafur Gíslason 10. Sæm. Skapta-
son 4. Sveinn Eiríksson 6. þorkell þorkelsson
10. Jón Helgason 24. Guðm. Árnason, ívarshús-
um 3. Guðbr. þorsteinsson 10. Árni þóroddson
3. Bjarni Bjarnason 12. Sv. Helgason 4. Jón
Jónsson, Steinstöðum 7. Bjarni Jónsson 1. Vig-
fús Einarsson 3. — Síra Jens Pálsson 200 pd.
Sveinbjörn Jónsson 23 pd. Ólafur Sæmundsson
16 pd. Benid. þorláksson 22 pd. Sumarliði Ó-
lafsson 16 pd. Einar Mattíasson 9 pd. Björn Sig-
urðsson 15 pd. Jón Pálsson 46 pd. Ingjaldur
Tómasson 9 pd. þórður Bjarnason 5 kr. Eyjólf-
ur Jónsson 2 kr. Gisli Jónsson 4 kr. Einar Jóns-
son 1 kr. Magnús í Garðbæ 1 kr., Jón Jónsson
Kirkjubóli 22 pd. Hinrik Hinriksson 10 pd. Árni
Sveinbjörnsson 12 pd. Jón Ólafsson 8 pd Magn.
Jónsson, Efstabæ 15 pd. Jón Jónsson, Suðurkoti
5 pund. (Framhald)
FUNDIZT í gær í Bankastræti silfurnál, sem
vitja má a skrifst. ísaf. gegn fuudarl.^og auglýs-
ingargjaldi.
Leiðarvísir
landlæknis Schierbecks til að rœkta gulrófur
(kálrabí), turnips og bortfelzkar rófur ætti
allir að eignast nú fyrir vorið.
þar er kennd mjög greinilega öll aðferð að
algengustu garðyrkju hjer á landi. Imiihald-
ið er : Um afstöðu (garða) og girðinga.—Um
áburð. Umgröpt. Um sáning og gróðursetning.
—Um sáningu til gulrófna g turnips í vermi-
reit.—Hreinsun kálgarða.—Um upptekning og
geymslu rófnanna,—Um rófur til fræafla. —
Um not rófnanna. — Um nauðsynina að rækta
tún og garða betur.
Fæst á afgreiðslustofu Isafoldar og hjábók-
sölum víðsvegar um iand.
Kostar að eins 25 a.
Vjer, sem erum í bráðabirgðarstjórn
hins íslenzka kennarafjelags,
leyfum oss hjermeð að skora á alla kennara og
aðra,sem viljastyrkja fjelagið.að gjörast fjelags-
mennog senda einhverjumafoss undirskrifuðum
tilkynning, helzt fyrir júnímán.lok þ. á. Ars-
tillag er 2 kr., ævitillag 25 kr. í eitt skipti.
Beykjavik 25. febr. 1889.
Björn Jensson, Björn M. Ólsen,
kennari vió latinuskól. kennari við latínuskól.
Jóhannes Sigfússon, Jón pórarinsson,
kenn. við Flensborgarrkól. skólastj. Flensborg.skól.
pórhallur Bjarnarson,
kennari við prestaskólann.
GREIDASALA. Frá þessum degi seljum við
unðirritaðir utansveitar ferðamönnum greiða, sem
við getum í tje látið, með sanngjörnu verði. Borg-
un út í hönd.
Reyöará og Svínhólum, 7. febr. 1889. *
Siguröur Sigurösson. Siguröur Jónsson.
PRESTAKK AGAB nvir fást og gamlir fást
stílaðir hjá
Onnu Sigríöi Pjetursson
Smiðjustíg 5, Rvík.
Vátryggingarfjelagið
Commercial Union
tekur í ábyrgð hús, allskonar innanstokks-
muni, vörubirgðir o. fl. fyrir lægsta bruna-
bótagjald.
Umboðsmaður á Islandi: Sighvatur Bjarna-
son bankabókhaldari.
Forngripasatnið opið hvern mvd. og Id. kl. 1 — 2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Póstar fara (n. og v.) 2. marz.
Söfnunarsjóðuiinn opinn 1. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J. J ónassen.
Hiu 1 Loptþyngdar- (á Cel-ius) |mælir(millimeul Veðurátt.
Febr. |á nóttu|um hád.| fm. em. j fm | em.
Ld. 2 t. + 5 + 2 1 764.0 7Ö9-6 O d O d
Sd. 24- 0 + 2 1 7747 782.3 N h b N h b
Md. 25. -r- 6 -Á_ I I 787-4 787.4 O b O b
f>d. 26. -í- 9 -f- 3 782.3 774-7 O b Nv h b
Mvd. >7. ri- S 772.2 Na h b
Allan laugardaginn var rjer su ddarigning og
logn; daginn eptir bjart veður, hægur á norðan ;
síöan logn tvo næstu dagana og bjartasta veður ;
síðari part hins 26. fór aö gola á vestan-útnorðan
og hvesti nokkuð kveldið nokkra stund, síðan
hægur.
Loptþyngdarmælirinn hefur vísað óvenjulega
hátt h. 24. og 25., og síðari daginn var hann kom-
inn eins hátt og hægt er á mínum mæli og hefur
þetta eiga borið við nema tvisvar áður, nfl. 6/a
1883 og ,0/8 1887.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.