Ísafold - 17.04.1889, Síða 1

Ísafold - 17.04.1889, Síða 1
ííemur út á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (I04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlimánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin vtð áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir I.okt. Af- greiðslust. i Austurstrœti 8. XVI 31. Reykjavík, miðvikudaginn 17. apríl. 1889. Málið um umsjón og fjárhald dóm- kirkjunnar í Reykjavík. Eins og áður hefir getið verið lauslega, hefir uefnd sú, er ko3Ín var í haust á safnaðar- fundi hjer í bænum (H. Kr. Friðriksson yfir- kennari, Hallgrímur Sveinsson dómkirkjuprest- ur, Helgi Hálfdánarson lector, Sighv.Bjarnason bankabókari og Stefán Thorarensen emerit- prestur), til þess að undirbúa svar safnaðarins upp á áskorun frá landsstjórninni, að undir- lagi alþingis 1887, um, að Reykjavíkursöfnuð- ur taki að sjer fjárhald og umsjón dómkirkj- unnar,— komizt að þeirri niðurstöðu, ctð ráða Beykjavíkursöfnuði frd að-taka að sjer fjárhald og umsjóri dómkirkjunnar, að minnsta kosti að svo vöxnu ináli, nicðan hann eigi fœr greinilegt og áreiðanlegt yfir- lit yfir kostnaðinn við nœgilega stækkun hennar og allar nauðsynlegar umbœtur. Nefndarálitið er allýtarlegt og rækilegt, og ;ýmislegt fróðlegt í því. Nefndin er þeirrar skoðunar fyrst og fremst, að bezt eigi við, að Reykjavíkurkirkja sje þjóðeign og undir umsjón og ábyrgð lands- stjórnarinnar, eins og verið hefir. Hún sje höfnðkirkja landsins, notuð í þarfir þess alls ; vígslukirkja, kirkja allra hinna mörgu námsmanna í öllum skólum hjer víðs veg- ar að úr öllu landinu, kirkja alþingis- manna um þingtímann, og »óteljandi ann- ara, bæði innlendra og útlendra, æðri og lægri»; ®en enginn þeirra geldur þó nokkuð sem helzt til kirkjunnar». Sem landskirkja, höfuðkirkja alls landsins, þurfi hún að vera ekki einung- is sómasamlega rtr garði gjörð að upphafi, heldur þurfi líka að vera full vissa fyrir því, að henni sje ávallt og í öllum greinum svo tiið haldið, sem vera ber, svo t,ð hún sje sam- boðin hinum háleitu verkum, setn þar fara fram. Hún þnrfi þar að auki að vera tign- arlegri og fagurlégar útbúin en nokkur önnur kirkja landsins, með því að hingað sæki fjöldi útlendra manna, og opt og einatt stórböfð- ingjar, sem eigi mundi lítast vel á, ef kirkja þessi væri eigi samboðin tilgangi sínum, og svo sem höfuðkirkja ætti að vera í öllum efnum, og þó í nokkra líkingu við heldri kirkjur í öðrum löndum, og landinu í öllum greinum til sóma. Ætti því stjórnin að vilja sjálf sjá um< aQ kirkjan væri ávallt þannig á sig komin og útbúin, að hún væri landinu til sóma, en eigi til vanvirðu. En að eiga slíkt um aldur og sefi undir úrslitum á safn- aðarfundi, með hinum mjög víðtæku laga- ákvæðum um atkvæðisrjettinn, það gæti orðið ’nokkuð valt. En þótt landsstjornin áliti söfnuðinum til -alls hins bezta treystandi í þessu efni, og þótt hann (söfnuðurinn) væri allur af vilja gerður, Iþá væri honum að áliti nefndarinnar langt um megn að standa straum af kirkjunni. í>að væri lítill vegur, ef kirkjan væri í góðu standi og hæfilega 3tór, eins og stendur. En það er ekki því að heilsa hvorugu. Kirkjan sjalf þarf nokkurrar viðgerðar; hana vantar og allmikið af skrúða ; líkhús kirkjunnar er orðið •mjög Ijelegt og lítt stæðilegt. þó er hitt stórum meira um vert, að hún er mikils til of litil fyrir söfnuðinn, eins og hann er nú, hvað þá heldur þegar hann stækkar enn meira. Hún tekur ekki nema í hæsta lagi 1000 manns, en þyrfti að taka 3000, ef duga skyldi handa söfnuðinum nú sem stendur. því nú er söfnuðurinn orðinn nokkuð á 5. þúsund (var 1887 4033), en það þykir hæfileg kirkju- stærð, að hún taki f safnaðarins, og það tók líka dómkirkjan, þegar hún var endurbyggð, 1847, með því að þá var fólkstala sóknarinn- ar alls 1497 manns. Að, eins á 9 árunum síð- ustu hefir tala sóknarmanna aukizt um 1300 manns, eða meira en kirkjan frekast getur rúmað. það er með öðrum orðum, að þótt ekkert sje ætlað fyrir stækkun safnaðarins eptirleiðis, þá þyrfti dómkirkjan að vera eins stór og 3 kirkjur aðrar eins og hún er nú. Hvort sern nú kirkjan væri stækkuð sem því svarar •—- en áþví er ýms óhægð, — eða þá smíðuð ný kirkja, þágizkar nefndin á, að það mundi kosta 100,000kr. En þó að kirkjan legði upp 1000 kr. á ári, samkvæmt því sem gera rná ráð fyrir eptir tókjum hennar nú, og þó að hún fengi 20,000 kr. ofanálag úr landssjóði, og helmingur þess væri settur á vöxtu (en hinum helmingnum varið til bráð- nauðsynlegustu umbóta), þá þyrfti þó meira. en 20 ár til þess að safna að eins helming þess fjár, eða 50 þús. kr., en á 20 árum get- ur söfnuðurinn ef til vill tvöfaldazt, svo að þörf væri á nýrri og rúmgóðri kirkju auk liinnar eldri, og þá hrykki sjóðurinn skammt. Að vísu mætti bæta það nokkuð upp, hvað kirkjan er lítil, með því því að hafa fastan aðstoðarprest, svo að fiytja mætti 2 messur i kirkjunni á flestum helgum dögum, en til sómasamlegs uppeldis tveimur prestum mundu tekjurnar af sókninni ekki hrökkva, og þá bæri aptur að sama brunni, að landssjóður þyrfti að hlaupa undir bagga til að launa aðstoðarpresti, altjend að nokkru leyti. Til glöggvunar á fjárhagsástandi dómkirkj- unnar hefir nefndin samið yfirlit yfir tekjur og gjöld heunar á síðasta 5 ára tímabili (1883—1887), og verður meðaltal af tekjun- um ................................ kr. 2209,40 gjöldunum ........................... — 1916,76 Afgangur — 292,64 á ári. En stærsti liðurinn í útgjöldum kirkj- unnar er afborgun og vextir af landssjóðsláni því til viðgerðar henni, 16,000 kr., er á henni hvílir síðan 1879, og sje gjört ráð fyrir, að sú skuld yrði látin niður falla, ef söfnuður- inn tæki kirkjuna að sjer, þá hefði hún ná- lægt 1000 kr. afgangs tekjum á ári, eins og áður er á vikið. Tekjur kirkjunnar eru þessar, eptir 5 ára meðaltali: ljóstollar.................kr. 888,62 tínnd .......................— 156,96 legkaup .....................— 224,76 jarðarafgjald................— 157,15 húsatíund ...................— 781,91 En gjöldin, eptir meðaltali fyrir sama tímabil: umsjón og reikningsfærsla kr. 214,00 eldiviður og ræsting......— 395,33 viðhald á kirkju og líkhúsi —• 224,17 til skrúða og áhalda .....— 71,32 afborgun og vextir .......— 724,56 önnur útgjöld ............— 287,38 Af því að kirkjunni voru gefnir eptir vextir af skuld hennar 2—3 ár á tímabilinu 1883 til 1887, er það sem gengið hefir til afborg- unar og vaxta á þeim tíma nokkuð minna en annars gerist, sem sje um 720 kr. á ári að meðaltali, í stað 960 kr. Mál þetta verðfir, áður langt um líður, lagt til urnræðu og úrslita á safnaðarfundi hjer 1 bænum, og þurfa menn þá að vera búnir að ráða huga sinn um, hvað þeir vilja við það gjöra. Allar líkur eru til þess, að flestir muni verða nefndinni samdóma, og drepa hendi við þeim veg og vanda, að taka kirkjuna að sjer. það eru hlunnindi fyrir söfnuðinn, sem er síður en eigi hafnandi, að geta látið landið eða landssjóð sjá sjer fyrir kirkju um aldur og æfi, og það svo og svo veglegri og stórri kirkju. Landssjóður getur ekki fremur kom- izt hjá að sjá þessum söfnuði fyrir guðshúsi en öðrum söfnuðum landsins, þar sem eins stendur á, sem sje að kirkjan er beinlínis landssjóðseign, og hann getur ekki komizt hjá þeirri skyldu, að hafa hana viðlíka rúm- góða, að tiltölu við tölu sóknarmanna, eins og aðrar kirkjur, og þó öllu rúmbetri, vegna utansóknarmanna,sem hjer dvelja að staðaldri fremur eða fleiri en annarstaðar. Meðan söfn- uðurinn vill ekki ljetta þessari byrði af lands- sjóði, á meðan verður liann að gera svo vel að sitja uppi með hana. þannig horfir málið við fyrir þeirra sjón- um, sem líta eingöngu eða mest á lagarjett- inn fyrir Reykjavíkur hönd, og það virðist nefndin hafa gert. Hún telur fram, hvers við þurfi til þess að höfuðstaðnum geti heitið borgið hvað guðshús snertir og guðsþjónustu, og sýnir fram á, að til þess útheimtist stór- fje, og telur sig ekki geta á þáð vísað annars- staðar en úr landssjóði. .Jafnvel þótt söfn- uðurinn vildi svo vel gera að taka kirkjuna að sjer, þá yrði það að vera með stórfje í ofanálag, auk uppgjafar á eptirstöðvum skuld- ar þeirrar, er landssjóður reiknar kirkjunni (síðan 1879). En forsjálla er án efa fyrir söfnuðinn sjálf- an, þótt hann sýnist standa svona vel að vígi gagnvart landsstjórninni, að líta einnig á málið frá hennar sjónarmiði og setja sig í spor landssjóðsins eða ráðsmanna hans. Landssjóður liefir í æði-mörg horn að líta og af litlu að miðla, eða, rjettara sagt, af engu að miðla til nýrra fyrirtækja öðru- vísi en með nýjum álögum á almenning. En þá er þjóðinni ekki láandi, þótt hún ætlist til, að hinum nýju álögum sje öðru fremur varið til þess konar fyrirtækja, sem almenn- ingi horfa til verulegra hagsbóta, en heldur hlífzt við að leggja mikið fje í annað, allt hvað komast má nokkurn veginn af án þess, allra helzt ef það kemur nánast við að eins einni sveit eða einum bæ.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.