Ísafold - 01.05.1889, Blaðsíða 3

Ísafold - 01.05.1889, Blaðsíða 3
139 „Skilnaðar“-atkvæðaflanið er líklega búið að vera. Ekki bólar á, að nokkur einn málsmetandi maður sje því fylgjandi, annar en frumkvöðullinn, hr. J. Ó. sjálfur, og hann vildi jafnvel gjöra sem minnst úr öllu saman undir eins í ísaf. um daginn, eins og menn munu hafa tekið eptir. Með svar kemur hann reyndar í »Fj.kon.» í gær gegn ritstjóra ísafoldar, en fer þar mest utan við efnið og bregður fyrir sig talsverðum hártogunum og miklum kynstrum af— feitu letri, sem stöku rithöfundar virðast vera trúaðir á að bætt geti upp magrar ástæður. Magnús heit. Eiríksson t. a. m. var einn, sem hafði einstaklegar mætur á feita letrinu, brá því fyrir sig í annari hvorri setningu opt og tíðum; en lítið munþað hafa hrifið- Póstskipið Laura (Christiansen) kom hingað í fyrra kvöld seint. Hafði gengið ferðin vel, fór frá Khöfn 18. f. m. Með því komu þau landshöfðingi og frú hans, og rúmir tuttugu farþegar aðrir, mest kaupmenn og verzlunarmenn, sumir hingað og sumir áleiðis til vesturhafnanna með skipinu. Hingað komu kaupmennirnir Coghill, Eyþór Felixson (með frú sinni), Helgi Jónsson, Magnús Sig- fússon Blöndal (frá Hafnarf.), Sturla Jónsson, Walg. Ó. Breiðfjörð (með frú sinni og upp- eldisdóttur), og þorl. O. Johnson. Enn frem- ur fröken Anna Jörgensen, þórarinn f>or- láksson bókbindari, Andersen skraddari, Wm. Paterson, og A. C. Lambertsen, verzlunar- maður frá Færeyjum. Til vestfjarða eru með skipinu þessir kaupmenn : Björn Sigurðsson frá Flatéy, Markús Snæbjarnarson frá Vatn- eyri, Pjetur J. Thorsteinson frá Bíldudal, N. Chr. Gram frá þingcyri, Magnús Jochumsson og Sigfús Bjarnarson frá Isafirði. Póstskipið leggur af stað til vesturhafnanna í kvöld, en hjeðan til Khafnar 14. þ. m. Um 120 smálestir af vörum hingað skildi nú póstskipið eptir í Skotlandi vegna rúm- leysis, þótt pantað hefði verið löngu áður rúm fyrir mikið af því. Er það stór-bagalegt lnörgum, og lítt unandi við slíka meðferð. Biskup yfir Islandi er skipaður af kon- ungi 16. f, m. dómkirkjuprestur síra Hallgrímur Sveinssoniv&%5. maí þ. á. (ekki 2ð.apríl), í stað biskups dr. P. Pjeturssonar, er var veitt lausn s. d. eptir beiðni hans og með eptir- launum. Síra Hallgrímur fer utan með þessari Póstskipsferð til biskupsvígslu, og á hún fram að fara 30. þ. m. Háyfirdómari Í landsyfirrjettinum er ^kipaður af konungi 16. f. mán. yfirdómari Löius E. Sveinhjömsson, fráþví í dag, í stað Jóns Pjeturssonar, er lausn var veitt s. d. með óskertum launum í eptirlaun. í yfir- dómara-embætti Lárusar (1. meðdómanda) var s. d. skipaður af konungi yfirdómari Kristján Jonsson, en í hans fyrverandi em- bætti (2. meðdómanda) settur í gær af lands- höfðingja til bráðabirgða landritari Jón Jens- son, báðir frá því í dag að telja. Heiðursmerki. Biskup Dr. P. Pjeturs- son er af konungi sæmdur 16. f. rn. stórkrossi dannebrogsorðunnar, og háyfirdómari Jon Pjetursson s. d. heiðursmerki dannebrogs- Manna. Sýslunefndarfundur. Sýslunefnd Ár- nesinga hjelt fund með sjer hjer dagana 23. —26. f. m. Helztú mál, sem nefndin hafði til meðferðar, voru: að gjöra ráðstöfun til að hlaðinn verði flóðgarður fyrir Hvítá (hjá Brúnastöðum), þar sem hún flæddi upp í vetur sem leið. Vill sýslunefndin veita til þess 310 krónur af fje því, er sýslunni er úthlutað til eflingar búnaði, en láta Flóa- hreppana 5 vinna auk þess eptir niðurjöfnun 564 dagsverk, eptir tölu verkfærra manna í hverjum hrepp. Til pdstvegarins milli þjórsár og Olfusár virtist nefndinni þurfa um 4000 krónur, og var auk þess í vanda stödd, hvernig ætti að ráða bót á sýsluvegunum svo þeir værinokk- urn veginn færir, því landslag í sýslunni er ýmist svo mýrlent eða grýtt víðast, að kostn- aðurinn við viðhald veganna er miklu meiri, en sýsluvegasjóðurinn geti greitt. Nefnd- inni mun hafa dottið 1 hug, að afnema hinn núverandi póstveg, en láta hann í þess stað liggja eptir sýsluveginum frá Olfusá við Kot- ferju eða Selfoss niður á Eyrarbakka, og að þar yrði sett aðalpóststöðin, og að póstvegur- inn liggi svo austur með sjó á þjóðveginum og yfir þjórsá, þar sem heppilegast þætti; en nefndin mun hafa verið hrædd um, að hún spillti með því fyrir brúnni á þjórsá, ef póst- vegurinn lægi ekki þráðbeinn milli ánna. — Samt er líklegt, að reynslan mundi sýna, að þetta væri happaráð, ljetti talsverðum kostn- aði á landssjóði við póstveginn og gjörði sýsl- unni mögulegt að hafa aðra vegi í bærilegu standi. Nefndin mælti enn fremur með stofnun aukalœknisembcettis á Eyrarbakka. Leiðarvísir ísafoldar. 125. Eru kaupmenn eða verzlunarfulltrúar ekki sjálfsagðir að skila aptur rjettum eiga.nda fjárupp- hæð þeirri, er þeir borga út úr reikningi verzlunar- viðskiptamanna sinna, ef þeir geta ekki sýnt, að þeir sjálfir skriflega sjeu beðnir um fjárupphæð- ina? Sv.: Jú, geti þeir ekki sannað heimild sína, hvort sem hún er skrifleg eða munnleg — það stendur á sama um það. 126. Ef verzlunarfulltrúi borgar út úr verzlun- arviðskiptareikningi Jóni, en á eptir framlögðu „bevísi“ að borga út Jónasi, varðar það ekki á- byrgð? Sv.: Jú, verzlunarfulltrúinn verður að standa aptur skil á því, sem hann hefir borgað óheimilum manni. 127. Hafa ekki þeir menn, er tekið hafa próf við Möðruvallaskólann, leyfi til aö vera lausa- menn? Sv.: Nei, ekki fyrir þaö eitt. 128. Hafa kennarar við barnaskólana á íslandi ekki kosningarrjett til alþingis? Sv.: Nei, ekki nema þeir sjeu jafnframt bænd- ur, kaupstaðarborgarar eða þurrabúðarmenn, eða þá hafi tekið embættispróf eða eitthvert háskóla- próf, æðra en stúdentspróf,—• allt með þeim nánari skilyrðum, sem til eru tekin í kosningarlögum 14. sept. 1877. 129. Eiga ekki daglaunamenn heimtingu á, að þeim sje greitt kaup sitt í peningum, ef ekki er samið um annaö en krónutal? Sv.: Jú, nema svo sje, að þeitn hafi kunnugt verið áður en þeir rjeðust í vinnuna, að ekki væri tíðkanlegt þar eða hjá þeim húsbónda að borga hána öðru vísi en t d. í vörum, og hafi þeir samt ekki áskilið peninga. 130. Er kaupmönnum leyfilegt að selja salt á helgum dögum? Sv.: Nei. 131. Hvað mega sjómenn (fiskimenn) vera lengi á sjó á aðfangadögum helgidaga, til þess að vera lausir við að gjalda fátækrahlut? Sv.: Allan daginn sjálfsagt; nema þá (stórhá- tíða-)aðfangadaga, sem heilagt er frá miðaptni, þá ekki lengur en til þess tíma að nauÖ8ynja- lausu. 132. Má maður eklci fara með æðarfugl, sem drepur sig í hrognkelsanetum eins og frjálsan feng? Sv.: Jú. 133. Hvernig á maður að fara að, þegar æðar- fugl skemmir og eyðileggur beitu manns, úr þvi ekki má drepa hann, eins og annan ránfugl? S.: Bera það með þolinmæði, eins og annaú mótlæti. 134. Nú sýnir ábúandi jarðar nágranna sínum, þeim er land á til móts við hann, merkjaskrájarð- ar sinnar, og óskar að granninn riti á samþykki sitt, en sá neitar, og telur til landauka við þaun, sem skrána framlagði, sinni ábúðarjörð til handa, hvorum þessara tveggja máfsaðila ber skylda til að hefja málssóknina, þeim, sem fram hflöur sína skrá til áritunar landaukakröfu-laust, eða hinum, er landauka vill fá? Sv.: Hvorugum. Eptir 7. gr. landamerkjalag- anna er mönnum í sjálfs vald sett, hvort þeirvilji Ijúka þrætu um landamerki með málsókn eða eigi,. sjá landshöfðingjaúrsk. 15. júní 1886 (Stj.tíð.) 135. Nú liggja afrjettarlönd jarða saman á sýshí-takmörkum, og ábúendur jarðanna, beggja vegna við sýslutakmörkin, greinir svo á um landa- merkin, að áreið þurfi að fram fara, hvaðan skulu þá tilkvaddir menn í merkjadóminn? Skulu þeir kallaðir jafnmargir að tölu úr hvorri sýslunni fyrir sig eða allir úr þeirri sýslunni, sem varnarþing liins stefnda liggur í, ef honum hefir verið stefnt til að undirrita framlagða merkjaskrá? Sv.: Allir úr sýslu varnaraðila. 136. f>egar svo stendur á, að heima-og afrjett- arland kirkjujaröar — ekki hjáleigu — liggur að afrjettarlandi beneficiums sjálýs, er þá fullnægjandi, að prestur — pastor loci — sjálfur og einsamall semji landamerkjaskrá kirkjunnar, riti undir hana einn og leggi hana að því búnu fram á mann- talsþingi til þinglesturs? Sv.: Nei. J>að mál skal borið áðurundir stiptsyfir- völdin. 137. Getur þannig tilorðin landamerkjaskrá, sem getið er um í 136. spurningu, haft fullt gildi, enda þótt hún næði að vera þinglesin þrátt fyrir munn- leg (á þinginu fram borin) mðtmœli landseta? Sv.: Nei. Landseti getur kært fyrir prófasti og stiptsyfirvöldum, og ónýta þau aðgjörðir prests og þar með landamerkjaskrána, ef þeim þykir ástæða til. 138. Er hásetum ekki leyfilegt, að hafa olíu meðsjerásjó, þegar formenn, og það þótt bjargráða- nefndarmenn sjeu, hafa ekki framkvæmd í sjer til þess? (Háseti í Bessastaðahrepp). Sv.: í forboði formanns mega þeir það líklega ekki, því þeir eiga að hlýða honum. En jafugott er, þótt þoir gjöri honum kinnroða með því, að fara fram á það. 139. Eru búlausir menu, sem fje eiga, skyldir að greiða helmingi hærri t ýratoll en búendur? Sv.: Nei, ekki nema þeir eigi helmingi fleira fjeð að minnsta kosti. í alþingisdómi 1. júli 1680 er raunar dýratollur fast ákveðinn, 3 álnir af hverjum búanda eða búlausum manni, sem á sex sauði 1 sinni ábyrgð; en hitt hefir að vitni lögfræð- inga (t. d. Bjarna amtmanns Thorsteinssonar í „Ofi- entl. Afgifter,,, bls. 126) orðið að fastrilögvenju,að miða upphæð tollsins við fjárfjöldann. 140. Er það lögum samkvæmt, að jafna dýra- tolli niður á þá, sem enga skepnu eiga? Sv.: Nei, það er lögleysa. Hitt er annað málr að sje dýratolli alls eigi jafnað niður sjerstaklega, heldur kostnaðurinn við eyðingu refa tekinn blátt áfram úr sveitarsjóði, t. d. eptir heimild í stað- festri reglugjörð um fjallskil, eyðing refa o. fl., þá má segja að hann lendi í raun rjettri einnig á þeim, sem enga skepnu eiga.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.