Ísafold - 04.05.1889, Síða 1

Ísafold - 04.05.1889, Síða 1
Keraur út^á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins (t04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlimánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir I.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVI 36. Reykjavík, laugardaginn 4. mai. 1889. Bindindishreyfingin um hinn mennt- aða heim. Eptirfarandi grein stendur í hinu ■danska vikublaði »Nutiden» nr. 12 1889. Af því ein ástæðan fyrir mótspyrnu ýmsra hjer á landi gegn bindindismálinu er sú, að þeir alls enga hugmynd hafa um stöðu þessa máls í útlöndum, og þess vegna ímynda sjer eða láta í veðri vaka, að þessi hreyfing sje að ■eins sjervizku-kredda vtr »nokkrum mönnum í Reykjavík», þá vil jeg biðja yður, herra rit- stjóri, að taka greinina í blað yðar. það gæti þó verið, að einhver reyndi til að hugsa dálítið alvarlegar um málið á eptir, því van- þekking á málefninu, skammsýni og barna- skapur í allri rökleiðslu hefir hingað til ein- kennt framkomu þeirra, er móti málinu hafa ritað; en því fer betur, að þetta eru sjúk- dómar, sem má lækna. Rvík, 3. maí 1889. Guðl. Guðmundsson. »|>að var voða-óhóf, sem kom henni (bind- indishreyfingunni) af stað, óhóf, sem kom upp á ófriðartímum, eins og opt hefir átt sjer stað. Stjórnin í Bandaríkjunum (í Ameríku) hafði í blindni sinni og fáfræði tekið það vanhyggju- ráð til þess að »hressa» dáta sína í volki þeirra í frelsisstríðinu, að hún jós í þá brenni- víni ótæpt. þetta leiddi til þess, að brenni- vínsnautn fór þá almennt mjög vaxandi. Af svipuðum ástæðum óx löngu síðar of- drykkja í París stórum á skömmum tíma, en þar hafði annars verið mjög lítið um hana. Á þeim 8 mánuðum, er liðu frá því umsátin um borgina byrjaði fyrst 1870 og til þe3s er uppreistaróöldin leið undir lok vorið eptir, var í París drukkið fimmfalt meira af á,fengum drykkjum, en gjört hafði verið nokkurn tíma •áður á heilu ári ; sá vani, sem borgarbúar tóku þá upp, hefir síðar orðið svo ríkur í lífi þjóðarinnar hversdagslega, að þess sjest enn ljós vottur. Brennivínsdrykkja Ameríkumanna í byrjun ■aldarinnar var svo mikil, að hún jafnvel tók fram drykkjuskap vor Dana nú á tímum, og ■®r þó áfengisbrúkun vor orðin svo nafnfræg, að hún hefir bakað Danmörku auknefnið: »eitt af hinum þrem staupa-bandaríkjum» — en það auknefni eiga þó Noregur og Svíþjóð alls eigi skilið. Tíu eða tólf miljónir Ame- ríkumanna drukku þá 300 miljónir potta af brennivíni um árið. Útgjöld þjóðarinnar, er stöfuðu af áfengisdrykkjum, voru talin ná- lægt 250 miljónum króna. þjóðin ljek sjer að þessu skaðræði með svo glaðværri fásinnu, að á veitingahusspjöldunum mátti víða sjá auglýsingar í þessum stíl: »Hjer geta menn orðið vel kenndir fyrir 1 penny (7 aura), og rennandi-fullir fyrir 2pence. Átenn fá að sofa úr sjer ókeypis ölæðið í veit- ingastofunni». þegar það svo vitnaðist af landshagsskýrsl- um og öðrum opinherum skýrslum, að í Bandaríkjunum væri 400,000 drykkjurútar, og að nálægt 35,000 manns á ári fengi ofdrykkju- æði (Delirium), þá var allt í einu sem almenn- ingsálitið vaknaði við voudan draum. I fyrstu voru gjörðar nokkrar reikular og árangurslausar tilraunir til þess að koma á »hófsemd»; en litlu síðar vakti það mikla ept- irtekt hjá þjóðinni, að nokkrir einbeittir menn gengu saman í fjelag, sem hafði að meginat- riði sínu þá skoðun, að vínandi væri eitur, sem eingöngu væri til tjóns, en aldrei til gagn- semdar, drepsýki, er útrýma ætti úr mann- fjelaginu á þann hátt, að allir hætti algjör- lega að neyta hans. þetta var árið 1827. Nú eru nálægt 16—18 miljónir albindindis- manna í Bandaríkjum. I 6 rikjunum cr vín- andi fyrirboðinn, eins og aðrar eiturtegundir hjer hjá oss. Meðal fjölda-margra af heima- þjóðinni í Ameríku er algjörlega liætt að hafa áfengisdrykki um hönd bæði hversdaglega og í samsætum. það er nú talið tvímælalaust, að fyrir aldarlokin næstu muni þann dag, er forsetinn skal kosinn, lagt til liinnar miklu þjóðarorustu um Bandarikin öll til þess að fá lögleitt algjört bann gegn vínandadrykkj- um í öllum þeim löndum, er lúta hinu fræga »stjörnumerki». Fjöldi af mestu ágætismönnum þjóðarinnar hafa átt þátt í þessari hreifing. Lincoln for- seti (1861—1865) fylgdi fast fram þessari siðbót. þegar búið var að kjósa hann til forseta, þá streymdu vinir hans til hans að árna honum hamingju, eins og lög gjöra ráð fyrir. Einhver hugul sál, sem eigi gat hugs- að sjer þennan hátíðisdag rjettilega haldinn, ef «hátíðaskálina» vantaði, kom blaöskellandi með kampavínskörfu og raðaði hróðugur glös- uuum á borðið. Lincoln gaf honum brosandi bendingu um, að stinga hjá sjer flöskunum, hellti sjálfur vatni á skálarnar og bað menn drekka minni Bandaríkjanna «í hinum bezta drykk, er væri til». Cleveland forseti var al- bindindismaður, og Harrison liershöfðmgi (kosinn nú fyrir skömmu Bandaríkja- for- seti) hefir í mörg ár starfað röggsamlega að útbreiðslu bindindis. Kvennþjóðin hefir með miklu fylgi og at- orku tekið þátt í bardaganum mót þessum skaðræðis-ávana. þess eru mörg dæmi, að konur í vesturríkjunum hafa farið á fætur um miðjar nætur, meðan bændur þeirra stein- sváfu, hafa klæðzt í föt þeirra, brugðið grímu fyrir andlit sjer og barið að dyrum hjá vín- sölum með marghleypu mannsins síns hlaðna í hendinni. þegar svo vínsaliun kom til dyra, grútsyfjaður og rotaður, gjöru margir opnir skammbyssulásar og marghleypukjaptar skjót umræðulok. Steinþegjandi varð hann að bera allt sitt dót á vagn, sem var til taks, og svo var honum fylgt stundum margar míl- ur út í buskann. Að skilnaði var honum svo gefið í skyn, að ef hann dirfðist optar að stíga fæti sínum inn fyrir bæjarmörkin, þá mundi hann fá fleiri blýkorn í búkinn er honum mundi heilnæmt finnast. í austurríkjunum beittu þær öðrum ráðum, sem ekki áttu út af eins skylt við «Lynch dómara», en gáfust þó allvel. í borg nokkurri hafði drykkjuskapur farið svo í vöxt, að úr hófi keyrði. Kvennþjóðin átti málfund um þetta efni, og bruggaði mörg og stór ráð. «Við skulum taka að okkur kvæntu karl- mennina», sögðu konurnar og glottu kulda- lega. «En hinir ókvæntu»? þær kunnu líka tök á þeim. Einn góðan veðurdag kváðu við bumhur um öll stræti borgarinnar, og út þustu allar ung- ar stúlkur í borginni, sem voru á giptingar- aldri, ríkar og fátækar, fríðar og ófríðar. I langri skrúðfylking gengu þær um öll stræti, en fyrir þeim var borið merki og þetta rit- að á: «Vjer giptumst engum, sem cigi er albind- indismaðuvn. Nú varð uppi fótur og fit í allri í borginni. A strætamótunum stóð stór hópur af ungum karhnönnum og ljetu óspart fjúka háðglósur og hnittinyrði. Allt í einu varð einn af hinum hvatskeytustu snögglega svo stilltur; hann fölnaði dálítið í framan og það eins og togn- aði á andlitinu; hann umlaði eitthvað um, að hann þyrfti að gjöra nokkuð, sem lægi á, og flýtti sjer burt. Hann hafði sem sje tekið eptir, að «húm var líka þarna í fylkingunni. Svo fengu þeir hver af öðrum «forföll», af svipuðum ástæðum, og loks voru ekki eptir nema örfáir yfirgefnir «piparsveinar». Um heimilis-búsifjar kvæntu karlmannanna er ekkert skráð í þessari sögu ; en litlu eptir þetta samþykktu borgarar bæjarins með miklum atkvæðamun, að lögleiða algjört bann gegn sölu og tilbúningi áfengisdrykkja innan endimarka bæjarins, og frá þeim tíma hefur líka meðal-aldur manna í borginni orðið lengri og sjúkdómum og glæpum fækkað þar. Frá Ameríku færðist svo bindindisbreifingin innan skamms til Englands og þaðan til hinna ensku lýðskylduríkja ; hjer verður svo fyrst fyrir oss hinn mesti bindindis-postuli, sem heimurinn hefir átt, «faðir Mathewn. Theobald Mathew var fæddur á Irlandi 1790 og var prestur í Cork, góður klerkur og mikils metinn fyrir ljúfmennsku og nafntogaður fyrir mælsku sína. Hann hafði í mörg ár látið bindishreifinguna afskiptalausa, þangað til einn af kunningjum hans sagði einu sinni við hann : «Hugsaðu um, hvað miklu góðu þú getur til vegar komið með því að starfa að út- breiðslu bindindis». Hann hugleiddi svo rnálið og skrifaði litlu síðar undir bindindisheitið með þeim orðum: «þótt jeg gæti ekki bjargað nema alls einum einasta manni, þá væri það næsta mikils- vert». þetta var 1838. það, sem lijer fer á eptir, líkist fremur ævintýri en sönnum viðburðum. Hann hjelt fundi tvisvar á viku og fólk streymdi á fund- ina. Eptir 8 mánuði höfðu 158,000 manna skrifað undir bindindisheitið á fundum hans. Nafn hans og orðstír flaug um allt Ír- land. Svo fór hann til Limerick og talaði þar á fjölsóttum fundum í 4 daga. það voru bændur af vestanverðu írlandi, er þar söfn- uðust að honum; á þessum 4 dögum unnu

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.