Ísafold - 25.05.1889, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudögum og
laugardögum. Verð árgangsins
{104 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrir miðjan júlímánuð.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifleg) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir l.okt. Af-
greiðslust. í Austurstrœti 8.
XVI 42.
Reykjavík, laugardaginn 25. mai.
1889
Útlendar frjettir
Khötn, 4. maí 1889.
Danmörk. |>ann 5. apríl kom enskt
'skip, Missouri að nafni,. «Thingvalla»-fjelags-
skipinu Danmark til liðs og hjálpar, og bjarg-
aði af því allri skipshöfninni. Sá eini, sem
fórst, var gangvjelarmeistarinn, sem menn
ætla lostinn til bana af skrúfunni, en ás
hennar brostinn sundur, og það varð dauða-
-rnein skipsins.
Dáinn er Thesdorpf konferenzráð, einn af
stóréignamönnum Dana, nýtasti maður og
lengi hinn helzti og atorkusamasti í forstöðu-
nefnd «landbúnaðarfjelagsins danska*.
Noregur og Svíaríki. Á þingi Norð-
manna reru hægrimenn öllum árum að því,
að fresta löggilding kviðdómalaganna, en nú
skaut Sverdrúp gamli upp merki sínu í hinna
liði, vinstrimanna, og vann sigur. Hlaut
hann nú lof fyrir þá frammistöðu í blöðum
þeirra, og er nú langt síðan hann hefir átt
slíku að fagna. — Dáin er Eugenie, systir
Svíakonungs (f. 1830). Hún var mesta val-
kvendi og gekkst mjög fyrir um fjelög og
stofnanir til barnauppeldis og ýmsra líkna
við volað fólk.
I»ýzkaland. Ekki í júní, en í miðjum
júlíinán., sem nú er gert ráð fyrir, verður af
ferð keisarans til Englands. Von er á
Úmbertó Italíukonungi til Berlínar í síðari
hluta þessa mánaðar.
Fundurinn byrjaður í Berlín um Samóa-
málið, og búast hjer allir við bezta sam-
komulagi um heimildir allra hlutaðeiganda.
Austurríki. Ofritt í Vín á páskunum
Vagnstjórar »omnibus«-fjelagsins gerðu verkfall,
er vilnunar var synjað, og ýfði þetta svo
Verkalýð borgarinnar, að skjótt sló í riðla-
göngur, hávaða og atvígi að höfuðskála fje-
lagsins. Er nú upp komið um eggingar af
forustumönnum sósíalista, en bæði æsingar
og tilgjafir peninga af Júðahatendum (»Antí-
semítum»). Sumstaðar stóðu á 8. þúsund
manna með grjót og barefli á móti löggæzlu-
liðinu. Upp á síðkastið varð herliðið að taka
til vopna og ryðja borg og stræti. Tala
þeirra, sem meiddust í róstunum, var 200, en
af þeim 40 löggæzlumenn og 20 hermanna.
Spellin rnetin á nær því miljón gyllina.
Frakkland. Hátíðirnar eru nú «harðla
nærri», bæði í Versölum og á Marzvelli í París
um, en þó margt eða flest sje þegar kunnugt ura
það, sem fyrir er hugað og fram á að fara,
mun sagnanna bezt að bíða. En þess skal
þegar getið, að einveldisdrottnar álfu vorrar
hafa boðið erindrekum sínum, að koma hvergi
nærri vígslu sýningarinnar. Orsökin er auð-
vitað sú, að þeim þykir hjer allt gert í
minning byltingarinnar og guðleysistímanna.
í>eir um það; en betra væri þó, að eiga
t^ygging fyrir, að byltingarnar vitjuðu þeirra
ekki sjálfra. Norðmenn hafa hneyxlazt á
boði síns konungs, sem von er; því í fjár-
lagafrumvarpi þeirra voru útgjöld af ríkisins
hálfu til hluttekningar í Parísarsýningunni.
í aukasýningu, sem allvel hlýðir þessum
minningartímum Frakklands, er haft safn
alls konar menjagripa, mynda, vopna, bún-
inga o. s. frv., frá byltingunni miklu. A
uppdráttum frá hennar dögum eru sýndir
merkisviðburðir, og þeir menn, sem hvað-
eina mest varðar, hetjur byltingariunar og
píslarvottar.
Boulanger er nú kominn til Englands (29.
apríl). Drjúgmælin þó sízt spöruð í blöðum
hans og einveldissinna, einkum keisaraliða.
En níð þeirra og heiptaryrði gefa þó grun
um, að veilur sje komnar í sigurtraustið.
Hins vegar má þó þess geta, að mörg önnur
blöð kalla þar högg hærra reitt en skyldi,
er öldungadeíldin var gerð að dómara í sökum
Boulangers, og efast um að svo stöddu, að
landráð verði á hann sönnuð. það menn
vita, þykja rannsóknirnar hafa orðið árang-
ursminni, en við var búizt.
Holland. Konungur er nú svo í aptur-
bata, að hann hefir tekið aptur við stjórn,
bæði á Hollandi og í Luxemborg. Hefir það
engum meir á óvart komið en læknum hans,
sem töldu dagana, sem hann mundi eptir
eiga.
Rúmenía- Hinn 1. þ. m. kom krón-
prinzinn — Ferdínand af Hohenzollern — til
Búkarest og hjelt þar innreið sína við stór-
fögnuð og skrautmikinn viðbúnað af hálfu
borgarmanna, konungs og hirðarinnar.
Ameríka. Hinn 29. apríl fyrir 100 árum
kom Washington forseti til New-York, og
hafði þar þá þær viðtökur, sem annari eins
sigurhetju sæmdu. Eptir þessu var nú til
minningar breytt, og gisti Harrison, forsetinn
nýi, þann dag borgina, siglandi þangað upp
við fylgd 300 skipa, en miljón manna á ferli
til að fagna komu hans. Hátíðin stóð í þrjá
daga, með öllum þeim stórkostleik skrauts,
viðhafnar og tilbrigða, sem samboðið var
kynja-auði borgarmarma, yfirburðum og snilli
Norður-Ameríkumanna, og mikilfengi hins
volduga þjóðveldis.
Annan í páskum var fólki hleypt til ból-
festu inn í hjerað vestra, sem Oklahoma
heitir, en hefir hiugað til verið byggð Indía-
manna. f>eir urðu hjer hlutskarpastir, sem
fyrst komust að landnáminu, en tilsóknin
mikil (100 þús.) og þröng hin ógurlegasta.
Sagt af ómildum viðskiptum og bana margra
manna. «Bæjum skýtur hjer upp eins og
sveppum í veysu», segir einn frjettaritari, og
þann þriðja í páskum var bær reistur þegar,
Guthrie að nafni, með bæjarstjóra, blaði og
banka.
Ný halastjarna fundin frá stjörnuturninum
mikla í Kaliforníu. Á henni eru nú og sjón-
ir festar á sumum stöðum í vorri álfu.
Strandferðaskipið Thyrakom hingað
í fyrra dag um miðjan dag, eptir ágæta ferð
alla leið, og hafði nú komizt á allar hafnir,
sem til stóð, eptir áætluninni, enda sást
hvergi til íss. Frá Khöfn kom hingað með
skipinu cand. theol. Hafsteinn Pjetursson,
frá Englandi. Jón kaupmaður Vídalín, frá
Akureyri Friðbjörn Steinsson bóksali, og frá
Stykkishólmi P. Fr. Eggerz úr Akureyjum,
auk fjölda annara farþega.
Fiskverð erlendis. Fremur dauft út-
lit með fiskverð á Spáni. Sömuleiðis dauft
eptir múkinn í Genúa, hið mikla verð á smá-
fiski þar í fyrra; hafa kaupendur skaðazt
stórum á þeim kaupum, og það því fretnur,
sem fiskurinn gat ekki haldið sjer óskemdur
til lengdar. Nokkuð af hinum íslenzka fiski
hefir jafnvel verið sent frá Genúa til Liver-
pool og seldur þar með miklum afiöllum.
I Khöfn hafði selzt talsvert af leifunum
frá f. á. seinni partinn í vetur, vegna sam-
gönguleysis ; en þegar farið var síðan að halda
honum í hærra verði, minnkaði salan mikið.
Frá Leith hafði komið til Khafnar nokkuð
af fallegum, nýjum saltfiski frá Hjaltlandi,
og nokkuð selzt af honum á 60 kr. skippund-
ið, en nokkuð óútgengið fyrir það verð. Vest-
firzkur Spánarfiskur stór í Liverpool á boð-
stólum til Khafnar á 20 pd. sterl. smálestin.
Ný lög. Lögin um brúargjörð d Úlvesá
frá síðasta alþingi hafa nú loks hlotið stað-
festing konungs 3. þ. m.
Aðalefni laga þessara er það, aðverjamegi
allt að 40,000 kr. úr landssjóði til brúargjörð-
ar á Olvesá, með því skilyrði, að sýslufjelög
Árnes- og Kangárvallasýslu og jafnaðarsjóður
Suðuramtsins leggi til fyrirtækisins allt að
20,000 kr. eða sem svari helmingnum af því,
sem landssjóður leggur til. þessar 20,000 kr.
fá tjeð sýslufjelög og jafnaðarsjóður að láni
úr landssjóði, gegn ávöxtun og endurborgun
á 45 árum með 965.25 kr. á ári að helmingi
úr jafnaðarsjóði, en hinum helmingnum frá
tjeðum sýslafjelögum eptir hlutfalli milli sam-
anlagðrar tölu lausafjárhundraða og jarðar-
hundraða í þeim ár hvert.
Um kostnað brúnni til viðhalds skal síðar
ákveða með lögum.
— Svo er ráð fyrir gjört, að brúarefnið
komi til landsins fyrir haustið, og verði svo
notað sleðafæri í vetur til að koma því upp
að brúarstæðinu, við Selfoss, en brúin lögð
á að sumri.
Stjórnarfrumvörp. Af frumvörpum
þeim, er stjórnin ætlar að leggja fyrir al-
þingi í sumar, eru þessi nú hingað komin
prentuð, líklega til útbýtingar meðal alþing-
manna nú þegar:
1. Vm aðflutningsgjald á kaffi og sykri.
það eiga að vera 5 a. á pundi af kaffi og
kaffibæti, og 2 a. af sykri og sírópi.
2. Um breyting á lögum 11. febr. 1876 um
aðfliotningsgjald á tóhaki. Tollurinn hækkað-
ur upp í 20 a. á pundi af neftóbaki, munn-
tóbaki eða reyktóbaki, og 50 a. af hverjum
100 vindlum.
3. XJm stofnun sjómannaskóla á istandí (í
Keykjavík).
4. Um dagbókahald á tslenzkum skipum.
5. Um varúðarreglur til að forðast ásigl-
ingar.
6. Um að fá útmœldar lóðir á löggiltum