Ísafold - 19.06.1889, Page 3

Ísafold - 19.06.1889, Page 3
195 2. Búseta fastakaupmanna. Samþykkt, að skora á alþingi, að ákveða með lögum að þeir sjeu búsettir í landinu sjálfu. 3. Vistarskyldan. Meiri liluti fundarins vildi ráða frá því að svo stöddu, að afnema vistarskylduna. 4. Alþýðumenntunarmálið. Samþykkt, að skora á þmgið, að hrinda því máli í betra horf en verið hefir, eptir því sem efni og kringumstæður leyfa. 5. SJcattamál. Samþykkt, að ráða þing- inu til að afnema lausafjárskattinn, en tolla óekta smjör, álnavöru og glysvarning eptir þvi sem þingið sæi sjer fært án mikils toll- gæzlu-kostnaðar ; láta vínfangatollinn standa óhaggaðan og vínfangaflutning til landsins. Um toll á kaffi sykri og sætindavöru voru jöfn atkvæði með og mót. 6. Tekjur presta. Fundurinn áleit hið al- kunna frumvarp frá sýnódus ekki óhagfelt að grundvellinum til, en gjaldið (3 áln.) fyrir hvern mann þótti -óþarflega hátt sett. 7. Tekjur kirkna. Fundurinn var á sama máli um grundvöllinn, og áleit gjaldið, al. fyrir mann, hæfilegt, með því móti að legkaup fjelli líka niður. 8. Lagaskóla áleit fundurinn nauðsynleg- an í landinu sjálfu. 9. Amtmannaembœttin áleit fundurinn að setti að leggja niður og öll óþörf embætti. 10. Fjölgun þingmanna í efrideild. Sam- þykkt, að skora á þingið að halda því máli fast fram, en fara jafnframt varlega í fjölgun þingmanna yfir höfuð. 11. Brúarmálið. Samþykkt, að skora á þingið að leggja sitt ýtrasta til, að þjórsá verði brúuð sem allra fyrst. þar hjá lagði fundurinn til, að ef að því ræki, að lfeggja brúarskatt á sýslufjelög Arnes- og Eangár- vallasýslu, á líkan hátt og til Ölfusárbrúar- innar, að hann einnig yrði lagður á önn- ur sýslufjelög amtsins, aðminnsta kosti Vestur- Skaptafellsýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu, og Eeykjavík. 12. þingfararkaup. Samþykkt, að skora á þingið að ákveða með lögum þingfararkaup alþingismanna. 13. Aðalatvinnuvegi landsmanna áleit fund- urinn að þingið ætti að styðja eptir ýtrustu föngum. 14. Fátœkmlöggjöfina áleit fundurinn að þingið ætti að láta sjer annt um að umbæta. 15. Fundurinn skorar á þingið, að umbæta hin almennu launalög og eptirlaunalög em- bættismanna í þá átt, að spara fje lands- sjóðsins. jþetta að vera samhljóða fundargjörðum, vitnar Eyvindarholti 6. júní 1889 Síglivatur Árnason (fundarstjóri). Rangárvallasýslu (Holtum) 6. júní: »þ>að ber sjaldan við, að úr þessari sjrslu sjáist frjettagrein f blöðunum. Sumarið í fyrra 1888 var hjer eins og víða annarsstaðar stakasta grasleysis sumar á flestum stöðum, en nýting afbragðs góð. Safarmýri varð, eins og optar, sannur bjarg- vættur þessarar sveitar, gaf af sjer nær 40,000 heybandshesta. Veturinn varð stak- lega gjaffeldur á öllu láglendi, eu tæpur meðalvetur þar sem hærra lá, enda var veðr- áttan til jafnaðar hæg. Fjenaður afklæddist vel og hvergi heyleysi, og má það þakka tvennu: heygæðunum sem stöfuðu.af hinni ómunagóðu nýtingu í fyrra sumar, og því öðru, hversu vel hefur vorað í vor; hefir slík tíð ekki komið síðan 1880. Sauðburður gengur alstaðar vel, sem til frjettist, enda hefir nú hallærishljómnum slotað um stund. í vetur var stofnað bimaðarfjelag hjer í hreppi, og er það nú tekið til starfa, þó í barndómi sje; þó geta menn ekki annað en haft góða von um, að það nái tilgangnum., þegar það þroskast. Hvergi hjer á suðurlandi, þar sem útræði er stundað, varð eins rýr afli næstl. vetrar- vertíð eins og hjer fyrir Eangársandi, nefnil. frá þjórsá og austur að Jökulsá á Sólheima- sandi, enda eru lendingt.r á því svæði mjög vandræðalegar og því nær engar, og væri sannarleg nauðsyn að gjöra tilraun með að hagnýta ráðleggingar síra 0. V. Gíslasonar um að lægja brim og brotsjói með lýsi eða olíu; hefði ekki verið vanþörf á, að hann hefði komið hingað austur til oss Eangæinga, til að leiðbeina mönnum í þessu efni; því þó mönnum hafi gefizt kostur á að hafa um hönd fyrirlestur hans, »um lff og lffsvon sjó- manna«, þá má ganga að því vísu, að slíkt getur ekki fullnægt hjer, á þessu umtalaða svæði, þar eð allt öðru vísi, eða aðra aðferð má til að hafa lijer en út á rúmsjó eða á sundum, sem brim fellur á skerjum nokkuð frá landi; en hvor sú aðferð mundi vera, leiði jeg hjá mjer að benda á í þetta sinn, í von um, að síra O. Y. G. láti oss njóta síns lofsverða áhuga í þessu efni og undir eins jafnrjettis við nágranna okkar Arnesinga, og það því fremur, sem hann að maklegleikum hefir fengið af opinberu fje styrk til leiðbein- ingar í þessu lífsumvarðandi málefni, og komi hingað austur yfir þjórsá á næstkomandi vetri, ef kringumstæður hans með nokkru móti leyfa það. p. G. Stjórnarfrumvörp. Enn fremur eiga þessi frumvörp að leggjast fyrir alþingi í sumar, frá stjórninni: 17. Um löggcÉzlusamþykktir fyrir kauf- sfaðina. 18. Um að bannaffar sjeu fiskiveiðar með botnvörpum (i landhelgi við ísland). 19. Um bann gegn eptirstœling peninga og peningaseðla o. ji. 20. Um heimild til að sélja jörðina A í Kleijalircppi (fyrir 850 kr.). Gufuskipið Magnetic, þeirra Slimons og hans fjelaga, 26osmál., kom hingað í fyrri nótt frá Leith, og með því nokkrir enskir ferðamenn og kaupstjóri Tryggvi Gunn- arsson áleiðis til norðurlands. Skipið fór aptur í gærkveldi vestur fyrir land og norður, og með því nokkrir vesturfarar, °g Sigfús Eymundsson útflutningastjóri snöggva ferð til Skotlands. jjýzkt gufuskip, „President Herwig“, 113 smálestir að stærð, kom hingað í gær frá Gerstemiinde í Hannóver til fiskiveiða og fór í morgun hjer út í fló- ann að reyna fyrir flyðru rrjeð bótnvörp- um (trawl). £>að kaupir líka nýjan fisk og lax og geymir í ís. Utgjörðarmaðurinn, Joh. Fr. Busse i Gerstemiinde, stórauð- ugur maður, er væntanlegur hingað eptir 3 vikur á öðru gufuskipi stærra, er heitir „Sophie“, 1 sömu erindum. Lancielsin á Rússlandi. sleppt aptur, með því að engin sök faunst með þeim. Sjeu þeir taldir með, sem dæmd- ir hafa verið sýknir, verða það um 75 þús- undir, og allir þessir saklausu menn hafa áður orðið að hýrast mánuðum eða jafnvel árum saman í alræmdum dyflissum, er sjá má 1 utjaðrinum á hverjuin rússneskum bæ; þar er manni troðið við mann, eins og síld í tunnu, og klefar þessir eru svo viðbjóðslegir og daun- illir, að fólki verður fárillt, sem kemur inn utan úr fersku lopti. Má fá nokkra hug- mynd um það á lýsingu þeirri, er frú Kutusoff gefur af sjálfri sjer. Hún hafði gjört sig seka í því, að stofna skóla án leyfis stjórn- arinnar, en þar eð brot hennar heyrði ekki undir hegningarlögin, og hún var gipt út- lendum manni, ljet stjórnin sjer nægja, að flytja hana af landi burt. Segir htín af ferð sinni frá Pjetursborg til Prásslands á þessa leið: »Jeg var send til Vilna með fimmtíu föng- um, körlum og konum. Frá járnbrautarstöð- inni vorum við rekin til fangelsisins, og þar vorum við látin standa um kvöidið tvær klukkustundir í hellirigningu. Loksins vorum við hrakin inn í dimman gang^ þar sem við vorum .talin. Tveir hermenn gripu mig og ljeku mig svívirðilega, og neyðaróp fleiri kvenna lý-sti því, að ekki væri þetta eins dæmi. Eptir nokkra stund kveiktu þeir Ijós með blóti og klúryrðum; leit jeg þá í kringum mig og sá, að jeg var stödd í stóru herbergi, sem var svo troðfullt af kvennfólki, að hvergi varð niður drepið fæti án þess, að stíga ofan á það, þar sem það lá eða svaf á gólfinu. Tveir kvennmenn, sem höfðu fengið rúm, aumkuðust yfir mig og buðu mjer að sofa hjá sjer. þegar jeg vaknaði urn morguninn eptir, var jeg ekki birin að taka mig eptir með- ferðina daginn áður, en fangarnir — kvenn- menn, sem dæmdir höfðu verið í fangelsi fyrir rnorð eða þjófnað — voru svo góðir við mig, að jeg varð rólegri srnátt og smátt. Kvöldið eptir var farið með okkur út í garð- inn aptur, og þar vorum við byrgð inni undir berum himni í rigningunni, þangað til farið var af stað með okkur. Jeg veit ekki, hvernig á því stóð, að jeg skyldi komast hjá barsmíð fangavarðanna, því fangarnir skildu ekki það, sem þeim var skipað, og dundu yfir þá högg og formælingar. En þeir, sem komu með mótbárur, og sögðu, að enginn ætti með að berja sig, voru settir í járn, og þannig var farið með þá til járnbrautarinnar, þrátt fyrir það, þó boðið sje í lögunum, að ekki megi binda fangana í vögnunum. þegar við vorum komin til Kovno, vorum við látin ganga allan daginn frá einum lög- regluflokknum til annars. Um kvöldið var farið með okkur í kvennafangelsið, og þar var aðalumsjónarkonan að skamma út fanga- varða-foringjann, og heita honum því, að hún skyldi gefa honum á ’ann, og sögðu fangarnir að hún efndi optast þessi loforð sín. I viku dvaldi jeg með kvennfólki, sem hafði stolið, myrt, eða sem var sett »af vangá« í fangelsi. Ogæfan gerði þessa aumingja fjelags- lynda; gjörðu þær allt sem þær gátu til þéss, að gera sjer lífið svo þolanlegt, sem auðið var; voru þær allar góðar við mig, og gerðu allt sem þær gátu til að hughreysta mig. Jeg hafði ekki nærzt neitt daginn áður, af því, að venja er, að gefa föngunum ekki að

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.