Ísafold - 22.06.1889, Page 1

Ísafold - 22.06.1889, Page 1
'K.emur ut a rmðvikudö^um og laugardögum. Verð árgangsins (104. arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júlímánuð. ISAFOLD. Uppsögn (skrifieg) bnndin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir i.okt. Af- greiðslust. í Austurstrœti 8. XVI 50. Fteykjavík, laugardaginn 22. júní. 1889. Efnahagur og framfarir Islendinga í Ameríku. íslenaingur einn { Dakota í Ameriku, Ásgeir J. Lindal (úr Húnavatnssýslu) hef- ir ritað „nokkur orð um efnahag og fram- framfarir Islendinga“ í Lögbergi io. apr. þ. á., sem kveða við annan tón en „upp- blástur‘‘-brigzlin þar vestan að, er tíðkazt hafa nú um hríð, og sýna, hvort Sigurð- ur heitinn Gíslason og aðrir, er ekki hafa viljað staðfesta gumið um vellíðan landa vestra, muni hata farið með mjög mikil •ósannindi. Grein þessi í T.ögbergi er svo látandi : Með því mjer virðist ekki með öllu ó- þarft, að minnzt sje á ýmislegt af því, er miður fer hjá löndum hjer megin hafsins þar sem svo mikið hefir verið ritað um Island og bágindin þar, vil jeg biðja yð- ur, hr. ritstjóri „I.ögbergs“. að gera svo vel, að lána linum þessum rúm í yðar heiðraða blaði. Eins og flestum er kunnugt, hefir heil- mikið verið ritað í ísl. dagblöðin í Winni peg, um „uppblástur“ íslands í víðustu merkingu, og þar á meðal um framúr- skarandi fátækt og framfaraleysi hinna ýmsu hjeraða og þjóðarinnar í heild sinni (o: á ísl.) Jeg ætla mjer nú ekki að fara mikið út í þá sálma, því það er orðið lengra og flóknara mál en svo, að hægt sje að ræða það í fáum línum, enda finnst mjer að það vera „að bera í bakkafullan lækinn“. Jeg vil því heldur snúa mjer að ástandi landa minna hjer, enda þótt jeg játi það, að jeg sje því ekki eins vel kunnugur og æskilegt væri. það má annars undarlegt heita. hversu sjaldan að minnzt er á það i blöðunum í Winnipeg, að hjer (o: hjá ísl. í Vesturh.) sje nokkuð verulega til af því tagi, er á- minningar og umbóta þurfi með. J>etta má heita því einkennilegra, sem töluvert hefir verið ritað af ýmsum hjer um það efni hjá löndum okkar á Fróni, eins og jeg þegar hef drepið á. Jeg held að þetta hljóti að eiga rót sína í því, að menn sjá vanalega fljótar og betur gall- ana hjá öðrum en sjálfum sjer, því margt er hjer ábótavant hjá löndum—sem eðli- Jegt er—, engu síður en heima á ísl., bæði hvað snertir efnahag og framfarir m. m. Hvað efnahaginn áhrærir hjá löndum hjer, þá held jeg að auðvelt væri fyrir vel kunnuga menn, að finna marga, sem ekki væru stórt auðugri en þeir herrar Gunnar og Guðmundur skýra oss frá í „I.ögbergi“ að J>istilfirðingar o. fl. sjeu. Gangi jeg út frá því, að nýlenda ísl. hjer \ Dakota sje ein með betri nýlend- um ísl. í Ameríku, þá get jeg vel hugs- að mjer, að efnahagur landa sje víða á fremur lágu stigi, því jeg veit af nokkr- um hjer, sem mjög lítið hafa haft til að lifa af { vetur, og sumir orðið að þiggja styrk af sveit (County). Svo eru ennfrem- ur nokkrir, sem í fljótu bragði virðast vera töluvert efnaðir, af því þeir hafa tals- vert undir höndum, en þegar betur er aðgætt, eiga þeir, ef til vill, minna en .ekki neitt, eða með öðrum orðum: þeir •eiga ekki fyrir skuldum, sem að vissu leyti ekki er nema eðlilegt, þar sem sum- ir af mönnum þessum sífelt eru að taka peningalán (helzt á bönkum), og veðsetja þá miklu meiri eignir en þeir eiga. Marg- ir af mönnum þessum munu hafa þann sið, að þeir borga lítið eða ekkert af skuldum sínum, en str/úka til annara ríkja, og að líkindum yrkja þar á nýjan stofn. J>etta og þvf um Hkt mun ekki vera svo sjaldgæft í þessu landi. Eins og auðvit- að er, eru hjer margir bjargálna menn (sem kallað er), og nokkrir, sem geta talizt í sæmilegum efnum. J>ingmaður vor, hr. E. H. Bergmann á Gardar, er víst án efa lang-ríkastur alira ísl. í Da- kota og ef til vill allra ísl. í Ameríku, og munu þó fáir álíta hann öllu ríkari en efnuðustu bændur á íslandi eru. Eptir því _sem jeg þegar hef sagt, sjest glöggt, að ísl. hjer eru enn ekki komnir á hátt stig í efnalegu tilliti, og að mínu áliti illa færir um að taka á móti öðrutn eins grúa af öreiga-löndum sínurn af Frónf eins og þeir hafa gert undanfarin ár. í sambandi við þetta vil jeg geta þess, að mjer virðist langtum skynsamlegra og sómasamlegra fyrir landa hjer, að reyna til með öllu móti að hjálpa þeim fátæk- lingum af löndum sínum, sem þegar eru hingað komnir, svo þeir hvorki þurfi að líða sult, nje þiggja af opinberu fje hjer, heldur en nærri því eingöngu að hugsa um, að koma fátæklingum hingað af ís- landi, og skipta sjer svo lítið af þeim fram- ar, eins og átt hefir sjer kann ske stað. Hvað nú snertir framfarir í öðrum greinum hjá löndum hjer, þá virðist mjer þær mjög lítilfjörlegar. Landar hjer eru opt að staglast á því, að allt sje fram- faralaust, dautt og dofið á íslandi, ea hjer sje svo sem nokkuð betra í þvi efni sem öðru. J>etta getur verið; en að mínu áliti eru ekki minni framfarir á íslandi, þrátt fyrir öll harðindis- árin, sem gengið hafa yfir landið nú í seinni tíð, en hjá löndum mínum hjer i Amer- íku. Eða hverjar eru helztu framfarir hjá löndum vorum hjer? Eru þær kann ske í því innifaldar, að eyðileggja skógana, bæði með eldiviðar- og málviðar-höggi (Cord-wood), eins og hjer er almennt gert, án þess að nokkuð verulegt sje ræktað af nýjum skógi í staðinn? Eða er hægt að telja það með framförum, eptir því sem hjer stendur á, þó menn plægi jörðina, sái í hana s ö m u korn- tegundunum ár eptir ár, án þess að bæta jörðinni aptur á nokkurn hátt (það telj- andi er) þau efni, sem korntegundin hef- ur frá henni tekið, og þar af leiðandi þarf að „hvíla akrana“ þetta 4.—5. hvert ár? J>á munu fáir telja það með fram- förum, að hjer er enginn (að jeg held) ræktaður fóðurjurta blettur (t. d. tún), heldur er skepnum hjer um bil e i n- g ö n g u gefnar viltar jurtir (að því und- anteknu, ef eitthvað er gefið af sáð- jurtum)? Engum mun víst detta í hug að það sje nokkuð í framfara-átt (enda þótt það sje almennt gert), að brynna kúm úti í hvaða grimmdar frosti sem er, og láta þær svo standa úti lengri og skemmri tíma eptir að þær hafa drukk- ið? Eða skyldi nokkrum finnast að það miða í framfarastefnu, hvernig farið er með áburðinn? Að síðustu munu fáir telja það með sjerstökum framförum, þó menn vinni sjer fyrir fæði og klæðum o. s. frv., hvort heldur er hjá bændum eða á brautum, í búðum. eða á skrif- stofum etc. (Niðurl.). |>ingmálafundr Borgfirðinga. (Niðurl.) —Eftirlaun. Nokkrar umræður um þau á ný. Guðm. á Deild, vildi helzt losna við öll eftirlaun, í öllu falli eigi hafa nein eftirlaun hærri en presta, 10 kr. fyrir þjónustu-ár. Dr. Gr. Th. vildi halda eftir af launum emb.manna árl. og leggja það í eftirlauna- sjóð. Að losna við eftirlaun væri óhugs- andi. „Hvergi á bygðu bóli“ ætti það sér stað, að emb.menn væri eftirlauna- lausir. Undirbúningr emb.manna undir stöðu þeirra, námskostnaðrinn, væri dýr. Eftirlaunin væri í raun réttri vextir af fé því, sem til námsins hefði verið kostað. Hallgr. Jónsson kvað talsvert af þeim kostnaði stundum lagt fram úr landssjóði; eftirlaunin væri alls ekki miðuð við þann kostnað. Fregnriti yðar minnti á, að það væri þó til þjóð, og það ein af stærstu höfuð- þjóðum heimsins, Bandaríkin í Vestrheimi, með milli 50 og 60 miljónum íbúa, sem eigi greiddi embættismönnum sínum nein eftirlaun, enda mundi sú þjóð illa standa sig við það, sem skifti um embættismenn sína flestalla 5. hvert ár. (Gr. Th.: það er orsökin!). Jú, en hvað gerir það? Svona er það, og fást þó menn í embætt- in. (Pdll Blöndal: J>eir stela svo miklu meðan þeir ern í embættum þar). Svo? Ja, þá er herra læknirinn kunnugri þar í landi en jeg, (Raddir: Fensmark ! Fens- mark!) ó, já, dæmin liggja nærri okkr.— J>að var sagt, að „verðr væri verkamaðr launa“. J>að er satt : launum þeim, eins og starf þeirra er vert, meðan þeir vinna. Hver eftirlaunar hjúinu, handiðnamannin- um, sjómanninum, bóndanum, þegar ellin færist yfir þá og gerir þá óverkfæra? J>eir verða að leggja upp á góðu dögun- um fyrir elli sinni. Er embættismönnum vorum — þessum hjúum þjóðarinnar — ver launað? J>ví á fremr að eftirlauna þeim? Geta þeir ekki sjálfir trygt elli sína? Atkvœði'. 1. till.: að lækka eða helzt af- nema öll eftirlaun, án þess að lauti- in sé hækkuð frá því sem er; felld (með 7:18). 2. lill.: Að halda eftir árl. ákveðnu gjaldi af launum embættismanna og leggja i eftirl.sjóð ; önnur eftirlaun engin; felt (11 : 13). 3. till.: að eftirlauna öllum embættism. með 10 kr. fyrir hvert embættisár, er þeir hafa þjónað ; samþ. (30 : 2). Bnseta kanpmanna. — Dr. Gr. Th. minti á tillögu, sem hann hefði komið fram með 187Q í þá átt, að þeir einir kaupmenn, er hér væru búsettir, mættu reka hér smá-kaupa-verzlun, en að út- lendingar mættu reka verzl. í stórkaup- um (en gros). Till. þessu samkvæm samþ. með 17:1 atkv.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.