Ísafold - 03.07.1889, Síða 4
Briem með 16 atkv.; skriýarar forleifur
Jónsson og Sigurður Stefánsson.
í neðri deild stýrði elzti þingmaðurinn,
Grímur Thomsen, forsetakosningu, og
var kosinn forseti neðri deildar Benedikt
Sveinsson með 13 atkv.; varaforseti Olaf-
ur Briem með 13 atkv., og sknfarar
kosnir Páll Olafsson og Sigurður Jensson.
Forsetakosningin í efri deild fór svo,
að þeir Arni Thorsteinsson og Benedikt
Kristjánsson fengu 6 atkv. hvor. Varð
því að kjósa upp aptur, og fór á sömu
leið í 2. og 3. skipti. Var þá dregið um
þá tvo, og varð Benedikt Kristjánsson
forseti. Varaforseti efri deildar var kos-
inn Árni Thorsteinsson með 8 atkv., og
skrifarar Jón Olafsson og Jón A. Hjalta-
lín.
Ókomilir til alþingis eru : síra Lárus
Halldórsson, síra Sveinn Eiríksson og
læknir forsteinn Jónsson, áem allir eru
neöri deildar menn.
Stjórnarfrumvðrp voru lögð fyrir þing-
ið í gær þau 21, er getið hefir verið um
hjer í blaðinu áður.
Fnndarfall í dag í báðum þingdeild-
um út af fráfalli Jóns Sigurðssonar.
Gufuskipið Cultha, um 370 smálestir,
frá Newcastle, með vörur frá þeim Zöllner
til pöntunarfjelaga hjer á landi, kom hingað
í morgun, norðan um land, og fer aptur nú
undir helgina beint til Englands. Með því
kom L. Zöllner kaupmaður sjálfur og in-
genieur Wciughan, sá er hr. Tr. Gunnarsson
hefir samið við nm að smíða brúna á Olvesá,
snöggva skemmtiferð.
(jíllfubátsfjelagið. Fundur var haldinn
f fjelaginu 29. f. m., eins og til stóð, en
var lítt sóttur, rúmir 20. Var lagt fram
frumvarp til laga fyrir fjelagið, en frestað
að samþykkja það til síðari fundar, er
halda skildi innan skamms, með þvi að
ágreiningur var um sum atriði í fyrikomu-
lagi fjelagsins, sem ástæða þótti til að
ihuga betur, þar á meðal nm, hvort held-
ur skyldi kaupa skip eða leigja, sem
sumir hjeldu fram og stjórninni hafði dott-
ið i hug þegar i upphafi, en álitið miklu
viðsjáíverðara og ekki takandi i mál fyr
en ef engmn vegur yrði að koma hinu
fram, sem heita má óreynt enn víðast hvar,
enda fátt komið inn af hlutaloforðum og
mjög á strjálingi. J>ó hafði síra Jens Páls-
son fengið 5,300 kr. í hlutaloforðum í sínu
prestakalli, og 1,500 kr. í næstu sveit við
sig (Vatnsleysuströnd), sem sýnir, að tals-
vert má, ef vel vill. Sýslunefnd Isfirð-
inga veitir kost á 12,000 er láni, vaxta-
lausa, til fyrirtækisins, en með nokkuð
viðsjálum kostum að öðru leyti. Sumir
höfðu orð á því, að kostnaðaráætlun
Hovdenaks mundi of lág, og báru fyrir
Coghill og Christjansson (skipstjóra á
Laura), en hvorugur mun þó verða tal-
inn óhlutdrægur dómari um þetta mál;
aptur aðrir áiitu hana mjög nærri lagi
(Jón Olafsson alþm.).
Fundur mun verða haldinn aptur á
föstudaginn (5. þ. m.).
Leiðarvísir ísafoldar.
Aths. Aptan ai svarinu við siðustu (187. fyrir-
sp.) í siðasta bl. hafa fallið þessi orð v;ð prentun-
ina: „enda sje það verð eigi hærra en gangverð
á gjalddaga“. þetta eru menn beðnir að leið-
rjetta.
188. Má ekki kaupmaður, sem er búsettur er-
lendis, reikna meðal verzlunarkostnaðar fátækra-
útsvar verxlunar sinnar, þegar hann telur fram
skattskyldar tekjur sír.ar, sem borgast á af til
landssjóðs?
Sv : Nei, það er heimildarlaust að lögum.
189. Eru prestar og umráðamenn kirkna ekki
skyldir að fæða menn einu sinni á dag, þegar þeir
hlnða kirkjugarð, eða. hvað sem þeir vinna að torfi
eða grjóti við kirkju?
Sv.: Nei, ekki nema þá allrafátækustu, sem ekki
geta lagt sjer til fæði, meðan þeir eru við vinn-
una.
190. Er maður, sera gengur að eiga fátæka
ckkju með ungum börnum, skyldur að borga þeim
rentu af afa-arfi þeirra ef hann hefir hann undir
höndum?
Sv.: Já, nema yfirfjárráðandi samþykki annað
af sjerstökum ástæðum.
191. Er ekki hreppsnefnd skyld til að gjá um
hleðslu á kirkjugörðum, og aðflutning á við og
öðru efni til kirkju, eptir 31. gr. sveitarsjórnar-
laganna?
Sv.: Nei, það á sóknarnefndin að gjöra, sjá lög
í2. maí 1889.
199. Maður á óskilgetið baru, og skilur það
eptir og fer i burtu í aðra sýslu, og vill ekki
borga með því, en getur það. Að hverjum á þá
sá, sem heldur barnið, að ganga? A hann að
segja það til sveitar, þegar skyldnenni hans eða
bennar geta ekki annast það?
Sv.: Hann á aðgang aö sveitarstjórninni í fram-
tærsluhreppi móðurinnar.
193. Er jeg skyldur að taka á móti kosningu
hreppsnetnd, er jeg hefi setiö 3 ár f henni, þótt
jeg hafi verið kosinn í stað manns þess, sem deyði
áður en hann hafði út endaö hiun lögskipaða tíma
f nefndinni?
Sv.: Nei, ekki nema liðin sjeu 3 ár frá því
spyrjandi var í nefndinni.
194. Jeg er í prestakalli, sem lög 97. febr.
1880 kveða svo á um, að við næstu prestaskipti
skuli annar nábúapresturinn taka það (0: aðalsökn
þess) og þjóna því, án þess þó að nafnið á presta-
kalliuu sje lagt niður. Mjer er þvi spurn Eru
ekki lögin 8. jan. 1886 brotin á mjer og öðrum
atkvæðisbærum mönnum prestakallsins, þar eö
vjer fáum ekki að neyta kosningarrjettar vors?
Sv.: Brauðið, sem leggja á niður samkvæmt
lögum 97. febr. 1880, er með þeim lögum jafnframt
(fyrirfram) veitt prestinum i nábúabrauðinu, og
væri það að ónýta þá veitingú og svipta hann
fengnum rjetti, ef beitt væri við hann lögunum 8.
jan. 1886 (prestakosningalögunum).
195. Er maður sá, sem skuldar við einhverja
veizlun. og fær engan reikning svo árum skiptir,
skyldur að borga fyr en reikningurinn kemur?
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta i a. (þakkaráv. j a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru Jetri eóa setning
1 kr. tyrir þuml. dálks-lengdar. Rorg. út í hönd
Búnaðarfjelag suðuramtsins.
Ársfundur fjelagsins hinn síðari verður
haldinn föstudaginn 5. júlí næstkomandi
á hádegi í leikfitnishúsi barnaskólans, og
veróur þar:
1., skýrt frá efnahag og aðgjörðum fje-
lagsins;
2., rædd þau mál, er fjelagið snerta.
Keykjvik 2t. júni 1889.
H. Kr. Friðriksson.
Skrifstofa fyrir aimenning.
Hjer með tilkynnist heiðruðum bæjar-
búum og almenningi, að sjerhver g-etur
hjá mjer feugið skrifuð brjef., samninga,
kœrur, stefnu.r, auglýsingar, bónarbrjef, d-
vísanir, reikninga o. s. frv., ennfremur
samdar sóknir og varnir í málum fyrir
undirrjetti, og skal jeg í sambandi við
það leyfa mjer að miona heiðraðan al-
menning á, að jeg nú í nokkur ár hef
verið talsvert riðinn við málaferli, og vita
flestir hvernig það hefir gengið, og get
jeg fullvissað menn um, að jeg mun engu
síður gegna annara málum en mínum eig-
in. Ennfremur útvega jeg mönnum hús-
næði, leigi hús út, byggijarðir og útvega
jarðnæði, vista vinnuhjú og útvega, en sjer
í lagi tekst jeg á licmlur að lieimtainn
skuldir yrir aftra.
Allt gegn nijög sanngjarnri borgun.
Skrifstofa mín er opin á hverjum virk-
um degi kl. 11 —12 og 4—6.
Reykjavik 9. júlí 1889.
Kr. Ó. f>orgrimsson.
10 Xirkjustræti 10.
Tilsögn í ýmis konar hannyrðum sem
og í hinum almennu skólanámsgreinum
veitir undirritnð. Rvík 2. júlí 188q.
Jensína Matthíasdóttir.
Undirskrifuð saumar nýja prestakraga.
Sömuleiðis stífa jeg gamla prestakraga.
Allt vel af hendi leyst, og miklu ódýr-
ara en hjá nokkrum öðrum.
JRagnh. Bjarnason.
Vesturgötu nr. 17, Reykjavík.
AXLABUÍB krosssaumaö mk. „1885 þ. S. S.“
hefir tapazt frá Vogastapa til Reykjayíkur eða
þaðan austur Lágaskarðsveg um Eyrarbakka að
Arbæ í Holum. Finnandinn er beðinn að skila
því á nefndan bæ.
pórður Sigurðsson.
Greiðasala. Undirskrifaðir láta ókuimum mönn-
um framvegis engan greiða í tje, nema gegn sæmi-
legri borgun.
Pjetur Pjetursson, Langárfossi;
Pjetur þórðarson, Urriðaá;
Jón Hallsson, Smiðjuholti;
Gruðni Jónsson, Valshamri.
Fundizt hefir lítill gullhringur á götunni, íyrir
framan búð E. Felixsonar. Rjettur eigandi getur
vitjað hans til undirskrifaðs, gegn borgun þessar-
ar auglýsingar.
Reykjavík '/7. ’89.
P. V. Bjering.
Fjármark Sigurðar Sigurðssonar í Knararnesi
sýlt hægra og fjöður framan, sýlt vinstra og gat.
VJ| y| on 1 Að jeg hefi fengið í hendur hr.
» llloUild kaupmanni P. J. Thorsteinsson
á Bíldudal eintcasölu á mínum góðkunnu vínum
og áfengum drykkjum á Bíldudal og nálæg-
um hjeruðum, gerist hjer með kunnugt heiðr-
uðum almenningi.
Peter Buch.
Halmtorv. 8. Kjöbenhavn.
íslenzk frimerki
keypt við hœsta veröi. Verðskrá er auglýst í ísa-
iold XV. 56 hinn 98. nóvbr. 1888 ; fæst líka hjá
mjer ókeypis.
Olaf Grilstad, Bankfuldmægtig,
Throndhjem, Norge.
THORVARDSON & JHNSKN.
BÓKBANDS-VERKSTOFA.
Bankastræti 12 húsJóns Olafssonar alþm.'.
b orngnpasaiiuO opió hvern mva. og id. Ki. 1—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 10 —12
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 4—6
útlán md„ mvd. og ld, kl. 6 —7
^öínunarsjóðunnn opinn 1. mánud. 1
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganir 1 Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen.
Hiti I Loptþyngdar- i
Júní G Celsius) jmælir(millimet.)l Veðurátt.
Júli ánóttu|um hád. fm. em. Im. em.
Ld. 2Q. + « +>i 754-4 754-4 A h d A h d
Sd, 30. + » + 9 759-5 7Ö2.0 Sv h d S h d
Md. i. -t 7 +12 767.1 759-5 S h d Sa hv d
þd. 2. -Fn +•5 7Ö2.0 767.1 Sa h d ?a h d
Mvd. 3. +11 767.1 Sa h d
Alla undanfarna daga hefir verið sunnanátt með
mikilli úrlcomu dag og nótt, svo aldrei hefir sjezt til
aólar. Má heita, að þetta veður hafi haldizt nú u.u
hálfsmánaðar tima.
Ritstjóri Björn Jónsson, caud. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.