Ísafold - 06.07.1889, Side 3

Ísafold - 06.07.1889, Side 3
215 KennaraQclagið hjelt ársfund sinn hjer í bænum 3. og 4. þ. m. Fundarskýrsla verður að bíða næsta blaðs vegna rúm- leysis. Gufubátsíjelagið. Fundur var haldinn aptur í fjelaginu í gærkveldi, af nálægt 20 hluta- mönnum, hjer úr bænum flestum, 2 úr Isa- fjarðarsýslu (alþm.). Voru þar samþykkt lög fyrir fjelagið og kosin stjórn (síra Jens Pálsson, Björn Jónsson ritstj., Sigfús Eymundsson, Björn Kristjánsson gjaldkeri og Páll Blöndal hjeraðslæknir; —landfóg. A. Thorsteinsson og kaupm. Stgr. Johnsen skoruðust undan kosn- ingu). Sú breyting var gerð á frá því er fyrirhugað var í vor, með lögunum, að skipið skyldi vera um 200 smálestir að stærð netto) og vera í flutningum milli landa nokkrar ferðir, svo sem 8—10 vikur samtals á ári, til þess að geta fengið sem mest að gjöra, er að vísu mætti ganga að góðan arð bæri, en að öðru leyti haft f strandferð- um um suður- og vesturland allt, svo tíðum og á svo marga staði, sem frekast væri tök á, jafnt um Vestfirði (Breiðafjörð, Isafjarð- ardjúp o. s. frv.) sem við Faxaflóa. Stofnfje var áætlað að þyrfti 120,000 kr. þar af hafði útlendur efnamaður, L. Zöllner kaup- maður í Newcastle, lofað að leggja til 40,000 kr., undir eins og búið væri að útvega hjer 80,000 kr. í hlutaloforðum eða á annan hátt. Til þess að reyna að safna því fje, var ráð- gert að hafa enn fyrir sjer um missiristíma að minnsta kosti, og skyldi greiða hin fyrsta fjórða hluta af ákvæðisverði hlutabrjefa eigi fyr en 11. marz 1890; hina 11. júní, 11. sept. og 11. desbr. það sama ár. Enginn hefir meira en 10 atkvæði í fjelagsmálum, hvað mikið sém hann leggur í fjelagið; upp að þeirri tölu fylgir 1 atkvæði hlut hverjum (100 kr.). Stjórmnni var falið að sækja um styrk til þingsins. Vöruverð erlendis. Verzlunarskýrslur frá Khöfn, er hingað kom með »Magnetic« dags. 25. f. m., segja mikið dauft útlit með verð á íslenzkum vörum, einkum fisk og lýsi. Afli hefir orðið meiri við Finnmörk í vor en menn vita dæmi til áður. Er því verð á fiski lágt á Spáni, með því svo mikið er þar á boðstólum. A ntarkaði á þýzkalandi hefir verið hrúgað svo miklu af norsku lýsi, að það hefir mjög þokað niður verði á þeirri vöru. það sem kom með »Thyra« nú af salfiski, hefir selzt þannig : sunnlenzkur Spánarfiskur hnakkahýldur 45 kr., smáfiskur 36 kr., aust- firzkur stór 43 kr., ýsa 35 kr.; vestfirzkur stór óhnakkakýldur 48 kr., hnakkakýldur 43 kr., smáfiskur 37 kr., bezti jaktafiskur hnakka- kýldur 50 kr., meðalfiskur 40 kr. Lýsi seldist þannig: gufubrætt hákarlslýsí á 31J kr., pottbrætt 31 kr., dökkt hákarlslýsi 25^ kr., þorskalýsi þykkt 20 kr. Til Spánar er eptirspurn eptir fáeinum förmum af íslenzkum fiski, er sendist í júlí- mán.; það er farið fram á 48 rmörk (43 kr.) fyrir skippundið flutt á skip á Islandi, en meir en hjer um bil 46 rmörk (41 kr.) mun naumast fáanlegt. Farmar, sem sendir verða í ágústmán., búumst vjer við að verði falir fyrir 45 rmörk (40 kr.), en því verði eru engar líkur til að hægt verði að ná, og skerist ekki Norðmenn í leikinn og kaupi nokkra farma til þess að lialda verðinu uppi, er efasamt, hvort hægt verður að fá einu sinni 42 mörk (rúmar 36 kr). Gufuskipið Magnetic (Slimons) kom hingað í fyrra dag frá Skotlandi og með því 12 ferðamenn enskir, enn frernur alþingis- mað. f>orst. Jónsson læknir frá Vestmanna- eyjum. það fór aptur í gær með um 300 hross, er Coghill hefir keypt sunnanlands. það ætlaði að koma við á Seyðisfirði á út- leiðinni. Hölðingleg (lánargjöf. Samkvæmt ráðagjörð stórkaupmanns W. Fischers, áður en hann andaðist í vetur hefir ekkja hans (frú Arndís Teitsdóttir Finnbogason- ar) og sonur, stórkaupm. Fr. Fischer, lagt fje í sjóð, er nefnist W. Fischers legat, að upphæð 20,000 kr., með stofn- skrá dags. 28. f. m., er verja skal vöxt- unum af að hjer um bil 2/3 til styrktar ekkjum og börnum fátækra sjómanna í Gullbringusýslu og Reykjavík, er týna lífi fyrir slysfarir á sjó, og að '/3 hjer um bil til menntunar efnilegum sjómönnum úr sömu byggðarlögum, er verið hafa i förum 2 ár með verzlunar- eða kaupskip- um og reynzt iðnir og reglusamir og sýnt sig maklegan slíks styrks til að geta aflað sjer menntunar í sjómannafræði. Utbýting styrksins er falin landshöfðingja og aðaleiganda eða forstöðumanni Fischers- verzlunar í sameiningu. Fyrsta styrkveit- ing 13. des. 1890 (fæðingardag W. Fisc- hers). Eptir er að útvega kgl. staðfesting fyrir stofnskrá sjóðsins. Ycrðlaun af gjöf Jóns Sigurðssonar. Fyrir ritgjörð uin „þekking manna og hugmyndir um Jsland frd elztu tímum fram að siðahóF hefir verðlaunanefnd sú, er kosin var á álþingi 1887 (Eir. Briem, Ivristján Jónsson og Stgr. Thorsteinsson) dæmt höfundinum 400 kr. verðlaun af „gjöf Jóns Sigurðssonar-1. Höfundurinn reyndist vera adjunkt þorvaldur Thor- oddsen. A 1 þ i n g i. II. Allir þingmoilll eru nú komnir til þings, nema síra I.árus Flalldórsson, sem ókunnugt er um, hvort muni ætla sjer að koma eða ekki. Hafa nú engar tálmanir verið lagðar fyrir þingför embættismanna; fyrir Ben. sýslumann Sveinsson t. d. tekið gilt, að nágrannasýslumaðurinn (Einar Thorlacius) gegndi dómarasörfum fyrir hann um þingtímann. Skrifstofa alþingis. Skrifstofustjóri er kand. Gestur Pálsson. Skrifarar á skrif- stofunni: cand. juris Klemens Jónsson og i and. med. & chir. Björn G. Blöndal. Innanþingsskrifarar í neðri deild: cand. Jón Jakobsson og cand. theol. Morten Hansen; í efri deild: cand. juris Hannes Hafstein og bankagjaldkeri Halldór Jóns- son. Tolíjur prcsta. Nefnd sett í neðri deild í^>að mál, stjói'narfrumvarp, í gær: Gunnar Halldórsson, þ>orl. Guðmundsson, Páll Olafsson (skrif.), þ>órarinn Böðvars- son (form.) Arni Jónsson. Lögroglusamþykktir. Nefnd í þvi máli í gær í efri d. : Júlíus Havsteen (skrif.), E. Th. Jónassen og Árni Thor- steinsson (form.). Itaupstaðarlóðir. Nefnd í því máli í efri d., stjórnarfrv. um að fá útmældar lóðir á löggiltum kauptúnum: Júlíus Hav- steen (form.), Á. Thorsteinson, Arnlj. Olafsson. L. E. Sveinbjörnsson, E. Th. Jónassen (skrif.). Uppeldisstyrkur óskilgotinua barna. Nefnd i efri d.: Sighvatur Árnason, Arn- ljótur Olafsson, Jakob Guðmundsson. Landsroikningar. Nefnd i neðri d. i lagafrv. um samþykkt landsreikningar Olafur Briem, Páll Olafsson (form.) og~ porvarður Kjerúlf (skrifari). Fjárlög. Sjö manna nefnd sett í fjár- lagafrv. 1889—1891 í neðri deild í gær: Eir. Briem (skrif., 19 atkv.), Sigurður Stefánsson (19), Páll Briem (form., 18), þ>orleifur Jónsson (17), Jón Jónsson N.- J>ing. (15). Arni Jónsson (12), Sigurður Jensson (11). Allir hinir sömu og 1887. nema Sig. Jensson, i stað þ>órarins Böðv- arssonar. þingmaiuiafruinvörp eru þegar orðin 11, þar á meðal eru 6 um löggilding nýrra verzlunarstaða: Haukadals, Arn- gerðareyrar, Múlahafnar, Vogavíkur, Sval- barðseyrar og Hólmavikur í Steingríms- firði. Hin eru um gjaldheimtu til sýslusjóðs og sýsluvega (Arnlj. 01.), viðauki (frá sima) við safnaðarstjórnarlögin: um kostnað af hljóð- færi til kirkna og hljóðfæraslætti m. m.„ um styrktarsjóði handa alþýðufólki (porl Guðm.), um tekjur og umsjón kirkna (pór. Böðvarsson),um breyting á kosningalögum til alþingis (J. A. Hjaltalín). Mál út af kirkjubyggingu á Seyðis- firði, milli hreppsnefndarinnar þar og sókn- arprestsins, síra Björns porlákssonar, var dæmt í landsyfirjetti 17. þ. m., á þessa leið: Með skjali, dags. 9. okt. 1884 tókst þá- verandi hreppnefnd i Se)>ðisfjarðarhreppi þá skuldbindingu á hendur fyrir hreppinn, að greiða af fje hans til kirkjubyggingar á Seyðisfirði, allt að 2000 kr, á fjórum árum í gjalddögum 6. júní 1885—88 með 500 kr. árlega. Skuldbinding þessi var því skilyrði bundin, að presturinn og sóknarnefndin á næsta ári reyndi til, að fá með frjálsum samskotum það. sem upp á kynni að vanta til lcirkjubyggingarinnar, en ef nægilegt fje eigi fengist með þessu móti skyldi það er ávantaði greitt úr sveit- arsjóði. Litlu eptir samdi presturinn Björn poláksson, sem er umráðamaður kirkjunn- ar, um byggingu hennar, og var hún svo byggð upp árið 1885. Til frjálsra sam- skota stofnaði presturinn ásamt einum sókn- arnefndarmanni haustið 1885 og græddust við það 66 kr. en alls vantaði til lúkning- ar öllum kostnaði við bygginguna um 2,500 kr. Sumarið 1885 greiddi hrepps- nefndin prestinum Birni porlákssyni þær 500 kr. er áfjellu eptir samningnum 6. júní 1885, en síðar neitaði hun að greiða þær 500 kr. er áskilið var að greiða skyldi 6. júní 1886 og 1887. Presturinn Björn por- láksson höfðaði því í hjeraði mál gegn hreppsnefndinni, er með dómi aukarjettar Norðurmúlasýslu, uppkveðnum 15. ágúst 1888. var dæmd til þess, að greiða prest- inum tjeðar 1000 kr. en kostnaður máls- ins, sem báðir málsaðillar höfðu gjafsókn í, þar með talinn ferðkostnaður og fæðis- peningar hins setta dómara í málinu, skyldi greiðast af almennu fje. Dómi þessum hefir nú hreppsnefnd Seyðisfjarðarhrepps áfrýað og krafizt þess, að hann verði dæmdur ómerkur fyir þá sök, að setudómari sem skipaður var í málinu 25. júlí 1888, hafi framlagt ýms skjöl í málinu, en til vara, að dómarinn verði ó- merkur fyrir þá sök, að presturinn hafi lagt málið til sætta,sem umboðsmaður Vest- dalseyrarkirkju, en í undirrjettarstefnunni komi hann fram persónulega; sáttatilraun- in sje því eigi lögmæt. Að lokum ef þessar

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.