Ísafold


Ísafold - 06.07.1889, Qupperneq 4

Ísafold - 06.07.1889, Qupperneq 4
216 kröfur eigi verða teknar til greina, er krafizt sýknunar fyrir öllum kröfum og kærum í máli þessu og svo málskostnaðar. Aptur á móti hefir presturinn, ' Björn þorláksson, gagnáfrýað hinum uppkveðna dómi, og krafizt þess, að málinu sje vísað frá þar eð áfrýunarstefnan eigi hafi verið birt löglega þeim dómendum, er hafa haft málið til meðferðar í hjeraði, en til vara að honum verði dæmdar ofantjeðar 1000 kr. með 5°/0 vöxtum frá gjalddaga eða í það minnsta frá sáttakærudegi. Að lokum hefir hann krafizt þess, að undirdómarinn Einar Thorlacius verði látin greiða málskostnað fyrir báðum rjettum einn eða in solidum með hreppsnefndinni samt sæti sektum fyr- ólöglega meðferð og drátt á málinu. Skjöl þau, er hinn skipaði setudómari lagði fram hinn 25. júli 1888. geta eigi valdið ómerkingadómi. Gagnáfrýjandinn hefir lagt málið til sætta fyrir hönd Vest- dalseyrarkirkju sem umráðamaður hennar. og sem sá er annast hefir byggingu henn- ar, og síðan er ekkert framkomið, er breyti stöðu hans sem málsparts, og þar sem dómendur þeir. sem hafa baft málið til meðferðarí hjeraði, hafa viðurkennt, að áfrýjunarstefnurnar hafi verið þeim birtar, þá eru engar ástæður til. að taka ómerk- ingar- og frávísunar kröfur, þær sem eru gjörðar til greina. Aðaláfrýjandinn hefir byergt sýknunar- kröfu sína á því, að gagnáfrýjandinn hafi eigi fullnægt skilyrði því er sett var. að hann og sóknarnefndin skyldi leita frjálsra samskota til kirkjubyggingar. Hann einn hafi boðað til samskota með öðrum manni, en engin sóknarnefnd hafi þá verið til, af því, að kosning hennar hafi verið vanrækt álögboðnum tíma. Ennfremur hafi hrepps- nefndin ekki haft heimild til þess, að skuldbinda sig til alit að 2000 kr. tillags til kirkjubyggingarinnar, enda hafi sýslu- nefndin eigi lögformlega samþykkt þessa áskorun. Hreppsnefndin hafi skorað á sýslunefndina, að synja um samþykki, en í stað þess hafi sýslunefndin eptir uppá- stungu prestsinssamþykkt fyrir sitt leyti.að að þessi skuldbinding hreppsnefndarinnar væri gild, og gæti slík áskorun ekki stað- izt á móti yfirlýstum vilja hreppsefndar- innar. Eptir lögum 27. febr. 1880 á að vísu að kjósa til sóknarnefnda í júnímánuð ár hvert, en þó það dragist nokkuð einhverra orsaka vegna, á hin almenna regla. að slíkar eða samkynja nefndir starfi þangað til næstu kosningu er lokið einnig við hjer, enda er ekkert komið fram er sýni, að út af þessu hafi verið brugðið í þetta skipti. Sá maður, er ásam með prestin- um boðaði til samskota í september 1885 verður því að skoðast sem sóknarnefndar- maður. þ^að sjest nú reyndar eigi, að hún í þessu efni hafi komið fram fyrir hönd allrar sóknarnefndarinnar, en þó að tveir nefndarmennirnir eigi hafi boðað til samskota, þá getur það eigi haft þá af- afleiðing fyrir prestinn, sem sjálfur ásamt manni úr sóknarnefndinni hefir stofnað til samskot« að með fullum rjetti verði álit- ið, að eigi hafi verið fullnægt hinu setta skil- yrði, að gjöra tiLraun til þess, að ná sam- skot um. þessari niðurstöðu samrýmist það, að skilyrðið eigi áskiiur neitt um, hve ýtarleg eða yfirgripsmikil tilraunin eigi að vera, eða að samskotin þurfi að nema neinni ákveðinni aðalupphæð, ogað hrepps- nefndin sumarið 1885 skilyrðis- og fyrir- varalaust greiddi hina fyrstu afborgun. J>ar sem nú sýslunefndin að sínu leyti hefir samþykkt, að skuldbinding hrepps- nefndarinnar skyldi vera gild, verður eigi sýknunarástæða byggð á því, að hrepps- nefndin hinn 9. sept. i886 hefir farið fram á, að skuldbindingu hennar verði synjað um samþykki eptir 26. gr. tilsk. 4. maí 1872 nje heldur verður efast nm heimild sýslunefndarinnar til þes að gjöra slíka ákvörðun eins og' málið hjer liggur fyrir. Af fyrtöldum ástæðum ber hreppsnefnd Seyðisfjarðarhrepps að greiða prestinum Birni t>orlákssyni fyrir hönd Vestdalseyr- arkirkju þær 500 kr. sem áfjellu til greiðslu 6. júní 1886 eg 500 krónur, sem einnig fjelíu í gjalddaga 6. i887 samtals 1000 kr. með vöxtum 5% frá sáttakærudegi 18. júlí 1887 til þess borgað er. f>að verður að álíta mjög vítavert af sýslu- manni Einari Thorlacius, sem hafði mál þetta til meðferðar framan af, að hann neitaði sækjanda í hjeraði, að taka málið fyrir um rúman 6 mánaða tíma. sökum þess að úrskurði (interlocutorium) er hann hafði upp kveðið í málinu, og sem ákvað að málið ætti fram að ganga myndi verða áfrýað af mótpartinum (stefnda) og að sýslu- maður Ijet hann þvert ofan í bannið í til- sk. 17 maí iógo fá útskript af úrskurð- inum til áfrýjunarinnar. Fyrir þessa aðferð sína getur nefndur sýslumaður, sem hefir látið mæta fyrir sig hjer fyrir rjettinum, eigi komizt hjá, að sæta sekt samkv. 17. gr í tilsk. 15. ágúst 1832, sem ákveðst 50 krónur og rennur í fátækrasjóð Seyð- isfjarðarhrepps, en aptur á móti þykir eigi eptir atvikum málsins ástæða til, að skylda hann til að greiða gangfrýjanda málskostnað eptir kröfu hans. Málskostnaður fyrir báðum rjet.tum virð- ist eptir málavöxturn eigi að falla niður. Hinum skipaða talsmanni gagnáfrýjand- ans fyrir yfirdóminum ber fyrir flutning málsins 20 krónur, er greiðist honum af almannafje. Meðferð málsins, sem fyrir báðum rjett- um er flutt með gjafsókn, hefur að öðru leyti en áður ávikið verið i hjeraði víta- laus og flutningur þess fyrir yfirdóminum lögmætur. því dœmist rjett aff vera: Hreppsnefnd Seyðisfjarðarhrepps ber að greiða til prestsins Björns þ>orlákson- ar, sem umráðamanns Vestdalseyrarkirkju 1000 kr.—eitt þúsund krónur—með 5% vöxtum á ári frá sáttakærudegi til þess að greitt er. Málskostnaður fyrir báðum rjettum falli niður. Hinum skipaða tals- manni gagnáfrýjandans, Guðlaugi Guð- mundssyni ber fyrir flutning málsins fyr- ir yfirdómi 20 kr. er lúkist af almannafje. Sýslumaður í Norður-Múlasýslu Einar Thorlacíus greiði 50 króna sekt, er renni í fátækrasjóð Seyðisfjarðarhrepps. Dóminum að fullnægja innan 8 vikna frá lögbirtingu hans undir aðför að lög- um. AUGLYSINGAR í saraieldu máli með sraáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd. Hjer með eru gjaldendur Reykjavíkurbæjar aðvaraðir um að greiða gjöld sín, sem fjellu í gjalddaga 1. þ. m., hið allra fyrsta. Sjer- staklega eru þeir áininntir um að borga nú þegar, sem ætla sjer að fara í kaupavinnu, eða gera áreiðanlegar ráðstafanir til að gjöldin verði borguð fyrir þessa mánaðar lok, með því engin líðun verður veitt úr því. Reykjavík 6. júlí 1889. Björn Kristjánsson* (bæjargjaldkeri). TAPAZT hefir af hesti 8. þ. rn. á leið frá Kolviðarhól niður í Efrivötn þverbakstaska úr selskinni með ýmsu í, fatnaði o. fl. Skila skal gegn góðum fundarlaunum annaðhvort til Jóns á Kolviðarhól eða í biskupshúsið í Reykjavík. TAPAZT hefur hliðartaska á veginum frá Reykjavík upp í Fossvog; í henni var 10 króna seðill með fleiru. Finnandi er beðinn að skila henni á skrifstofu ísafoldar mót sanngjörnum fundarlaunum. Viðbætir við Kirkjusöngsbók með fjórum röddum eptir Jónas Helgason er nú út kominn. Fæst hjá J. Helgasyni og bóksala Sigurffi Kristjánssyni. Verðið er hið sama sem áður hefir auglýst verið. 2 kr. Bökmenntafjelagsfundur í Reykjavíkurdeildinni mánudag 8. þ. m. í leikfimishúsi barnaskólans kl. 5 e. h. — Kosin stjórn o. fl. TH0RVARDS0N & JENSIiN. BÓKBANDS-VERKSTOFA. Bankastræti 12 í hús Jóns Olafssonar alþm. . I itlimrpfni vor> sem AlsfAðar eru viður- l ai Gllll ágæt að vera og sæmd voru verðlaunum á sýningunni í Khöfn 1888, enda eru hin einu litunarefni í verzlunum, er samsett eru af æfðum og dugandi efn ið- ing,—hin einu litunarefni, er hver húsruóðir getur litað með fljótt og auðveldlega eins fallega og beztu litarar, fást hjá herra P. Thorsteinsson, Bíldudal. Bnch s Farvefabrik. Studiestræde 32. Kjöbenhavn K. Underiegnede Repræsentant for Det Kongelige Octroierede Almindelige Brandassurance Compagni for Bygninger, Varer og Effecter, stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modtager Anmeldelser om Brandforsikring for Syslerne Isafjord, Barda- strand, Dala, Snæfellsnes og Hnappadal, samt meddeler Oplysninger om Præmier etc. N. Chr. Gram. þ. |j- „ f4-íí (kaffiblendingur), sem má brúka »11*í* l tt eingöngu í -taðinn fyrir kaffi- baunir, fæst eins og vant er við verzlun H. Tll. A. Thomsens í Reykjavik, á 56 aura pundið. Sf*4> Heirðu kunningi! Gerðu svo vel og skil- aðu aptur sumar-yfirfrakkanurn sem þú tólcst t forstofunni i húsi Torfa prentara þorgrímssonar því ella mun hann verða sóttur. Almanak f>jóðvinafjelagsins 1890 er til sölu á afgreiðslustofu Jsafoldar. LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR fæst ókeypis hjá ritstjórunum og bjá dr. med. J. Jón- assen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýgingar. borngnpasafnio opió hvern iiiva. og ld. kl. I—2 Landsbankínn opinn hvern virkan dag kl. 10—12 Landsbókasatnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 4—6 útlán md„ mvd. og ld. kl. 6—7 aötnunarsjóðuiinn opinn 1. uiánud. 1 hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir 1 Reykjavik, eptir Dr. J. Jonassen. Hiti Júní 1 (á Celsius) Loptþyngdar- mælir(millimet.) Veðurátt. Júlí |ánóttu|um hád. fm. em. fm em. Mvd. 3.! +11 +12 767.1 764.5 S h d S h d bd. 4.I +11 | +13 767.1 769.6 S h d Sv h b Fsd. 5. 4- 9 1 +13 771.2 774.7 V h b V h b Ld. 6. + 9 | 774.7 N h 1) Eptir hina miklu utidanförnu vætutíð, birti loks- ins upp h. 5., og gekk hann til vestur-útnorðurs, siðan til norðurs með hæg. I dag 6. bjartur sól- kkin, hægur við norður. Ritstjón Björn JónsBon, cand. phil. Prentsmiðja ísafoldar.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.