Ísafold - 17.08.1889, Page 4

Ísafold - 17.08.1889, Page 4
2f>4 með því að slíkar uppástungur hefði eigi leg- ið fyrir henni áður, en miklu líklegra væri það til þess beldur en frumvarp neðri deildar. Framsögumaður (Jón A. Hjaltalín) gerði ýtarlega grein fyrir tillögum nefndarinnar. Jak. Guðmundsson ljet vel yfir samlags- viðleitni nefndarinnar og tillögum hennar; kvað sjer samt þykja skipuu efri deildar hjá henni alveg óaðgengileg. Arnljötur Olafsson bar tillögur nefndarinn- ar einkum sarnan við stjórnarskrána, sem nú er, og þótti það litla yfirburði hafa yfir hana. Kallaði, eins og fyr, hina fyrirhuguðu innl. ráðgjafastjórn skrifvjelabákn. Kvaðst þó mundu gefa málínu atkv. við þessa umr. Skúli porvarðarson talaði á móti tillögum meiri hlutans. Hjet þó að greiða atkvæði með málinu út úr deildinni, til þess að neðri deild fengi það aptur til meðferðar. Sighvatur Árnason ljet ekki vel yfir nýmælum þeim, er nefndin hefði komið með, aftók að veita þeim fylgi. Jön Ölafsson talaði langt erindi og ýtarlegt fyrir framgangi málsins, þótt hann væri eng- an veginn vel ánægður með skipun efri deild- ar hjá nefndinni. — þá frestaði forseti fundi. Prestsvígsla- Sunndaginn 11. þ. m. framkvæmdi hinn nýi biskup, herra Hallgrím- ur Sveinsson, sína fyrstu prestsvígslu, og vígði prestaskólakand. Eggert Pdlsson að Breiðabóls- stað í Fljótshlíð. Prestaskólaknnnari og sett- ur dómkirkjupr. síra jpórh. Bjarnason lýsti vígslunni. Gufuskipið Magnitic fór aptur ] fyrri nótt, með fram undir 200 hross, til Fáskrúðs- fjarðar, og ætlar þaðan til Skotlands. Verzlun. Nú er verð á saltfiski orðið almennt hjer í suðurkaupstöðunum 45 kr., og 42 kr. fyrir smáfisk. Sjálfsmorð. Vinnukona á Ægissíðu í Holtum, Guðrún að nafni, gjörði 4. þ. m. til- raun til að fyrirfara sjer (hengja sig). Lækn- ir var sóttur til hennar, en hans hjálp árang- urslaus. Dó hún svo 7. þ. m., en hafði áður fengið mál og rænu. Hún hafði verið þunguð af völdum manns, sem rauf síðan heit við hana. Lungnabólga stingur sjer niður hingað og þangað hjer syðra. A Eyrarbakka hafa dáið i\r henni 5 menn á skömmum tíma. • I>j0ðvegurinn nýi, sem nú er nær albú- inn á svæðinu milli Reykjavíkur og Elliða- ánna, fram hjá laugunum, fær ekki að vera í friði fyrir óhlutvöndum mönnum, sem fyr- irverða sig ekki að spilla honum með því að ríða og reka hesta þvert yfir um hann, hálf- gróinn á hliðunum, og róta honum upp þar sem hann er ekki nema hálfgjor. Vörzlu- steinum við brúna yfir Fúlutjarnarlæk hefir verið hrundið niður, líklega á náttarþeli. I stað þess að láta sjer þykja vænt um og gjöra sjer annt um jafn-vandað og nytsam- legt mannvirki og vegur þessi er, þá hafa menn hjer í frammi ótrúlega skrælingjalegan strákskap, þar sem þeir sjá slík eða þvílík nývirki, og enginn er til að aptra því. Landlæknir Schierbeck lagði af stað í dag í embættisskoðunarferð austur í Múla- sýslur, sunnanlands. AUGLÝSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd. par eð ekki er leyfilegt, samkvœmt opnu brjefi dags. 7. apríl 1840, að sami kaupmaður hafi opna sölubúð á tveimur stöðum í sama kauptúni, kalla jeg hjer með auglýsingu þá aptur, er stóð í Isafold 14. þ. m. um útsölu í Glasgowhúsinu á f/misk. eldri vörum. Enn skal jeg geta þess, að hinar tilteknu vörur hcfi jeg selt herra kaup- manni D. Thomsen hjer í bœnum. P- p- H. Th. A- Thomsen. Johs. Hansen. Samkvæmt ofan tandandi auglýsingu leyfi jeg mjer að tilkynna a menningi, að útsala verð. r haldin fyrir minn reikning í Glasgowhúsinu dagana frá 20. ágúst til 8. september, og eru vörur þær, er jeg hefi á boðstólum, einkum þessar: Karlmanns fjaðrastígvjel 7.00, g.oo, 11 00, seljast fyrir 4.00, 6.00, 8.00. Kvennmanns skófatnaður ýmisk., með 40—60% afslætti. Karlmannsgaloscher 4.00, seljast fyr- ir 2.00. Hattar harðir 1.50. Leðurvesti og skinnpelsar, fyrir hálfvirði. Járnvara ýmiskonar. Ymsar restir af góðum kramvörum. Kjólatau og aðrar álnavörur, með 40— 75% afslætti, o. m. fl. Nákvæmari skrá yfir vörurnar kernur út 20. þ. m. D. Thomsen. Hjer með er öllum bannað að ríða eða reka stóð og fjárrekstra eptir hinum nýja vegi frá Fúlutjarnarlæk áleiðis til Svínahrauns, á meðan hann ekki er fullgerður. Hver, sem brýtur á móti þessu banni, má búast við að verða sekt- aður. Amtmaðurinn í Suðuramtinu, Bvík ’89. E. Th. Jónassen. FJÁKMAEK Magnúsar Jónssonar í Sandgerði á Miðnesi: sýlt h., blaðstýft fr. v. og 2 bitar aptan. Brennimark M í Miðnesi. Á veginum frá Fossvogi að Hraunsholtslæk tapað- ist Imakktaska og olíukápa. Finnandi er beðinn að skila mót fundarlaunum til Helga Jónssonar kaupm. í Rvík. Forngripasafnið opið „hvern mvd. og ld. kl. i___2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 10—iz Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 4—6 útlán md„ mvd. og Id. kl. 6—7 Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir i Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen. Hiti j Loptþyngdar- j j' (á Celsius) mgelir(millimet.) Veðurátt. ágúst |ánóttu um hád. fm. em. fm. em. Mvd.i4.j 4-11 + '3 746.8 746.8 S h d S h d Fd. 15. +13 + 13 746.8 746.8 S h d O d ísd. i6.| 4 12 + 13 746.8 744.2 O b O d Ld. 17.J + 12 744-2 o„ Dimmviðri og rigning hjelzt við 14. og 15.; næsta dag bjart veður og logn, norðankaldi. í dag 17. blæjalogn og bjart veður að morgni. Kitstjón Björn Jónsson, cand. pbil. Prentsmið.ia ísafoldar. auguuum á þjer. — Segðu svo Antal, að það sje bezt fyrir hann að fara heim. — Svona nú, karl minn», mælti hann síðan við Nagy, «fáðu þjer nú sæti og skrafaðu nú við okk- ur». Karlinn var svo reiður og æfur, að hann gat ekki sagt neitt, sem uokkuð vit væri í, heldur var einlægt að stagast á því, að hann mundi aldri gefa samþykki sitt til, að sllkur ráðahagur tækist, jafnvel þó að allir væru á móti sjer. «|>að er nú gott og blessað», mælti veit- ingamaðurinn. «J>að er rjett af þjer, Nagy gamli, að vilja gera syni þínum og stjett þinni allt til sóma. En þú mátt ekki gleyma því, að veitingamaðurinn Irimy Istvan hefir skrif- að sem vottur undir erfðaskrána hans Dresis sáluga og veit því, að sonur þinn á eins mikið í mylnunni og þú sjálfur». «Já, ekki fyr en hann er orðinn uógu gam- all, en það verður ekki fyr en eptir þrjú ár. En strákurinn vill halda brúðkaupið núna á hvítasunnunni; svo hefir Neni gamla að minnsta kosti sagt rnjer*. «það er nú lítið að marka, hvað hún segir ker!ingarhrotan», mælti veitingamaðurinn, «og það er enginn óvitlaus maður, sem trúir því, sem önnur eins skraf-skjóða segir. Segðu mjer eitt, heimskinginn þinn: hvernig ætli þjer hefði þótt, ef kerlingin hún Lucasy hefði neitað þjer um dóttur sína og skotið þjer ref fyrir rass, eins og þú ætlar nú að gera Katizu? Og segðu mjer svo, fyrst þú vilt endilega að á það sje minnzt: varstu má- ske fyrir 25 árum annað eri iðnaðarsveinn frá Norður-Ungverjalandi, sem flakkaði um meðal rnanna? Hafðirðu þá alla þá peninga, sem þú ert nú svo drjúgur aí? Nú, svaraðu mjer, karl minn!» «jpað var allt öðru máli að gegna», mælti malarinn, gramur í geði. «Lucasy kerlingin var ekkja, og þá voru ekki margir hjer í sveit- inni, sem kunnu nokknð að malarastörfum. Hún mátti því verða fegin. að hún náði í mig fyrir tengdason». «Engar vífilengjur», mælti veitinnamaðurinn, «eða ertu búinn að gleyma því núna, að það var enginn annar en hann faðir minn, sem hitti þig, þar sem þú stóðst illur í skapi og búinn til ferðar, af því að hún Lucasy kerl- ingin vildi ekki sjá þig í húsum sínum. Og hver var það þá annar en hann, sem hjálpaði þjer og leiddi málið til lykta? það er reynd- ar nokkuð langt síðan, en þú sjer þó, að þeir eru til, sem muna eptir því». Malarinn varð óður og uppvægur við þetta og æpti: «Hvern fjandann kemur það öðrum við, hvernig það var eða hefir verið; jeg held mjer við mig það, sem er, og þjer skjátlast hrap- arlega, ef þú ætlar að jeg muni láta undan fyrir þetta raus þitt. Jeg verð einmitt við það helmingi verri og fastari fyrir». J>að mun nú ekki duga mikið», mælti Gy- orgu kaupmaður. «J>rjú ár eru ekki lengi að líða fyrir unga fólkinu, og ef Antal er eins þrár og einþykkur og þú, þá mun hann láta skipta peningum ykkar og öllum fjármun- umi. «það má hann fyrir mjer», æpti malarinn bálvondur, stökk upp og ætlaði að þjóta burfc, en veitingamaðurinn tók í handlegginn á hon- um og mælti í alvarlegum róm: «þú ætlar þá að fara? Nú, jæja, jeg skal ekki halda þjer, því að það er hvort sem er

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.