Ísafold - 30.11.1889, Page 3
383
iramfæris. En kæra má til sýslunefndar. sje ó-
jöfnuði beitt i þessu efni.
296. Jeg er búinn að vera í N.-hreppi hálft
tíunda ár, og engan sveitarstyrk fengið, en borg-
að til sveitar það sem mjer var gjört að borga.
Er þá rjett af sveitarnefndinni að vísa mjer burt,
þar jeg er búinn að borga til sveitar í 10 ár, og
byrjaði veru mína þó i hreppnutn með því að
kaupa lausamennskubrjef fyrir 60 krónur ?
Sv.: Nei, ekki eru lög til þess.
297. Ef mjer er byggð jörð með byggingarbrjefi
og tiltekið, að jeg skuli hafa öll not jarðarinnar
er þá ekki heimildarlaust fyrir eiganda að hafa þar
útveg sinn borgunarlaust, eða ber honum eigi að
greiða mjer sanngjarna þóknun fyrir?
Sv.: Jú, hafi annað eigi verið áskilið í bygg-
ingarbrjefinu.
298. Eiga tómthúsmenn með að hafa fje og
hross í högum að jarðarábúanda fornspurðum og
endurgjaldslaust til hans ?
Sv.: Práleitt ef jarðarábúandi er einnig eigandi,
og ekki heldur þótt hann sje leiguliði, nema lands-
drottinn hafi áskilið annað í byggingarbrjefinu eða
gömul venja helgi það, eldri enrjettur ábúandans,
sem nú er.
299. Er það rjett, að láta hunda þurrabúðar-
manna komast undan hundaskatti?
Sv.: Nei, ekki ef þurrabúðarmaðurinn á engar
skepnur til að hirða og hefir ekkert tún eða engj-
ar til að verja.
Befndin.
«Bölvaður fanturinn», sagði annar þeirra
fjelaga; «hann efnirþað víst, sem hann lofar,
að skjóta á okkur. Eg vildi að fjandinn
næði nú í hann».
«Betur að sú ósk rættistx, rómuðu þeir fje-
lagar allir og kepptust við að komast sem
lengst út á ísinn. Tíras hafði orðið á eptir,
því hann hafði komizt á för merkjavarðanna.
«Tfras»! kallaði Bornemann; hann saknaði
ekki rakka síns fyr en hann var kominn
spölkorn út á ísinn; en hundurinn heyrði
ekki. Feldberg var einmitt að stíga iit á
ísiun, er Tíras kom að honum og rjeðst á
hann með urri og grimmum aðgangi. í sama
bili reið skot af marghleypu Feldbergs; hund-
urinn rak upp vein, og var síðan allt kyrrt.
«Hvað skutuð þjer, Feldberg?#, gall við rödd
úr flokki þeirra inerkjavarðanna.
«Hundinn hans Bornemanns,» svaraði Feld-
berg. «Nú er hann loks frá».
|>etta heyrðu þeir fjelagar glöggt; því
þeir voru undan vindi.
Bornemann varð mikið um. Hann kallaði
npp: «Guðlausi níðingur! þú skalt fá að
Fatnaðarsýning.
Næsta mánudag og þriðjudag kl. 9—2 verða ]
í Glasgow, stóra salnum, sýnd sýnishorn af |
ýmsum klæðnaði fyrir karla og konur : vetrar-
yfirfrakkar, jakkaföt, drengjaföt, barnakjól-
ar, kvennnærföt og karlmannanærföt, morg-
unkjólar, herðasjöl og kragar, höfuðbúningar,
flókaskór, skrautstígvjel frá Wien o. fl. |>ar
verður ekkert selt; en menn geta keypt þessi
föt og skófatnað í búð minni næstu daga á
eptir.
Föt þessi voru mjer send til sýnis.
Keykjavik 29. nóv. 1889.
Björn Kristjánsson.
Miklar birgðir af pappír og umslög-
um, ritföngum, myndabókum, jólakortum o.
fl. o. fl. komu nú með póstskipinu í papírs-
verzlun Isafoldarprentsmiðju (Austurstrœti 8)
allt með afbragðsverði, eins og vant er.
Skiptafundur
í búi Sigurðar Magnússonar verður haldinn
hjer á skrifstofunni mánudaginn 9. des. nœstk.
kl. 12 á hádegi, til að gjöra ráðstöfun um
útistandandi skuldir búsins.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 30. nóv. 1889.
Halldór Daníelsson.
kenna þrælmennsku þinnar, svo þjer ríði að
fullu».
Feldberg rak upp kaldahlátur og mælti.
«Bg skal nú uudir eins gefa þjer tækifæri til
að hefna rakka þíns; en fyrst ætla eg þó að
vita, hvort kúlan sú arna ratar ekki til
þín».
«Beygðu þig Bornemann; það er skotið á,
þig», kallaði einn þeirra fjelaga, um leið og
hann kippti Boruemann að sjer og fleygði sjer
ofan á svellið; en kúlan hvein í loptinu og flaug
ytir höfðum þeirra. Heyrðu þeir þá bæði, að
Feldberg hlóð byssuna aptur, og að ísinn
brakaði uudir fótum hans.
«Feldberg!» kallaði einhver úr hans flokki,
«hvað ætlið þjer? |>jer eruð þó ekki að hugsa
um að elta þá yfir fljótið».
«það ætla eg reyndar; en því komið þið
ekki með?»
Nei; svo er fyrir þakkandi, að slíkir gapar
erum við ekki».
«Jæja, eg ætla þá að reyna að viuna fyrir
þessum 500 dölum einn, fyrst enginn ykkar
þorir að fylgja mjer,» mælti hann og hjelt
svo áfram.
Með fengnu leyfi háyfirvaldsins, auglýsist
hjer með, að haldin verður »Tombola“ f næst-
komandi janúarmánuði í hinu nýja barnskóla-
húsi hjer í hreppi til ágóða fyrir »barnaskdla
hreppsins«.
Vjer, sem ritum nöfn vor hjer undir, leyf-
um 03S hjer með virðingarfyllst að biðja alla
góða menn, sem vilja styrkja þessa stofnun
með gjöfum í munum eða peningum, að af-
henda oss það, sem þeir í því skyni vildu
láta af hendi.
f>ess skal getið, að Jón kaupmaður Bjarna-
son í Hafnarfirði hefir góðfrislega tekizt á
hendur einnig að veita móttöku því, sem gef-
ið kynni að verða til Tombólunnar.
Bessastaðahreppi í nóvember 1889.
Erl. Erlendsson. Guðleif Erlendsdóttir.
Sveinb. Sveinsson. Jón Tómasarson.
Sigþrúður Jonsdóttir. Jón Einarsson.
Guðjón Erlendsson Valgerður Jónsdóttir.
Magnús þorsteinsson. Jón þórðarson.
Sigriður Tómasard. Guðlaug Bjarnard.
það hefur dregizt helzt til lengi, að gjöra eptir-
lýsingar í blöðunum á járnbentu eikarkvartili til-
slegnu, með áskript á botni þess: „0. K. Sœmunds-
son t l Flateyar“, er vantar af farangri þeirra
hjóna, Sæmundar Jokkumssonar og Dagbjargar
Daðadóttur með júníferð strandferðaskipsins
„Laura11 fiá Isafirði til Elateyar. í því var ýmis-
legt er verði nam, meðal annars kaffimaskina, sem
kostaði 10 kr. Hafi það ai vangá eptir orðið í
skipinu, þá hinn farangur þeirra hjóna var fluttur
upp í Flatey, og verið síðan lagt upp á öðrum
stöðvum strandferðaskipsins, Stykkishólmi, Reykja-
víkur eða hvar helzt aunarstaðar, þá er vinsamleg
bón lijern'efnds Sæmundar Jokkumssonar, að hon-
um verði nú g'jört þar um aðvart, að Mýrartungu
í Reykhólasveit. Lofar hann borgutv fyrir geymslu
og hverja aðra fyrirhöfu, sem þetta hefur í för
með sjer.
Hermetic
nykommen til undertegnede :
Röget Brisling i Kraft, * & þ Daaser
— — i Olie i —
Afkogt Sild i Kraft a —
Brisling á la Sardine þ —
Aal i Olie J —
Anchovis þ & £ Daaser.
M Johannessen.
10 Aðalstræti 10.
«Hann er rjett kominn á hælana á okkur»,
kallaði einn af tollsmyglunum; «við skulum
flýta okkur; annars nær hann okkur».
þetta var ekki um skör fram mælt; því
þótt þeir væruð um einn, voru þeir þó vopn-
lausir, en hann hafði ágæta margleypu hlaðna,
og var því ekki viðlit fyrir þá að ráðast á
hann; en að komast undan var líka hæpið;
reyndar var kippkorn á milli þeirra, og var
þeim hægt að hafa undan, meðan þeir voru
úti á ísnum; en svo tók landið við. Meira
en 100 feta háir bakkar eru eigi greiðir upp-
göngu í hálku og myrkri, og var því Feld-
berg hægt að skjóta þá þar hvern af öðrum.
Fyrir því var þeim fjelögum mest um það
hugað, að undan drægi sem lengst, og hefði
þeim heldur eigi orðið það auðvelt, ef óvænt-
ur atburður eigi hefði orðið þeim til bjargar.
Jpeir voru komnir nærri út á mitt fljótið,
en Feldberg svo sem 200 skref frá landi.
f>á heyra þeir kallað og hrópað á hjálp.
«Skyldi hann nú hafa dottið ofan í, mann-
skrattinn?» mælti Bornemann. Aptur var
hrópað: «Hjálp!»
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd.
Ef nógu margir nemendur óska þess, verð-
ur tilsögn í skript, rjettritun, reikningi, dönsku
og uppdráttarlist veitt í sunnudagaskóla Iðn-
aðarmannafjelagsins í Reykjavík í vetur, gegn
10 a. borgun um klukkutímann í hverri þess-
ari námsgrein fyrir sig, en kennslusveinar
meðlima Iðnaðarmannafjelagsins borgi að eiris
5 aura um klukkutímann. þeir, sem þessu
vilja sinna, eru beðnir að snúa sjer í því til-
liti til leturgrafara Árna Gíslasonar innan 10.
dags næstkomandi desembermán.
A t v i n n a.
Kvennmaður, sem lætur vel að sauma á
saumavjel, getur fengið nokkra atvinnu hjá
undirskrifuðum hvern virkan dag kl. 9—12 f. m.
Reykjavík 29. nóv. 1889.
Björn Kristjánsson-
Skiptafandur
í dánarbúi fyrrum kaupmanus Magnnsar
Jónssonar á Bráðrœði verður haldinn hjer á
skrifstofunni mánudaginn 9. des. nœstk. kl. 1
e. hád. til að útkljá, hverjar skuli telja tekjur
búsins.
Bæjarfógetinn í Reykjavik 30. nóv. 1889.
Halldór Daníelsson.
/ Stór Jóia-Bazar.
1 hinni nýinnrjettuðu dömu-búð minni verð-
ur nú uppstilltur fyrir jólin stór og marg-
breyttur Jóla Bazar af fásjeðum jólagjöf-
um, sem nýkomnar eru nú með »La«ra«.
Einnig hef jeg íengið miklar byrgðir af
klæðavöru, allavega litu flaueli. Stórar byrgðir
af krögum og flibbum, mikið af vatti í plöt-
um, allavega lit vetrarsjöl, 10 sortir af Cho-
colade, og margt, margt annað fleira.
Sem fyr sagt, þá hef jeg miklar byrgðir af
alls kouar matvöru við verzlun mína.
Revkjavík 29. nóvbr. 1889.
W. O. Breiðfjörð.